Tíminn - 26.05.1971, Qupperneq 1
ALLT FYRIR
feOLTAÍÞRÓTTIR
Sportvöruverzíun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 44 - Sími 11783.
116. tbl.
Miðvikudagur 26. maí 1971 —
55. árg.
Þarna er færeyski bátor'mn Fjalshamar á strarKtetaS fyrir utan Sandgerðishöfn í gærdag. Myndin var tekln af
bryggjtmrri í SandgerSi. (Tímamynd G.E.)
Færeyski fiskibáturinn Fjalshamar í strand við Sandgerði
Var að ná í skipshundinn
þegar hann strandaði
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Það getur verið dýrt spaug að
gleyma skipshundinum í landi,
þegar lagt er úr höfn, eða svo
reyndist það þegar færeyska skip-
ið Fjalshamar frá Klakksvík sneri
við út af Stafnnesi í morgun
og ætlaði til Keflavíkur að ná
í skipshundinn, sem varð eftjr
þegar skipið fór frá Keflavík kl.
4 s.l. nótt. Var Fjalshamar á
fullri ferð út af Sandgerði þegar
skipið sigldi upp á Bæjarhús-
eyri, sem er um 200 metra út af
Sandgerðishöfn. Þar stóð skipið,
sem er rúmur 300 lestir, á þurru
í dag, en í kvöld kl. 6,30 dró
björgunarskipið Goðinn það út á
flóðinu. Skipið mun lítið skemmt,
en botn þess verður athugaður
áður en það fer héðan aftur. Það
er bót í máli að skipshundurinn
komst um borð. Lögreglan í Kefla
vik tók hann í sína vörzlu í morg-
nn og sendi hann til Sandgerðis
og þaðan var hann fluttur út í
Fjalshamar á Bæjarskereyri.
Menn í Sandgerði urðu þess
varir kl. 7 í morgun að skip sigldi
á fullri ferð meðfram landi og
stefndi beint á skerjagarð utan
við Sandgerðishöfn. Bílstjórar
flautuðu og bljkkuðu ljósum á
bílum sínum til að vara skips-
menn við hættunni, en þeir tóku
ekki eftir og renndi skipið á
fullri ferð inn á milli blindskerja,
gem voru á kafi í flóðinu, og upp
á eyrina. Þar stóð skipið á réttum
kilj en hallaðist svolítið á bak-
borða. Menn úr björgunarsveit-
inni brugðu skjótt við og fóru
t báti út í skipið. Meðal þeirra
var Færeyingur, sem búsettur er
t Sandgerði, til að túlka. Skip-
stjórinn á standaða skipinu vildi
enga aðstoð þiggja og lítið tala
um erindj sitt upp á eyrina. En
björgunarmenn fengu þó að vita
að ekki var meiningin að sigla
inn til Sandgerðis. heldur var
skipið á leið til Keflavíkur, þar I Stafnnesi þegar hundsins var
sem skipshundurinn varð eftir saknað, og það var snúið við. Þeg-
þegar þaðan var haldið kl. 4 í ar fjaraði var hægt að ganga
nótt. Var Fjalshamar kominn að | Framhald á bls. 3
Framsóknarmenn
vinna ötullega að
kosningaundirbúningi
ET—Reykjavík, þriðjudag.
Tíminn hafði í dag samband við
kosningaskrifstofur framsóknar-
manna úti á landi og innti for-
svarsmenn þeirra frétta af kosn-
ingastarfinu. Alls staðar fengust
þau svör, að kosningastarfið hjá
framsóknarmönnum gengi vel og
virtist sem Framsóknarflokkurinn
væri hvarvetna í sókn. Kosninga-
baráttan virtist þó yfirleitt rólegri
en oft áður. Þeir, sem við inntum
frétta, voru sammála um, að meirá
líf færðist í kosningabaráttuna
eftir flokkakynningarnar i sjón-
varpinu, á þriðjudags- og miðviku
dagskvöld.
VESTURLAND.
Aðalkosningaskrifstofa framsókn-
armanna í Vesturlandskjördæmi
er í Borgarnesi og varð Guðrún
Eggertsdóttir, kosningastjóri, fyr-
ir svörum. Hún sagði, að kosninga-
starfið gengi vel og virtust fram-
sóknarmenn í sókn í kjördæminu
og stefndu að kjöri þriggja manna
í kosningunum 13. júní. Til marks
um þetta nefndi Guðrún, að fram-
sóknarmenn hefðu fyrir skömmu
haldið samkomu í Röst á Hellis-
sandi, og hefðu á fimmta hundrað
manns sótt þá samkomu. Á sama
tíma héldu sjálfstæðismenn bingó
Framhald á bls. 3
Eðvarð’ Hannibal Jóhann Emil
— sömdu um nýja vísitölu, sem gerði — verða þeir við hlnnl réttlátu og
lánskjör íbúðalána enn óhagstæðari sjálfsögðu kröfu um leiðréttingu í
fyrir lántakendur en áður var. vísitölubindingu íbúðalánarma?
Almenningur greiðir nú okurvexti af íbúðalánum:
Leiðrétta verður þegar
í stað vísitöluákvæðin
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Að undanförnu hefur risið upp
megn óánægjualda með þá okur-
vexti, sem lántakendur verða að
greiða af íbúðalánum Húsnæðis-
málastjórnar, en þessir okurvext-
ir hófu göngu sína með samning-
um verkalýðslireyfingarinnar og
ríkisstjórnarinnar í júní 1964.
Greinilega hefur komið í Ijós, að
sú breyting, sem gerð var á vísi-
tölutryggjngu íbúðalánanna eftir
kjarasamningana 1968, og sem
áttj að vera til hagsbóta fyrir
lántakendur, hefur haft þveröfug
álirif, og var því samþykkt á
Alþingi á riingum forsendum. Sú
krafa er nú orðin mjög hávær,
að ríkisstjórnin geri nú þegar,
í samráði við þingflokkanna, þá
lágmarksbreytingu á vísitölubind-
ingu íbúðalána, að hún verði a.m.
k. hagstæðari fyrir lántakendur
en fyrjr breytinguna 1968 — þótt
auðvitað sé eðlilegast, að íbúða-
lánjn séu ekki vísitölubundin
frekar en önnur lán.
í kvöld, miðvikudagskvöld, heldur flokkakynningin í sjónvðrpi áfram og verSa nú kynntir: AlþýSubandalag,
Framsóknarflokkur og Samtök frjálslyndra og vinstrl manna. Á myndinni aS ofan, sem tekin er vlð upptöku
kynnlngarlnnar ,sjást fulltrúar Framsóknarflokksins í flokkakynningunnl, tallð frá vinstri Tómas Karlsson,
Hafsteinn Þorvaldsson, Alexander Stefánsson og Jónas Jónsson.
Það var með júní-samkomulag-
inu 1964, sem nýtt kerfi um vísi-
tölubindingu íbúðalána var tekið
upp. í samkomulaginu, sem gert
var, fyrir forystu Hannibals Valdi
marssonar og Eðvarðs Sigurðsson-
ar, við ríkisstjórnina ,sagði m.a.,
að til þess að „hægt verði að
lækka vexti og haga lánskjörum
í samræmi við greiðslugetu alþýðu
fjölskyldna, verðj tekin upp vísi-
tölubinding á öllum íbúðalánum.
Er gert ráð fyrir því, að lánakjör
á íbúðalánum verði þannig, að
iánin verði afborgunarlaus í eitt
ár og greiðist síðan á 25 árum
með 4% vöxtum og jöfnum árs-
greiðslum vaxta og afborgana.
Full vísitöluuppbót reiknjst síðan
á þessa árgreiðslu". Vísitöluupp-
bótin skyldi reiknuð eftir kaup-
gjaldsvísjtölu.
Það kom brátt í ljós, að það
varð lántakendum til mikils óhag
ræðis, að öll lánsupphæðin skyldi
þannig vísitölubundin. Þetta þýddi
í reynd stórfellda vaxtahækkun,
og framsóknarmenn hófu því bar-
áttu fyrir því, að vísitölubjnding-
in yrði felld niður að mestu, og
fluttu um það tillögur á Alþingi.
Þótt þessi barátta bærj ekki
Framhald á bls. 3