Tíminn - 09.05.1971, Page 9
SUNNUDAGUR 9. maí 1971
Ahugamannareglur ISI
undir smásjá
ísinn brotinn?
Meðal mála, sem lágu fyrir
sambandsráSsfundi ÍSÍ, er
hófst í gær, voru tillögur um
róttækar breytingar á áhuga-
mannareglum ÍSÍ. Þegar þetta
er skrifað, er ekki vitað, hvort
tillögurnar voru samþykktar,
en þær gengu út á það að fella
ár gildi núgildandi reglur og
beina því til sérsambandanna
að semja áhugamannareglur
hvert fyrir sig, en þó innan
ramma áhugamannareglna,
sem gilda hjá alþjóðasambönd
um viðkomandi sambanda.
Flestir munu vera sammála
um það, að núgildandi áhuga-
mannareglur ÍSÍ séu orðnar úr
eltar. Hvarvetna í nágranna-
löndum ökkar hefur orðið
þróun í þá átt að rýmka
áhugamannareglumar veru-
lega. T.d. er tekið fullt tillit
til vinnutaps, er íþróttafólk
verður fyrir vegna þátttöku í
keppni, en hér gilda mjög
strangar reglur um slikt.
Sömuleiðis hefur opnazt ný
tekjuöflunarleið vegna auglýs-
inga á félagabúningum, en hér
á landi er slíkt algerlega bann
að.
Loks má benda á það, að
hér gilda mjög strangar regl-
ur um það, hvernig íþrótta-
maður, sem gerzt hefur at-
vinnumaður í grein sinni, öðl-
ist áhugamannaréttindi sín
aftur. Er honum gert að bíða
í langan tíma, sbr. mál Her-
manns Gunnarssonar, sem upp
kom á sínum tíma og olli
miklu fjaðrafoki.
Sjálfskaparvíti á frummálinu
„An American dream“.
Leikstjóri: Robert Gist.
Handrit: Rubin Mann, byggt
á bók eftir Norman Mailer.
Tónlist: Johnny Mandel.
Kvikmyndari: Sam Leawitt.
Bandarísk frá 1966.
Sýningarstaður: Hafnarbíó.
íslenzkur texti.
Þetta er miðlungsafþreying-
armynd, sem ber glöggt merki
uppruna sína, Hollywood. Þeir
hafa árum saman framleitt
svona myndir um ríkt fólk,
sem hefur það sér til skemmt-
unar að kvelja hvort annað.
Stephen Rojack hefur á
hendi vinsælan sjónvarpsþátt
sem tekur til meðferðar ýmis
mál úr daglega lífinu. Rojack
(Stuart Witman) hefur deilt
mjög á lögregluna og segir
hana þiggja mútur frá Mafí-
unni.
Eiginkona hans Deborah (E1
eanor Parker) er forrík og út-
tauguð af drykkjusýki og öðr-
um nautnum. Hún er nýkomin
úr Evrópuferð, þegar hann fer
til hennar og vill skilja við
hana. Eftir heiftugar deilur og
slagsmál, fellur hún fram af
svölunum og deyr.
Vitni að atburðinum er aðal
Mafíubófinn og Cherry McMah
on (Janet Leigh) fyrrum kær-
asta Rojacks. Á lögreglustöð-
inni hittast þau og þar er held
ur betur þjarmað að Rojack
af lögreglunni. Hann tekur
upp sitt fyrra samband við
Cherry, og býðst nú gull og
grænir skógar hjá Sjónvarpsfé
laginu, en nú er Mafían kom-
in í spilið og er því ekki að
sökum að spyrja.
Því miður hef ég ekki lesið
þessa bðk “MSnCTS^Og veit J>vl' i11 ■
ekki hvort söguþræðinum er
fylgt út í æsar, en andi Mail-
ers svífur yfir f samtali hjón-
anna, þegar baneitraðar at-
hugasemdir fljúga á milli. Síð-
an í samtalinu við tengdaföð-
urinn, þegar hvorugur hlustar
á hinn og í lokasetningu mynd
arinnar.
Witman kemst nokkuð vel
frá sínu hlutverki, er ekki
ósennilegur sem stríðshetja,
bæði lögreglan og Deborah eru
sífellt að núa honum um nas-
ir fortíð hans. Að visu er hann
dálitið skyldur Dýrlingnum, þeg
ar vinnukonan er að bjóða sig,
og jakkinn greinilega of stór
til þess að hann sýnist herða-
breiður, en hann fer hvergi út
í öfgar í túlkun sinni.
Eleanor Parker leikur Deb-
orah eftinninnilega, að vísu lít
ið eitt yfirdrifin en dró samt
upp mynd af konu sem stefn-
ir til fjandans og vill draga
manninn með sér.
Janet Leigh var utanvelta,
hvorki þessi járnharða drós
eða stúlkan, sem á eitthvað
óskemmt eftir í sjálfri sér.
Hún er mikið til of ellileg til
að vera sannverðug.
í heild er myndin ekki illa
heppnuð, spennandi og saman
þjöppuð samt vantar einhvern
herzlumun til að gera hana
góða. Kannski er bara búið að
gera of margar af hennar tagi,
svo Mailer dugi ekki til svo út-
koman verði skárri?
P.L.
Auglýsið í Tímanum
AUGLÝSINGASÍMI: 19523
TÍMINN
Fróðlegt verður að vita, að
hvaða niðurstöðu sambands-
ráðsfundur ÍSÍ kemst um
þetta mál. Verði tillögur nefnd
arinnar, sem endurskoðaði regl
urnar, samþykktar, er brotið í
blað í sögu íþróttasambands-
ins, sem. hefur verið mjög
íhaldssamt í þessum efnum.
Að hóta
Stjórn Knattspyrnusam-
bands íslands virðist einkar
lagin við að lenda í árekstr-
um og útistöðum. Nýlega var
Knattspyrnuráði Rcykjavíkur
settur stóllinn fyrir dyrnar
vegna bæjakeppni, sem fyrir-
huguð var í dag, sunnudag.
Stjórn KSÍ kom þeim boðum
áleiðis, að enginn leikmaður,
sem tæki þátt í bæjakeppn-
inni, kæmi til greina í lands-
liðið, sem leika á gegn Frökk-
um á miðvikudaginn. Þar með
var bæjakeppnin úr sögunni,
þar sem vitað er, að margir
leikmenn Reykjavíkur og Akra
ness eru í landsliðshópnum.
f sjálfu sér er þessi afstaða
stjórnar KSÍ mjög skiljanleg,
in hins vegar var ástæðulaust
að láta koma til árekstrar. Mál
eins og þetta hefði mátt leysa
í bróðerni, ef stjórn KSÍ hefði
farið þess á leit við Knatt-
spymuráð Reykjavíkur að
fresta leiknum eða færa hann
til. En slíkt var ekki gert. f
staðinn er hótað — í skjóli
þess, að Knattspyrnuráðið
átti óhægt um vik.
Setti ofan í við for-
manninn
Þessi vinnubrögð eru ekk-
ert einsdæmi. Og þegar er ver
ið að gagnrýna stjórn KSÍ —
eða réttara sagt formanninn —
þá er fyrst og fremst verið að
gagnrýna vinnubrögðin. Svo
iangt hefur þetta gengið, að
einn af stjómarmönnum KSÍ,
Hafsteinn Guðmundsson,
neyddist nýlega til að setja
ofan í við hann opinberlega.
Hafði formaður KSÍ lýst þvi
yfir, að engir lubbar — þ.e.
síðhærðir leikmenn — kæmu
til greina í landsliðið. En nú
vffl svo til, að Hafsteinn Guð-
mundsson er einvaldur um
val liðsins, en ekki formaður
KSÍ. Lýsti Hafsteinn því
strax yfir, að hann veildi
menn í landsliðið eftir getu
en ekki eftir hársídd.
Reglur um kyn-
feréismál
Síðar gerðist það svo, að
formaðurinn bannaði leik-
mönnunum að hafa kynmök
fyrir leikinn á miðvikudag. Er
formaður KSÍ sennilega að
svara fyrir sig með þessu og
sýna Hafsteini fram á það, að
enda þótt hann sé einvaldur
um val liðsins, sé formaður
KSÍ alvaldur og nái vald hans
inn í hjónarúm leikmannanna.
En ekki fylgdi það^ sögunni,
hvernig formaður KSÍ ætlar að
fylgjast með því, hvort leik-
mennimir halda boðorðið eða
brjóta bannið. Verður þess
sennilega ekki langt að bíða,
að KSf setji leikmönnum
ákveðnar reglur í kynferðis-
málum og má þá búast við
fjörugum umræðum á næsta
KSÍ-þingi. — alf.
Samband ísl. samvínnufélaga
Veladeild
Ármúlas, Rvtk. símí 38 900
Mjukir
og
híjoðiátír
SV7
Japöttsku
YOKOHAMA nylon
hiólbardarnir hafa
reynst öðrt&tn fretnur
endingargóðír
og óruggir
á íslenzku vegunum.
Ffölbreytt
munsturog sUerðir
fyrir allar
gerðír bífreíða.
HAGSTÆTT VERÐ
Útsölustáðir
um allt land.