Tíminn - 05.05.1971, Side 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 5. mai 1971
SmiSir hafa unnið koppsamlega að því að reisa girðingu kringum brautina á nýja Fáksvcllinum.
(Tímamynd Gunnar)
Fáksvöllurinn nýi tekinn í
notkun með firmakeppni 16. mai
FB^-Reykjavík, þriðjudag.
Áður en langt líður verður Fáks
vöUirann nýi við Vatnsveituveg
tekinn í notkun, og þegar er búið
að ákveða, að mikið verði um
a@ vera á þessum nýja velli í sum
ar, enda ekki nema eðlilegt, þeg
ar Fáksmerm hafa fengið til um-
ráða svo stóran og mikinn völl.
Sennilega verða fyrstu kappreið
arnar á þessum velli 16. maí næst
kamandi, og er það firmakeppni.
Hinar árlegu kappreiðar Fáks eru
alltaf á annan í hvítasunnu, og
verða það einnig í ár, þar að
auki er ráðgert að efna til sér-
staks unglingadags á næstunni. og
ennfremur má búast við að einar
eða tvennar aðrar kappreiöav, en
þær sem nefndar hafa verið, verði
á nýja vellinum næstu vikumar.
Á nýja Fáksvellinum er 1200
metra löng hringbraut, og nú að
undanförnu hefur verið unnið við
að girða brautina af. Einnig hef
ur verið gengið frá áhorfendaþrep
um, hjá brautinni, og þótt ekki
sé aðbúnaðurinn að áhorfendum
góður á nýja vellinum, miðað við
það sem gerist víða erlendis, er
hann þó mun betri en á gamla
vellinum. Auk þess sem áhorfend
ur geta komið sér fyrir á áhorf-
endaþrepunum, hagar þannig til
við völlinn, að hægt verður að
fylgjast með kappreiðum úr bif
reiðum af Vatnsveituveginum.
Fáksmenn eru með ýmsar ráða
gerðir varðandi fjáröflun til
áframhaldandi framkvæmda á
hinu nýja svæði sínu. Þeir efna
um þessar mundir til happdrætt
is, og eru vinningar m. a. Mall-
orca-ferð fyrir tvo og glæsilegur
gæðingur. Ef svo vildi til, að sá,
sem hreppir gæðinginn, vilji ekki
eiga hann, hefur Fákur kaupanda
að hestinum fyrir 50 þúsund krón
ur.
Næst á dagskrá við Fáksvöllinn
er að búa betur að áhorfendunum.
Framtíðardraumurinn er svo sá,
að reisa þarna áhorfendahús, þar
sem áhorfendur geta setið inni, t.
d. yfir kaffibollum og fylgzt með
því, sem fram fer á vellinum um
leið.
Undanfarið hafa staðið yfir á
vegum Fáks námskeið fyrir bæði
unglinga og fullorðna í hæfni og
hlýðniþjálfun hesta. Er það fram
hald af námskeiðum þeim, sem
hér voru fyrir skömmu undir ieið
sögn Walter Feldniann-feðganna.
Á unglinganámskeiðinu leiðbein
ir Sigurfinnur Þorsteinsson, en
Ragnheiður Sigurgrímsdóttir leið
beinir á kvöldnámskeiðunum, og
er ennfremur yfirstjórnandi nám
skeiðanna. Hefur mikill áhugi
_
_
ríkt bæði meðal þeirra sem kom-
izt hafa á námskeiðin og annarra,
sem ekki hafa komizt á þau, en
í þessari viku á að vera unnt að
bæta fleiri nemendum við í ungl
ingahópana.
■ .....
Dagur Evrópu í dag
ÆSÍ HVETUR TIL ÞESS AÐ
ÍSLAND VERÐI STOFNADILI
AÐ EVRGPUSJÚÐIÆSKUNNAR
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Á morgun, miðvikudaginn 5.
maí, er Evrópudagurinn, en hann
hefur verið haldinn hátíðlcgur í
aðildarríkjum Evrópuráðsins síð-
an 1964. 5. maí er stofndagur
Evrópuráðsins, en það var stofnað
þennan dag fyrir 22 árum.
Tilgangur þess að halda dag
Evrópu hátíðlegan er að vekja all
an almenning í aðildarríkjunum
til umhugsunar og skilnings á
þeim vaxandi verkefnum, sem
samstarfsstofnanir ríkjanna hafa
með höndum og því ört vaxandi
hlutverki, sem þær eiga að gegna
í viðleitni þjóðanna til vaxandi
velmegunar og verndun friðar í
álfunni. Þetta hefur verið gert m.
a. með sífellt auknum samskipt-
um ekki aðeins forustumanna,
heldur og lærðra manna og leikra,
sem tekið hafa upp miklu nánari
samskipti milli þessara ríkja en
áður hefur þekkzt í sögunni.
Sveitarstjórnarþing Evrópu-
ráðsins átti á sínum tíma hug-
myndina að stofnun Evrópudags.
Síðan hafa sveitarstjórnir í álf-
unni haft frumkvæði, hver í sínu
umdæmi, um hátíðahöld í tilefni
12 STÚLKUR KEPPA NÚ UM
r /
TITILiNN UNGFRU ISLAND 1971
í Háskólabíói á laugardagskvöldið
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Tólf stúlkur, þar af 9 utan af
landi og þrjár úr Reykjavík, taka
þátt í Fegurðarsamkeppni ís-
lands, sem efnt verður til á laug
ardaginn í Háskólabíói. Erna Jó-
hannesdóttir frá Vestmannaeyjum,
Ungfrú ísland 1970 krýnir Ung
frú ísland 1971. Verðlaun eru
þátttaka í Miss Universe-keppn-
inni á Miami í Florída, í Miss
Europe, sem haldin er í ein
hverju Evrópulandanna, eða ná-
lægum Austurlöndum, í Miss
World, sem haldin er í London,
og tvær stúlkur verða valdar til
þátttöku í Miss Scandinavía, sem
haldin verður í Finnlandi.
Framkvæmd þessarar keppni er
nú eins og undanfarin ár í hönd
um Sigríðar Gunnarsdóttur, sem
einnig hefur séð um undirbúning
og þjálfun stúlknanna.
Stúlkurnar hittust fyrst 26. apr.
s.l. og hafa síðan æft sig fyrir
keppnina á hverjum einasta degi.
Eins og kunnugt er fór s.l. sumar
fram fegurðarsamkeppni í sýslum
landsins, og eru það fulltrúar, sem
þar voru valdir, sem taka þátt í
þessari lokakeppni. Er þetta í
annað sinn, sem framkvæmd
keppninnar er á þennan hátt. Sig
ríður sagði hins vegar á blaða
mannafundi í dag, að hún hefði
í hyggju að breyta til í sumar.
Hefði hún í huga að fá ungmenna
félög eða íþróttafélög úti á landi
til þess að velja fulltrúa byggðar
laga sinna, og senda þá síðan í
úrslitakeppnina hér í Reykjavík
næsta vor. Sigríður Gunnarsdótt
ir hefur stjórnað fegurðarsam-
keppninni frá því árið 1966. Fyrsta
fegurðarsamkeppnin fór hins veg
ar fram hér árið 1949 og var það
Einar Jónsson gjaldkeri, sem var
frumkvöðull að þessari nýbreytni.
Á blaðamannafundi í dag skýrði
Einar frá því, að hann væri full
trúi eða umboðsmaður þeirra sam
keppna, sem áður voru nefndar,
og eru haldnar árlega erlendis.
Einar sagðist ennfremur vera
umboðsmaður fegurðarsamkeppni
þeirrar, sem nefnd hefur verið
Miss International og var til
skamms tíma haldin á Langa-
sandi í Kaliforníu. Af sérstökum
ástæðum verður þessi samkeppni
ekki haldin á Langasandi fram
vegis heldur í Tokyo. Hefur Ein-
ar einnig tryggt sér umboð fyrir
þá keppni, og verður fulltrúi sem
valin er í fegurðarsamkeppni Ung
frú ísland send til þeirrar keppni.
Þá hefur Einar einnig umboð fyr
ir fegurðarsamkeppnina Miss
Young, sem einnig verður haldin
í Tokyo. Þar sem fyrr í vetur var
valin hér ung stúlka til þess að
taka þátt í fegurðarsamkeppninni
Miss Young International, þótt
að vali hennar stæðu reyndar aðr
ir en Einar Jónsson og Sigríður
Gunnarsdóttir, hefur verið ákvcð
ið, að sú stúlka fari til Miss
Young keppninnar þegar hún verð
ur í ár í Tokyo. Hins vegar sagði
Einar, að ekki væri búið að
ákveða hvernig þessari keppni
yrði háttað hérlendis í framtíð-
inni.Fulltrúinn í Miss Young from
Iceland, en svo mun titillinn
hljóða í framtíðinni á að vera á
aldrinum 15 til 19 ára, og upp-
fylla önnur skilyrði heldur en
fulltrúar í fegurðarsamkeppnum
eldri stúlkna.
Dómnefndina í fegurðarsam-
keppninni í Háskólabíói á laugar
daginn skipa nokkrir ritstjórar og
blaðamenn, frú María Dalberg,
snyrtisérfræðingur, Pálina Jón-
mundsdóttir formaður Módel sam
takanna, en formaður dómnefnd-
ar verður Jón Eiríksson læknir.
Fegurðarsamkeppnin hefst kl.
9,15 í Háskólahíói. Kynnir verður
Árni Johnsen, hljómsveitin J.B.
& Mjöll Hólm leika, Ómar Ragn
arsson flytur skemmtiþátt, Módel
samtökin annast tízkusýningu.
Danssýning verður á vegum dans
skóla Heiðars Ástvaldssonar. Þá
mun Jörundur Guðmundsson flytja
skemmtiþátt. Þátttakendur í keppn
inni koma fram í síðum kjólum
og í sundbolum. Ljósmyndarar
blaðanna velja vinsælustu ljós
myndafyrirsætuna, en það var
gert hér í fyrsta sinn í fyrra, og
einnig velja þátttakendur nú eins
og þá vinsælustu stúlkuna úr sín-
um hópi.
Snyrtistofan Maja annast snyrt
ingu stúlknanna og hárgreiðsluna
sér Sigurður Grétar Benónísson
um. Skreytingu sviðsins annast
Egill Bachmann og Blóm og Ávext
ir.
Sæti eru númeruð og fylgir at-
kvæðaseðill hverjum miða og
verða atkvæðaseðlar sóttir til áhorf
enda. Forsala aðgöngumiða er í
Háskólabíói föstudaginn 7. og laug
ardaginn 8. maí.
Evrópudags. Ef dæma má eftjr
þeim upplýsingum, sem borizt
hafa frá Evrópuráðinu, er dagur
Evrópu að verða eins konar sam-
eiginlegur „þjóðhátíðardagur“
Evrópubúa með útihátíðahöldum
í flestum borgum, leyfi úr skól-
um, sameiginlegri dagskrá í út-
varpi og sjónvarpi á vegum
„Evrópusjðnvarpsins" (Euro-
vision") og gagnkvæmum heim-
sóknum yfir núverandi landa-
mærj.
í tilefni af Evrópudeginum hef-
ur Æskulýðssamband íslands sent
frá sér ávarp, þar sem segir að
það sé ÆSÍ „mikið fagnaðarefni,
að haldinn skuli hátíðlegur dag-
ur Evrópu. Slíkur dagur gefur til-
efni til aukinna innbyrðis tengsla
og skilnings milli þjóða. Samband
ið hvetur því til þess, að þessa
dags verði minnzt hér á landi með
tilhlýðilegum hætti.“
í ávarpinu er minnzt á sam-
þykkt nýlokins þings ÆSÍ um er-
lend samskipti sambandsins, þar
sem segir, að í alþióðastarfi eigi
sambandið að „stuðla að því á
allan hátt að æska hejmsins geti
sameinazt á einum vettvangi, án
tillits til stjórnmála, trúarbragða .
eða litarháttar í baráttunni gegn
misrétti, hungri og fáfræði."
Er m.a. lögð áherzla á að auka
enn samskiptin við Evrópuráð
æskunnar. Sérstaklega er fagnað,
að „loks skuli stofnun Evrópu-
sjóðs æskunnar vera komin á loka
stig. Bindur þingjð miklar vonir
við sjóðsstofnunina og telur, að
tilkoma hans geti aukið til muna
starf og kynni ungs fólks í
Evrópu. Þingið skorar á íslenzk
stjórnvöld að vinna að þvf, að fs-
land gerist stofnaðili að Evrópu-
sjóði æskunnar".
í varðhald
Framhald af bls. 1.
mönnum sem vitað er um við
brunann.
Tvisvar hefur kviknað í
frystihúsinu áður og þá með
stuttu millibili. Er grunur
manna að þá hafi einnig verið
kveikt í af ráðnum hug.
^lökkviliðshíllinn
Framhald af bls. 16.
hann fór af stað, en hann komst
ekki í stjórnklefann vegna mann-
fiölda, sem stóð þétt upp við b£l-
inn. Strax eftir að bíllinn fór af
stað var hann kominn upp að
grindverki og aðstaða til að kom-
ast upp í hann eða forðast var
mjög erfið. Er nú verið að rann-
saka þennan barka og þau vinnu-
brögð sem eru á viðgerðinni á
honum, en auðsjáanlegt er að
þarna hafa samverkandi atburðir
valdið þessu hörmulega slysi.
Oft er búið að brýna fyrir fólki
að troðast ekki að þar sem slys
hafa orðið eða slökkvilið er að
störfum, en því miður vill það oft
verða og er enn ástæða til að
ítreka, að fólk haldi sig í hæfi-
legri fjarlægð er önnum kafnir
lögreglumenn og slökkviliðsmenn I
eru að störfum. j