Tíminn - 04.06.1971, Síða 2

Tíminn - 04.06.1971, Síða 2
M_________ TIMINN FÖSTUDAGUR 4. júní 1971 Mýtja íþróttahúsiS í Neskaupstað. (Tímamynd ÞÓ) Nýtt íþróttahús vígt í Neskaupstað BREYTINGAR FYRIRHUGADAR Á SJÚMANNASTOFUNNI VÍK ÞÓ—Neskaupstað, þriðjudag. í gær, mánudag, var vígt nýtt íþróttahús í Neskaupstað. Það var árið 1964, að ákveðið var að hefj ast handa um byggingu íþrótta- húss í Neskaupstað. í fyrstu var ætlunin að húsið yrði 33 sinnum 18 metrar að stærð, en þótt íþrótta fulltrúi ríkisins hefði samþykkt það, þá fengust stjórnvöldin ekki til að samþykkja það. Var þá ákveð ið að byggja húsið í tveim áföngum, og vár"þáð fyrri áfangi hússins sem tekinn var í notkun í gær. Sá áfangi sem vígður var í gær, er rúmir 5000 þús. rúmm. að stærð, en sjálfur íþróttasalur inn er 21x18 metrar. Stefán Þorleifsson, formaður húsbygginganefndar hússins islkýrði frá byggingu hússins í EB—Reykjavík, fimmtudag. — Við erum þeirrar skoðunar, að íslenzkir stangavciðimcnn noti margir hverjir of þung og gróf tæki við fluguveiði og gætu aukið ánægju sína af sportinu stórlcga með því að taka upp nettari veið arfæri. Þetta segir Stefán Jónsson, Bændur Er 12 ára, að verða 13, langar til að komast í sveit, er vanur skepnum. Upplýsingar í síma 41647. Auglýsið í Tímanum ræðu, sem hann flutti við opnun þess, og sagði hann, að bygging hússins hefði gengið mun hægar en ráð hefði verið fyrir gert. Fjár ráð bæjarfélagsins hefðu minnk að það mikið um tíma og síðast en ekki sízt dýrtíðin hefði gert húsið miklu dýrara en búizt hefði verið við í upphafi. Alls er kostn aður hússins orðinn 14—15 mill jónir króna, en þessi áfangi mun kosta nokkru meira þar sem ekki er öllu 'lokið ennþá, t.d. á eftir að ljúka herbergi sem Gagnfræða skóli Neskaupstaðar fær til af nota og einnig á eftir að ljúka við húsið að utan. Þótt húsið hafi verið vígt í gær, var það tekið í notkun til íþróttakennslu í janúarmánuði s. 1. og óhætt er að segja að það hafi verið notað frá morgni til kvölds, sagði Stefán. fréttamaður, í bók sinni „Með flugu í höfðinu“ er Bókaútgáfa Guðjóns Ó, hefur nú gefið út. í bókinni er fjallað um tæki til fluguveiða og notkun þeirra. Ritar Stefán bókina fyrir atbeina Jó- hanns Þorsteinssonar, Kolbeins Grímssonar, Vilhjálms Lúðviksson ar og Þorsteins Þorsteinssonar. í inngangi bókarinnar segir að með samanteklinni hafi þeir allir fimm bundið sinn eigin vönd í nokkr um skilningi, því mörg atriði, sem þeir leggi dóm á orki tvímælis. — Áf því leiðir, segir í inngang inum, að kvcrið úir og grúir af ályktunum og staðhæfingum, sem gefa efni til hvassra andmæla af hálfu þeirra, sem betur þykjast vita. Við samninguna höfum við þó stuðzt við rit hinna sannfróð ustu vitringa um stangaveiðitæki, leitað álits athugulla og hugvit- samra innlendra stangaveiðimanna og síðan að vísu bætt við okkar eigin reynslu með þeim árangri, sem hér sér nú dagsins ljós. Bókin er 80 bls. með mörgum myndum. Sá Áslaug Sverrisdóttir um káputeikningu og myndskreyt ingu. Næsta ár er áformað að byrja á seinni áfanga hússins og í kjall ara þess er áformað, að rísi sundlaug, sem notuð verði til vetraræfinga, cn í Neskaupstað er útisundlaug sem starfrækt er 3—4 mánuði á ári. Yrði þessi sund- laug norðfirzku sund- og skóla- fólki að miklu gagni. Stefán sagði að lokum, að íþróttir væru hverj um manni nauðsynlegar, ekki síð ur þeim eldri. Á eftir Strfáni tók næstur til máls Bjarni Þórðarson, bæjarstjóri og afhenti hann síðan Fræðsluráði Neskaupstaðar húsið og tók Hjörleifur Guttormsson, formaður Fræðsluráðs við því. Sagðist hann vonast til að húsið ætti eftir að koma norðfirzkum æskulýð að sem mestu gagni. Fjölmargir tóku til máls á eftir Hjörleifi og húsinu bárust árnað aróskir frá ýmsum aðilum. Arkitekt hússins er Þorvaldur Kristmundsson, en aðrir sem sáu um byggingu þess, eru; ívar Kristinsson sem var byggingameist ari þess, Óli Þór Hjaltason og Þorgeir Sigfinnsson sem sáu um múrverk, um raflagnir sá Kristj án Lundberg, málun, Hilmar Símonarson, hitalagnir lögðu starfsmenn Síldarvinnslunnar h.f. en lofthitunarkerfi kom frá Verk stæði ívars Hannessonar í Reykja vík. Um nokkurra ára skeið hefur Sjómannadagsráð Keflavíkur og Njarðvíkur rekið Sjómannastofuna Vík í Kcflavík. Húsnæði það sem stofan er í, var áður Matstofan Vík. Þetta er tvcggja hæða hús, og er matsala á neðri hæð, en rúmgóður salur á efri hæð. í kjallara hússins eru góðar geymslur. Rekstri þessa húss hef ur verið þannig háttað, að yfir vetrarmánuðina hcfur efri hæðin verið opin öllum þeim sjómönn um, er til Keflavíkur hafa lagt leið sína. Þar hafa verið á boð- stólum veitingar, þar er sjónvarp og útvarp og aðstaða til aö spila og tefla. Einnig er nokkur vísir að bóka safni. Neðri hæð hússins hefur verið leigð út og hefur Reynir Guðjóns son rekið þar Matstofuna Vík að undanförnu við góðan orðstír. Reynir hefur og annazt veitinga sölu á Sjómannastofunni. Sjó- mannadagsráð Keflavikur og Njarð víkur hefur nú fengið nokkra reynslu af rekstri stofunnar, og má segja, að eftirtalin atriði hafi komið skýrt í ljós. 1) Á jafn stóru sjávarútvegs1 svæði og Suðurnesin eru, er full nauðsyn fyrir Sjómannastofu. 2) Húsnæði stofunnar, eins og það er í dag, fullnægir ekki þeim kröfum, sem til þess eru gerðar. Þær umbætur sem gera þarf eru í stuttu máli þessar: Það þarf að koma upp böðum í kjallara húss ins. Það þarf að auka við bóka safnið og gera sérstaka lesstofu. Má með færanlegum veggjum Hinn lþ maí s. 1. afhenti stjórn Líknarsjóðs stúkunnar nr. 7, Þor- kels Mána I.O.O.F., Hjartavernd að gjöf hjartalínuritunartæki af gerðinni Mingograp 34. Tæki þetta er hið vandaðasta og kostar um kr. 250, þúsund. Próf. Sigurður Samúelsson, for maður Hjartaverndar, veitti gjöf koma á betri nýtingu salarins, þannig að sjómenn geti sinnt ýms um tómstundamálum sínum án truflana. Þá þarf einnig að gera miklar þreytingar á húsakynnum matsölunnar, og gera kleifan rekst ur hennar með nútíma sniði þ.e.a.s. með uppsetningu grillofna o.fl. Sjómannadagsráð hefur litla möguleika til að koma þessum breytingum í framkvæmd, öðru vísi en að leita til almennings. Hefur því verið ráðizt í að efna til happdrættis, sem dregið verð ur í á Sjómannadaginn n. k. Von ast ráðið til að velunnarar sjó- manna taki happdrættinu með velvilja og kaupi miða. Hinir íslenzku sjómenn eiga allt hið bezta skilið. (Frá Sjómannadagsráði Keflavík- ur) Styrkur til kvenstúdents Kvenstúdentafélag íslands hef- ur ákveðið að veita styrk til kven stúdents úr styrkveitingasjóði fé- lagsins eins og undanfarin ár til náms við Háskóla íslands eða við erlendan háskóla. Styrkþegi þarf að minnsta kosti að hafa lokið tveim þriðju hlutum námsins. Eyðublöð fást í skrifstofu Há- skóla íslands, en skilist í Pósthólf 327 fyrir 15. ágúst n. k. (Fréttatilkynning frá Kvenstúd entafélagi íslands). inni móttöku og þakkaði f. h. Hjartaverndar. Sagði prófessor Sigurður að það væri mikil uppörvun í starfi fyrir forráðamenn og starfsfólk Hjarta verndar að hljóta slíka stórgjöf. Framkvæmdastjórn Hjartavemd ar biður blaðið fyrir þakkir til félagsmanna stúkunnar nr. 7, Þor- kels Mána I.O.O.F. Frá afhendingu gjafarinnar. RITA BÓK UM FLUGUVEIÐI HJARTA VERND GEFIN STÓRGJÖF

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.