Tíminn - 26.05.1971, Síða 1

Tíminn - 26.05.1971, Síða 1
ALLT FYRIR feOLTAÍÞRÓTTIR Sportvöruverzíun INGÓLFS ÓSKARSSONAR Klapparstíg 44 - Sími 11783. 116. tbl. Miðvikudagur 26. maí 1971 — 55. árg. Þarna er færeyski bátor'mn Fjalshamar á strarKtetaS fyrir utan Sandgerðishöfn í gærdag. Myndin var tekln af bryggjtmrri í SandgerSi. (Tímamynd G.E.) Færeyski fiskibáturinn Fjalshamar í strand við Sandgerði Var að ná í skipshundinn þegar hann strandaði OÓ-Reykjavík, þriðjudag. Það getur verið dýrt spaug að gleyma skipshundinum í landi, þegar lagt er úr höfn, eða svo reyndist það þegar færeyska skip- ið Fjalshamar frá Klakksvík sneri við út af Stafnnesi í morgun og ætlaði til Keflavíkur að ná í skipshundinn, sem varð eftjr þegar skipið fór frá Keflavík kl. 4 s.l. nótt. Var Fjalshamar á fullri ferð út af Sandgerði þegar skipið sigldi upp á Bæjarhús- eyri, sem er um 200 metra út af Sandgerðishöfn. Þar stóð skipið, sem er rúmur 300 lestir, á þurru í dag, en í kvöld kl. 6,30 dró björgunarskipið Goðinn það út á flóðinu. Skipið mun lítið skemmt, en botn þess verður athugaður áður en það fer héðan aftur. Það er bót í máli að skipshundurinn komst um borð. Lögreglan í Kefla vik tók hann í sína vörzlu í morg- nn og sendi hann til Sandgerðis og þaðan var hann fluttur út í Fjalshamar á Bæjarskereyri. Menn í Sandgerði urðu þess varir kl. 7 í morgun að skip sigldi á fullri ferð meðfram landi og stefndi beint á skerjagarð utan við Sandgerðishöfn. Bílstjórar flautuðu og bljkkuðu ljósum á bílum sínum til að vara skips- menn við hættunni, en þeir tóku ekki eftir og renndi skipið á fullri ferð inn á milli blindskerja, gem voru á kafi í flóðinu, og upp á eyrina. Þar stóð skipið á réttum kilj en hallaðist svolítið á bak- borða. Menn úr björgunarsveit- inni brugðu skjótt við og fóru t báti út í skipið. Meðal þeirra var Færeyingur, sem búsettur er t Sandgerði, til að túlka. Skip- stjórinn á standaða skipinu vildi enga aðstoð þiggja og lítið tala um erindj sitt upp á eyrina. En björgunarmenn fengu þó að vita að ekki var meiningin að sigla inn til Sandgerðis. heldur var skipið á leið til Keflavíkur, þar I Stafnnesi þegar hundsins var sem skipshundurinn varð eftir saknað, og það var snúið við. Þeg- þegar þaðan var haldið kl. 4 í ar fjaraði var hægt að ganga nótt. Var Fjalshamar kominn að | Framhald á bls. 3 Framsóknarmenn vinna ötullega að kosningaundirbúningi ET—Reykjavík, þriðjudag. Tíminn hafði í dag samband við kosningaskrifstofur framsóknar- manna úti á landi og innti for- svarsmenn þeirra frétta af kosn- ingastarfinu. Alls staðar fengust þau svör, að kosningastarfið hjá framsóknarmönnum gengi vel og virtist sem Framsóknarflokkurinn væri hvarvetna í sókn. Kosninga- baráttan virtist þó yfirleitt rólegri en oft áður. Þeir, sem við inntum frétta, voru sammála um, að meirá líf færðist í kosningabaráttuna eftir flokkakynningarnar i sjón- varpinu, á þriðjudags- og miðviku dagskvöld. VESTURLAND. Aðalkosningaskrifstofa framsókn- armanna í Vesturlandskjördæmi er í Borgarnesi og varð Guðrún Eggertsdóttir, kosningastjóri, fyr- ir svörum. Hún sagði, að kosninga- starfið gengi vel og virtust fram- sóknarmenn í sókn í kjördæminu og stefndu að kjöri þriggja manna í kosningunum 13. júní. Til marks um þetta nefndi Guðrún, að fram- sóknarmenn hefðu fyrir skömmu haldið samkomu í Röst á Hellis- sandi, og hefðu á fimmta hundrað manns sótt þá samkomu. Á sama tíma héldu sjálfstæðismenn bingó Framhald á bls. 3 Eðvarð’ Hannibal Jóhann Emil — sömdu um nýja vísitölu, sem gerði — verða þeir við hlnnl réttlátu og lánskjör íbúðalána enn óhagstæðari sjálfsögðu kröfu um leiðréttingu í fyrir lántakendur en áður var. vísitölubindingu íbúðalánarma? Almenningur greiðir nú okurvexti af íbúðalánum: Leiðrétta verður þegar í stað vísitöluákvæðin EJ-Reykjavík, þriðjudag. Að undanförnu hefur risið upp megn óánægjualda með þá okur- vexti, sem lántakendur verða að greiða af íbúðalánum Húsnæðis- málastjórnar, en þessir okurvext- ir hófu göngu sína með samning- um verkalýðslireyfingarinnar og ríkisstjórnarinnar í júní 1964. Greinilega hefur komið í Ijós, að sú breyting, sem gerð var á vísi- tölutryggjngu íbúðalánanna eftir kjarasamningana 1968, og sem áttj að vera til hagsbóta fyrir lántakendur, hefur haft þveröfug álirif, og var því samþykkt á Alþingi á riingum forsendum. Sú krafa er nú orðin mjög hávær, að ríkisstjórnin geri nú þegar, í samráði við þingflokkanna, þá lágmarksbreytingu á vísitölubind- ingu íbúðalána, að hún verði a.m. k. hagstæðari fyrir lántakendur en fyrjr breytinguna 1968 — þótt auðvitað sé eðlilegast, að íbúða- lánjn séu ekki vísitölubundin frekar en önnur lán. í kvöld, miðvikudagskvöld, heldur flokkakynningin í sjónvðrpi áfram og verSa nú kynntir: AlþýSubandalag, Framsóknarflokkur og Samtök frjálslyndra og vinstrl manna. Á myndinni aS ofan, sem tekin er vlð upptöku kynnlngarlnnar ,sjást fulltrúar Framsóknarflokksins í flokkakynningunnl, tallð frá vinstri Tómas Karlsson, Hafsteinn Þorvaldsson, Alexander Stefánsson og Jónas Jónsson. Það var með júní-samkomulag- inu 1964, sem nýtt kerfi um vísi- tölubindingu íbúðalána var tekið upp. í samkomulaginu, sem gert var, fyrir forystu Hannibals Valdi marssonar og Eðvarðs Sigurðsson- ar, við ríkisstjórnina ,sagði m.a., að til þess að „hægt verði að lækka vexti og haga lánskjörum í samræmi við greiðslugetu alþýðu fjölskyldna, verðj tekin upp vísi- tölubinding á öllum íbúðalánum. Er gert ráð fyrir því, að lánakjör á íbúðalánum verði þannig, að iánin verði afborgunarlaus í eitt ár og greiðist síðan á 25 árum með 4% vöxtum og jöfnum árs- greiðslum vaxta og afborgana. Full vísitöluuppbót reiknjst síðan á þessa árgreiðslu". Vísitöluupp- bótin skyldi reiknuð eftir kaup- gjaldsvísjtölu. Það kom brátt í ljós, að það varð lántakendum til mikils óhag ræðis, að öll lánsupphæðin skyldi þannig vísitölubundin. Þetta þýddi í reynd stórfellda vaxtahækkun, og framsóknarmenn hófu því bar- áttu fyrir því, að vísitölubjnding- in yrði felld niður að mestu, og fluttu um það tillögur á Alþingi. Þótt þessi barátta bærj ekki Framhald á bls. 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.