Tíminn - 09.05.1971, Qupperneq 11
£gBrara>AGUR 9. maí 1971
TIMINN
11
Jesas Chríst: Superstar.
★ ★ ★
MCA: Fálkinn.
Á síðari árum er farið að
brydda mikið á miklum áhuga
á ýmsum trúarbrögðum og boð-
berum þeirra, meðal ungs fólks
í uppreisn víðs vegar um vest-
urlönd. Slíkt hefði verið hlægi-
legt fyrir fimm eða sex árum,
en í dag er áhugi á trú nærri
því að vera tízka. Við þurfum
ekki annað en að líta á viðtöl
við íslenzka hljómsveitarmenn.
En erlendis, og þó einkum í
Bandaríkjunum, hefur trú átt
mikil ítök í mörgum ágætum
tónlistarmönnum, oft samfara
mikilli neyzlu LSD. Má þar til
dæmis nefna Brian Wilson úr
Beach Boys og Erik Burdon
úr War. Og nú síðast Dylan
sjálfan. Fræg er auglýsingin,
sem birtist fyrst í einhverju
neðanjarðarblaði vestanhafs:
„Eftirlýstur vegna undirróðurs
og glæpsamlegra stjómmála-
skoðana flokks og samsæris
gegn ríkjandi stjóm. Hann er
fátæklega klæddur, sagður vera
trésmiður að atvinnu — van-
nærður, haldinn draumóra-
kenndum hugsjónum — hefur
sézt í fylgd með verkafólki, at-
vinnuleysingjum og hippalýð.
tiöendingur sennilega af Gyð-
mgaættum — gengur undir
ýmsum dulnefnum: konungur
ftfðarins“, — „manns sonurinn“,
— JErelsari", „ljós heimsins“,
og svo framvegis. Atvinnumúg-
æsingamaður, rauðskeggjaður,
með ör á höndum og fótum
eför meiðsli, sem hann hlaut
af höndum reiðs mannfjölda
undir stjóm ábyrgra borgara og
Bgreglu."
Slíkur skilningur á Kristi er
að aukast gífurlega, sumir lesa
alla Biblíuna og hafa gaman af.
Mér finnst þessi saga hugljúf og
því særir það mig að hún skuli
ekki takast betur en þetta á
þessum tveim skífum. Þetta er
gífurlega vandað verk, vel upp-
tekið, með mörgum skemmtileg-
um stefum. Höfundamir eru
báðir komungir menn Andrew
Lloyd Webker og Tim Rice. En
útsetningamar er flestar gerðar
að einhverju leyti fyrir stórar
hljómsveitir og við eram kæfð
í glassúrflóði, þó með einstaka
kafla hér og þar, sem er þá með
rokksveiflu. Slíkir kaflar era
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja hús á Hvolsvelli fyrir
Landsbanka íslands og Sýslumannsembættið.
Útboðsgögn verða afhent gegn kr. 2.000,— skila-
tryggingu í Sýsluskrifstofunni, Hvolsvelli, útibúi
Landsbankans, Selfossi og skipulagsdeild Lands-
bankans, Austurstræti 10, Reykjavík, frá og með
mánudeginum 10. maí.
Tilboð verða opnuð mánudaginn 24. maí n.k. kl.
14.00 í skipulagsdeilds Landsbankans, Reykjavík.
Ian Gillan.
ágætir, en með hinu koma þeir
sem skrattinn úr sauðarleggn-
um.
Sagan sjálf er nú orðin sú,
að Jesús safnar um sig fólki
sem dýrkar hann. Þegar Júdas
sér fram á það að æ fleiri og
fleiri bætast í hópinn fyllist
hann örvilnan vegna þess að
hann trúir ekki tali Jesú um
Guð og sæluríkið. Hann rífst
því við Jesú, finnur að við hann
um samband hans við Maríu
Magdalenu og fæt'á móti sér
ásakanir um sviksemi. Hann á-
kveður því að framselja Jesú
prestunum. Júdas er sá í þess-
ari ópera sem ber höfuð og
herðar yfir aUa hina. Jesú verð-
ur ekki annað en eigingjarnt
smámenni og prestamir,
Pontius Pílatus og Heródes eins
og Björnebanden í Andres Önd.
Lítið er stuðzt við þær setning-
ar' sem eru svo ágætlega sam-
settar og lagðar í munn Kristi
í Biblíunni. Allt sem hann hef-
ur að segja er í hundflötum
dægurlagastíl. Það sem fyrst
og fremst bregzt við þessar
skífur er meðferð sögunnar;
tónlistin stendur fyrir sínu og
hljóðfæraleikurinn yfirleitt.
Söngur er með prýði, sérstak-
lega hjá Murray Head, sem er
ungur leikari, og syngur Judas.
Einnig hjá Yvonne EUiman,
sem syngur Maríu Magdalenu.
Ian Gillan í Deep Purple sýnir
þarna á sér nýja hlið, ólíka
því sem maður á að venjast. Þó
getur hann ekki stillt sig um
að öskra nokkram sinnum, þess-
um frægu öskrum. Það væri
óskandi að þetta verk yrði
kynnt aftur í útvarpinu, og þá
á viðfáðanlegri tíma. Leifur
Þórarinsson kynnti það í Á
elleftu stund, en það hefur
eflaust farið fyrir ofan garð og
neðan hjá öllum. Góður tími
’ væri t. d. á sunnudagseftirmið-
degi. Þá er yfirleitt hellt yfir
mann Wagner, svo gott væri að
breyta til. Það er nefnilega líka
hægt.
Baldvin Baldvinsson.
VW 9 jnanna - Landrover 7manna í * i*
SPEGILLINN kemur út 10 sinnum á ári--------------
áskriftargjald er kr. 420,00.
Undirrit. óskar að gérast áskrifandi að SPEGLINUM.
Nafn
Heimilisfang
Staður
SPEGILLINN
Pósthólf 594 — Reykjavík.
Eldhúsinnréttingar
Fataskápar
BÍLASKOÐUN & STILUNG
Skúlagöfu 32
LJÚSASTILLINGAR
BERCUR LARUSSON HF.
ÁRMÚLA 32 — SIMI 81050:
HJÚLflSTILLINGAR fV! ÖTO R STÍLLlNGfl R
LáfiS stilla i tima. <J
Fljót og örugg þjónusta. I
13-10 0
Plastpokar í öllum stæröum
- áprentaðir í öllum litum.
Komum í heimahús og mælum, teiknum og skipu-
leggjum að kostnaðariausu eldhúsinnréttingar og
fataskápa. Skipuleggjum einnig eftir húsateikniiig-
um. Gerum fast verðtilboð f eldhúsinnréttingar,
með eða án. stálvaska og raftækja, fataskápa, inni-
og útihurðir, sólbekki og fleira. Bylgjuhurðir. —
Greiðsluskilmálar. —
Eina sérverzlun með íbúðainnréttingar. Margra
ára reynsla.
Verzlunln Óðinsforg h.f., Skólavörðust. 16.
Sími 14275. — Kvöldsími 14897.
h.f.