Tíminn - 06.05.1971, Page 1
101. tbl.
— Fimmfudagur 6. maí 1971 —
55. árg.
V-þýzka
markiö
hækkað?
NTB-Bonn, miðvikudag.
Vestur-Þjóðverjar stóðvuðu alla
gjaldeyrisverzlun í dag og liættu
kaupum á bandarískum dölum. íí'
Mörg önnur Vestur-Evrópuríki
fyigdu í kjölfar Vestur-Þjóðverja i
eftir að spákaupmenn höfðu gert
mikla árás á bandaríska dalinn —
bæði í von um að geta neytt Banda ij
ríkjamenn til að lækka gengi doll
arsins og l>ó einkum til að neyða |
Vestur-Þjóðverja til að hækka í,
gengi vestur-þýzka marksins. Þess §
ar aðgerðir spákaupmannanna |
hafa birzt í gífurlegri sölu á
dölum og kaupum á vcstur-þýzk-
um mörkum. Þannig hafa þeir
reynt að tryggja sig gegn tapi,
ef dalurinn félli og reyna að
græða á hugsanlegri gengishækk
un marksins.
Franski þjóðbankinn hélt
áfram að styðja bandaríska dal-
inn, en hann getur slíkt betur en
þjóðbankar ýmissa annarra þjóða
vegna strangra takmarkana á
gj aldeyrisverzlun.
Ákvörðun Þjóðverja er tilraun
til að stöðva það flóð bandaríkja
dala, sem streymt hefur inn í
Vestur-Þýzkaland undanfarna
daga. f gær mun það flóð hafa
numið um 7—8 hundruð milljón
Framhald á bls. 2.
Aurbleyta á vegum
Stöðvar flutn-
inga á landi
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Mjög mikil aurbleyta er nú á
vegum um mestallt landið, og er
öxulþungi víða takmarkaður við
fimm tonn — t.d. á leiðinni norð
ur til Akureyrar. Vegna þeirra
miklu hlýinda, sem verið hafa
undanfarið, er aurbleytan fyrr á
ferðinni en vcnjulega, að sögn
vegagerðarinnar, og er ástand
vega víða mjög slæmt.
Takmörkun á öxulþunga við 5
tonn hefur það í för með sér
„að vöruflutningabifreiðir þær,
sem eru í förum milli Reykjavík
ur og landsbyggðarinnar, geta
ekki sinnt starfi sínu meðan bann
ið gildir“, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Landvara — landsfélagi
vörubifreiðaeigenda á flutninga-
leiðum.
í tilkynningunni segir, að áður
hafi það komið fyrir, að icv'ðnr
hámarksöxulþungi hafi verið 7
tonn, en markið aldrei verið sett
svo lágt sem nú. Vart hafi orðið
Framhald á bls. 2.
Frá heimsókn forsetahjónanna til Svíþjóðar, Dr. Kristján Eldjárn og Gustav Adolf Svíakonungur aka um götur Stokkhólms, á leið til konungs- I
hallarinnar. (Símsend mynd) j
Heimsókn forsetahjónanna til Noregs lokið — komu til Svíþjóðar í gær:
Fóru um míðborg Stokk-
hólms í opnum hestvagni
IGÞ—Stokkhólmi, miðvikudag.
ár Ilcimsókn forsetahjón-
anna í Noregi lauk með
því, að þau skoðuðu Heimavarn-
arsafnið á Akershus. Safn þetta
er aðeins ársgamalt og er reist
til minja um baráttu Norðmanna
á hernámsárunum. Eftir að hafa
snætt í höllinni, var haldið til
Fornebu, þar sem stigið var upp
í SAS-vél, sem flutti forsetahjón
in til Arlanda, ásamt fylgdar-
liði. í því eru Emil Jónsson, ut-
anríkisráðherra, Pétur Thor-
steinsson, ráðuneytisstjóri, Birg-
ir Möller, forsetaritari og Mar-
grét Jónsdóttir, fylgdarkona for-
setafrúarinnar.
•k Dvölin í Noregi hafði ver-
ið hin ánægjulegasta, 09
cinna mesta ánægju virtust þó
forsctahjónin hafa af að blanda
geði við eina 300 íslendinga,
sem sóttu boð sendiherrahjón-
anna í Osló í gær. í stuttu sam-
tali, sem Tíminn átti við for-
setann í því boði, sagði hann,
að hcimsóknin til Noregs hefði
verið mjög ánægjuleg i alla
staði og mótlökur alveg frábær-
ar.
•k Þegar flogið var frá Nor-
egi, fylgdu norskar þotur
SAS-vélinni eftir, að landamær-
um Noregs og Svíþjóðar, og þeg
ar kom að sænskn landamær
unuin tóku við átta sænskar
þotur, sem fylgdu vélinni alla
leið til Arlanda.
★ Þegar komið var til Sví-
þjóðar, var tekið á móti
forsetahjónunum á Arlandaflug-
velli með gífurlcgri viðhöfn.
Þar var fremstur í flokki Gústaf
Svíakonungur, ásamt Bertil
prins og ríkisarfanum. Sænski
forsætisráðherrann, Olof Palme
og ráðherrar úr stjórn hans,
voru einnig á Arlanda.
Eftir að liðskönnun hafði far-
ið fram á Arlanda og fólk hafði
heilsazt, var ekið frá flugvellin-
um og inn til borgarinnar, þar
sem skipt var yfir í opna hest-
vagna við Statshuset. Sátu kon-
ungur, krónprins og forsetinn í
fyrri vagninum, sem sex rauðir
hestar drógu, en í seinni vagnin-
um sátu m. a. forsetafrúin og
Sybilla prinsessa. Ekið var með-
fram Maleren, en mannfjöldi
hafði safnazt fram með þeim
götum, sem ekið var um, og
síðan var ekið yfir Norðurbrú
að konungshöllinni, þar sem for
setahjónin búa meðan á heim-
sókninni stendur.
Skrautbúið riddaralið fór á
undan hestvegnunum. en lúðra-
sveitir léku svo barst um mið-
bæinn. A brúnni stóð samfelld
röð hermanna heiðursvörð.
Þetta var hin hátíðlegasta stund.
þegar lestin ók inn til hallarinn-
ar í björtu veðri og hlýju, með
hina tvo fornleifafræðinga í
fararbroddi. Inni í höllinni
stóðu mismunandi búnir varðlið-
ar heiðursvörð, sumir klæddir
í brjósthlífar úr stáli og með
fjaðrahatta eins og tíðkaðist
fyrr á öldum. Gengu gestirnir
og gestgjafarnir upp á aðra hæð
hallarinnar, en forsetahjónin
munu búa í salarkynnum, sem
byggð voru á seinni hhita 18.
aldar, og hafa lengst af verið
bústaður konunglegra gesta.
í kvöld býður svo konungur-
inn til veizlu í sal Karls II. Er
salur þessi listilega skreyttur
kalkmyndum fransks listamanns.
A morgun verður farið til eyj-
arinnar Birke, til þess að skoða
fornminjar. í förinni verða auk
fylgdarliðs forsetans, konungur,
krónprins og Sibylla prinsessa,
móðir hans. Þótt tekið sé á móti
forsetahjónunum af fyllztu við-
höfn, gengur lífið í höllinni sinn
vanagang. Þegar ísl. blaðamenn
irnir litu inn í sal Karls XI
síðdegis, þar sem veizlan á ..3
standa í kvöld, var Sibylla prins
essa að líta yfir, hvort ekki væri
allt í lagi með borðbúnaðinn.
Setið verður við eitt langboið,
sem er fagurlega skreytt blóm-
um, cn Sibylla býr einmitt í
þeirri áimu hallarinnar, sem
veizlan fer fram L
Fyrir miðju háborðsins sitja
öðrum megin: Krónprinsinn með
frú Halldóru Eldjárn sér við
hlið, þá kemur konungurinn, þá
frú Palme og síðan Bertil prins.
Hinum megin á móti situr for-
seti IslandSj'sKristján Eldjárn,
Sibylla prinsessa, Emil Jónsson,
utanríkisráðherra, og Christina
prinsessa og loks Nilsson, utan
ríkisráðherra.
Þegar blaðamenn komu frá
því að skoða undirbúning veizl-
unnar uppi á annarri hæð hall-
arinne-, og komu niður á neðstu
hæðina, mættu þeir krónprins-
inum, sem nú var búinn að
skipta um föt. Var hann kominn
í sportfötin sín og var að fara
eitlhvað út að æfa sig í sporti.
Brá hann sér upp í Volvo-sport-
bílinn sinn og ók í burtu.
Forsetinn hefur þegar verið
sæmdur æðsta heiðursmerki
Svía, en áður hafði Ólafur Nor-
egskonungur sæmt hann æðsta
heiðursmerki Noregs. I veizl-
unni í kvöld hljóðar matseðill-
inn svo í lauslegri þýðingU:
Sveppasúpa
Reyktur lax með spínati
Kjúk’mgur með grænmeti
Ostrur
Jarðarberjaís
Víntegundirnar eru Sherry,
kampavín, hvítvín og rauðvín.
kæli-
skápar
23/ixLii.cLfiAfOZaSi* A/
MFHtXlJDBlD, HAFNAIUTfUETI 23. SlM 1133.*
bífoisalq
GUÐMUN ÐAR
Bergþóruqötu 3
Símar: 19032 — 20070