Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 77

Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 77 MINNINGAR heimildir og fara svo rétt með, sem verða mátti. Þannig hélt hann til haga ýmsu sem betur er geymt en gleymt. Þar kom að nóg efni var komið í heila bók. Hana gaf hann út nú í haust og jók hana nokkrum þátt- um eftir foreldra sína, einkum Kol- bein. Þeir vitna um hvert Magnús sótti þennan hæfileika. Bókina kall- aði hann Engjafang og vísaði með því til hins forna siðar að skilja eftir heyfang á teignum í heyskaparlok, þakkarfórn til gjöfullar náttúru. Magnús Kolbeinsson var ham- ingjumaður í lífinu. Erfðir og upp- eldi bjuggu hann þeim eiginleikum sem gerðu honum auðveld öll sam- skipti við aðra. Því átti hann hvar- vetna vini og varð þokkasæll öllum sem honum kynntust. Hann eignað- ist góða fjölskyldu, eiginkonu og fjögur börn og bjó þar við gagn- kvæmt ástríki. Óþrotleg var um- hyggja hans við Þórunni eftir að hún missti heilsu og varð að flytjast á elliheimili. Ættaróðalið sat hann með prýði og skilaði í góðar hendur. Síðast en ekki sízt fékk hann að skilja við heiminn án þess að þurfa að verða örvasa áður en yfir lyki. Það er eigingirni okkar að hafa viljað hafa hann lengur hjá okkur. Og þó tómlegt sé eftir hann genginn, er þó þakklætið efst í huga, fyrir samfylgd og vináttu sem engan skugga ber á. Með innilegri samúðarkveðju til fjölskyldunnar. Ragnheiður og Magnús, Gilsbakka. Vinur minn Magnús Kolbeinsson í Stóra-Ási er fallinn frá. Í nærri sjö áratugi höfðum við með einum eða öðrum hætti átt samleið, sem aldrei bar skugga á þótt tíu ár skildu að í aldri. Þegar ég var sex ára gamall höfðu foreldrar mínir tryggt mér sumardvöl hjá vinafólki þeirra í Stóra-Ási í Hálsasveit, hjónunum Helgu Jónsdóttur og Kolbeini Guð- mundssyni bónda og fjölskyldu þeirra, en Magnús var eitt af fimm börnum þeirra hjóna. Þótt vegalengdirnar séu næstum þær sömu í dag og í júní 1938 þótti foreldrum mínum, sem ferðuðust með mér, rétt að hafa næturgistingu í Reykholti á leiðinni í Hálsasveitina, enda ætlað að þangað yrðum við sótt daginn eftir og farið á hestum það sem eftir var leiðarinnar að Stóra- Ási. Sá sem kom með reiðskjótana og sótti okkur í Reykholt var einmitt Magnús. Á því ferðalagi tókst með okkur vinátta og gagnkvæmt traust sem aldrei féll skuggi á. Þegar í Stóra-Ás var komið var mér tekið þar opnum örmum af fjölskyldunni. Hjá því góða fólki dvaldist ég síðan í níu sumur. Jón Magnús, sem var fullt nafn vinar míns, var fæddur að Þorvalds- stöðum í Hvítársíðu þar sem foreldr- ar hans bjuggu sín fyrstu búskap- arár 1918–1924. Þau fluttust síðar að Stóra-Ási í Hálsasveit og hófu bú- skap á föðurleifð móður hans þar sem Magnús ólst upp ásamt systk- inum sínum. Að Magnúsi stóðu sterkir ættbogar í Borgarfirði sunn- an og norðan Hvítár, dugmikið og framsýnt bændafólk. Magnús hóf snemma störf við bú- skap foreldra sinna. Hann vildi ekki verða eftirbátur forfeðra sinna tæki hann síðar við búsforráðum í Stóra- Ási. Hann var mjög áhugasamur um ræktunar- og útivistarstörf auk þess sem hann hafði mikinn áhuga á íþróttum. Arnarvatnsheiðin og Okið heilluðu hann. Mörg ár tók hann þátt í leitum á Arnarvatnsheiði og þá gjarnan í lengstu leitinni í Jökul- krók. Minnist ég þess hve vel móðir hans útbjó hann þegar fara skyldi í leitirnar á haustin. Skíðaíþróttin heillaði Magnús og var hann góður skíðamaður. Sótti hann nokkur skíðanámskeið, m.a. þar sem norski skíðakappinn Birger Ruud var leiðbeinandi. Var gaman að heyra hann lýsa snilli norska skíðakappans. Þegar Magnús var um tvítugt fannst honum rétt að afla sér fram- haldsmenntunar. Ákvað hann að koma til Hafnarfjarðar til náms við Flensborgarskóla og þaðan lauk hann gagnfræðaprófi 1946. Á þeim árum var hann heimagangur á heim- ili foreldra minna og við vorum sam- tímis við nám í Flensborgarskóla. Aftur hvarf Magnús til bústarfa með foreldrum sínum. Árið 1954 keypti hann ásamt Helga bróður sín- um jörðina Stóra-Ás með öllum kost- um og gæðum. Störfuðu þeir bræður saman að búskap um fimm ára skeið, en þá hvarf Helgi til annarra starfa sem hann hafði hlotið menntun til. Hinn 24. júní 1955 kvæntist Magnús eiginkonu sinni, Þórunni Andrésdóttur frá Kollslæk, og hófu þau búskap í Stóra-Ási. Bjuggu þau þar með börnum sínum fjórum, Andrési, Kolbeini, Jóni og Höllu þar til næsta kynslóð, sonur þeirra Kol- beinn og kona hans Lára Gísladóttir frá Hofsstöðum, tóku við búskapn- um1989. Þegar þau Magnús og Þórunn hófu búskap voru búskaparhættir í landinu mjög að breytast. Dugnaður og hagsýni varð að vera í fyrirrúmi. Þórunn stjórnaði heimili sínu með myndarbrag. Þar var gjarnan margt um manninn og mikill gestagangur. Magnús fylgdist vel með, hvort held- ur var á sviði ræktunar eða tækni- væðingar því að tryggja skyldi æv- inlega sem arðbærastan búskap. Þannig hafði það verið hjá þeim sem á undan höfðu búið í Stóra-Ási og þannig skyldi það vera áfram. Það var út af fyrir sig ærið starf fyrir ungan bónda að sinna búskapn- um, en samfélagið kallaði einnig á starfskrafta hans og undan því varð ekki komist. Magnús sat í hrepps- nefnd Hálsahrepps yfir aldarfjórð- ung og var oddviti sveitarstjórnar 1956–1982 auk þess sem hann tók drjúgan þátt í félagslífi sveitunga sinna, m.a. í ungmennafélaginu Brúnni á sínum yngri árum og var einn af stofnendum og driffjöður í karlakórnum Söngbræðrum. Þegar Magnús hætti búskap gafst honum gott tækifæri til þess að sinna þjóðlegum fróðleik sem hann hafði ætíð mikinn áhuga á. Hann hóf að rita endurminningar sínar svo og áhugverðar staðar- og mannlýsing- ar, sem hann sendi mér gjarnan til aflestrar. Hann trúði mér fyrir því fyrir nokkuð löngu að bæði hann og vinir hans, sem aðstoðað höfðu hann við ritunina, hefðu áhuga á því að hann gæfi afraksturinn af ritsmíðum sínum út í bók. Hann ákvað að gera það og honum tókst að ljúka við út- gáfu bókarinnar sem hann nefndi Engjafang og er nú komin í bóka- verslanir. Hvort hann hafði tilfinn- ingu fyrir því að þetta væri hans síð- asta verkefni í þessu lífi get ég ekki sagt um, en það síðasta sem við töl- uðum saman um var „Engjafangið“ hans. Þegar nú vinur minn Magnús Kol- beinsson er látinn er mér efst í huga þakklæti til hans fyrir vináttu og tryggð við mig og mitt fólk. Við biðj- um fyrir eiginkonu hans á erfiðum tímum og fjölskylda mín sendir henni, börnum þeirra og fjölskyld- unni allri samúðarkveðju. Megi Guðs blessun fylgja Magn- úsi Kolbeinssyni á landi lifenda. Matthías Á. Mathiesen. Með fáeinum orðum langar mig að kveðja bóndann, fræðimanninn og rithöfundinn Magnús Kolbeinsson að Stór-Ási. Kynni okkar Magnúsar geta víst ekki talist löng, en Magnúsi kynntist ég fyrst árið 1999 er ég gekk til liðs við þann ljúfa hóp karla er nefna sig Söngbræður og starfa í Borgarfirði, heimahéraði Magnúsar. Hópur þessi hefur það að markmiði að koma sam- an vikulega á vetrarkvöldum, æfa söng, njóta návistar og félagsskapar hver annars. Komið hefur þó fyrir að bræður þessir hafi gert víðreist bæði hérlendis og erlendis og leyft öðrum að njóta afraksturs vetrarstarfsins. Magnúsi var þessi félagsskapur er hann var stofnandi að afar kær og brýna ástæðu þurfti til þess að hann væri ekki mættur í stöðu sína hvort sem um var að ræða æfingu eða tón- leika. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa þennan ljúfa og góða söng- mann næstan mér á vinstri hlið þau ár er ég hef starfað í kórnum, og víst er að frá honum hef ég notið leið- sagnar og styrks í starfi. Ekki er ég fær um að fjalla um ævi Magnúsar, en þó veit ég það að hann var ötull bóndi, mannvinur og sann- kallaður heiðursmaður. Kæri vinur og söngbróðir, sæti þitt verður vandskipað. Ég kveð þig með virðingu, kærleika og söknuði. Hafðu þökk fyrir samfylgdina. Eiginkonu og fjölskyldu Magnús- ar Kolbeinssonar votta ég mína dýpstu samúð. Sigurgeir Þórðarson. Þeir koma með misjöfnum hætti inn í líf manns, samferðamennirnir: Sumir með gusti og fyrirferð. Aðrir af hógværð svo vart merkist er þeir slást í för. Þannig snertust leiðir okkar Magnúsar í Stóra-Ási. Hann var ekki margmáll, en hafði afar góða nærveru, mjög hógvær. Ég fór að inna hann eftir fróðleik um upp- haf tæknialdar í sveit hans. Bað hann skrifa sem hann þó mjög færð- ist undan í fyrstu. Stuttu síðar kom hann með pistil. Ég las hann. Bað um fleiri. Þeir komu; urðu meðal minna bestu kvöldlestra: fræðandi, lifandi að máli og stíl, spennandi og mann langaði að lesa meira. Því var það ávallt ánægjustund er Magnús leit við og laumaði í orðfárri hóg- værð að mér smávelktu umslagi. Innihaldið vakti mér tilhlökkun. Dag einn í haust hringdi Magnús og var honum venju fremur niðri fyrir; kvaðst þurfa að hitta mig. „Mig langar til að færa þér þetta,“ sagði hann kominn og rétti mér gljá- andi bók: Engjafang, stóð á kápunni. Ég vék að bókartitlinum. Magnús benti mér á formálann: „Þegar búið var að binda síðustu sáturnar á hey- bandslestina við heyskaparlok var skilið eftir heyfang við teiginn. Oft mun hafa verið gengið þannig frá því að það myndaði krossmark. Það átti að tákna þakkarfórn til almættisins fyrir heyfeng sumarsins“, og Magn- ús segir þar bókina þakklætisvott sinn „til samferðafólksins á langri leið og til landsins sem fóstraði okk- ur og geymir ræturnar“. Formáls- orðin lýsa hugsun og verkum höf- undarins. Þarna voru pistlarnir hans ágætu komnir á einn stað. Fundum okkar bar síðast saman við messu í Reykholti nú í aðventu- byrjun. Mér þótti hann hafa hraðar á hæli en venjulega. Grunaði þó síst að fundir yrðu ekki fleiri. Þó fór svo. Magnús hefur bundið sína síðustu sátu og gengið frá engjafanginu: Fáum auðnast að hverfa sælli frá verki. Ég sakna Magnúsar frá Stóra-Ási. Fræðandi og fölskvalaus kunnings- skapur við hann var mér mikils virði. Fyrir þann dagamun og minn- inguna, sem eftir situr, er nú þakk- að. Fjölskyldu Magnúsar færi ég innilegar samúðarkveðjur. Bjarni Guðmundsson. Enginn flýr sitt endadægur, þó það sé hverjum og einum vísast af öllu í þessum heimi. Samt er óvænt og sárt þegar náinn kær vinur kveð- ur, vinur sem alltaf hefur verið til. Báðir vorum við fæddir á Þorvalds- stöðum í Hvítársíðu, með fjögurra ára millibili. Þegar foreldrar Magn- úsar fluttust frá Þorvaldsstöðum að Stóra-Ási fluttu foreldrar mínir að Þorvaldsstöðum. Þegar foreldrar mínir fluttu aftur að Bjarnastöðum, árið 1930, myndaðist elskulegt ná- grenni við Ás-fólkið sem hefur varað án þess að skugga bæri nokkru sinni á. Þó að Hvítá skipti löndum var hún okkur vinunum enginn farartálmi eftir að aldur og þrek dugði til þess að róa ferjunni yfir ána. Á lognkyrr- um dögum mátti vel greina manna- mál og jafnvel grunsamlega þrálátt hanagal á milli bæjanna. Já, við brölluðum margt saman vinirnir um dagana, hvorum megin árinnar sem við vorum og hvar sem leiðir okkar lágu. Eftir því sem árin liðu treystust böndin. Traustari vin var ekki að finna, hann bjó yfir þeim mannkost- um sem ekki verða taldir upp hér, en skilja eftir minningar sem dýrmæt- ari eru en frá verði greint. Það gæti ekki samrýmst hógværð Magnúsar að skrifa langa lofgrein í minningu hans. Þó verður ekki komist hjá því að nefna hin augljósu einkenni hans sem voru hjálpfýsi, tryggð og vinátta sem hann veitti okkur til síðasta dags. Þegar við komum heim mun- um við örugglega horfa yfir að Ási, við okkur blasir ævistarf þeirra sem okkur þótti eins sjálfsagður hluti af tilverunni og Okið, ofanvið Ás-bæ- inn. Þau Magnús og Þórunn kona hans hafa af miklum myndarskap búið á þessari kostajörð og nú eru af- komendur þeirra teknir við. Um leið og við Edda þökkum áralanga vin- áttu sendum við Þórunni og öllu Ás- fólkinu innilegar samúðarkveðjur. Páll Jónsson. Í dag kveð ég góðan vin, Magnús Kolbeinsson frá Stóra-Ási eða Magga eins og hann var jafnan kall- aður. Ég man ekki hvenær ég kom fyrst í heimsókn að Stóra-Ási á heimili þeirra Magga og Doddu, en sumarið 1963 fékk ég að vera þar í nokkrar vikur. Sumardvalir mínar í Stóra-Ási urðu síðan átta. Vina- tengsl föðurfjölskyldu minnar við fjölskylduna í Stóra-Ási hófust þó miklu fyrr eða um 1910 þegar föð- urafi minn Árni Matthías kom þang- að í fyrsta sinn í sveit. En síðan þá hefur fjölskylda mín og margt af frændfólki mínu dvalið sumarlangt í Stóra-Ási, nú síðast Erna dóttir mín, sem naut þess að vera nokkur sumur í sveit hjá Kolbeini sem þá hafði tek- ið við búinu af föður sínum. Það vinarþel og sú umhyggja sem ég naut hjá þeim hjónum hefur vafa- lítið verið hvati þess að alltaf langaði mig að koma aftur. Nú á seinni árum hefur vinskapurinn styrkst eftir að við Sigrún Ósk komum okkur upp sumarhúsi í landi Stóra-Áss. Síðan þá hafa oftar gefist tækifæri til að koma við í Stóra-Ási og ávallt eins og löngum hefur verið þar til siðs er boðið að koma inn, þiggja veitingar en ekki síst að spjalla saman. Spurt var frétta af fjölskyldunni eða sagt frá fyrri tímum þegar eftir því var leitað. Ég mun ávallt minnast með hlýhug samverustundanna og þeirr- ar vináttu sem mér var sýnd í Stóra- Ási. Með þeim orðum vil ég minnast Magga og sendi öllum frá Stóra-Ási, Doddu, Andrési, Kolbeini, Jóni, Höllu og fjölskyldum þeirra, innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans og ykk- ur öll. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkstu þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Árni Sveinbjörn Mathiesen. Árið 1958 þá átta ára fór ég í sveit eins og títt var um krakka á þeim tíma. Fólkið á bænum var ekki með öllu ókunnugt því móðir mín þekkti vel til og vissi að ég yrði í góðum höndum hjá Magga og Doddu en svo voru þau kölluð Magnús Kolbeins- son bóndi í Stóra Ási og Þórunn Andrésdóttir kona hans. Mér var strax vel tekið og skapaðist vinátta sem hefur haldist gegnum árin. Maggi var þá ungur, kraftmikill bóndi með stórt heimili og lét verkin tala. Á þessum tímum réðst hann í stórframkvæmdir, hann byggði 1000 hesta hlöðu og 32 kúa fjós sem þótti stórt og er enn. Þá réðst hann í hita- veituframkvæmdir og var lagt heitt vatn sunnan úr laugum tveggja kíló- metra leið heim í bæ, sem nýttist svo frekar og opnaði mikla möguleika þegar á leið. Maggi var blíður maður og hafði einstakt lag á bæði mönnum og skepnum, hann var hagur bæði á tré og járn og var unun að sjá hann smíða skeifur og annað sem til féll í eldsmiðjunni. Maggi var úrræðagóð- ur og hjálpsamur, hann var víðlesinn og áhugamaður um íþróttir hvers konar og hafði lag á að kveikja áhuga okkar yngri á málefnum líðandi stundar. Þær gleymast mér aldrei stundirnar sem við áttum saman á hestbaki, í smalamennskum, eða í girðingarvinnu, þar sem hann sýndi mér kennileiti, kenndi mér örnefni, að hnýta hnúta, kveðast á og yfirleitt allt það sem einn strákur þarf að kunna. Þau urðu níu sumrin sem ég var í Stóra-Ási. Vera mín hjá þeim hjón- um Magga og Doddu hefur verið mér góð undirstaða fyrir lífið og fæst seint fullþökkuð. Núna þegar komið er að leiðarlok- um þakka ég Magga fyrir vináttu hans og hlýhug til mín og fjölskyldu minnar. Elsku Dodda, Addi, Kolli, Halla og Jón og fjölskyldur, innilegustu samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng lifa. Árni M. Sigurðsson og fjölskylda. Magnús í Stóra-Ási var sómamað- ur, heiðarlegur, vinur dýra og barna og greiðvikinn jafnt við ríka sem fá- tæka. Hann var framfarabóndi og stóð í vel stöðu sinni í félagsmálum sem öllu öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var næstelstur fimm systk- ina sinna, fæddist á Þorvaldsstöðum í Króki en fluttist að Stóra-Ási í Hálsasveit þegar hann var að verða þriggja ára. Foreldrar hans voru þau hjónin Kolbeinn Guðmundsson frá Kolsstöðum og Helga Jónsdóttir frá Stóra-Ási. Þau voru víðkunn greiðahjón. Kolbeinn lærði járn- smíði í Reykjavík, hefði hann getað stundað þá iðn þar eftir það, en kaus að gerast bóndi. „Hugur minn stefndi til moldarinnar,“ sagði hann í bréfi til vinar síns. Hann fór að búa á Þorvaldsstöðum, sem er friðsæll af- kimi í Hvítársíðuhreppi, en svo fór að óskað var eftir því að þau hjón tækju Stóra-Ás, mikla kirkjujörð á krossgötum. Þar léttir aldrei gesta- gangi nótt né nýtan dag. Búa verður stórt til að standa undir opnum skála um þjóðbraut þvera eins og segir í Íslendingasögum. Þarna ólst Magnús upp, þar er ungmennafélagshúsið og varð hann vinsæll félagi. Stóra-Áss systkinin voru eins og englar í þeim hópi, aðrir höfðu hærra og voru ráðríkari, en engir voru geðbetri og skemmti- legri. Þegar gömlu hjónin hættu búskap þrotin að heilsu höfðu þau lokið ein- stökum ferli framfara og dugnaðar í Stóra-Ási. synirnir Helgi og Magnús tóku við búinu. Helgi var hneigður til að vinna við vélar, lærði bifvélavirkj- un og hvarf frá búskap en Magnús hélt áfram vinnu við búfé og mold eins og faðir hans, bætti jörð og byggði hús. Hann kvæntist konu sem var það sem kallast að vera dugnaðarforkur. Hún er úr sveitinni, frá næsta bæ, Kollslæk, og heitir Þórunn Andrésdóttir og hefur hún í hvarvetna verið sér og öðrum til blessunar og sóma. Erill og áhyggjur búskapar fara illa með heilsu fólks. Kolbeinn og Helga hættu búskap farin að heilsu. Þegar elli nálgaðist þau Magnús og Þórunni fór heilsan að bila og næsta kynslóð tók við. Dugnaðarforkurinn Kolbeinn, næstelstur barna þeirra, tók við búi, Magnús og Þórunn byggðu sér bæ, Áskot, setur til að una á í ellinni. Heilsa Þórunnar þraut og hún fór á vistheimili, Magn- ús var einn eftir í Áskoti. Meðal ann- arra góðra eiginleika hafði Magnús tekið í arf hæfileikann til að setja á blað minningar og hugsanir sínar, og svo frábært langminni. Nú fór hann að skrifa niður það sem hann hafði safnað í minni sitt á langri ævi. Þetta hafði Kolbeinn faðir hans líka gert. Rétt eins og óviljandi voru þessi skrif Magnúsar orðin næg til að fylla væna bók. Vinir hans studdu hann og hvöttu til að láta prenta greinar sínar og nú kom út bók, Engjafang, í haust með ritgerðum eftir Magnús og Kolbein föður hans. Hefur bók þessi hvarvetna fengið lof fyrir skemmtilegan stíl og sérlega sanna frásögn. Gamlir menn sem muna það sem Magnús segir frá vitna að þar skakki engu frá því sem þeir muna. Gagnrýnandi sem las bókina hældi henni og sagði að hún bæri höfundi sínum gott vitni, þar skrifaði góður maður sem vildi vel mönnum og skepnum og mæti hæst þær dyggðir sem dýrmætastar eru. Þorsteinn Þorsteinsson.  Fleiri minningargreinar um Magnús Kolbeinsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Hösk- uldur, Anna Sólrún og Kristleifur Darri í Stóra-Ási.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.