Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þingkosningarnar í Írak ífyrradag vekja vonir um aðhægt verði að koma á friði ílandinu, draga úr spenn- unni milli sjíta, súnní-araba og Kúrda og blása lífi í efnahaginn eftir linnu- laust ofbeldi í þau tæpu þrjú ár sem liðin eru frá innrásinni í landið. Yfirvöldum tókst að halda ofbeld- inu í lágmarki á kjördag með geysi- strangri öryggisgæslu og kjörsóknin var mikil. Sérfræðingar í málefnum Íraks telja að viðræðurnar um myndun ríkisstjórnar dragist á langinn og ný stjórn verði ef til vill ekki mynduð fyrr en í apríl. Hugsanlegt er að upp- reisnarmenn notfæri sér valdatóm- arúmið til að herða árásir sínar og að vopnaðir hópar úr röðum sjíta færi sig upp á skaftið. Uppbyggingarstarfið í Írak getur ekki hafist fyrir alvöru fyrr en starf- hæf ríkisstjórn verður mynduð. Tak- ist það geta Írakar tekist á við það erfiða verkefni að koma öryggismál- um landsins í viðunandi horf, binda enda á ofbeldið, rétta efnahaginn við og sætta þjóðernis- og trúarhópa landsins. „Tekur langan tíma“ Joost Hiltermann, sérfræðingur í málefnum Íraks hjá hugveitunni International Crisis Group, segir að næstu mánuðir geti skipt sköpum. „Í hönd fer mjög mikilvægt tímabil fyrir Írak, vegna þess að þá ræðst hvort landið færist lengra í átt að borgara- styrjöld eða hvort hægt verður að toga það úr grængolandi hyldýpinu,“ hafði fréttastofan AFP eftir Hilter- mann. Ráðamenn víða um heim, þeirra á meðal George W. Bush Bandaríkja- forseti, luku lofsorði á Íraka fyrir að láta ekki hótanir hryðjuverkamanna aftra sér frá því að kjósa. „Þetta er mikilvægt skref í þá átt að ná mark- miði okkar, sem er lýðræðislegt Írak, þjóð sem getur staðið á eigin fótum og varið sig sjálf, þjóð sem verður liðsmaður okkar í baráttunni gegn hryðjuverkum og öflugt fordæmi fyrir aðrar þjóðir á svæðinu, hvort sem þær búa í Íran eða Sýrlandi,“ sagði Bush. Vestrænn stjórnar- erindreki í Bagdad viðurkenndi þó að Írakar ættu enn langt í land með að mynda starfhæfa stjórn, draga úr spennunni milli súnníta og sjíta, sem verða öflugastir á þinginu, og binda enda á árásir uppreisnar- manna. „Þetta tekur langan tíma og verður ekki áhlaupaverk,“ hafði AFP eftir stjórnarerindrekanum. Takist á við vopnaðar hreyfingar sjíta Talið er að úrslit kosninganna verði ekki birt fyrr en eftir að minnsta kosti hálfan mánuð. Bráða- birgðatölur verða þó ef til vill birtar í næstu viku. Wamid Omar Nadhami, prófessor við Bagdad-háskóla, sagði að örlög Íraks myndu ekki ráðast fyrr en úr- slit kosninganna lægju fyrir og stjórnarmyndunarviðræður hæfust með tilheyrandi hrossakaupum. Hann kvaðst vona að þingkosning- arnar yrðu til þess að hernáminu lyki. „Ef Bandaríkjamenn sætta sig við niðurstöðu ósvikins lýðræðis þá hljóta þeir að sætta sig við brotthvarf hernámsliðsins frá Írak sem sjálf- stæðs ríkis,“ sagði Nadhami, sem er súnníti. Hernámsliðið getur þó ekki farið fyrr en öryggissveitir Íraks eru orðn- ar nógu öflugar til að tryggja öryggi landsins án þess að þurfa að reiða sig á atbeina vopnaðra hreyfinga, eink- um sjíta. „Ég tel mjög brýnt að stjórnin takist á við vopnuðu hreyf- ingarnar á næsta ári. Það getur ekki beðið,“ hafði AFP eftir vestræna stjórnarerindrekanum. Enn fremur þarf að leysa deilurnar um hvernig stjórna eigi olíu- og gas- vinnslunni í landinu og skipta olíu- tekjunum. Kúrdum í olíuhéruðunum í norðanverðu Írak er umhugað um að héruðin ráði sem mestu í þeim efnum en súnní-arabar vilja miðstýringu. Þeir óttast að Írak skiptist í þrennt, olíurík svæði sjíta í suðri og Kúrda í norðri en auðlindasnautt ríki súnní- araba í miðju og vesturhluta landsins. Vilja frið, ekki ofbeldi Ekki er enn ljóst hversu mikil kjör- sóknin var en talið er að tveir af hverjum þremur atkvæðisbærum Írökum hafi kosið. Yfirvöld í Bagdad sögðu í gær að 10–11 milljónir Íraka hefðu neytt atkvæðisréttar síns, eða um það bil 70% atkvæðisbærra lands- manna. Dagblöð í löndum araba fögnuðu mikilli kjörsókn meðal súnníta, sem sniðgengu að mestu kosningarnar í janúar þegar bráðabirgðaþing var kosið. Mörg blaðanna sögðu þátttöku súnníta í kosningunum marka tíma- mót og geta orðið til þess að mynduð yrði stjórn með skýrt um- boð þjóðarinnar. „Það var rödd írösku þjóðarinnar sem heyrðist, ekki sprengjugnýr hryðju- verkamanna,“ sagði sádi-arabíska dag- blaðið Arab News sem gefið er út á ensku. „Sú staðreynd að svo margir súnnít- ar flykktust á kjör- staði í fyrsta skipti, eftir að hafa sniðgeng- ið fyrri kosningar, er skýr boðskapur um að fólkið, sem flestir upp- reisnarmennirnir þykjast berjast fyr- ir, vill frið, ekki ofbeldi.“ Uppreisnin gegn hernámsliðinu hefur notið mikils stuðnings meðal súnní-araba, sem óttast að við ein- ræði Saddams Husseins taki einræði sjíta. Mikilvægt er að sigurvegarar þingkosninganna, flokkar sjíta, gangi til samstarfs við að minnsta kosti einn flokk súnní-araba eftir kosningarnar. Sjítar þurfa að sannfæra súnníta um að þeir verði ekki áhrifalausir í Írak og þeim sé fyrir bestu að leggja sitt af mörkum til að stöðva blóðsúthelling- arnar. Fréttaskýring | Þótt kosningarnar í Írak hafi heppnast vel er óvissan enn mikil, skrifar Bogi Þór Arason, og næstu mán- uðir gætu ráðið úrslitum um framtíð landsins. Á miklu ríður að mynduð verði stjórn sem súnní-arabar geta sætt sig við Samstarf við íraska súnníta nauðsynlegt til að tryggja frið AP Her- og lögreglumenn fagna því að verkefni þeirra er lokið eftir að kjörkassar voru fluttir frá kjörstöðum í gær. ’Í hönd fer mjögmikilvægt tímabil fyrir Írak, vegna þess að þá ræðst hvort landið færist lengra í átt að borgarastyrjöld eða hvort hægt verður að toga það úr grængolandi hyldýpinu.‘ MEÐALHITINN á jörðinni á þessu ári er sá næsthæsti sem mælst hefur síðan áreiðanlegar mælingar hófust á sjöunda áratug 19. aldar, að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins, BBC. Einnig kemur fram að með- alhiti á norðurhveli jarðar hafi aldr- ei mælst hærri, hann er 0,65 Cel- síusgráðum hærri en meðaltalið 1961–1990. Hækkunin á meðalhita á heims- vísu er 0,48 gráður, aðeins árið 1998 var heitara. Hiti í sjónum mælist einnig meiri en nokkru sinni síðan mælingar hófust. Vitnað er í vísindamenn hjá bresku veðurstofunni og háskól- anum í Austur-Anglíu. Þeir segja þessar niðurstöður vera nýjar vís- bendingar um að loftslag sé að hlýna og það sé vegna notkunar manna á jarðefnaeldsneyti eins og kolum, gasi og olíu er valdi gróður- húsaáhrifum. Þeir telja að hækk- unin sé meiri á norðurhvelinu vegna þess að þar er meira þurrlendi en á suðurhvelinu. Land bregðist hraðar við breytingum á loftslagi en sjór. Efasemdarmenn um gróðurhúsa- kenninguna segja á hinn bóginn að niðurstöðurnar sýni aðeins að með- alhitinn sé nú sá hæsti síðan mæl- ingar hófust. Ekkert sé hægt að ráða af þeim um orsakir breyting- anna og hve mikinn þátt menn eigi í þeim. Hæsti meðalhiti í 150 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.