Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 6
6
TÍSKA
Dúnúlpurnar eru komnar aftur
svo nú er annaðhvort málið að
finna einhvers staðar gamla
dúnúlpu eða fá sér eina nýja.
Dúnúlpurnar eru annaðhvort
mittis- eða mjaðmasíðar og ei-
lítið aðþrengdar eða líka hné-
síðar. Þótt tískulitirnir séu sterkir
er klassískt að fá sér eina í svörtu
eða dökkbláu.
YFIRHAFNIR FYRIR VETURINN
Það er ýkt kalt úti. Og mann langar helst til að fara ekkert fram úr heldur kúra bara
uppi í rúmi, hver þarf svosem að fara í skólann eða vinnuna? Upp nú, dröslast fram úr
og finna eitthvað til að fara í, föðurlandið og ullarbolurinn eru kannski freistandi en
ekkert sérlega töff en í staðinn er hægt að finna svo margt annað til að líta flott út í –
jafnvel þótt það sé ískalt úti.
Yfirhafnirnar sem eru í tísku í vetur eru guði sé lof í hlýrri kantinum, þ.e. pelsar –
en þeir eru hvað heitastir núna. Þú verður hreinlega að fá þér einn loðinn og fínan
sem þú getur hjúfrað þig í á meðan þú berst við norðanvindinn. Ektapels veitir
náttúrulega hvað mesta hlýju en það er hægt að fá sér gervipels svona til að „þykj-
ast“ eða þá að fá sér ekta eða gervimokkakápu þar sem þær eru líka heitar.
En sumir eru ekkert til í að ganga um í einhverju „dauðu dýri“ eða
einhverju sem líkist því, heldur vilja frekar eitthvað annað. Tísku-
heimurinn reddar því að sjálfsögðu og koma hnésíðar kápur með svo-
litlu hermannaútliti sterkar inn. Og þá er málið tvíhnepptar kápur,
frekar beinar í sniðinu og með belti um mittið í andspyrnuhreyfing-
arstíl. Kápurnar eru aðallega hnésíðar en einnig dragsíðar og fyrir
þær sem geta er rosalega flott að fá sér eina alveg skósíða.
Í stíl við seinni heimsstyrjöldina eru líka jakkar sem eru mittissíðir. Flott fyrir þær sem
geta ekki gengið í mjög síðu. Þetta eru oftast tvíhnepptir sjóliðajakkar með frekar ein-
földum kraga og tiltölulega beinu eða eilítið aðþröngu sniði í rússneskum stíl. Bæði fyr-
ir kápurnar og jakkana eru drappaður, svartur eða þá alveg hvítur helstu litirnir.
Svo eru stuttar slár með eilitlu Sherlock Holmes-sniði
líka inn. Þær eru ekki síðar eins og sú sem Sherlock
Holmes átti heldur frekar mjaðmasíðar slár úr grófu
efni með eilítið víðum ermum. Fyrir þær sem eru að-
eins litaglaðari getur þessi flík verið fullkomin þar sem
þar bætast fleiri litir í hópinn eins og tískulitirnir í vet-
ur: Appelsínugulur, grænblár, blár og fjólublár.
Fyrir strákana eru frakkar líka geð-
veikt kúl. Pelsarnir eru kannski
ekki alveg málið fyrir þá en í stað-
inn eru mokkajakkarnir rosaheitir
fyrir strákana. Hnésíðir hlýir
mokkajakkar eru málið fyrir strák-
ana ef þeir vilja ekki ullarfrakka
eða frjósa úr kulda í einhverjum
jakkafatajakka. En svo eru líka
gömlu flugmannaleðurjakkarnir
með loðkrögunum inn.
Umsjón
Laila Pétursdóttir
Yfirhafnirnar sem eru í tísku í vetur eru guði sé lof í
hlýrri kantinum