Fréttablaðið - 18.09.2002, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 18. september 2002
AKUREYRI Fréttablaðinu er frá og
með deginum í dag dreift í öll hús
á Akureyri. Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóri Akureyrar fagn-
ar þessum tíðindum. „Það er
ánægjulegt að menn hafi getu og
trú á því að hér séu tækifæri fyr-
ir þennan fjölmiðil.
Við vonum það að
þetta verk verði til
að styrkja Akur-
eyri.“ Kristján Þór
segir að það verði
óhjákvæmilegt að
fréttaflutningur úr
bænum fái vægi í
blaðinu.
Fyrir hálfu öðru
ári hófu bæjaryfir-
völd að auglýsa kosti bæjarins til
búsetu. „Í þessu fólust engar full-
yrðingar um að hér væri allt í
himnalagi. Hins vegar vildum við
benda á að búsetukostir hér eru
betri en víðast annars staðar. Í og
með vorum við að hvetja fólk sem
hugði á flutninga að bera saman
búsetukosti hér við þá staði sem
það hugðist flytja til.“
Í auglýsingum var meðal ann-
ars vakinn athygli á fjölbreyttu
menningar- og tómstundalífi í
bænum. „Það þarf ekki annað en
að líta til síðustu helgar til að sjá
hve mikið var um að vera bæði í
menningar- og íþróttalífi,“ segir
Kristján Þór.
Akureyri hefur verið vinsæll
áningarstaður ferðamanna, eink-
um innlendra. „Við höfum rann-
sóknir sem sýna að Akureyri er
vinsælasti áningarstaður inn-
lendra ferðamanna. Bærinn ber
höfuð og herðar yfir aðra staði
hvað það varðar.“ Kristján segir
að markvisst hafi verið unnið í því
að lengja ferðamannatímann.
Vetrarferðir til Akureyrar eru
góður kostur. Töluvert gistirými
er í bænum og mikið uppbygging-
arstarf verið unnið í aðstöðu til
iðkunar vetraríþrótta.
Bærinn var til skamms tíma
þekktastur sem iðnaðarbær, en
hefur á síðari árum orðið einn öfl-
ugasti útgerðarbær landsins. „Við
erum með öfluga útgerð og fyrir-
tæki á því sviði. Við erum líka
með öflugt skólasamfélag. Sama á
hvaða skólastig við horfum.“
Kristján Þór segir að bæjarbúar
hafi unnið vel úr þeim breyttu að-
stæðum, þegar verksmiðjurnar
voru lagðar niður.
Hann er bjartsýnn fyrir hönd
bæjarins. „Ég hef fulla trú á því
að sveitarfélagið eigi eftir að vaxa
tiltölulega hratt miðað við fyrri
ár. Trúin á getu og gæði bæjarins
er vaxandi, bæði innan bæjar og
utan. Tækifæri liggja í því sem
hefur verið að skjóta rótum hér á
undanförnum árum. Tækifærum
sem tengjast menntun, menningu
og heilbrigðisþjónustu.“
haflidi@frettabladid.is
SJÓNVARP Silfur Egils verður á
dagskrá Skjás eins næstkomandi
sunnudag og hefst þar með þriðja
starfsárs Egils Helgasonar á
skjánum. Þátturinn hefur meðal
annars verið kjörinn besti sjón-
varpsþáttur ársins og afgerandi
hluti af þjóðmálaumræðunni í
landinu.
„Ég breyti engu. Held bara
áfram,“ segir Egill Helgason sem
dvalið hefur í Suður - Frakklandi í
sumar ásamt ungum syni sínum
og konu. „Þátturinn verður á dag-
skrá í allan vetur og fram yfir
kosningar næsta vor. Ég sem bara
fyrir eitt tímabil í einu,“ segir
hann.
EGILL HELGASON
Næsta sunnudag.
Skjár einn:
Egill aftur
Búsetukostir
eru mjög góðir
Fréttablaðið verður borið í öll hús á Akureyri
frá og með deginum í dag. Bæjarstjórinn,
Kristján Þór Júlíusson, fagnar áfanganum og
telur óhjákvæmilegt að vægi akureyskra frétta
aukist í blaðinu.
M
YN
D
: M
YN
RÚ
N
Það er
ánægjulegt að
menn hafi
getu og trú á
því að hér séu
tækifæri fyrir
þennan fjöl-
miðil.
VINSÆLL ÁFANGASTAÐUR
Akureyringar bætast í dag í hóp fastra
lesenda blaðsins. Bærinn er vinsælasti
áfangastaður innlendra ferðamanna hér
á landi.
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON