Tíminn - 16.05.1971, Blaðsíða 3
STJNNTJDAGUR 16. maí 1971
TÍMINN
3
fara og hvað þeir vilja gera.
Síðar er hann með hópnum
bókstaflega allan sólarhring-
inn. Það er ekki svo lítils virði
því að við höfum fengið þá
reynslu af svona ferðalögum,
að það er sama hvað fólkið er
„klárt“ að bjarga sér, það kem
ur alltaf eitthvað babb í bát-
inn, sem eitrar út frá sér og
eyðileggur ferðaánægjuna.
Slíku ætti vanur fararstjóri að
vera fær um að bjarga. Farar-
stjórinn verður á sama reki og
fólkið sem ferðast með klubbn
um, en það verður yfirleitt
fólk um tvítugt. Sé á heildina
litið verður það frá 16 og allt
upp í 32 ára.
— Hefur undirbúnings-
starfið ekki verið mikið?
— Það hefur kostað gífur-
lega vinnu og peninga, að und-
irbúa þennan klúbb. Starfið
hefur einkum verið fólgið í
undirbúningi ferðanna og svo
að auglýsa og standa fyrir ann
ars konar kynningarstarfsemi.
—.Hvað verða margir í
hverri ferð klúbbsins?
— Hámarkið er 30 manns.
Ég tel bagalegt að hafa hóp-
inn stærri vegna þess að þá
Framhald á bis. 10.
— segir Jens R. Ingólfsson, framkvæmdastjóri „Klub 32",
sem skipuleggur ferðir ungs fólks til Mallorca og fleiri
staða. — ísl. pophljómsveitir í næturklúbbum þar suðurfrá?
MHJUNGUFEM
UMSJÓN: EINAR BJÖRGVIN
„Klub 32“ er nafn sem marg
ir kannast nú við, en fyrir þá
sem ekki vita skal skýrt frá
því, að um er að ræða deild
innan ferðaskrifstofunnar
SUNNU. Klub 32 er hugsaður
sem ferðaklúbbur ungs fólks
og að sögn framkvæmdastjóra
klúbbsins, Jens Rúnars Ing-
ólfssonar, sem við fengum til
að spjalla við okkur um klúbb-
inn, varð hugmyndin að stofn-
un þessa klúbbs til í fyrrasum-
ar og á Guðni Þórðarson for-
stjóri Sunnu hugmyndina að
stofnun hans. Aðallega verða i
sumar ferðir til Mallorca á veg
um klúbbsins.
— Undanfarið hefur klúbb
urinn verið að þróast upp í
það að verða raunverulegur
klúbbur, sagði Jens Rúnar.
Markmiðið er ekki aðeins það,
að ungt fólk panti farmiða í
ferðir klúbbsins, heldur gerist
það virkir þátttakendur í starf
semi klúbbsins eftir ferðina.
Er hugmyndin sú að eftir
starfið í sumar verði kosin
stjórn klúbbsins og næsta vet-
JENS RÚNAR INGÓLFSSON
PIONEER
HLJÓMTÆKI:
HLJÚMPL0TUR
VINSÆLDA-
„Kynslóðaskiptin stað-
reynd - unga fólkið
vill ferðast samana
— Fararstjórinn heldur
fund á hverjum morgni með
hópnum, þar sem farþegarnir
skipuleggja með honum áætl-
un dagsins, hvert þeir vilja
ur standi hann fyrir ýmiss kon
ar skemmtunum, dansleikja-
haldi, lokuðum samkvæmum
fyrir meðlimi klúbbsins o.s.frv.
Raunverulega verður klubb-
urinn ekki stofnaður fyrr en á
fyrsta aðalfundi hans, sem
haldinn verður í haust.
— Annars er fjöldi af ungu
fólki þegar orðnir meðlimir
klúbbsins, heldur Jens Rúnar
áfram. Það eru einkum ung-
menni, sem búin eru að panta
ferðir á vegum klúbbsins og
það eru ekki svo fáir. Sem
dæmi um þátttökuna má nefna,
að þegar er næstum því upp-
selt í flestar Mallorca-ferðir
klúbbsins í sumar. Þátttakan
hefur farið fram úr öllum von-
um.
— Hvað er það sem skapar
þessar vinaældir?
— Það er fyrst og fremst
vegna þess, að þessar ferðir
okkar eru miklu ódýrari held-
ur en samsvarandi ferðir hjá
öðrum ferðaskrifstofum. Þessi
verðmismunur er allt upp í 7
þús. hvað Mallorca-ferðir
áhrærir.
— Hvernig er hægt að hafa
þennan mismun?
— Fyrst og fremst með því
að gera þannig samninga við
móðurfyrirtækið, SUNNU, að
við fyllum svokölluð afgangs-
sæti í leiguferðum, þó með
forgangsrétti að vissum fjölda
sæta. Þannig er sem sé hægt
að koma fargjöldum niður úr
öllu valdi, en fargjöldin hafa
einmitt verið langstærsti
kostnaðarliðurinn hingað til í
slíkum ferðum. Auk þess njót
um við náttúrulega þess, að
SUNNA hefur náð ótrúlega
hagstæðum samningum við hót
el, vegna mikils fjölda farþega.
í öðru lagi hvað vinsældimar
snertir, býður „Klub 32“ ungu
fólki ferðir sem eru algjörlega
miðaðar við smekk ungs fólks.
Kynslóðaskiptin er staðreynd.
Unga fólkið á ekki samleið
með eldra fólki í svona ferð-
um. Ferðir „Klub 32“ eru
skipulagðar af ungu fólki, fyr-
ir ungt fólk og sérstaklega við
hæfi ungs fólks. Þannig býr
hópur af ungu fólki á sér-
hóteli suður á Mallorca,
skemmtir sér saman, fer sam-
an á baðstrendur o.s.frv. Á
þennan hátt tel ég að ungt
fólk fái miklu meira út úr ferð
um til suðrænna landa en ella.
Það er því ekki eingöngu aug-
lýsingaslagorð hjá okkur, þeg-
ar við auglýsum „að Klub 32
tryggir yður skemmtilegasta
ferðalagið“. Á Mallorca býr
sérstakur fararstjóri með far-
þegunum, hann hefur það sér-
staka hlutverk að halda hópn-
um saman.
— Hvetnig tryggir hann
það bezt?
Leðurvörur Spánverja eiga miklum vinsældum a3 fagna meðal ungs fólks á Norðurlöndum, sem viSar. — Mynd-
in er fekin f leSurvöruverzlun á Mallorca.
KARNABÆR
Þeir vandlátustu velja PIONEER, vegna þess,
að þau eru með frábær hljómgæði, — sterk,
falleg og ódýr.
■jc Plötuspilarar
★ Hátalarar
★ Magnarar
LISTINN:
□ JESUS CHRIST SUPERSTAR
□ WOODSTOCK
□ DAVID CROSBY
□ JIMI HENDRIX
□ GEORG HARRISON
□ CREEDENCÉ CLEARWATER
REVIVAL
□ JOHN LENNON
□ SIMON AND GARFUNKEL
□ SHA NANA
□ RICHIE HAVENS
□ EMERSON LAKE AND PALMER
□ CROSBY STILL NASH
Merkið í □ við plötuna. Klippið úr
og sendið listann, og við póstsendum
plöturnar.
HLJÓMPLÖTUDEILD
Laugavegi 66. — Sími 136 30