Tíminn - 27.05.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 27.05.1971, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 27. maí 1971. .... I . ........... ■ ■ II ■■■■ — TVEGGJA ÁRA ÓK BÍL MÚÐUR SINNAR EB—Reykjavík, miðvikudag. Síðdegis í gær, skildi móðir tveggja ára barn sitt eftir í fólks bíl, fyrir utan Strandgötu 52 á Akureyri, á meðan hún skrapp inn í húsið. Skildi móðirin bíllykil- inn eftir í lásnum, og segist hafa sett handhemilinn á. Mun barnið hafa startað bílnum og skipti þá engum togum, bíllinn fór af stað og hafnaði á ljósastaur 50—60 m frá húsinu. Barnið sakaði ekki, litlar skemmdir urðu á bílnum og Ijósastaurinn var með öllu óskemmdur. Stórskeramdust í árekstri EB—Reykjavík, miðvikudag. Harður árekstur varð um átta- leytið í kvöld á Akureyri. Fólks- bíll og jeppi rákust á, á mótum Strandgötu og Glerárgötu. Báðir bílarnir skemmdust en fólk í þeim slapp ómeitt. CESAR VAR HEPPINN GS—ísafirði, EB—Rvík, miðvikud. Cesar hefur, allt frá því loksins tókst að bjarga honum, legið við bryggju hér á ísafirði. Hallast hann enn eins mikið og hann gerði áður, þrátt fyrir að tilraunir marg- ar hafa verið gerðar til þess að rétta hann við. Björgunarskipin tvö eru hér enn. Þá liggja nú nokkrir enskir togarar hér við bryggju. Ségja má það heppni að tókst að bjarga Cesari áður en norðan- véðrið skall á. Ef björgunartilraun irnar hefðu ekki borið árangur fyrir veðurbreytinguna, hefði ár- angur þeirra orðið annar en raun ber vitni, en eins og allir vita, var logn vestra allan þann tíma, sem Cesar hafiðst við á skerinu. Landsbyggðarmál Framsóknarflokkurinn leggur höfuðáherzlu á að vinna að framförum í öllum landshlutum, og þar með þjóðarinnar allrar, með því að taka landsbyggðar- málin nýjum og fastari tökum. Flokkurinn leggur þar m.a. áherzlu á eftirfarandi: • Helztu framfaramálum landshlutanna verði raðað í forgangsröð á grundvelli fram- kvæmda- og fjáröflunaráætlana. • Sjálfsstjórn einstakra lands hluta verðiaukin og myndaðir byggðakjarnar, sem séu mið- stöðvar atvinnulífs, menntunar, heilsugæzlu og stjórnsýslu jafn- framt, því, sem stefnt verði að flutningi einstakra ríkisstofn- ana út á landsbyggðina. • 1 heildaráætlun um skipu- lega eflingu atvinnulífsins verði miðað að sem beztri nýtingu landkosta og sjávarafla, fjár- magns og vinnuafls og stuðiað að því, að blómleg byggð haldist um landið allt, þar sem fólkið njóti hverskyns samfélagsþjón- ustu. 0 Hlunnindi og aðrtr land- kostir, hverju nafni sem nefn- ast, séu nýttir af íbúum við- komandi byggða. • Lokið verði tafarlaust raf- væðingu alira þeirra byggða og býla, sem til greina kemur að fái raforku frá samveitum, og opinber aðstoð komi til við raf- væðingu þeirra byggða og býla, sem ekki er hagkvæmt að tengja samveitum. Jafnframt verði stefnt að jöfnunarverði raforku á öllum þeim svæðum landsins, sem raforku fá frá „landsvirkjun“, sem skipuleggja á og framkvæma alla raforku- framleiðslu í vatnsföllum og jarðhitasvæðum og annast dreif ingu roforkunnar til hinna ýmsu rafveitna, þar á meðal Rafmagns veitna ríkisins. • í langtímaáætlun um upp- byggingu samgöngukerfisins, sem gera verður, sé miðað við, að landið verði allt byggt og gæði þess nýtt. Samgöngur verði daglegar innan héraðs pg hér- aða á milli, og vetrarsamgöng- ur til sem flestra byggðarlaga tryggðar. Risatrukkurinn er engin smásmíði. Á myndinni standa Indriði og þrjú börn hans við bifreiðina, sem er rúmir pjjjpjjlf | í § | io wm ■ f . 111 ||pÉ ;|o I —.«• 3 metrar á hæð og beidd. (Tímamynd ET) STÆRSTI BÍLL LANDSINS KOSTAR 4,5 MILLJ. KR. ET—Reykjavík, miðvikudag. Stærsta bifreið landsins, 24 tonna þungaflutningabifreið af tegundinni Aveling Barford, stend ur nú inni við Sundahöfn og bíð- ur gítir að komast í gagnið við virkjunaframkvæmdirnar austur við Þórisvatn. Eigandi bifreiðar- innar er Indriði Indriðason og fékk Tíminn hjá honum eftirfar- andi upplýsingar um þennan risa- stóra trukk. Bifreiðin er af Veling Barford ■— tegund, framleidd af samnefndri verksmiðju í Grantham í Englandi. Þessi gerð af tegundinni nefnist SN-35, og er hún 3,20 m á hæð og 3,30 m á breidd. Bifreiðar þess arar tegundar eru dreifðar um allt brezka heimsveldið og mik- ið notaðar við alls kyns flutninga. Þessi risabifreið er mjög létt í meðförum miðað við stærð og auð velt að stjórna henni. Orka h.f. flytur bifreiðina inn, en hún kostar um 4,5 millj. króna. Þessi gerð hefur þó verið mun dýrari, en vegna þess að fram- leiðsla á henni (þ.e. þessari gerð), er hætt og þetta er fyrsta bifreið- in þessarar tegundar, er hingað kemur, fékkst bifreiðin með ein staklega góðum kjörum. — Vélin í risanum er af teg. Rolls-Royce, 450 hestöfl og eyðir hún miðað við full afköst u.þ.b. 20 1. af olíu á klst. Eins og áður sagði, er eigin þyngd bifreiðarinnar um 24 Framhald á bls. 14. • Aðstaða til náms verði gerð sem jöfriust, bæði með dreif- ingu mennta og menningarstofn- ana sem víðast um land og með fjárhagslegum stuðningi við nemendur, sem verða að vista sig til náms að heiman, og hindra að nokkur þurfi að verða af skólagöngu vegna efnaleysis. Þátttaka ríkisins í rekstri skóla í strjálbýlinu verði aukin og þau byggðalög, sem enn búa við farskólafyrirkomulagið, hafi for gangsrétt til fjárframlaga til skólabygginga. • Læknisþjónustan í héruð- unum verði bætt m.a. með því að koma upp sem fullkomnust- um lækningamiðstöðvum, með velmenntuðu starfsliði, þar sem henta þykir á stöðum, sem liggja vel við samgöngum. Bæta verður eftir föngum starfsskil- yrði héraðslækna og möguleika sjúklinga í strjálbýlinu til að njóta læknishjálpar. Allir lands- menn, hvar sem þeir búa í land inu, eigi kost á góðu heilbrigðis- eftirliti. --------------------—-------J Bar þremur lömbum með viku millibili EB—Reykjavík, miðvikudag. Nú á mánudaginn gerðist það á býlinu VöIIum við Hvolsvöll, að ær eignaðist tvö lömb. Slíkt væri að sjálfsögðu ekki í frásögn fær- andi, ef sama ær hefði ekki bor- ið á mánudaginn í hinni. vikunni, en þá eignaðist hún eitt lamb. Mun það vera óvcnjulegt að ær beri með slíku millibili. Húsmóðirin á Völlum sagði í viðtali við Tímann í dag, að lömb- in, sem öll eru hrútar, væru ekk- ert frábrugðin öðrum lömbum og og ærin, scm þau eignaðist, væri ósköp venjuleg ær, sem virtist kunna vel við þessa fjölgun í fjölskyldu sinni. Eldur við Laugaveg EB—Reykjavik, miðvikudag. Slökkviliðið í Reykjavik var kallað út rétt fyrir kl. 22 í kvöld, vegna elds er komið hafði upp í bakhúsi við Laugaveg, en húsið er í eigu fyrirtækisins P.Ó. Tókst slökkviliðinu að kæfa eldinn á rúm um hálftíma. Ekki var kunnugt hve mikið tjón varð vegna elds- ins, þcgar blaðið fór í prentun í kvöld. .....................~-----------------------------------------1 Ályktun aðalfundar Samvinnutrygginga: AUKINN UMFERÐARARÚÐUR VARDAR ALLA ÞJQÐINA KJ—Reykjavík, miðvikudag. A aðalfundi Samvinnutrygg- inga, sem haldinn var á Sauðár- króki á föstudaginn, var sam- þykkt ítarleg ályktun um um- ferðarmál, og þá sérstaklega um að umferðaráróður verði stór- aukinn. Er þar skorað á dóms- málaráðherra, Alþingi og ríkis- stjórn, að beita sér fyrir úrbót- um í þessum efnum, enda sé aukinn umferðaráróður þjóð- hagslegt hagsmunamál, sem snerti líf og hamingju hvers einasta borgara. Ályktunin sem aðalfundurinn samþ. fer í heild hér á eftir. Aðalfundur Samvinnutrygg- inga, haldinn á Sauðárkróki föstudaginn 21. maí 1971, harm- ar það furðulega vanmat stjórn- valda á gildi umferðaráróðurs í nútímaþjóðfélagi, sem felst í stór-skertri fjárveitingu Alþing- is til Umferðarráðs á þessu ári. Af þessu tilefni og vegna brýnnar nauðsynjar á auknum umferðarslysavörnum, hvetur fundurinn hæstvirtan dómsmála ráðherra til að beita sér nú þeg- ar fyrir: 1) að fjárveitingar til Um- ferðarráðs verði auknar, svo sem þörf krefur, og unnið verði að því að skapa ráðinu varan- legan tekjustofn, þannig að með starfsemi þess verði unnt að ná þeim árangri, scm upphaflega var stefnt að, þegar ráðinu var komið á fót. 2) að Umferðarráði verði gert kleift að koma á framfæri í Sjónvarpinu þeim fræðsluþátt- um um umferðarmál og umferð- arslysavarnir, sem ráðið telur nauðsynlega 3) að umferðarlöggæzla verði efld, svo að um muni 4) að kannað verði, á hvern hátt sé unnt að breyta ákvæðum laga um viðurlög við umferðar- lagabrotum, í þeim tilgangi, að beiting þeirra verði til þess að draga verulega úr umferðar- slysunum. Að lokum leyfir fundurinn sér að benda hæstvirtu Alþingi og ríkisstjórn á, að kostnaðuririn við hverjar þær ráðstafanir, sem verða mega til þess að draga úr umferðarslysunum og afleiðingum þeirra, skilar sér margfaldur aftur til þjóðarbús- ins. Hér er um þjóðhagslegt hagsmunamál að ræða, sem auk þess snertir líf og hamingju hvers einasta borgara og er raunhæfasta leiðin til læklcun- ar tjónbóta og þar með iðgjalda í bifreiðatryggingum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.