Fréttablaðið - 08.10.2002, Qupperneq 16
16 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
HVERNIG FANNST ÞÉR?
FUNDIR
12.05 Eggert Þór Bernharðsson flytur
erindi í hádegisfyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags Íslands í samstarfi
við Borgarfræðasetur í Norræna
húsinu. Erindið nefnir hann Mat-
málstímar og borgarmyndun.
16.00Friðfinnur Skaftason heldur fyrir-
lestur um meistararitgerð sína í
tölvunarfræði við Háskóla Íslands,
sem ber heitið Samanburður á
viðhaldi flugvéla og hugbúnað-
ar í sal aftan við matstofu á 1.
hæð í Tæknigarði, Dunhaga 5.
20.00 Fræðslunefnd Náttúrlækninga-
félags Íslands efnir til málþings á
Hótel Loftleiðum. Á málþinginu
verður meðal annars fjallað um
hreyfingu, ábyrgð foreldra og
skóla, mataræði, sjálfsmynd og
líkamsdýrkun. Aðgangseyrir er
600 krónur.
20.15 Helgi Skúli Kjartansson , sagn-
fræðingur flytur fyrirlestur sem
nefnist Samvinnuhreyfingin og
sveitirnar í húsi Sögufélags,
Fischersundi 3.
UPPÁKOMUR
20.00 Gabi Schaffner mun segja stuttar
japanskar sögur í Gallerí Hlemm-
ur.
LEIKHÚS
21.00 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur
er sýnt í Hafnarfjarðarleikhús-
inu.
SÝNINGAR
Sýningin Handritin, á vegum Stofnun
Árna Magnússonar, stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Höfundar sýningar-
innar eru Gísli Sigurðsson fræðimaður á
Árnastofnun og Steinþór Sigurðsson list-
málari.
Óli G. Jóhansson sýnir í galleríi Sævars
Karls.
Harpa Karls sýnir á Kaffi Sólon. Sýning-
in stendur til 18. október.
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er, Hugmyndir um Frelsi /
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20 október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur stendur fyrir
sýningunni Aenne Biermann Preis:
þýsk samtímaljósmyndun í Grófarsal,
Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15. Sýningin
stendur til 15. október og er opnunar-
tími 12 til 18 virka daga og 13 til 17 um
helgar. Aðgangur ókeypis.
Margrét St. Hafsteinsdóttir er með
myndlistarsýningu í kaffistofunni Lóu-
hreiðri, Kjörgarði, Laugarvegi 59, Reykja-
vík. Lóuhreiður er opið virka daga klukk-
an 10 til 17 og laugardaga klukkan 10 til
16. Sýningin stendur til 14. október.
Austurríski ljósmyndarinn, Marielis
Seyler sýnir í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Myndirnar á sýningunni voru
teknar á Íslandi sumarið 2001.
MYX Youth Artist Exchange sýnir í
Gallerí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth
Artist Exchange er hópur ungra mynd-
listamanna frá Bandaríkjunum og Ís-
landi. Á sýningunni gefur að lita verk
sem þau unnu saman á Íslandi síðast-
liðið sumar út frá þemanu „landslag,
fólk og menning.“
Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn
hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í
Listasafninu á Akureyri.
Sýning Kimmo Schroderus og
Charlottu Mickelsson í Gallerí Skugga.
Á jarðhæð, í aðalsal og bakatil, sýnir
Kimmo skúpltúra sem bera yfirskriftina
„Tilfinningar“. Charlotte nefnir verk sitt í
kjallara Gallerí Skugga „Kjallari“, en þar
umbreytir hún rýminu með gagnsæjum
gúmmíþráðum. Sýningin stendur til 20.
október.
Björn Lúðvíksson heldur yfirlitssýningu
á Sjúkrahúsinu og Heilsugæslustöðinni
á Akranesi í tilefni 50 ára afmælis stofn-
unarinnar.
Ólöf Björg myndlistarmaður sýnir í
Galleríi Sævars Karls, málverk, hluti,
hljóð og lykt.
Í Rauða Húsinu á Eyrarbakka sýnir
Hafliði Magnússon, rithöfundur og
teiknari, sýningu á lituðum teikningum
með götumyndum frá Eyrarbakka,
Stokkseyri og Selfossi.
Listin meðal fólksins er yfirskrift sýn-
ingar Listasafns Reykjavíkur í Ásmund-
arsafni. Á sýningunni eru verk Ásmund-
ar Sveinssonar myndhöggvara skoðuð
út frá þeirri hugsjón hans að myndlistin
ætti að vera hluti af daglegu umhverfi
fólks en ekki lokuð inni á söfnum. Sýn-
ingin stendur til ársloka.
Myndlistarmaðurinn Bjarni Þór Þor-
valdsson, Thor, heldur sýninguna Í
hulduheimum. Sýninginn á að sína
krafta náttúrunar í túlkun undirmeðvit-
undarinnar. Sýningin er opinn alla virka
daga frá 9.00 - 16.30 í félags- og þjón-
ustumiðstöðinni Árskógum 4. Sýningin
stendur til 1. nóv.
ÞRIÐJUDAGURINN
8. OKTÓBER
BÆKUR Guðrún Friðgeirsdóttir
flutti til Húsavíkur þegar hún var
fjögurra ára gömul árið 1934 og
ólst þar upp í kreppu og skugga
stríðsáranna. Faðir Guðrúnar var
látinn og móðir hennar þurfti að
sjá tveimur börnum sínum far-
borða ein síns liðs. Guðrún hefur
nýlokið við að skrá æskuminning-
ar sínar frá Húsavík þar sem hún
segir frá uppvexti sínum, sveita-
störfum í Kelduhverfi, ógnum
stríðsins og vist hjá fínu fólki í
Reykjavík í stríðslok.
„Líf alþýðufólks var afskap-
lega erfitt á þessum árum en
samhjálpin var mikil og því get
ég ekki gleymt. Húsnæðiseklan
var ofboðsleg og fólk bjó mjög
þröngt. Berklar grasseruðu og
lúsin þreifst vel í sóðaskapnum.
Atvinnuleysi var mikið og al-
menningur var bundinn á klafa
skuldaverslunarinnar og átti allt
sitt undir kaupmönnunum.“
Guðrún gerir grein fyrir þess-
um félagslegu aðstæðum í bók-
inni og ekki síst bágri stöðu kven-
na. „Móðir mín var betur sett en
margar aðrar konur þar sem hún
gekk í kvöldskóla, gifti sig í
Kanada og bjó að tungumála-
kunnáttu, auk þess sem hún var
mjög handlagin. Þetta breytti því
þó ekki að henni, eins og öðrum
konum, voru allar bjargir bann-
aðar. Verkalýðsfélagið hafði til
dæmis engan áhuga á því að berj-
ast fyrir þær.“
Guðrún leggur áherslu á að
bókin, Norðanstúlka, sé ekki
fræðirit þótt víða sé leitað fanga.
Hún fjalli um menn og málefni
þessa tíma með augum barnsins
og reynslu þess fullorða og liggi
því hvergi á skoðunum sínum.
Guðrún lauk meistaraprófi í
ráðgjafarsálfræði frá The Uni-
versity of British Columbia í
Kanada árið 1984 og hefur kennt
bæði í menntaskólum og við Há-
skóla Íslands. Hún var um árabil
skólastjóri Bréfaskólans en star-
far nú sjálfstætt við náms- og
uppeldisráðgjöf. Hún segist fyrst
og fremst hafa fært sögu sína í
letur fyrir börnin sín. „Mig lang-
aði til að börnin mín kynntust lífi
mínu og fjölskyldu minnar í
kreppunni og á stríðsárunum,
sem var svo ólíkt þeirra eigin
lífi.“ Það var svo tilviljun að
bernskusaga hennar varð að bók.
„Ég tók þátt í ritgerðarsam-
keppni fyrir nokkrum árum. Efn-
ið átti að vera atburður sem hafði
haft áhrif á allt líf höfundar. Ég
skrifaði minningu frá unglingsár-
unum og fékk verðlaun fyrir
hana. Það má segja að ég hafi
fengið kjarkinn þegar ég sá að
einhver hafði haft gaman að
þessu og ég gæti því alveg eins
sagt frá öllu hinu.“
thorarinn@frettabladid.is
Norðanstúlka segir frá
Guðrún Friðgeirsdóttir hefur gefið út bernskuminningar sínar frá
stríðsárunum á Húsavík. Þar lýsir hún kröppum kjörum alþýðufólks
og vonlausri stöðu kvenna. Bókin heitir Norðanstúlka, en vinir henn-
ar sjá ákveðna hliðstæðu með henni og Uglu í Atómstöðinni en þær
urðu báðar vinnukonur hjá ríkum fjölskyldum í Reykjavík.
GUÐRÚN FRIÐGEIRSDÓTTIR
Var níu ára þegar stríðið braust út. „Ógnir stríðsins settu mark á líf fólks og þá ekki síst barnanna sem heyrðu fullorðna fólkið
stöðugt tala um þetta.“
Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran.
Ég er að lesa afar áhugaverða bók þessa
dagana. Sjálfan Macbeth eftir Shakespeare
en ég er að fara að takast á við Lady
Macbeth í Íslensku óperunni á næsta ári.
Borgarleikhúsið frumsýndileikritið Jón og Hólmfríður -
frekar erótískt leikrit í þrem þátt-
um, á föstudaginn. Verkið er eftir
franska rithöfundinn Gabor
Rassov. Leikararnir í þessu fyrsta
leikstjórnarverkefni Halldóru
Geirharðsdóttur eru Gunnar
Hansson, Sóley Elíasdóttir, Hall-
dór Gylfason, Harpa Arnardóttir,
og Þór Tulinius.
Góðir sprettir
„Það er ekki hægt
að segja annað en
að þetta sér mjög
sérstakt verk. Það
er skrifað inn í
veruleika sem er
ekki kunnuglegur
hér á Íslandi og að
því leyti er það
framandi. Leikrit-
ið tekur þó marga
fína og skemmti-
lega spretti, en
það greip mig þó
ekki sérstaklega.“
Stórfyndið
„Ég skemmti mér alveg konung-
lega. Þetta er alveg súper fífla-
gangur og ég hef alltaf gaman að
svoleiðis og það
má segja að sem
gamall aðdáandi
Laurels og Hardy
og þeirra líkra þá
hafi ég alveg ver-
ið á heimavelli í
Borgarleikhúsinu
á föstudaginn. Ég
sagði við konuna
mína, sem bauð
mér í leikhúsið, að
ég vildi frekar fara að sjá Halla
og Ladda í Loftkastalanum en ég
held hreinlega að þetta hafi ekki
verið neitt síðra. Þetta er stór-
fyndið verk.
Skipulagt kaos
„Þetta var ofboðslega skemmti-
legt. Ef maður hugsar sér alveg
glás af försum sem er skellt sam-
an í fötu sem síðan
er sullað upp úr á
skipulagðan hátt
kemst maður
kannski nærri því
að lýsa því hvernig
upplifun þetta er.
Þetta er einhvers
konar skipulagt
kaos. Það er
greinilegt að
þarna er fólk sem
er vant því að vinna saman. Þau
gera þetta af miklu öryggi og það
er mikill húmor í þessu. Maður sér
alveg Dóru leikstjóra skína í gegn
en hún er mjög skemmtileg. Þýð-
ingin er góð. Þetta er á flottri ís-
lensku og ég mæli með sýningunni
fyrir alla, ekki síst krakka á
menntaskólaaldri en ég held að
húmorinn höfði alveg til þeirra.“
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON,
FORSETI BORG-
ARSTJÓRNAR
REYKJAVÍKUR.
EINAR
KÁRASON,
RITHÖFUNDUR.
BIRNA ÞÓRÐ-
ARDÓTTIR,
BLAÐAMAÐUR.
BÆKUR Don Kíkóti eftir spænska
rithöfundinn Miguel de Cervantes
er sjálfsagt eitt þekktasta bók-
menntaverk sögunnar. Sagan kom
út í íslenskri þýðingu Guðbergs
Bergssonar fyrir allmörgum
árum í átta bindum. Guðbergur
hefur endurskoðað og lagfært
þýðingu sína og JPV Útgáfa gefur
hana nú út að nýju í tveimur bind-
um, sem „er mun þægilegra en að
hafa hana í átta bindum“, segir Jó-
hann Páll Valdimarsson útgáfu-
stjóri. Jóhann bætir því við að það
sé sérstakt ánægjuefni að bókin
skuli hafa verið valin besta bók
allra tíma á sama ári og fyrra
bindið komi út á íslensku. „Guð-
bergur hefur lagt mikla vinnu í
þetta verk og leysir þetta alveg
sérstaklega vel af hendi.“
Don Kíkóti segir eins og flestir
vita frá aðalsmanni sem hefur les-
ið riddarasögur sér til óbóta og
hefur tapað vitglórunni. Hann
ákveður að ferðast út í heiminn til
að koma góðu til leiðar, geta sér
eilífan orðstír og vinna hjarta
konunnar sem hann elskar. Hann
heldur af stað ásamt hinum jarð-
bundna aðstoðarmanni sínum,
Sansjó Pansa, en í huga riddarans
breytast vindmyllur í risa, kinda-
hópar í óvinaheri og bændastúlk-
ur í fagrar prinsessur.
Bókin er prýdd fjölda mynda
eftir Gustave Doré.
DON KÍKÓTI
Fyrsta bindi endurskoðaðrar þýðingar Guð-
bergs Bergssonar á bestu bók allra tíma er
komin út.
Besta bók allra tíma:
Guðbergur endurskoðar
don Kíkóta