Tíminn - 12.05.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.05.1971, Blaðsíða 1
ALLT FYRIR BOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöruverzlun INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 • Sími 11783. 105. tbl. — Miðvikudagur 12. maí 1971 55. árg. Dómur í Mið- kvíslarmáli eftir 25. maí KJ—Rykjavík, þriðjádag. í dag var í fyrsta sinn þing- að í Miðkvíslarmálinu svo- nefnda, en saksóknari ríkisins gaf ót ákæru á hendur 65 manns í því máli vegna spreng ingar Miðkvíslarstíflunnar í Mývatnssveit 25. ágúst s.l. í dag voru lögð fram ný gögn í málinu, og stefnt er að því að þinga aftur í því 25. maí, og verður málið þá væntanlega tekið til dóms upp frá því. Að því er Halldór Þorbjöms son saksóknari sagði Tíman- um í kvöld, en hann fer með mál þetta, þá var búið að þing- festa málið áður, en þetta er í fyrsta skipti sem málið er tekið fyrir. Verjandi 65 menn- inganna í málinu, Sigurður Gizurarson hdl., lagði fram ný gögn í málinu, og sömuleiðis aðalfulltrúi saksóknara, Hall-' varður Einvarðsson, sem er sækjandi í málinu. Þá vora nokkrir menn kallaðir fyrir dóminn, en síðan ákveðið að stefna að því að þinga næst á Skútustöðum þriðjudaginn 25. maí n.k. Sakadómarinn sagðist ekki búast við að ný gögn yrðu lögð fram í málinu eftir það, og yrði því hægt að taka það til dóms, eftir þinghaldið 25. maí. EFTA-fundurinn hefst í Reykjavík í fyrramálið: Um 200 útlendingar koma til fundarins FB-EJ-Reykjavík, þriðjudag. Skömmu fyrir kl. ellefu í kvöld kom sextíu manna hópur flugleiðis beint frá Genf til Reykjavíkur í þotu Flug- félags íslands. Var hér um aS ræða starfsmenn úr aðal- stöðvum Fríverzlunarsamtaka Evrópu, EFTA, og nokkra blaðamenn, og er þetta fyrsti hópórinn, sem hingað kemur til þátttöku í ráðherrafundi EFTA, sem hefst á fimmtudag- inn kl. 10 fyrir hádegi og stendur fram á föstudag. A morgun koma ráðherrar EFTA-landanna ásamt sendinefnd um sínurn, nema Goeffrey Ripp- on, markaðsmálaráðherra Bret- lands ,sem kemur síðdegis á fimmtudag beint frá Brússel, þar sem hann á í viðræðum við ráð- herra Efnahagsbandalagsríkjanna um aðild Bretlands að bandalag- inu. Alls er búizt við, að erlendir EFTA-fundarmenn verði um 200 talsins, en þó er erfitt að gera sér fulla grein fyrir endanlegri tölu enn sem komið er, því óvíst er hversu margir erlendir blaða- menn koma hingað til þess að fylgjast með fundinum. Fyrir nokkru var talið senni- legt, að viðræðufundur Breta og Efnahagsbandalagsríkjanna í Brússel nú, kynni að liafa einhver úrslitaáhrif um frekari framgang málsins, og að Rippon gæti á fund inum hér skýrt ráðherrum hinna EFTA-landanna frá þýðingarmikl- um atriðum frá viðræðunum. Nú er hins vegar talið ,að þótt fund- urinn í Brússel sé þýðingarmikill þá muni hann ekki hafa nein úr- slitaáhrif. Hefur áhugi á fund- inum hér í Reykjavík nokkuð minnkað við þetta, að því er talið er. Samt sem áður er talið, að fund urinn í Brússel muni Iiðka nokk- uð til í viðræðunum um aðild Breta að bandalaginu, og er þá haft í huga að síðar í þessum mán uði munu þeir Edward Heath, for- sætisráðherra Bretlands og Georg- es Pompidou, forseti Frakklands, koma saman til fundar og er tal- ið, að sá fundur muni hafa vera- leg áhrif á framtíðarþróun við- ræðna Breta og bandalagsins — sem vissulega hafa dregizt nokk- uð meira á langinn en ýmsir í Bretlandi höfðu vonað. Á fundinum hér verður fyrst fjallað um málefni Fríverzlunar- samtakanna og þróun mála innan þeirra að undanförnu. í framhaldi af því verður fjallað um viðræður Breta, Norðmanna og Dana við Efnahagsbandalagsríkin, og þær athuganir, sem farið hafa fram um stöðu annarra EFTA-ríkja, þ. a.m. fslands, gagnvart bandalag- Stofnlán vegna dráttarvélakaupa hækka í 40% EJ-Reykjavík, þriðjudag. Fyrir skömmu ákvað Stofn- lánadeild landbúnaðarins að hækka stofnlán vegna dráttarvéla Stofnlánin voru 30% af kaup- verði, en hækka í 40% af kaup- verði. Mývetningar gripu hugmynd um verzlunarskdla í Mývatnssveit Var fyrst hreyft á ferðamálaráðstefnu framsóknarmanna á Akureyri KJ—Reykjavík, þriðjudag. Á ferðamálaráðstefnu sem Kjör- dæmissamband framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra efndi til á sunnudaginn, í Mývatnssveit tilkynntu landeigendur Reykjahlíð- ar í Mývatnssveit að þeir hefðu ákveðið að gefa land undir verzlun- arskóla í landj Reykjahlíðar og jafnframt að þeir væru reiðubúnir að gefa land undir heilsu- og hress- ingarhæli. Þessi ákvörðun Reyk- hlíðinga, er í framhaldi af hug- mynd Birgis Þórhallssonar fram- kvæmdastjóra SAS á íslandi, að setja á stofn verzlunarskóla í Mý- vatnssveit, sem yrði notaður í þágu ferðamanna á sumrin, en gisti- rými skortir mjög í Mývatnssveit yfir hásumarið. Ráðstefna um ferðamál í Mý- vatnssveit var haldin í framhaldi af ferðamálaráðstefnu á Akureyri, Framhald á bls. 2. Nýju íbúSarhúsin i Reykiahlíð, sem mynda orðið myndarleaan þéttbýliskj arna við Mývatn. (Tímamynd KárU NTB—Höfðaborg, þriðjudag. Dirk Van Zyl, sem fékk nýtt hjarta við aðgerð, sem dr. Barnard framkvæmdi á Grotte Schuuer sjúkrahúsinu í Höfða- borg í gær, var við góða heilsu í dag. Hann er 45 ára gamall. Það var í 159 skipti sem skipt er um hjarta í manni, þar af í áttunda sinn í Suður- Afríku. Christian Barnard, sem fyrstur skipti um hjarta í manni, framkvæmdi hjarta- flutninginn, og stóð aðgerðin í sjö klukkustundir. Heimildir herma, að hjart- að, sem sett var í Zyl, hafði verið tekið úr blökkumanni, sem lézt af höfuðáverka á sunnudaginn. Zyl er kvæntur og tveggja barna faðir. Framboðs- frestur út- runninn í dag ET—Reykjavík, þriðjudag. Á morgun, miðvikudaginn 12. maí, er í síðasta lagi hægt að leggja fram framboðslista við alþingiskosningarnar 13. júní næstkomandi. Ljóst er að Framsóknarflokkurinn, Al- þýðuflokkurinn, Alþýðubanda- lagið og Sjálfstæðisflokkurinn munu bjóða fram í ölhim kjör- dæmum, og eins hafa Samtök frjálslyndra og vinstrimanna tilkynnt, að þau muni bjóða fram i ölhim kjördæmum. Þá mun koma í ljós á morg- un, hvort hinn svonefndi Fram boðsflokkur kemur með fram- boð í þremur kjördæmum, eins og boðað hefur verið, og frá er skýrt á öðrum stað í blað- inu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.