Morgunblaðið - 15.12.2005, Blaðsíða 7
Við erum öll skíthrædd við að fara í jólaköttinn eða notum
hann að minnsta kosti sem afsökun til að fá okkur ný föt fyrir
jólin. Það er líka svo hátíðlegt og yndislegt að sjá alla upp-
strílaða og flotta í jólaboðunum og það er ekkert gaman að
fara alltaf í það sama ár eftir ár. Jólin eru þess vegna tilvalinn
tími til að kaupa sér eitthvað nýtt og fallegt.
JÓLAFÖTIN
UPPSTRÍLUÐ OG FLOTT
Umsjón
Laila Pétursdóttir
Fyrir stráka eru stakir jakkafatajakkar við
buxur í öðrum lit mikið í tísku þessa dag-
ana en fyrir jólin væru hefðbundin jakka-
föt kannski betri. Í ár klikka strákar ekki
ef þeir eiga grá teinótt jakkaföt en ann-
ars henta líka dökkblá og svört jakkaföt.
Það getur líka verið skemmtilegt að fá sér
einhver öðruvísi jakkaföt eins og köflótt
svona aðeins til að breyta til. Að fá sér
vesti undir jakkafötin er líka mikið í tísku
þessa dagana og vera þá í teinóttri
skyrtu við. Svo er hægt að vera alveg stíl-
hreinn með einfalda skyrtu og bindi eða
velja sér v-hálsmálspeysu í fallegum
tískulit og skyrtu undir hana. Ein-
staklega herralegt og fínt fyrir þá sem
líður eins og kyrktum ketti þegar þeir
eru með bindi.
Í vetur eru líka alls lags litlar opnar peysur, erm-
ar og blúndur í tísku sem er gott að henda yfir
kjól til að gera hann fínni. Ef þú átt t.d. kjól sem
þig langar að vera í á jólunum er gaman að
skreyta hann með slíku þar sem heildarútlitið
breytist heilmikið með svona einu litlu atriði.
Í staðinn fyrir að fá sér kjól sem maður
getur bara notað við einstaka tæki-
færi getur verið sniðugt að fá sér
flottan bol sem þú getur líka notað
við önnur tækifæri. Kaupa þá bol
með pallíettum eða öðru skrauti.
Einhvern sem er skrautlegur og fal-
legur en samt ekki of fleginn svo
þú sért ekki að flassa alla fjölskyld-
una. Við bolinn geturðu svo feng-
ið þér einhverjar fallegar buxur
sem þú getur notað í vetur eða
þá fallegt pils eins og bjöllupils
eða pils með bróderuðu skrauti.
Það getur verið gaman að fá
sér svona tvær flíkur þar sem
þú getur líka notað þær við
aðrar flíkur sem leynast inni í
skáp.
Nauðsynlegt er að fá sér ein-
hverja flotta skó við gallann. Og þá
er skemmtilegra að fá sér einhverja
fallega kvenlega skó. Stígvél eru
klassísk en það getur verið gaman
að leyfa fallegu fótunum að njóta
sín á jólunum. Veldu þér skó með
slaufu, ökklaböndum eða í ein-
hverjum öðruvísi lit eins og appels-
ínugulum eða silfruðum. Í lokin ætt-
irðu að skreyta þig aðeins með skart-
gripum. Eins og löngum og stuttum háls-
menum með alls lags perlum, steinum og
öðru skrauti. Ekki ofhlaða þig af skartgripum
heldur veldu frekar einn eða tvo sem þú getur ekki verið
án svo þú farir nú ekki að skyggja á jólatréð.
Settu þá upp rannsóknar-gleraugun og farðu á Grund-
arstíg. Þú gengur eftir stígnum vinstra megin þar til þú
sérð hvít fótspor á gangstéttinni, það er að segja komir þú
Laugavegsmegin frá. Fylgdu þeim. Þú munt að öllum lík-
indum staldra við þegar þú sérð álfa í villtum dansi í garð-
inum, tré skreytt eins og jólatré og svan baða sig í lítilli
tjörn. Þegar þú hefur dáðst að þessu um stund, fylgdu þá
hvítu fótsporunum nokkur skref í viðbót. Reistu höfuð,
kæri leikmaður, því við þér ætti nú að blasa lítið fallegt
hús. Gakktu innfyrir.
Ilmurinn er lokkandi
Þú hefur nú ráðið gátuna, þú hefur fundið Litlu jólabúð-
ina, best geymda leyndarmál Reykjavíkur. Bak við búð-
arborðið stendur lágvaxin en brosmikil kona. Hún mun
taka vel á móti þér. Hangikjötsilmur ætti á þessum tíma-
punkti að byrja að leika um lyktarskyn þitt. Eftir að hafa
boðið góðlegu konunni góðan dag ráðlegg ég þér kæri
leikmaður að minnast á ilminn því þá er líklegt að þú fáir
að smakka á norðlenska gæðahangilærinu. Líttu nú vel í
kringum þig og skoðaðu allt skrautið sem þessi litla, en
samt svo stóra, búð hefur að geyma. Þú munt örugglega
finna eitthvað til þess að fríska upp á stofuna þína, eitt-
hvað sem minnir á jólin. Launaðu þér ómakið en umfram
allt góða skemmtun og gleðileg jól.
BEST GEYMDA LEYNDAR-
MÁL REYKJAVÍKUR
VILTU KOMA Í RATLEIK?
Texti
Berglind Häsler
Myndir
Þorkell Þorkelsson
Líttu nú vel í kringum þig og skoðaðu allt skrautið
Það er klassískt að eiga
einn svartan kjól sem
maður getur alltaf
skutlað sér í við hátíð-
leg tilefni. Hins vegar
er svart ekkert sér-
lega jólalegt og því
getur verið skemmti-
legra að velja sér ein-
hvern lit eins og
tískulitina í vetur
sem eru rauður, vín-
rauður, fjólublár,
blár, grænblár, sinn-
epsgulur og appels-
ínugulur. Eða þá
kaupa sér svartan
kjól sem er með
einhverju auka-
skrauti eins og
pallíettum,
glimmeri eða
slaufu.
7
JÓL