Tíminn - 25.02.1971, Side 13

Tíminn - 25.02.1971, Side 13
FIMMTUDAGUR 25. febriíar 1971 ÍÞRÓTTIR Sören Christensen, t.v. á myndinni varð Unglingameistari badminton. Sigraði félaga sinn Viggo, t.h. í úrsiitum. Danmerkur í Sören sigraði Viggo í úrslitum DM Dönsku piltarnir Sören Christen sen og Viggo Christiaiisen, sem komu hingað í síðasta mánuði og vöktu mikla hrifningu og aðdáun áhorfenda og mótherja í leikjum sínum, kepptu til úrslita í unglinga meistaramóti Danmerkur í bad- minton, sem fram fór um síðustu helgi. í badminton í einliðaleik sigraði Sören Viggo 15:11 og 15:3, en í tvíliða leik, þar sem þeir léku saman töp uðu þeir í úrslitum (13:8—15:7 —15:9). í tvenndarleik varð Sör en einnig Danmerkurmeistari, en þar komust Viggo og hans dama ekki í úrslit. „UEFA CUP“ — Er nýja nafnið á Borgakeppni Evrópu Knattspy rnus amb and Evrópu, TJEFA, hefur nú formlega tekið við Borgakeppninni í knatt- spymu, sem stofnuð var af Sviss- lendingnum Eniest Thommen, ár- ið 1955. Keppnin mun hér eftir bera nafnið „UEFA Cup“ og hafa nýjar reglur verið settar um þátt töfcu í keppninni. Verc/ur hér eftir aðeins einu liði frá hverri borg leyft að taka þátt í henni, og verður lágmarksfjöldi frá hverju landi. í lok þessa mán ■fr Svo sem áður er kunnugt, er golfkennari starfandi á vegum Golfklúbbs Reykjavikur — Þor- valdur Ásgeirsson, og kennir hann í Suðurveri, Stigahlíð 45—47, alla virka daga eftir hádegi — einnig á öðrum tímum, eftir samkomu- lagi. — Nú hefur verið ákveðið að allir þeir félagar í GR, sem greitt hafa félagsgjöld sín fyrir árið 1971, fái frían kennslustíma, og gildir það frá 15. íebrúar til 15. marz. Ættu því allir þeir, sem þegar hafa greitt, eða ætla að gera það á næstunni, að snúa sér til kennarans. Þorvaldar, í Suður- veri, sími eftir hádegi 85075, og tryggja sér tíma. Aðstaða er fyrir tvo í einu. ■& Nú eru net komin upp til æf- inga í Golfskálanum i Grafarholti og geta félagar því æft sig þar eins og þeir vilja og þegar þcim hentar. — flafið samband við Þor- vald í síma 85075 e.h. / aðar heldur 7 manna nefnd, sem UEFA hefur skipað, fund um fleiri breytingar á fyrirkomulagi keppninnar, en heyrzt hefur að þá verði samþykkt m. a. að úr- slitaleikir verði tveir, og þeir leiknir bæði heiman og heima. Fram hefur rétt til að taka þátt í þessari nýju keppni fyrir ís- lands hönd, sem lið nr. 2 í 1. deild en Fram 'hefur einnig rétt til að taka þátt í Evrópukeppni bikar meistara, sem bikarmeistari 1970. Ekki er enn vitað hvora keppnina Fram velur. Ef félagið velur „UEFA bikarinn" fer ÍRV í Bikar keppni Evrópu, en ef Fram veiur þá 'keppni, fer ÍBK í „UEFA-bik arinn“, sem lið nr. 3 í 1. deild. Eftir því sem íþróttasíðan hefur fregnað hefur Fram haft meiri áhuga á Borgakeppninni, þar sem meiri möguleiki er á að fá þekkt lið frá Bretlandseyjum sem mótherja. Sá möguleiki minnkar nú meö hinurn nýju reglum um takmörkun liða, og má þá búast við að Fram kjósi heldur að taka þátt í Evrópukeppni bikanmeist ara. — klp, Allt fyrir kvenfólkið! Eins og við höfum áður sagt frá, hefur Ármann stofnað fyrstu kvennaknattspyrnudeildina á ís- landi og eru æfingar þegar hafn ar. Ármenningar láta ekki þar við sitja, því nú hafa þeir einnig kom ið af stað æfingum í körfuknatt lei'k fyrir konur. Er æfing einu sinni i viku í Íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar á þriðjudögum kl. 22,00 og eru þær opnar öllum. sem áhuga hafa. En það eru fleiri sem hugsa um kvenf'Mkið en Ármenningar. Fram hefur einnig komið á tímum í körfuknattleik fyrir stúlkur. Eru æfingar nú þegar hafnar, og er æft í Laugarnesskólanum á föstu dagskvöldum. — klp. TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 VALUR 60 ARA Á ÞESSU ÁRI kip-Reykjavík. Þann 11. maí n. k. eru nákvæm lega 60 ár liðin síðan 12 drengir sem allir voru félagar í KFUM hófu að leika sér með knött í porti KFUM. Stofnu(,*u þeir félag er þeir nefndu Fótboltafélag KFUM, en skömmu síðar breyttu þeir nafn inu í Fótboltafélagið Valur. Af þessum drengjum, sem fyrir 60 árum léku sér í portinu hjá KFUM, eru enn 8 lifandi og þeir geta allir horft stoltir til baka, því árangur þessa leiks þeirra og stofnun félagsskaparins hefur blómstrað í að verða ein stærsta og virtasta uppeldisstofnun reyk- vískrar æsku, sem í dag gengur undir nafninu VALUR. Valsmenn ætla að halda þetta ár hátíðlegt og var í október s.l. skipuð nefnd til að‘ skipuleggja afmælisárið. Er því nú að mestu lokið og verður margt um að vera. Allar deildir félagsins sjá um framkvæmd kappleikja og móta í sinni grein. Verða m. a. haldin hraðkeppnismót í handknattleik og körfuknattleik fyrir alla flokka. Keppt verður í badminton, á skíð um og í knattspyrnu bæði utan- húss og innan. Afmælishátíð verð ur haldin að Hótel Borg 3. apríl, og £ Tónabæ fyrir yngri méðlimi 7. apríl. Á sjálfan afmælisdaginn verður opið hús að Hlíyarenda, og margt annað verður um að vera til að halda upp á þetta merka aímæli félagsins. Þegar piltarnir 12 stofnuðu fé- lagio' fyrir 60 árum, var eini kostn aðurinn við félagið að kaupa einn bolta. Nú 60 árum síðar, kostar um 3 milljónir króna að' reka fé- lagið. Eignir félagsins eru metn- ar á 7,5 milljónir, og félagið, sem ér eina félagið' í Reykjavík er hefur keypt það land, sem starf semin fer fram á, á þar 5,9 hekt ara. Þröngt er orðið um Valsmenn á þessu svæði, en þeir hafa góð ioforð fyrir stækkun þess, og í bígerð er að byggja annao' íþrótta hús, enda gamia húsið þegar orð ið of lítið, og vonast Valsmenn til að geta hafið framkvæmdir vid það á afmælisárinu. Svíþjóð 88 Danmörk55 Danmörk og Svíþjóð léku lands leik i körfuknattleik um síðustu helgi og fór leikurinn fram í Dan mörku. Eftir 12 mínútur höfðu Danir 2 stig yfir, en þá fóru hinir iéik reyndu Svíar í gang og höfðu 15 stig yfir í hálfleik 39:24, og í síð ari hálfleik komust þeir 37 stig um >fir 69:32, en lokatölurnar urðu 88:55 fyrir þá. Danir. hugsa vel um framtío' körfuknattleiksins í Danmörku. M. a. senda þeir unglingalandslið (16—17 ára) á alþjóðamót, sem fram fer í Þýzkalandi á næstunni. Þar lenda þeir í riðli með Tyrk landi, Frakídandi, Júgóslavíu, ítal íu og Bandaríkjunum. Telja Danir að þar bíði erfið þraut — en mikið á henni að læra. VALS-VÉLIN HRUNDI! OG ÍR SIGRAÐI MEÐ YFIRBURÐUM, 24:15 — Víkingur í 2. deild klp—Reykjavík Ef hægt væri að veita liði íslandsmeistaratitilinn fyrir einn leik, ætti.ÍR hann fyllilega skilinn fyrír léik sinfi' g'é'gn 'Vál í 1. deildarkeppninni í hand- knattleik karla í gærkveldi. í þeim leik sýndi ÍR einhvern þann bezta Ieik, sem sézt hefur til liðsins í mörg ár og gjörsigr- aði Val 24:15. Ekki var nóg með að liðið léki frábærlega, heldur var markvarzlan slík að sjaldan hef ur annað eins sézt. í Laugar- dalshöllinni. Guðmundur Gunn- arsson varði hvert skotið á fæt ur öðru m.a. 7 vítaköst af 9. sem Valsmenn fengu — og mun- ar um minna. Þegar staðan var 5:3 fyrir ÍR hófst stjörnuleikur liðsins, og snerist staðan þá í 13:7 fyrir hálfleik. Valsmenn gátu aldrei svarað fyrir sig í síðari háTfleik, ■ og var leikur liðsins allur í molum — hvar sem á var litið, og ekki heil brú í neinu. Fram fór létt méð sigur yfir Víking 25:17 (10:8) en sá leik- ur var heldur leiðinlegur og illa leikinn af báðum liðum. Öruggt er aó' Víkingur er fall inn í 2 .deild. En hver sigrar í 1. deildinni er enn ósvarað. FH hefur nú meiri möguleika en Valur, en til' þess verður liðið að sigra í báðum sínum leikjum — gegn ÍR og Haukum, en tapi FH öðrum leiknum, og Valur sigri Víking, er Valur íslands- meistari. Firinakeppní í 1. deildin í Danmörku Sigrar HG í 6. sinn? Nú eru aðeins 3 umferðir eftir í 1. deildarkeppninni í handknatt leik í Danmörku og er spenningur mikiU á báðum hæðum deildar innar Efterslægten er í efsta sæti með 23 stig eftir 15 leiki, en einu stigi á eftir koma hinir fimmföldu meistarar HG, sem á laugardag inn si’gruðu Helsingör á heima velli ‘hinna síðarnefndu 15:14. Var uppselt á þann leik 8 dögum fyrir og voru um 3000 manns í höllinni. Um bronsverðlaunin keppa 3 lið þessa stundina. Helsingör, sem er meó' 19 stig, Stadion, sem er með 18 stig og Árhus KFUM, sem er með 17 stig. Á botninum keppa Skovbakken, Stjernen og AFG, en milli þeirra ' skilja 2 stig. handknattleik Firmakeppni í handiknattleik, sú þriðja í röðinni. mun væntan lega hefjast 20. marz nk. í íþrótta húsinu á Seltjarnarnesi. Þau fyrir tæki og starfshópar, sem hafa hug á að taka þátt í þessari keppni, tilkynni þátttöku til Bifreiðastöðv i arinnar Bæjarleiða, sem allra i fyrst. Gruia sendur til aðstoðar Partisan Bjelovar frá Júgóslav íu sigraði Steaua frá Rúineníu í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópuk. í handknattleik karla 19:14. Fór leikurinn fram i Bel- rad. Eftir þennan leik héldu Gruia og aðrir landsliðsmenn St.eaua til móts við landsliðið, sem ná er á kepnnisferöalagi um Norðurlönd in, og verða þeir með liðinu í leikjunum. sem'eftir eru. því ógur leg óánæg.ja varð í Rúmeníu þegar liðið tapaði fyrir Svíþjóð í fyrsta leiknum 9:16. Rúmenska landslió'ið lék annan leik sinn í ferðinni á þriðjudaigs kvöldið og inætti þá Danmörku. í hálfleik höfðu Rúmenar yfir 10:6, en Danir jöfnuðu þegar 50 sekúnd ur voru til leiksloka 15:15, og urðu það lokatölur leiksins. í kvöld leikur Rúmenía við Noreg. Þá heldur liðió' til Finn lands, en síðan aftur til Danmerik ur og Svíþjóðar, og síðan til ís- lands. — klp.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.