Tíminn - 09.05.1971, Síða 5
iWCWPAÆPR 9. maí 1971
——•—------------
TÍMINN
5
MEÐ MORGUN
KAFFINU
Þa'ð er frá Gjaldheimtunni
Itmheimta útvarpsgjalda er
meira og minna í gangi árið
um kring. Er jafnvel stundum
veri'ð að hóta innsiglun á tækj-
um til að herða á greiðslum,
og málið sótt af kappi þessa
og þessa stundina.
I haust gekk ein slík inn-
heimtu hrota yfir með tilheyr-
a-ndi tilkynningum um aðgerð
ir, yrði útvarpsgjaldið ekki
borgað. Þetta var í sláturtíð
inni. Um líkt leyti þótti Árna
Gunnarssyni, fréttamanni, henta
að bregða sér með hljóðnem-
ann í afgreiðslur sláturhúsanna
hér i borginni til að spyrja kon-
nr út úr í sláturtiðinni. Kom
hann m. a. í portið hjá Afurða
sölunni á Kirkjusandi. Sá hann
tvær konur koma kjagandi full
kiyfja'ðar með matvæli. Sneri
hann sér að annarri og sagði
af sinni alkunnu kurteisi: Ég
heiti Árni Gunnarsson og er frá
útvarpinu. Án þess að honum
tækist að skýra frekar frá er
indi sínu, vék konan
úr vegi, og sagði hálf óttaslegin
um leið: — Ég er búin að
borga, ég er búin að borga.
Það eru margar
ar sögur um
Twain. Hér er ein.
— Kæri -Mark Twain
v-f.’-i -rTfr.r--
aði ritstjóri að vel þekktu
amerísku vikublaði til hins
þekkta og grínfulla rithöfund-
ar. — Ef ég verð ekki búinn
að fá hina umsömdu grein-
innan 24 klukkustunda, kem
ég upp í íbúðina yðar og sparka
yður niður stigann. Og ég er
maður, sem alltaf held orð
mín!
Þessu svaraði Mark Twain
á þessa lund:
— Kæri ritstjóri! Ef ég
ynni allt mitt starf með fót-
unum — myndi ég líka halda
orð mín!
DENNI Förum inn, það eru li'ðnar tvær
— . vikur síðan þeir sögðu okkur,
DÆMALAU b I að koma aldrei aftur.
Elizabeth Taylor er
lengi að tileinka sér tízkuna. Nú
er hún komin í stuttbuxur, og
þær fara henni alls ekki sem
verst, enda hefur hún líklega
losnað við eitthvað af auka-
kílóunum, sem hún safnar allt-
af annað slagið á sig. Hér er
hún með manninum sínum
Richard Burton. Þau hjónin
tóku nýlega í fóstur 8 ára gamla
stúlku, frá Tahiti. Annars hafa
þau áður tekið barn í fóstur,
Maríu, sem nú er 10 ára, og
— ★ — ★ —
fædd er í Þýzkalandi, og þaðan
er einnig Liza 13 ára, dóttir
þeirra. Miehael 18 ára er elzt-
ur barna Liz, hann er nýgiftur,
en Christopher er næstur 16
ára. Fólk hefur mikið rætt um,
að Liz Taylor og Richard Bur-
ton séu ekki hæf til þess að
hafa börn vegna lifnaðar síns,
en aftur á móti segja aðrir, að
fjölskyldan sé einstaklega sam-
hent og til fyrirmyndar á allan
hátt
— ★ — A —
Birgitte Bordot, sem nú er
orðin 36 ára gömul, er ein
þeirra, sem fólk þreytist ekki
á að tala um. Nú er hún sögð
hafa fundið sér nýjan mann.
Það hefur reyndar verið sagt
nokkrum sinnum áður, svo ekki
er vízt, að það sé rétt, fremur
en fyrri daginn. Franska blað-
ið France-Soir fullyrðir, að nú
sé þetta engin venjuleg kjafta
saga, heldur blákaldur sann-
leikur. Sé það rétt verður þetta
fjór'ði eiginmaður Bordot. Nú
er sá hamingjusami sagður
heita Christian Kalt, Frakki,
og kennari að mennt. Um þessar
mundir leikur þessi kunna kyn-
bomba í kvikmynd með fyrsta
manni sínum Roger Vadim, en
það var einmitt liann, sem skap-
aði hugtakið BB. Nú segir hann,
— Vonandi verða straumhvörf
í lífi Brigitte við þessa kvik-
mynd. Hún getur ekki um alla
eílífð látið sér nægja að prýða
forsíður blaðanna.
- ★ - * —
Olivia Hassey — sú sem fór
með hlutverk Juliu í kvikmynd
inni Romea og Julia — hefur
nú gift sig. Einká-Rómeóinn
hennar heitir Dino Martin.
Hann hefur nokkuð komið við
sögu pop-tónlistar og dægurlaga
söngs, og er sonur Dean Martin,
hins þekkta kvikmyndalcikara.
Hér á myndinni er tengdafað-
irinn Dean og tengdamóðirin
Jeamie að óska unga fólkinu til
hamingju eftir hjónavigsluna.
Olivia Hassey varð fræg um
allan heim, og þá reyndar
heyrði Dino Martin líka fyrst
um hana, fyrir nokkrum árum,
þegar hún aðeins fimmtán ára
gömul lék hlutverk Julíu í
hinni frægu mynd, sem ítalski
stjórnandinn Franco Zeffirellis
stjórna'ði. Olivia var uppgötvuð
þar sem hún sat á skólabekk, og
hún fékk ekki að koma fyrir
augu spurulla blaðamanna fyrr
en kvikmyndin hafði verið full-
gerð. Olivia og Dino gengu í það
heilaga á Riviera hótelinu í Las
Vegas.