Tíminn - 16.02.1971, Blaðsíða 1
Xí/ictí£aAvcía/iL A/
RAflÆKJAPEILD, HAFNARSTRÆTl 23, SlSH 12395
38. tbl.
— Þriðjudagur 16. febrúar 1971. —
55. árg.
Margir flýja hús sín
Karlakórínn Visir
gróf hjón upp úr
snjóflóðinu á Sigló
90-100 sauðkiftdur drápust í
öðru sstjóflóði þar
JÞ-Siglufirði, OÓ-Reykjavík, mánudag.
íJí Mikil snjóflóð féllu á Siglufjörð í gærkvöldi og nótt.
Hjón voru grafin upp úr snjónum í borðstofu sinni.
tlí Mörg fjárhús grófust í snjóinn og nær 100 kindur hafa
drepizt. Skúrar hurfu og hænsni drápust. Skemmdir urðu
á spennistöð og kirkjugarðurinn grófst undir snjóinn.
$ Snjó kyngir niður á Siglufirði og mikil hætta er á áfram-
haldandi snjóflóðum og hafa fjölmargir Siglfirðingar yfir-
gefið hús sín og verða ekki í þeim í nótt.
Fyrsta skrifðan féll um kl. 7 í
gærkvöldi. Kom hún beint ofan úr
miðri fjallshlíðinni fyrir ofan miðj
an bæinn, sem kallast Gimbrar-
klettar, og hefur aldrei fallið þar
Mafthías í forsetastól í Kristjáns-
borg.
Forseti
á röngum
forsendum
KJ—Reykjavík, mánudag.
í sjónvarpsfréttum á laugar-
dagskvöldi'ð, skýrði fréttamaður
Sjónvarpsins á þingi Norður-
landaráðs, frá því að Jens Ottó
Kragh hefði verið kjörinn for-
seti þingsins, en það væri venja
að foringjar stjórnarandstöð-
unnar gegndu þessu embætti,
PYamhain ’ n,- “
snjóflóð áður, svo.niepp viti. Snjó-
flóðið klofnaði á stórum hól, sem
er þarna fyrir ofan, og grein af
því fór niður hjá húsinu Hlíðar-
vegi 1 c, sem er efsta húsið í
bænum, ásamt öðru húsi og
standa þau efst uppi undir fjalls-
hliðinni. Flóðið lenti á suðvestur-
horni hússins, fór inn um glugga
og inn í borðstofu og út um húsið
að austanverðu. Borðstofan hálf-
fylltist af snjó, en þar var alt heim-
ilisfólkið, en það eru þau hjónin
Kjartan Bjarnason, sparisjóðs-
stjóri, og kona hans Helga Gísla-
dóttir og 21 árs gamall sonur
þeirra Sigurjón. Voru þau að horfa
á barnatímann í sjónvarpimu.
Grófust á svipstundu.
Sigurjóni sagðist svo frá, aið for-
eldrar hans hafi setið við borð á
miðju gólfi en sjálfur hafi hann
staðið við vegg ti1 hliðar við glugg-
ann, sem snjórinn brauzt inn um.
Allt í einu heyrði hann hvin og
snéri sér við og spurði föiður sinn
hvað þetta væri, en fékk ekkert
svar því á samri stundu hálffylltist
stofan af snjó- Skall flóðið svo
snögglega að hjónin höfðu ekki
einu sinni tíma til að líta við. Sig-
urjón sagði að móðir hans hafi
horfið í snjódyngjuna í einu vet-
fangi. Faðir hans gat ekki staðið
upp af stólnum og klemmdist uppi
við vegg og náði snjórinn upp und-
ir bringspalir. Gat Kjartan ekki
hreyft sig. Sigurjón hijóp strax í
símann og náði sambandi við lög-
regluna og bað um hjálp og hljóp
síðan til og byrjaði að grafa móður
sína úr fönninni.
Karlakórinn á réttum stað.
Lögreglan gerði ráðstafanir til
að fá meiri hjálp og lögreglumaður
hljóp út og beint i flasið á 20
hraustum karlmönnum. Vildi svo
vel til að kórfélagar úr Visi voru
að koma af æfingu og voru í ein-
um hóp á götunni. Þeir tóku á
sprett og komu mjög fljótlega á
Framnald a ots. 14
F.v. Gylfi Þ. Gíslason, Ove Gulberg, samgöngumálaráðh erra, Jóhann Hafstein og Poui Hartling, utanríkisráð-
herra Dana, á fundi NorðurlandaráSs í Kaupmannahöfn.
Rætt við Eystein Jónsson í Kaupmannahöfn:
NÖRRÆNN KVlÐI VEGNA
EFNAHA GSBANDALA GSINS
Menningarsáttmáli Norðurlanda aðalmál fundarins.
KJ—Reykjavík, mánudag.
— Það er nú sýnilegt að eitt
aðalinálið sem afgreitt verður á
þingi Norðurlandaráðs hér í Kaup-
maiinahöfn, verður menningar-
málasamningurinn, sagði Eysteinn
Jónsson alþingismaður í viðtali
við Tímann í dag, en Eysteinn er
formaður í menningarmálanefnd
ráðsins.
Eysteinn sagði að í menningar-
málasamningnum fælist, að sett
verða upp menningarmálafjárlög
fyrir öll Nordurlöndin, og einskon
ar menningarmálaráðuneyti, sem
heyra mun undir hina nýju ráð-
herranefnd Norðuriandaráðs, er
sett var á laggirnar á þinginu í
Kaupmannahöfn. Eysteinn sagði
að þeir fuiltrúarnir í menningar-
málanefndinni heföái lagt mikla
áherzlu á, að þesv menningarmála
fjárlög yrðu afgreidd í sambandi
við Norðurlandaráðið sjálft, ár frá
ári, og yrði það sýnilega ofan á.
Hann sagði að fulltrúarnir í menn-
ingarmálanefndinni væru í góðu
sambandi við ráðherrana, og yrði
enginn ágreiningur um þetta at-
riði milli menningarmáianefndar-
innar og ráðherranefndarinnar.
Meó' þessu kemst miklu meiri
festa á menningarsamstarfið, en
það hefur svifið dálítið í lausu
lofti. Þegar fjárlösin verða kom-
in verða menn að gera það upp
við sig, hart og kalt, hvort þeir
vilja leggja áherzlu á þetta eð'a
hitt atriðið í framkvæmd eða ekki.
Menningarmálasamstarfið fær sem
sagt allt annað innihald. en hing-
að til, sagði Eysteinn.
Annars sagði Eysteinn, aö' þing-
ið einkenndist mjög af kvíða
manna um það, hvort Norðurlönd
in muni gliðna í sundur í sambandi
við efnahagssamstarfið, en engin
breyting yrði á því á þessu þingi.
Samþykkt mun verða, að fela ráð
herranefndinni að gera áætlun um
hvernig unnt sé að komast
hjá því, að efnahagssamvinna
Norðurlandanna bíði nokkurn
hnekki þótt eitthvert landanna
fari í Efnahagsbandalagið. Menn
eru mjög ráðnir í því að láta
efnahagssamstarf Norö'urlandanna
ekki ganga aftur á bak, eins og
t.d. að láta tollfrelsið ekki ganga
úr gildi, en menn hafa ekki enn
Framh á 14. síðu.
Eysteinn Jónsson, formsSur Menningarmálanefndar NorðurlandaráSs,
flytur ræSu á fundi ráSsins. (Tímamynd GunnarJ