Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 90

Morgunblaðið - 17.12.2005, Page 90
90 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Í HÁSKÓLABÍÓI í dag verða út- skrifaðir nemar af fjórðu önn Kvik- myndaskóla Íslands. Sýnt verður sameiginlegt loka- verkefni nemenda, Kraftaverkamað- urinn, sem er 13 mínútna stuttmynd sem byggð er á smásögu eftir Daniil Kharms. Aðalpersóna myndarinnar, sem Magnús Jónsson leikur, er mis- lukkaður rithöfundur sem dag einn situr uppi með lík heima hjá sér. Önnur hlutverk í myndinni eru leikin af Kristbjörgu Kjeld, Guðrúnu Gísladóttur og Elmu Lísu Gunn- arsdóttur. Leikstjóri er Valdimar Ármann og framleiðendur eru Díana C. Karls- dóttir og Lilja Jónsdóttir. Aðstoð- arleikstjóri er Helga Völundardóttir. Kvikmyndataka, ljós og grip var í höndum Guðmundar Heimsberg, Jó- hönnu Söru Kristjánsdóttur, Jóns Ragnars Daðasonar og Ævars Páls Sigurðssonar. Atli Már Erlendsson sá um hljóðvinnslu. Um leikmynd og búninga sáu svo Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Eiríkur Kr. Júlíusson og Jóhanna Sara Kristjánsdóttir en Ævar Páll Sigurðsson klippti mynd- ina. Þá verða sýnd tíu einstaklings- verkefni nemenda sem eru átta mín- útna kvikmyndaverk þar sem nem- andi sér sjálfur um alla þætti vinnslunnar. Flest verkefnin eru leiknar stuttmyndir og koma þar fram margir af þekktustu leikurum þjóðarinnar. Athöfnin fer sem fyrr segir fram í Háskólabíói í dag milli klukkan 13 og 16 og eru allir velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Kvikmyndagerðarfólk framtíðar Á dögunum var þess minnstvíða um heim að 25 ár eruliðin síðan Mark Chapman vék sér að John Lennon og skaut hann til bana fyrir framan Dakota- bygginguna í New York. Tímamót- anna var minnst með ýmsum hætti víða um heim Meðal þeirra sem minntust þessa örlagaríka dags var Neil nokkur Harrison sem sinnir því heldur sérstæða starfi að herma eftir Len- non sjálfum. Það var fyrst snemma árs 1980, nokkrum mánuðum áður en Len- non var myrtur, sem Harrison fór fyrst að reyna fyrir sér í hlutverki Lennons. Hann fer meðal annars fyrir sveitinni Bootleg Beatles þar sem hann hefur fengið í lið með sér þrjá menn sem svipar óneitanlega til þeirra Paul, George og Ringo. Saman troða þeir félagar upp og hafa gert í áratugi. Þó Harrison noti sér ekki útlitið til að villa á sér heimildir, enda kannski erfitt þar sem fyrirmyndin er komin undir græna torfu, segir hann það þónokkuð oft hafa komið fyrir að fólk hafi ruglast á hljóm- sveitinni og Bítlunum sjálfum. Héldu þeir einu sinni tónleika í Rússlandi þar sem hann fullyrti að fjöldi manns hefði keypt sig inn á tónleika með Bítlunum, frægustu hljómsveit allra tíma. Einnig greindi hann frá því að þeim fjór- menningum hefði eitt sinn verið boðið til veglegrar veislu við komu á einhvern flugvöllinn þar sem kampavínið flæddi og hvergi var til sparað. Var það þá eftirnafn Harrisons sem var orsök misskiln- ingsins, en eins og flestum er kunnugt er það hið sama og George bar meðan hann lifði. Mót- tökur veisluhaldara breyttust að sögn skyndilega þegar upp komst að þarna væru á ferð eftirlíkingar af Bítlunum. Harrison sagði að eftirsókn eftir þeim fjórmenningum til að troða upp hefði aukist til muna eftir morðið á Lennon þegar útséð var um að hinir upprunalegu Bítlar kæmu saman aftur. „Ég hef verið John Lennon leng- ur en Lennon sjálfur,“ segir Harrison meira að segja en á þá væntanlega við dvalartíma Lenn- ons í sviðsljósinu.    Eftir að hafa lesið viðtal viðNeil Harrison fór ég að velta fyrir mér þeirri staðreynd að um- talsverður slatti fólks vinnur fyrir salti í grautinn með því að vera í hlutverki þekktra persóna. Hér á ég ekki við starf leikarans eða eft- irhermunnar heldur fólk sem lifir og hrærist sem George W. Bush, Marilyn Monroe, Elvis Presley eða Elísabet Bretadrottning. Það er nefnilega staðreynd að fjöldi fólks hefur lifibrauð af því að líkjast þekktum einstaklingum og koma fram við hin ýmsu tækifæri. Það er auðvelt að sjá fyririr sér Elvisa í stórum stíl, uppáklædda karlmenn og stundum konur, í glansgalla að hætti Vegas-tíma kóngsins. Enda eru það ófáir ein- staklingar sem koma fram sem Elvis enn þann dag í dag.    Þau Peter Hugo og JeanetteCharles hafa það að atvinnu að herma eftir mæðginunum Karli Bretaprins og Elísabetu drottn- ingu. Hafa þau bæði komið fram í fjölda kvikmynda og sjónvarps- þátta sem fyrirmyndirnar. Hugo greindi fyrir nokkrum árum í við- talið við Morgunblaðið frá starfi sínu sem Karl prins, en því hefur hann gegnt frá árinu 1981. „Ég varð þreyttur á því að allir væru að tala um hversu líkir við værum án þess að ég hefði nokkuð uppúr því,“ sagði Hugo og kvaðst hlakka mikið til að fyrirmyndin yrði konungur, þá myndi hagur hans væntanlega vænkast talsvert. Starf eftirhermunnar er þó óum- flýjanlega háð fyrirmyndinni og hvað er að gerast í hennar lífi. Hugo sagði meðal annars að tals- vert hefði hægst um hjá sér eftir dauða Díönu prinsessu. Hann hafi verið atvinnulaus í fjóra mánuði og orðið af 2 milljónum króna vegna afbókana. „Fráfall Díönu kom þó verr nið- ur á þeim 15 Díönum sem ég hef leikið á móti í gegnum tíðina,“ sagði hann en bætti við að hann hefði eingöngu unnið með tveimur Camillum um ævina. „Það er líka varla hægt að ímynda sér meiri móðgun en að labba upp að konu og segja henni að hún sé lifandi eftirmynd Camillu!“ fullyrti Hugo jafnframt.    Árlega er haldin eftirherm-ukeppni í Flórída í Bandaríkj- unum þar sem skeggjaðir karl- menn keppa innbyrðis um hver líkist mest Ernest Hemingway. Hefur þessi keppni verið haldin ár hvert á afmælisdegi skáldsins, 21. júlí. Úrslitin í umræddri keppni koma þó trúlega ekki eins mikið á óvart og þegar Charlie Chaplin sjálfur tók þátt í keppni um hver líktist honum mest en komst ekki í úrslit!    Við leit á vefnum kemur í ljós aðí Bandaríkjunum er að finna fjöldann allan af umboðs- skrifstofum þar sem hægt er að panta eftirhermur ýmissa stjarna við öll möguleg og ómöguleg tæki- færi.    Það er þó ekki einungis til gam-ans sem fólk hefur af því at- vinnu að líkjast öðrum. Til er starf sem á ensku nefnist „political decoy“, og myndi útleggjast póli- tísk tálbeita. Viðkomandi er not- aður sem staðgengill fyrir þekktan framamann í stjórnmálum í áhættusömum aðstæðum. Adolf Hitler hafði að sögn sex stað- gengla fyrir sig sem hann nýtti sér í hinum ýmsu aðstæðum. Einn þeirra, Gustav Weler, var myrtur í misgripum fyrir Hitler. Það er því hreint ekki alltaf tekið út með sældinni að líkjast þekktum ein- staklingum.    Fyrirmyndirnar sjálfar getalíka lent í vandræðum vegna eftirhermanna enda ekki allir sem nýta sér líkindi með stjörnunum til góðs. Þannig þurfti leikarinn Rob- in Williams á sínum tíma að höfða mál gegn Michael nokkrum Clayt- on sem hafði villt á sér heimildir og haft uppúr því dágóðan skild- ing. Svo geta stjörnurnar líka gert eftirhermunum óleik. Paul Mansl- ey kvartaði sáran yfir því á sínum tíma að fyrirmynd hans, David Beckham, skyldi fá alla athyglina fyrir að flétta einhverju sinni hár sitt. Mansley fullyrti að hann hefði verið með þá hárgreiðslu á und- an …    Manni finnst það heldur sér-kennilegt ævistarf að vera þekktur fyrir að líkjast ein- hverjum frægum og hafa af því all- ar sínar tekjur. Hvernig ætli Peter Hugo fylli út eyðublöð? Nafn: Pet- er Hugo. Atvinna: Karl Bretaprins. Frægð og frami stjarnanna sem hermt er eftir hlýtur þó að vera þungamiðja þess sem hermir eftir. Það er trúlega til lítils að líkjast föllnum stjörnum. Ekki get ég ímyndað mér að eftirspurn eftir Michael Jackson klónum hafi verið mikið á þessum síðustu og verstu tímum í lífi Jacksons. Það telst því trúlega nokkuð öruggt að vera líkur einhverjum konungbornum, kóngafólk fæðist inn í sviðsljósið og neyðist til að eyða þar ævinni hvort sem því lík- ar betur eða verr. Elísabet Bret- landsdrottning verður alltaf þekkt um heim allan en frægðarsól Tom Cruise gæti hinsvegar hnigið til viðar. Meira er að gera hjá Brent Mendenhal þessi misseri en hann bregður sér í gervi George W. Bush með góðum árangri. Hann er þó líklega ekki á gullinni grein það sem eftir er þar sem Bush verður ekki forseti nema þrjú ár í viðbót. Frægðin er því fallvölt, ekki bara fyrir stjörnurnar sjálfar held- ur einnig þau sem fara með hlut- verk þeirra við óhefðbundnari að- stæður. Atvinna: Karl Bretaprins Hér má sjá Brent Mendenhal og fyrirmyndina George W. Bush. Hljómsveitinni Bootleg Beatles svipar óneitanlega til fyrirmynd- arinnar. Reuters ’Það er líka varla hægtað ímynda sér meiri móðgun en að labba upp að konu og segja henni að hún sé lifandi eft- irmynd Camillu!‘ AF LISTUM Birta Björnsdóttir Jeanetta Charles hefur haft það að atvinnu undanfarna áratugi að líkjast Elísabetu Bretlandsdrottningu. birta@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.