Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 92
92 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ HLJÓMSVEITIRNAR Gus Gus og Ghostigital leiða saman hesta sína í kvöld á stórtónleikum sem haldnir verða á NASA við Austurvöll. Áður en sveitirnar stíga á svið – og eftir að þær stíga af því – mun DJ Casanova leika listir sínar en dagskráin hefst stundvíslega klukkan 23. Tónleikarnir eru haldnir til að fagna samvinnu Gus Gus og Gho- stigital en einnig samvinnu Smekk- leysu og Pineapple Records sem er plötufyrirtæki í eigu Gus Gus. „Gus Gus remixaði eitt lag af síð- ustu plötu okkar og nú er komið re- mix af „Not Clean“ sem Pineapple ætlar að gefa þetta út svo að það er sannarlega tilefni til hátíðahalda,“ segir Birgir Thoroddsen (Curver) tónlistarmaður og einn liðsmanna Ghostigital. „Þar fyrir utan ætlar Smekkleysa að byrja að dreifa þeim plötum sem Pineapple gefur út auk þess sem Smekkleysa mun endur- útgefa gamlar Pineapple plötur hér á landi.“ Birgir segir að sérstök DJ tólf tomma af Gus Gus vs Ghostigital komi svo út í lok janúar og á henni verði að finna remix af „Not “Clean, gamalt remix af Bank (Money Mast- er) og a capella útgáfu sem skífu- þeytarar og rapparar geti notfært sér. „Við höfum voðalega lítið verið inni í þessari danssenu svo að þetta er svona okkar leið inn. „Not Clean“ er hins vegar samið undir mjög miklum áhrifum frá Gus Gus og þeg- ar ég var að vinna að plötunni var ég meira og minna með Gus Gus í eyr- unum. Við erum núna búnir að vera hljóðvers-nágrannar í tvö ár og ég var enginn Gus Gus aðdáandi fyrir en er nú orðinn harður aðdáandi – þetta tekur ekki nema tvö ár.“ Á tónleikunum verður hægt að kaupa Gus Gus vs Ghostigital remix CD auk ýmiskonar varnings á vægu verði, svo sem Pineapple Records boli, Ghostigital boli og Casanova Mix CD. Tónlist | Gus Gus vs. Ghostigital á NASA í kvöld Ljósmynd/Bisera Stankovska Gus Gus á tónleikum í Króatíu. Góðu ber að fagna Miðaverð er 1.500 kr. við dyr – en 1.200 kr. í forsölu. Forsala fer fram á NASA. HÁTÍÐARMÓTTAKA verður haldin í dag kl. 17 í Smáralind þegar Ungfrú heimur 2005, Unn- ur Birna Vilhjálmsdóttir, kemur til landsins. Það er Fegurð- arsamkeppni Íslands sem stend- ur fyrir móttökunni en Unnur Birna kemur frá Bretlandi þar sem hún hefur dvalist und- anfarna daga ásamt Juliu Mor- ley, eiganda Miss World keppn- innar, og öðru fylgdarliði. Unnur Birna hefur verið dug- leg við að skrifa um ævintýrið á Fólksvef mbl.is og þar er hægt að skoða allar dagbókarfærsl- urnar auk mynda sem hún tók sjálf á ferðalaginu. Í síðustu færslunni þakkar Unnur Birna öllu því fólki sem hjálpaði henni að hljóta titilinn: „Mig langar að þakka svo mörgum, fyrir hjálp, stuðning og hlýju að það er óraunhæft að reyna það á þessum vettvangi. En ég ætla að reyna þó að ég eigi 200% eftir að gleyma ein- hverjum og vona að mér verði fyrirgefið það sökum við- burðaríkra síðustu daga í lífi mínu. Í fyrsta lagi langar mig að þakka fjölskyldunni minni, ekki bara þeim sem standa mér allra næst því líka öllum hinum því ég veit og hef fundið fyrir því að þið hafið verið að hugsa til mín. Svo eru það vinirnir, vinkon- urnar og kunningjarnir sem eru bókstaflega búin að halda í mér lífinu síðustu vikur. Þið eruð yndisleg, á ekkert annað orð, YNDISLEG :) Og svo auðvitað allir hinir sem hafa sýnt mér hlýhug og stuðn- ing á margan hátt. Allt þetta fólk og þið vitið öll hver þið eruð, er búið að hjálpa mér að láta þennan draum rætast og ég „segi það og skrifa“að ég hefði ekki getað þetta án ykkar.. ;) [...]“ Fólk | Ungfrú heimur kemur heim í dag AP Ævintýri Unnar Birnu er hvergi nærri á enda komið. Hátíðarmóttaka í Smáralind Hægt er að lesa dagbók- arfærsluna í heild sinni á Fólks- vef mbl.is. HEIMILDARMYNDIN Gargandi snilld var frumsýnd í London í gær en metaðsókn var á fjölmiðla- sýninguna sem haldin var þar í vikunni. Kvikmyndahús í New York, París og Tókýó taka hana einnig til sýninga á næstunni. Myndin var jafnframt að koma út á mynddiski. „Gargandi snilld er ein eftirsótt- asta kvikmynd sem komið hefur frá Íslandi, hún hefur verið sýnd á yfir 30 kvikmyndahátíðum um all- an heim og fær hvarvetna frábæra umfjöllun,“ segir í tilkynningu frá Zik Zak kvikmyndum. 160 mínútur af aukaefni „Á disknum eru 160 mínútur af aukaefni. Hljóðið er í mestu gæð- um, unnið í 5.1 surround og Dolby Digital. Myndatakan er vönduð og upplifun áhorfandans nálgast það að vera á tónleikum. Bergsteinn Björgúlfsson hlaut Edduverðlaun í ár fyrir kvikmyndatökur í þessari mynd,“ segir þar. Myndin fjallar um þá ótrúlegu grósku sem verið hefur í íslenskri popptónlist undanfarin ár og land- vinninga íslenskra tónlistarmanna um allan heim. Í myndinni koma fram Sigur Rós, Mugison, Björk, NilFisk, Steindór Andersen, Appa- rat, múm og fjölmargir aðrir lista- menn. „Hér er eigulegur diskur á ferð og á erindi til allra sem kunna að meta góða tónlist og kvik- myndagerð.“ Leikstjóri myndarinnar er Ari Alexander Ergis Magnússon. Framleiðendur eru Sigurjón Sig- hvatsson og Ari Alexander auk Zik Zak kvikmynda. Kvikmyndir | Gargandi snilld kemur út á mynddiski Frumsýnd í London Morgunblaðið/Golli Sigur Rós er á meðal þeirra sveita sem fram koma í myndinni. screamingmasterpiece.com STÓRHLJÓMSVEIT Benna Hemm Hemm kemur fram í kvöld ásamt þrumusveitinni Reykjavík! á sérstökum jólatónleikum Stúd- entakjallarans. Er þetta í fyrsta skipti sem þess- ar sveitir leiða saman hesta sína og búast má við því að stuð-andi jólanna verði allsráð- andi. Í fréttatilkynningu segir að von sé á óvænt- um gestum, en því mið- ur sé ekki hægt að greina frá því hverjir þeir eru fyrr en í kvöld. Það sé þó gulltryggt að kvöldið verði ógleymanlegt. Þess má geta að fyrsta upplag samnefndrar plötu Benna Hemm Hemm er uppselt en næsta upplag kvað vera á leiðinni til landsins. Auk þess má geta að Benni Hemm Hemm hlaut þrjár tilnefningar til Ís- lensku tónlistarverðlaunanna; fyrir besta umslag, björtustu vonina, og bestu plötuna. Samkvæmt leiðtoga sveitarinnar Benedikt Hermanni Hermanns- syni vinnur sveitin nú að því að færa út kvíarnar og er Japan þar fyrst á dag- skrá en samnefnd breiðskífa hljómsveitarinnar mun koma út þar í landi í jan- úar næstkomandi. Hljómsveitin Reykjavík hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf en sviðskraftur sveitarinnar þykir með ólíkindum með Bóas Hallgrímsson í broddi fylkingar. Um þessar mundir vinnur Reykjavík! að hljóðversfrumburði sínum í samstarfi við Valgeir Sigurðsson, en útgáfa er áætluð snemma á næsta ári. Tónlist | Benni Hemm Hemm og Reykjavík! í Stúdentakjallaranum Stuð-andi í Kjallaranum Benni Hemm Hemm á Grandrokki. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er aðgangseyrir aðeins 700 krónur. Selt verður inn við inngang.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.