Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 2
2 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGURALÞINGI
Speshúsgögn • Smiðjuvegi 6 • Sími: 557 8855
Þennan sófa færð þú hvergi...
...nema hjá okkur.
Anita
Verð kr. 149.000
STÓRIÐJA „Þetta var klukkutíma
fundur og við greindum frá okkar
sjónarmiðum. Þeir voru áhuga-
samir um þau,“ sagði Árni Steinar
Jóhannsson, þingflokki Vinstri
grænna eftir fund með yfirmanni
umhverfismála bandaríska álfyr-
irtækisins Alcoa.
Talsmaður Alcoa hitti meðal
annars í gær umhverfisráðherra
og ráðuneytisstjóra umhverfis-
ráðuneytisins og Samtök atvinnu-
lífsins. Ennfremur ræddi hann við
fulltrúa Samtaka ferðaþjónust-
unnar, Vinstri-grænna, Frjáls-
lynda flokksins, Skógræktarinnar
og Landgræðslunnar.
Umræðuefnið var meðal ann-
ars virkjanasvæðið, álverið við
Reyðarfjörð og hugmyndir um
þjóðgarð norðan Vatnajökuls og
hvernig Alcoa geti hugsanlega
tekið þátt í þeirri vinnu.
Talsmaður Alcoa ræddi ekki
við fulltrúa náttúruverndarsam-
taka í gær eins og stefnt var að,
heldur hafa fulltrúar Náttúru-
verndarsamtaka Íslands, Land-
verndar og fleiri samtaka verið
boðaðir til viðræðna á morgun.
Andstæðingar virkjunarinnar
mótmæltu utan við fundarstaðinn
í Borgartúni 20 lungann úr degin-
um.
Þá eru líka hér á landi samn-
ingamenn frá Alcoa og eiga þeir
fundi með fulltrúum Landsvirkj-
unar og Reyðaráls.
Stefnt er að því að um miðjan
mánuðinn skýrist hvort Alcoa
kaupir umhverfismat og fram-
kvæmdaleyfi fyrir álver af eig-
endum Reyðaráls.
VAKTIN STAÐIN
Á meðan yfirmaður umhverfismála
Alcoa þingaði með hagsmunaaðil-
um, mótmælti hópur fólks utan við
fundarstaðinn. Á spjöldum mót-
mælenda mátti meðal annars sjá
slagorð eins og ALCOA - umhverfis-
hryðjuverkamenn.
Yfirmaður umhverfismála álfyrirtækisins Alcoa:
Þingar með hagsmunaaðilum
Íslandsbanki bjartsýnni:
Spáir meiri
hagvexti
EFNAHAGSMÁL Greiningardeild Ís-
landsbanka spáir 2,9% hagvexti á
næsta ári. Þetta er nokkru hærri
hagvaxtarspá en spár Búnaðar-
banka og Fjármálaráðuneytisins.
Munurinn liggur einkum í því að
Íslandsbanki gerir ráð fyrir að
fyrirhugaðar stóriðjufram-
kvæmdir auki fjárfestingu og hafi
áhrif á hagvöxtinn. Fjármálaráðu-
neyti og Búnaðarbanki héldu stór-
iðjuframkvæmdum fyrir utan sín-
ar spár. Íslandsbanki telur að
einkaneysla vaxi og kaupmáttur
aukist. Bankinn býst við að við-
skiptahallinn verði um 3% á
næsta ári.
Philip Green:
Styttist í
greiðslu
VIÐSKIPTI Philip Green er búinn að
tryggja sér ríflega 85% af hlutfé
Arcadia, að því að fram kemur í til-
kynningu Taveta Investment í
Kauphöllinni í London. Tilboðið
hefur verið framlengt til 18. októ-
ber. Tilboð Green hljóðaði upp á 408
pens á hlut og er miðað við að bréf-
in séu staðgreidd eftir að 90% hlut-
hafa hafa samþykkt það. Sam-
kvæmt því vantar aðeins tæp 5%
upp á að Baugur fái greidda út
rúma 20 milljarða fyrir sinn hlut.
14 ára stúlkur áreittar:
Boðið að
leika í klám-
mynd
LÖGREGLUMÁL Tvær fjórtán ára
stúlkur leituðu aðstoðar öryggis-
varðar í Smáralind síðdegis á
laugardag eftir að maður kom að
máli við þær og bauð þeim að
leika í klámmynd. Öryggisvörður-
inn hafði umsvifalaust samband
við lögregluna í Kópavogi sem
hafði upp á manninum. Hann var
handtekinn en um var að ræða
mann á þrítugsaldri. Við nánari
athugun reyndist hann vera ölvað-
ur.
Málið er nú til rannsóknar hjá
rannsóknardeild lögreglunnar í
Kópavogi.
HEILBRIGÐISMÁL „Við teljum að
ekki hafi verið tekið á vandan-
um,“ segir Jóhann Árnason, for-
maður Samtaka fyrirtækja í heil-
brigðisþjónustu. Hann er ósáttur
við hvernig forsætisráðherra og
fjármálaráðherra hafi rætt um
vanda sjúkrastofnana. Ólíkt því
sem þeir segi hafi aldrei verið
tekið á vanda stofnananna með
viðunandi hætti. Hluti uppsafn-
aðs halla hafi verið greiddur árið
2000. „Hallinn var ekki greiddur
að fullu.“ Að auki hafi ekki enn
verið lagt í að greina kostnað við
rekstur heilbrigðisstofnana. Því
hafi rekstrarhalli safnast upp
undanfarin ár.
Jóhann segir að illa gangi að
ná sambandi við stjórnvöld til að
ræða hvernig megi taka á vand-
anum. Nokkuð sé um liðið síðan
óskað var eftir fundi með full-
trúum fjármálaráðuneytis og
heilbrigðisráðuneytis. „Við höf-
um ekkert heyrt frá þeim.“ Því
hafi fundarbeiðnin verið ítrek-
uð. Upphaflega var óskað eftir
að fundurinn færi fram síðasta
föstudag.
Í fjáraukalagafrumvarpi er
dvalar- og sjúkraheimilum ætlað-
ur tæpur hálfur milljarður. Jó-
hann segir þá upphæð lægri en
sem nemur hallanum á þessu ári.
Að auki eigi eftir að sjá hvernig
fénu verði skipt milli stofnana.
LANDSPÍTALINN
Ekki hefur verið tekið tillit til launahækk-
ana við ákvörðun fjárveitinga heilbrigðis-
stofnana.
Sjúkrastofnanir safna skuldum:
Ekki tekið á vandanum
DÓMSMÁL Séra Flóki Kristinsson
var í gær dæmdur til greiðslu 40
þúsund króna sektar í ríkissjóð
fyrir líkamsárás á Magnús Kjart-
ansson listmálara. Tíu daga fang-
elsi bíður Flóka
greiði hann ekki
sektina.
Að auki á Flóki
að greiða Magnúsi
25 þúsund krónur í
miskabætur, 2.800
krónur í útlagðan
kostnað og 30 þús-
und krónur í máls-
kostnað. Þá var
Flóka gert að
greiða verjanda sínum 50 þúsund
krónur í málsvarnarlaun.
Samtals þarf Flóki því að
greiða nærri 120 þúsund krónur
vegna hnefahöggs sem hann grei-
ddi Magnúsi á vinnustofu Magn-
úsar á Álafossvegi í október í
fyrra.
Eiginkona Flóka, sem hefur
vinnustofu í sama húsi og Magn-
ús, hafði lent í orðaskaki við
Magnús vegna deilna um nýtingu
á sameign í húsinu. Magnús stóð
við vinnu sína upp á stól með pen-
sil í annarri hendi en málningar-
bakka í hinni.
Samkvæmt vitnisburði Magn-
úsar var eiginkona mjög æst og
stóryrt. Hann hafi borið henni á
brýn að vera „snarbiluð“. Eigin-
kona Flóka sagðist hins vegar
hafa kallað Magnús „lágkúruleg-
an“ en hann hana „geðsjúkling“.
Flóki kom að í miðjum klíðum,
þreif í skyrtu Magnúsar, kallaði
hann „siðleysingja“, og kýldi hann
með krepptum hnefa þannig að
skurður kom á augabrún auk
fleiri áverka. Magnús segist hafa
fallið á vegg við höggið, stólinn
fallið á hliðina og gleraugun
brotnað. Ágreiningur er um hvort
Magnús hafi, viljandi eða óvilj-
andi, áður en högg Flóka reið af,
danglað bakkanum í höfuð Flóka.
Sjálfur segir Flóki að högg sitt
hafi verið ósjálfráð viðbrögð við
því að fá bakkann í höfuðið.
Dóttir Magnúsar, sem var á
salerni vinnustofunnar, sagðist
hafa heyrt rifrildið og síðan dynk
þegar faðir hennar féll af stóln-
um. Við það hafi hún orðið hrædd
og flúið fram á gang. Þangað hafi
faðir hennar síðan ýtt séra Flóka
Kristinssyni á undan sér með
málningarbakkanum og beðið
hana að kalla til lögreglu.
gar@frettabladid.is
ÁTAKAHÚSIÐ Á ÁLAFOSSVEGI
Ágreiningur umráðenda gömlu Álafossverksmiðjunnar endaði með skelfingu í byrjun júní.
Flóki sekur um
árás á listmálara
Gagnkvæmar svívirðingar listmálara og prestsfrúar enduðu með ósköp-
um þegar presturinn, séra Flóki Kristinsson, kom aðvífandi og kýldi
listamanninn niður úr stól með leiftursnöggu höggi í höfuðið.
Eiginkona
Flóka sagðist
hins vegar
hafa kallað
Magnús „lág-
kúrulegan“ en
hann hana
„geðsjúkling“.
ÚRSKURÐUR Í STAÐ ÁLITS Jó-
hanna Sigurðardóttir hefur lagt
fram frumvarp til breytinga á
lögum um jafna stöðu karla og
kvenna. Niðurstöður kærunefnd-
ar jafnréttismála verði hér eftir
bindandi í stað þess að vera ráð-
gefandi álit.
ATFERLI ÞORSKSINS RANNSAKAÐ
Fimm þingmenn Sjálfstæðis-
flokks vilja að Alþingi feli ríkis-
stjórninni að setja á fót miðstöð
atferlis- og eldisrannsókna á
þorski. Miðstöðin verði staðsett á
Vestfjörðum.
SJÁLFBÆR ATVINNUSTEFNA Þing-
flokkur Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs flytur þings-
ályktunartillögu þess efnis að
ríkisstjórn verði falið að móta
rammaáætlun um sjálfbæra at-
vinnuþróun.
Bílveltan í Skutulsfirði:
Haldið
sofandi
BÍLSLYS Stúlkunum tveimur og móð-
ur þeirra er lentu í bílveltunni í
Skutulsfirði í Ísafjarðardjúpi á
sunnudag er haldið sofandi í öndun-
arvél á gjörgæsludeild Landspítala-
háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis eru allar
þrjár alvarlega slasaðar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti konuna og telpurnar og flutti
suður. Karlmaður og tvö önnur
börn, sem einnig voru í bílnum,
urðu eftir á Heilbrigðisstofnun Ísa-
fjarðarbæjar. Voru þau ekki mikið
slösuð samkvæmt upplýsingum
Ólafs Gunnarssonar læknis.
Jarðskjálfti við
Kleifarvatn:
3,2 á Richter
JARÐSKJÁLFTAR Jarðskjálfti af stærð-
argráðunni 3,2 á Richter mældist
klukkan 16.33 í gærdag skammt
vestur af Kleifarvatni, í grennd við
Krísuvík. Þórunn Skaftadóttir hjá
Veðurstofu Íslands segir enga
skjálftavirkni hafa verið á þessum
slóðum í langan tíman. Ekkert
óvanalegt sé við það að skjálftar
mælist á þessu svæði.
Þórunn segir skjálftann í gær
enga sérstaka þýðingu hafa og ekk-
ert víst um áframhaldandi skjálfta-
virkni.