Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 41

Morgunblaðið - 17.12.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 41 Síðumúla 3, sími 553 7355. Opið virka daga frá kl. 10-21, laugardag frá kl. 11-21 og sunnudag frá kl. 13-21. Glæsilegt úrval jólagjafa • Náttföt • Náttkjólar • Sloppar • Undirföt Munið gjafakortin DAGLEGT LÍF „MÉR finnst gaman hvað krakk- arnir sem koma hingað eru áhuga- samir um allt sem er gamalt,“ segir Snæbjörg Ólafsdóttir sem er fædd árið 1914 og hefur því einn um ní- rætt, en hún vílar ekki fyrir sér að sitja í sínu fínasta pússi uppi á lofti í gamla Árbæ í Árbæjarsafni á ár- legri jólasýningu þar og sýnir gest- um og gangandi hvernig roðskór eru búnir til. Undanfarin fimmtán sumur hefur hún setið við þá iðju í Árbæjarsafni að sauma roðskó til að leyfa þeim að njóta sem aldrei hafa séð slíkt gert. Snæbjörg man tímana tvenna og kann handbragð sem mörgum er framandi. „Ég gekk sjálf eingöngu í roðskóm þar til ég varð sextán ára en þá eign- aðist ég mína fyrstu alvöru skó.“ Óvæntur jólakjóll Snæbjörg ólst upp við mikla fá- tækt á Vestfjörðum á fyrrihluta síð- ustu aldar. „Við vorum sextán systkinin og mér var komið fyrir á öðrum bæ hjá gamalli ekkju þegar ég var sex ára til að vinna fyrir mér og ég flutti aldrei aftur heim eftir það. Þessi ekkja var efnalítil, hjá henni var moldargólf og eldað á hlóðum og þar var engin hátíð á jól- unum. Ég saknaði fólksins míns sárt og ég man hvað mig langaði óskaplega mikið heim til mömmu og pabba á fyrstu jólunum eftir að mér var komið fyrir þarna, en það var of langt í burtu til að ég kæmist til þeirra. En seinna þegar ekkjan hafði flutt á bæ sem var nær for- eldrum mínum fékk ég að skjótast heim um jólin. Hún ætlaði ekki að leyfa mér að fara í sparikjólnum mínum af því hann mátti ekki óhreinkast fyrir jólamessuna. Ég var mjög leið yfir þessu og sagði að allir krakkarnir myndu vera svo fín- ir, svo ég fékk að lokum að fara í honum. Og mikið var gaman að koma heim á þeim jólum og ég man hvað mér þótti jólatréð fallegt sem hann pabbi hafði smíðað, en á því voru logandi kerti. Foreldrar mínir komu mér heldur betur á óvart og gáfu mér nýjan jólakjól, svo ég hefði alveg getað komið í gamla kjólnum.“ Roðskór Snæbjargar í Japan Snæbjörg þurfti að vinna mikið alla sína barnæsku og þegar hún var aðeins sex ára hjá ekkjunni hafði hún mörg störf á sinni könnu. „Ég þurfti að fara fyrst á fætur á morgnana til að setja kýrnar út í svolitla stund áður en þær voru mjólkaðar og ég þurfti að reka úr túnunum á kvöldin þegar allir voru að fara að sofa,“ segir Snæbjörg sem hefur mikið yndi af því að sýna roðskógerðina í Árbæjarsafni. „Mér finnst eins og ég sé komin heim til mömmu þegar ég kem hingað upp á baðstofuloftið í Árbæ. Og mér finnst gaman hvað roðskórnir hafa gert mikla lukku og það er meira að segja til eintak af slíkum skóm eftir mig í Japan,“ segir Snæbjörg sem leggur mikið upp úr því að gera skóna nákvæmlega eins og tíðkaðist í gamla daga og hún prjónaði líka leppinn inn í þá.  JÓLIN | Snæbjörg Ólafsdóttir hefur lifað níutíu jól Jólatréð sem pabbi bjó til var svo fallegt Morgunblaðið/Sverrir Snæbjörg með roðskó í baðstofunni í Árbæ, þar sem allt minnir á gamla tíma og henni líður eins og hún sé komin heim til mömmu. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.