Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 94

Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 94
94 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 2 og 5.20 B.i. 12 Sýnd kl. 2 og 5.20 eee -M.M.J. Kvikmyndir.com eee -H.J. Mbl. eee -L.I.B.Topp5.is ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! eee S.K. DV eee Topp5.is eee S.V. Mbl. Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára fór beint á toppinn í bandaríkjunum Alls ekki fyrir viðkvæma Áætlunin er margbrotnari, útfærslan er flóknari og leikurinn skelfilegri en nokkru sinni fyrr Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16 ára FRÁ LEIKSTJÓRA GROUND- HOG DAY OG ANALYZE THIS Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 fór beint á toppinn í bandaríkjunum hversu langt myndir þú ganga til að halda lífi hversu langt myndir þú ganga til að halda lífi FRÁ LEIKSTJÓRA GROUNDHOG DAY OG ANALYZE THIS HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS! BAD SANTA JÓLAMYND Í ANDA eeee Ó.Ö.H / DV Sýnd kl. 6 og 8 B.i. 16 ára Sýnd kl. 4, 8 og 10 Yndisleg jólamynd fyrir alla fjölskylduna Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára KOLSVARTUR HÚMOR! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI! ...ÞAÐ GERÐIST Á AÐFANGA- DAGSKVÖLD HÆTTULEGIR ÞJÓFAR Á HÁLUM ÍS! BAD SANTA JÓLAMYND Í ANDA eeee Ó.Ö.H / DV Sími 564 0000Miðasala opnar kl. 13.30 Jólamyndin 2005 Upplifðu ástina og kærleikann Hún er að fara að hitta foreldra hans …hitta bróður hans …og hitta jafnoka sinn Jólamyndin 2005 Upplifðu ástina og kærleikann Hún er að fara að hitta foreldra hans …hitta bróður hans …og hitta jafnoka sinn Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna Sara Jessica Parker tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna Forsýnd kl. 4 Sýnd kl. 6 B.i. 16 ára kl. 10 - KRAFTSÝNING B.i. 16 ára TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU *** M.M.J. / Kvikmyndir.com “The Family Stone er bráðfyn- din en ljúfsár gamanmynd” *** M.M.J. / Kvikmyndir.com “The Family Stone er bráðfyn- din en ljúfsár gamanmynd” LEIKARINN Sylvester Stallone sést hér á tökustað nýjustu myndar sinnar, Rocky Balboa, í Las Vegas á dögunum. Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða mynd um hnefaleikarann víðfræga Rocky sem Stallone gerði ódauðlegan á áttunda og níunda áratugnum. Myndin nýja segir frá Rocky sem kominn er af léttasta skeiði en fær tilboð um að stíga í hringinn í síðasta sinn. Reuters Rocky upprisinn! VIÐ Íslendingar erum yfir höfuð þakklátir þegar kemur að innlendu afþreyingarefni í sjónvarpi og gleðjumst yfir litlu. Spaugstofan er búin að ganga lengur en elstu menn muna og er fyrir löngu orðin stofnun í þjóðfélaginu þó gæðin séu upp og ofan. Stelpurnar eru á svipuðu róli en spurning hvort þær og höfundarnir hafi áhugann, hæfilekana og úthaldið sem til þarf að verða ódauðlegar líkt og kollegar þeirra á Sjónvarpinu. Tvíhöfði og Fóst- bræður áttu sína spretti, en að mínum dómi hefur engum tekist að hitta naglann jafnhnitmiðað á hausinn og Heilsubælið á sínum tíma. Þeir voru annars eðlis, hreinræktaðir farsar, skyldari öðru, sígildu skemmtiefni, Áramótaskaupinu. Tylftin af Kallakaffi, sem sýnd var í Sjónvarpinu á haustmánuðum, flokkast sem gamanþættir, uppakomugrín, eða „sitcom“ (situation comedy), líkt og þeir kallast upprunalega, en formið er bandarískt og jafngamalt sjónvarpsútsendingum. Við höfum reynt nokkrum sinnum við það áður í þáttaröðum eins og einhverri skelfingu sem gerðist í raðhúsi og heitir Undir sama þaki. Þá rak Laddi knæpu (eða var hann aðal kúnninn?), í örfáum þátt- um, sem enginn man lengur hvað heita. Forn- bókabúðin, Reykjavíkurnætur, sjálfsagt eru þær eitthvað fleiri þessar afar auðgleymdu tilraunir sem skotið hafa upp kollinum í íslensku sjónvarpi. Líkt og nafnið bendir til gerist Kallakaffi á ein- um þeirra fjölda lítilla veitingastaða með vínveit- ingarleyfi sem eru orðnir eins og mý á mykjuskán um land allt, ekki síst á SV-horninu. Það er fjöl- skyldufyrirtæki rekið af Kalla (Valdimar) og konu hans Möggu (Rósa Guðný) og dótturinni Silju Dröfn (Lovísa Ósk). Helstu fastagestir eru Gísli (Laddi), strætisvagnabílstjóri og bróðir Möggu, Sjonni (Davíð), kærasti Silju Drafnar og lækna- neminn Áslákur (Ívar Örn). Persónur í gamanþáttum þurfa að vera fyndnar og nokkuð fastmótaðar, talsvert skortir upp á að svo sé í flestum tilfellum Kallakaffis. Burðar- ásarnir eru hjónin, til að hressa upp á heldur lit- lausa tilveru þeirra eru þau nýskilin í upphafsþætt- inum, ástæðan kvensemi og framhjáhald Kalla. Eftir því sem best er vitað dugar það fullkomlega til að áframhaldandi samvinna er þríkrossað eitur úti í raunveruleikanum og verður aldrei trúverðugt né fyndið í þessum pakkningum. Aukinheldur fær Kalli lítið af fyndnum línum og Magga er daufur karakter. Dóttirin Silja Dröfn, er gullfalleg, dugleg og virðist þokkalega skýr í kollinum og farnast ágæt- lega í höndunum á Lovísu Ósk. Einn, slæmur ljóð- ur er á ráði Silju Drafnar, af öllum karlpening borgarinnar situr hún uppi með Sjonna; atvinnu- lausan poppgemling, tæpast talandi á íslensku, húðlatan, eigingjarnan, með kvarnir í hausnum. Gangandi martröð allra foreldra ungra, sætra stúlkna. Sem einn slíkur, þoli ég ekki afstyrmið og væri búinn að fleygja honum öfugum út fyrir margt löngu! Davíð leikur hann af mikilli sannfæringu í ofanálag. Gaurinn er hreinlega til einskis nýtur, heldur framhjá Silju Dröfn, fær kynsjúkdóma af öðrum stelpum, þetta er vægast sagt hallærislegt samband sem gengur ekki í áhorfandann. Áslákur læknanemi er vingluð rola sem enginn heilvita maður mundi treysta til að skipta um plástur, hvað þá heldur meira. Hann er skotinn í Silju Dröfn en uppburðarleysið er yfirgengilegt. Þá er Gísli strætóbílstjóri einn eftir og þó að Laddi hafi ekki alltaf úr miklu að moða tekst hon- um að skapa einu áhugaverðu persónuna í hópnum. Einn og einn gestaleikari slapp skammlaust, líkt og Elva Ósk sem dó ofan í súpuskálina (í líklega besta þættinum), en flestir aðrir voru á svipuðum nótum og frelsaða smurbrauðsdaman í síðasta þætti, og minnti á skemmtiatriði á Héraðsmóti framsókn- armanna á sjöunda áratugnum. Sviðsmynd Jóns Þórissonar, tónlist og leikstjórn Hilmars Oddssonar var til bóta, Kallakaffi líður einkum fyrir skrykkjótt handrit Guðmundar Ólafs- sonar. Snellin tilsvör (punchlines) eru einfaldlega of fátíð, þó þau stingi upp kollinum af og til og per- sónurnar vantar meira líf og lit. Verst af öllu var gjörsamlega óþolandi dósahláturinn. Þættirnir enduðu á spurningarmerkjum sem virtust gefa vís- bendingar um væntanlegt framhald. Það eru örugglega ekki allir mér sammála, en ég tek undir með þjóðskáldinu, „… ekki meir, ekki meir“. En ef svo kynni að fara, þá skrúfið niður í dósahlátrinum, í öllum guðanna bænum. Íslenskur dósahlátur „Persónur í gamanþáttum þurfa að vera fyndnar og nokkuð fastmótaðar, talsvert skortir á að svo sé í flestum tilfellum Kallakaffis,“ segir m.a. í gagnrýni. SJÓNVARP RÚV Sjónvarpsþáttaröð. Leikstjóri og höfundur kynningar- lags: Hilmar Oddsson. Handrit: Guðmundur Ólafsson. Framleiðandi: Jón Þór Hannesson. Aðalleikendur: Valdi- mar Örn Flygering, Rósa Guðný Þórsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Þórhallur „Laddi“ Sigurðsson, Davíð Guð- bjartsson, Ívar Örn Sverrisson. Saga Film/RUV. Sjón- varpið okt.–des. 2005. Ísland 2005. Kallakaffi Sæbjörn Valdimarsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.