Morgunblaðið - 11.12.2005, Blaðsíða 28
Laugarásbíó
Leikstjóri: Peter Jackson (Hringadrótt-
inssaga I-III)
Aðalleikarar: Naomi Watts, Jack Black,
Adrien Brody, Andy Serkis, Thomas
Kretschmann, Colin Hanks.
Engrar myndar er beðið með ann-
arri eins óþreyju um heimsbyggðina
og þessarar nýjustu endurgerðar
King Kong. Sagan er ódauðleg og
leikstjórinn Jackson, er af mörgum
talinn hin nýja von kvikmyndaheims-
ins eftir stórvirkin þrjú, kennd við
Hringadróttin. Verkið sem hann
kaus að gera á eftir þeirri einstöku
sigurför, er byggt á samnefndri
mynd sem setti allt á annan endann
fyrir rúmum 70 árum, og varð sam-
stundis sígild.
King Kong segir af mikilli ævin-
týraferð leikstjórans Carls Denham
(Black), sem heldur ásamt tökuliði
suður á bóginn, í leit að hinni dular-
fullu Hauskúpueyju og hefur í raun
fátt annað en munnmæli að fara eft-
ir.
Með í för slást handritshöfund-
urinn Driscoll (Brody), leikkonan
Darrow (Watts), en Kreppan mikla
er í algleymingi og þau stökkva bæði
á atvinnutilboð Denhams.
Siglt er í þoku og mistri og landi
náð á Hauskúpueyju þar sem enginn
hefur stigið fæti í árþúsundir. For-
söguleg dýr vappa um skóga og
merkur og eitt sinn, í miðjum tökum,
heyrist ógnarlegt öskur. Þar er
mættur górilluapinn risavaxni, sjálf
titilpersónan.
Leikurinn berst til New York og
siðmenningarinnar og verður for-
vitnilegt að sjá hvernig snillingnum
Jackson og hans góða og Óskars-
verðlaunaða fólki tekst til við að
fanga þetta stórvirki frá upphafi tal-
myndanna og endurgera með brell-
um nýrrar aldar.
Það verður enginn annar en Andy
Serkin, sem átti röddina hans Goll-
ums, sem afgreiðir sömu hluti fyrir
King Kong, en báðar þessar til-
komumiklu ævintýrapersónur eru
tölvugerðar. Serkin mun einnig
bregða fyrir í hlutverki brytans á
gufuskipinu sem flytur þau til Haus-
kúpueyju og heim aftur. Sem rifjar
upp smáhlutverk meistara Chaplins í
síðasta stórvirkinu hans.
Sjónrænar brellur verða unnar af
Weta Digital á Nýja Sjálandi, undir
stjórn Óskarsverðlaunahafanna fyrir
Hringadróttin. Í þeirra hlut kemur
að endurskapa Hauskúpueyju og
Manhattan, með Empire State bygg-
inguna og útlit fjórða áratugarins.
Spurningin er, fær mannskap-
urinn og myndin Óskar enn á ný?
STONE-FJÖLSKYLDAN —
THE FAMILY STONE
Frumsýningardagur: 16. des.
Sýningarstaðir: Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Thomas Bezucha (Big Eden)
Aðalleikarar: Claire Danes, Tyrone Giord-
ano, Diane Keaton, Rachel McAdams,
Dermot Mulroney, Craig T. Nelson, Sarah
Jessica Parker, Elizabeth Reaser, Paul
Schneider, Brian J. White, Luke Wilson.
Framleiðendur klassíkurinnar
Sideways standa á bak við jólamynd-
ina The Family Stone, það lofar
góðu. Þessi vel mannaða gaman
F
jölbreytnin setur svip
sinn á jólamyndirnar
í ár og er það vel við
hæfi því þannig hefur
bíóárið verið í heild.
Líkt og undanfarinn
áratug eða svo teygja
þær sig allt frá síð-
ustu sýningarhelgi nóvembermánað-
ar fram á þá fyrstu á nýja árinu.
Þegar myndirnar eru skoðaðar
nánar er augljóst að allir eiga að
finna eitthvað við sitt hæfi en eins og
lög gera ráð fyrir eru fjölskyldu-
myndirnar mest áberandi, þar af
nokkrar ósviknar „jólamyndir“. Ein
íslensk bíómynd skýtur upp kollin-
um, jafnt og stórmyndir sem heim-
urinn hefur beðið eftir með öndina í
hálsinum. Til viðbótar tvær hroll-
vekjur til að minna okkur á að því
miður er lífið ekki tómur dans á rós-
um. Ekki einu sinni í mánuði hátíðar
ljóss og friðar.
Hvað sem því líður, þá verða bíó-
jólin stórglæsileg í ár eins og sjá má
svart á hvítu hér á eftir.
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
Frumsýningardagur: 25. nóvember
Sýningarstaðir: Sambíóin, Háskólabíó,
Laugarásbíó
Leikstjóri: Mike Newell (Donnie Brasco,
Four Weddings and a Funeral)
Aðalleikarar: Daniel Radcliffe, Rupert
Grint, Emma Watson, Tom Felton, Brendan
Gleeson, Frances De La Tour, Robbie
Coltrane, Gary Oldman, Ralph Fiennes,
Miranda Richardson, Alan Rickman, Dame
Maggie Smith, Timothy Spall.
Myndirnar og bækurnar um töfra-
strákinn og undraveröld Harrys
Potter, hafa eignast ótrúlegan aðdá-
endafjölda og hann lætur sig ekki
vanta þegar þær koma markaðinn.
Allt bendir til þess að sú nýjasta,
Hary Potter og eldbikarinn, verði
vinsælust þeirra allra. Potter (David
Radcliffe), er jú aðeins að eldast eins
og aðrir, ævintýrin þar af leiðandi
rómantískari, svæsnari og ennþá til-
komumeiri.
Í fjórðu myndinni hefur Weasley-
fjölskyldan boðið Harry að dveljast
hjá þeim síðustu vikurnar í sumar-
fríinu áður en hann sest á skólabekk
fjórða veturinn sinn við Hogwart.
Í nýju myndinni stendur Harry
Potter frammi fyrir mestu áskorun í
lífinu, þegar honum er á dularfullan
hátt boðið að taka þátt í hinum svo-
kölluðu þrígaldraleikum. Um er að
ræða alþjóðlega, erfiða og harðsnúna
meistarakeppni og eru keppinautar
hans eldri og lengra komnir við
Hogwart og tvo aðra og illræmda
galdraskóla í Evrópu; Beauxbatons
og Durmstrang.
Á meðan skelfa fylgjendur Volde-
morts, lávarðarins illa (Fiennes),
galdraheiminn, þegar þeir senda boð
um að hann sé að undirbúa að yfir-
taka hann á nýjan leik. Harry lendir í
ýmsum óþægindum og erfiðleikum
vegan keppninnar, m.a. útistöðum
við Ron og fyrstu kærustuna sína.
Ótrauður ákveður hann engu að síð-
ur að leggja allt af mörkum til að
halda uppi merkjum Hogwarts, sigra
hið illa og persónugerving þess
Voldemort lávarð, sem byrlar Harry
banaráð, og síðast en ekki síst, vinna
ástina sína. Hampa Eldbikarnum í
lokin og ná tökum á nýjum töfrum,
kynnast nýjum leyndardómum.
GLEÐILEG JÓL — NOËL
Frumsýningardagur: 2. des.
Sýningarstaðir: Sambíóin, Háskólabíó
Leikstjóri: Chazz Palminteri (Bronx Tale)
Aðalleikarar: Penélope Cruz, Susan Sar-
andon, Paul Walker, Alan Arkin, Marcus
Thomas.
Það er aðfangadagskvöld í New
York, þegar fimm einstaklingar
komast að því, með hjálp hvers ann-
ars, og enn frekar af eigin verð-
leikum, að stundum eru kraftaverkin
nær en nokkurn grunar. Öll finna
þau í kjölfarið nýjan skilning á merk-
ingu jóladagsins.
Rose (Sarandon), gengur mjög vel
í starfi sínu sem útgefandi en einka-
lífið er í mesta rusli. Hún þarf einnig
að sjá um aldraða móður sína og
finnst lífið harla vonlaust og tilgangs-
lítið þegar Charlie – óvæntur vinur –
kemur í heimsókn. Hann minnir
Rose á að enginn er í rauninni einn á
jólunum.
Lögreglumaðurinn Riley (Walk-
er), er búinn að ákveða að eyða hátíð-
unum með Nínu (Cruz), kærustunni
sinni, þegar vænisýki hans og af-
brýðisemi hrekur hana á dyr. Nína
flýr í fang ættingja sinna og hyggst
gleyma Riley. Í fjarveru unnust-
unnar kemst Riley að því hjá
ókunnugum manni (Arkin), hvernig
afbrýðisemin getur rústað lífsham-
ingjunni. Þetta eru tvær af lærdóms-
ríkum og uppbyggilegum sögum í
ósvikinni jólamynd, skrifaðri og leik-
stýrðri af handritshöfundinum og
leikaranum Paliminteri.
Sarg II — SAW II
Frumsýningardagur: 2. des.
Sýningarstaðir: Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Darren Lynn Bousman (Saw)
Aðalleikarar: Donnie Wahlberg, Shawnee
Smith, Tobin Bell, Franky G., Glenn
Plummer, Dina Meyer, Emmanuael Vaug-
ier, Beverley Mitchell, Eric Knudsen.
Á meðan Eric Matthews, lög-
reglumaður (Wahlberg), rannsakar
blóðidrifinn vettvang hrottalegs
morðs, fær hann á tilfinninguna að
hér sé Jigsaw að verki, dularfullur
morðingi, sem skildi eftir sig röð af
líkum og illa leiknum líkamshlutum.
Hann hefur á réttu að standa, Jig-
saw er tekinn til við fyrri iðju, en í
stað þess að loka tvo inni í rými með
aðeins eina, þó ólýsanlega viðbjóðs-
lega útgönguleið, hefur hann notað
átta, saklausa borgara. Nú lokar
hann fórnarlömbin inni í húsi þar
sem banvænt taugagas svífur um í
loftinu. Fólkið þarf að hafa hraðann á
og reyna að komast út áður en gasið
dregur það til dauða en það sem það
veit ekki er að gildrur leynast á
hverju strái sem geta verið jafn ban-
vænar og gasið!
ICE HARVEST
Frumsýningardagur: 9. des.
Sýningarstaðir: Smárabíó, Regnboginn,
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Harold Ramis. (Analyze This,
Groundhog Day).
Aðalleikarar: John Cusack, Billy Bob
Thornton, Connie Nielsen, Randy Quaid,
Oliver Platt.
Ef myndin Ice Harvest nær anda
bókarinnar, þá búið ykkur undir
svartagallshúmor-mynd ársins!
Það er aðfangakvöld í snjóþungri
Wichita í Kansas, með sínum flug-
hálu götum og skuggasundum. Að
þessu sinni hefur löggepillinn Arglist
(Cusack), aldrei þessu vant, ástæðu
að hlakka til jóladagsmorguns. Eitt
sinn efnilegur lögfræðingur, en lét
sig reka undan ábyrgð lífsins niður í
undirheima klám- og vændisheima
borgarinnar, hefur þaulhugsað áætl-
un um að góma rösklega tvær millur
dala húsbænda sinna og meðeigenda,
láta sig hverfa á braut um nóttina og
vera kominn þvert yfir hnöttinn áður
en harðnaglarnir eru búnir að opna
alla jólapakkana, hvað þá að komast
að svikunum!
Arglist hefur gabbað aðalmafíós-
ann (Quaid), með aðstoð félaga sins
(Thornton), og ætlar að taka
draumadísina með sér á braut,
klámdrottningu borgarinnar (Niel-
sen).
Jafnvel útpældar áætlanir í ystu
æsar geta brugðist og Arglist fær að
kynnast því í fimbulvetri Kansas,
með sínum moðvolgu strippbúlum,
og jafnvel því óhugsandi, að til eru
jafnvel betri bílar en Lincoln Cont-
inental! Thornton er farinn að hafa
atvinnu af „öðruvísi“ jólamyndum, ef
þið höfðuð gaman af Bad Santa, þá er
þessi mun geggjaðri og betur skrifuð
og hefur til viðbótar Cusack og
Quaid innanborðs.
KING KONG
Frumsýningardagur: 14. des.
Sýningarstaðir: Sambíóin, Háskólabíó,
Bráðum koma bíójólin
Atriði úr teiknimyndinni Draumalandið sem hefur verið talsett á íslensku. Bara vinir er rómantísk gamanmynd með Ryan Reynolds í aðalhlutverki.
Fjölbreytt úrval kvikmynda
verður á boðstólum í kring-
um jólin og er jólavertíðin
reyndar þegar hafin í kvik-
myndahúsunum. Sæbjörn
Valdimarsson greinir frá
jólamyndunum.
Mikið gengur á í þeim undraheimum, sem færðir eru á hvíta tjaldið í myndinni Narnia.
Narnia er byggð á sögu C.S. Lewis þar sem skapaður er heill ævintýraheimur.
28 SUNNUDAGUR 11. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ