Fréttablaðið - 01.11.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 01.11.2002, Síða 2
LÍÚ „Ég tel að auka þurfi nú þegar þorskveiðiheimildir aflamarks- skipa um 11 þúsund tonn. Ennfrem- ur tel ég að auka þurfi aflaheimild- ir ufsa, skarkola og sandkola,“ sagði Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssamband íslenskra útvegs- manna við setningu 63. aðalfundar LÍÚ. Hann sagði að það hefði verið rangt og ósanngjarnt að skerða þorskveiðiheimildir til aflamarks- skipa um 11.000 lestir á þessu fisk- veiðiári og því bæri nauðsyn til að auka heimildirnar nú þegar. Krist- ján sagðist telja nauðsynlegt að auka aflaheimildir í fjórum tegund- um um samtals 25 þúsund tonn. Auk 11 þúsund tonna aukningar í þorski sagðist hann telja einsýnt að auka þyrfti veiðiheimildir í ufsa um 10 þúsund tonn eða í 47 þúsund á þessu fiskveiðiári. Þá væri brýnt að auka heimildir í skar- og sandkola. „Minnkun veiðiheimilda í skar- kola um meira en tvo þriðju fyrir örfáum árum hefur komið illa við þær útgerðir sem byggja afkomu sína á þessum veiðum. Þá hefur hún valdið erfiðleikum vegna óumflýj- anlegs meðafla skarkola,“ sagði Kristján og bætti við að rétt væri að auka veiðiheimildir um 2.000 lestir í hvorri tegund, eða í 7.000 lestir af skarkola og 6.000 lestir af sandkola. Brýnt væri að taka ákvörðun um þetta fljótlega.  2 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR Lögreglan taldi svikin ómerkileg Eigandi Fasteignasölunnar Holts boðaður í yfirheyrslu 9 mánuðum eft- ir að kæra barst. Lögreglan telur þetta ekki óeðlileg vinnubrögð. Einkavæðingarnefnd: Enginn úr- slitadagur BANKASALAN Skarphéðin Steinars- son starfmaður Einkavæðingar- nefndar segir ekki um það að ræða að menn hafi átt að skila inn tilboð- um í Búnaðarbankann í gær. „Þetta er söluferli sem heldur áfram. Menn eru að skiptast á upplýsing- um og frestur til að skila ákveðn- um upplýsingum var miðaður við fimmtudaginn.“ Skarphéðinn segir þær upplýs- ingar ekki marka nein sérstök tímamót í ferlinu. Öll tímamót í ferlinu verði tilkynnt nú sem áður í gegnum Kauphöll Íslands. Hann segist ekki eiga von á öðru en að bæði Kaldbakur og S-hópurinn muni halda áfram að ræða við nefndina.  Ráðgjafakostnaður: Jókst um helming STJÓRNVÖLD Kostnaður ráðuneyta og undirstofnana þeirra vegna að- keyptrar ráðgjafarþjónustu fór úr tveimur milljörðum króna árið 1999 í nær þrjá milljarða króna á síðasta ári. Á þessum þremur árum hefur verið keypt ráðgjafarþjónusta fyrir 7,5 milljarða króna. Kostn- aðinum er misskipt milli ráðu- neyta, þrjú þeirra keyptu ráðgjaf- arþjónustu fyrir milljarð eða meira. Samgönguráðuneytið og stofnanir þess vörðu 1,5 milljörð- um í kaup á ráðgjafarþjónustu, menntamálaráðuneytið 1,3 milljörðum og heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið milljarði.  MOSKVA, AP Rússneskir embættis- menn kynntu í gær upplýsingar frá leyniþjónustunni, sem þeir sögðu sanna aðild æðstu leiðtoga téténskra aðskilnaðarsinna að gíslatökunni í Moskvu. Þeir full- yrtu að Aslan Maskhadov, for- seti stjórnar aðskilnaðarsinna í Téténíu, hafi sjálfur gefið skip- un um gíslatökuna. Stjórnvöld í Moskvu segja ekki rétt að gera þann greinar- mun á téténskum aðskilnaðar- sinnum, að einungis sumir þeir- ra stundi hryðjuverk en aðrir séu alfarið á móti slíkum aðferð- um. Sergei Yastrzhembsky, full- trúi ríkisstjórnarinnar í Moskvu, sagði þessar sannanir gegn Maskhadov gera það að verkum að útilokað væri að eiga samn- ingaviðræður við Téténa. „Nefnið mér einn leiðtoga Téténa sem við gætum sest að samningaborði með. Ég veit ekki um neinn slíkan,“ sagði hann. Í gær lágu 184 fyrrverandi gíslar enn á sjúkrahúsi í Moskvu. Átta þeirra eru enn í lífshættu. Þar hafa þeir legið frá því rúss- neskir hermenn yfirbuguðu á laugardag téténsku skæruliðana, sem tóku um 800 manns í gísl- ingu í leikhúsi í síðustu viku.  Fjársvik fasteignasalans á Holti: Reyndi mútur LÖGREGLUMÁL Eigandi Fasteigna- sölunnar Holts í Kópavogi reyndi að múta Þresti Valdimarssyni byggingaverktaka eftir að Þröst- ur kærði eigandinn fyrir að hafa falsað undirskrift Þrastar á fast- eignaveðbréf upp á 4,5 milljón króna. „Hann nefndi enga upphæð enda hafnaði ég þessu strax,“ seg- ir Þröstur. „Hann vildi að ég léti málið falla niður, sagði að þetta væri allt misskilningur, en ég sagði að ef þetta væri misskiln- ingur myndi málið falla niður sjálfkrafa eftir rannsókn.“  KRISTJÁN RAGNARSSON Lætur af störfum hjá LÍÚ á næsta ári. Hef- ur eytt allri sinni starfsævi hjá sambandinu og gegnt formennsku í rúm 30 ár. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ: Eitt ár til en svo hætti ég LÍÚ „Ég hef nú starfað hjá samtök- um útvegsmanna í nær 45 ár, frá 19 ára aldri, eða alla mína starfs- ævi,“ sagði Kristján Ragnarsson á aðalfundi LÍÚ í gær. ,,Sumir ykkar og aðallega for- verar ykkar tókuð upp á því fyrir 32 árum á aðalfundi, sem þá var haldinn í Vestmannaeyjum, að kjósa mig formann samtaka ykk- ar. Ég hef tekið þá ákvörðun að leita nú í síðasta sinn eftir endur- kjöri.“  Kristján Ragnarsson vill auka þorskkvótann: Vill 11 þúsund tonna aukningu Hlýnar á næstunni: 14 stiga frost á Mývatni VEÐUR Andkalt hefur verið í höf- uðborginni undanfarna daga en þó ekkert í líkingu við kuldann á Mývatni. Þar mældist 14 stiga frost um miðjan dag í gær. Veður- fræðingar spá því að nú fari veður hægt hlýnandi með suð- austan - og austanáttum sem ættu að geta skilað til okkar 8 - 10 stiga heitu lofti á næstu dög- um. Síðar í dag er gert ráð fyrir slyddu sem smám saman breyt- ist í rigningu eftir því sem loft hlýnar.  Það væri að sjálfsögðu söknuður að Orku- veitunni en ég er ekki svartsýnn fyrir hönd Landsvirkjunar á að Kárahnjúkavirkjun gangi upp. Ég sé ekki að til þess komi að Reykjavíkurborg þurfi að axla þessa ábyrgð með sölu á Orkuveitunni. Alfreð Þorsteinsson er formaður Orkuveitunnar. Borgarlögmaður segir að ef allt færi á versta veg með Kárahnjúkavirkjun væri helst að sala Orkuveit- arinnar skilaði fé til að greiða ábyrgðir borgarinnar. ÚTLITIÐ SKIPTIR MÁLI Lögreglan í Moskvu hefur beint athygli sinni að Téténum og öðru fólki frá Kákasushéröð- unum, sem oftast er frekar dökkt yfirlitum. Fólk er stöðvað á götu úti eða má eiga von á heimsókn frá lögreglunni, jafnvel þótt ekki sé vitað um nein tengsl viðkomandi við gísla- tökuna í síðustu viku. Rússar segja alla Téténa stunda hryðjuverk: Viðræður koma ekki til greina SPURNING DAGSINS Væri ekki söknuður að OR? FRÁ 63.AÐALFUNDI LÍÚ Kristján Ragnarsson telur hann brýnt að auka þorskkvótann um 11 þúsund tonn. LÖGREGLUMÁL Eigandi Fasteigna- sölunnar Holts var boðaður í yf- irheyrslu hjá lögreglunni í Kópa- vogi 9 mánuðum eftir að Þröstur Valdimarsson byggingaverktaki hafði kært hann fyrir skjalafals og umboðssvik. Eigandinn hefur nú játað um 80 milljóna króna fjárdrátt. Þröstur gagnrýnir vinnubrögð lögreglunnar, en Friðrik Björgvinsson, yfirlög- regluþjónn í Kópavogi, segir að framgangur rannsóknarinnar hafi ekki verið óeðlilegur. „Mikilvægi þessa máls var ekki talið það stórt að það þyrfti einhverja flýtimeðferð,“ segir Friðrik. „Það berst mikið af mál- um til lögreglu, fleiri en svo að við getum sinnt þeim öllum jafn- óðum. Öll mál eru hins vegar skoðuð strax í upphafi, metin og flokkuð og það var gert við þetta mál.“ Þröstur segist hafa komist að fölsuninni hálfum mánuði eftir að eigandinn hafi tekið pening- ana til eigin nota. Hann hafi ít- rekað kvartað til fasteignasöl- unnar og þess vegna fengið pen- ingana greidda fyrir rest. Þröstur segist hafa kært mál- ið til lögreglunnar í Hafnarfirði 30. janúar. Hún hafi hins vegar reynst vanhæf til að fást við mál- ið vegna venslatengsla við fast- eignasalann. Málinu hafi því ver- ið vísað til lögreglunnar í Kópa- vogi. Þar hafi það hins vegar dagað uppi. Þrátt fyrir að hafa ít- rekað grennslast fyrir um gang málsins hafi ekkert gerst. Þröst- ur segir að það hafi ekki verið fyrr en að hann sendi kvörtun til dómsmálaráðuneytisins um mál- ið í byrjun október að lögreglan hafi tekið á því. „Mér finnst það forkastanlegt að maðurinn skyldi hafa fengið að starfa alveg óhindrað allt þetta ár og féflett menn,“ segir Þröstur. „Þetta var borðliggjandi skjala- fölsun og umboðssvik en samt var ekkert gert.“ Friðrik segir að lögreglan for- gangsraði málum eftir mikilvægi þeirra. Brot gegn lífi og líkama fá flýtimeðferð, kynferðisbrot, sem og brot gegn börnum og ung- mennum. Þá fái mál, þar sem brýnir hagsmunir séu í veði, einnig flýtimeðferð. Lögreglan hafi ekki talið svo vera í þessu til- viki. Þeir fjármunir sem kærandi hafi átt að fá vegna sölu fasteigna- veðbréfa hafi skilað sér til hans áður en kæran hafi verið lögð fram. Aðspurður segir Friðrik að málið hafi verið rannsakað, en neitar því að það hafi fyrst verið gert eftir að kærandinn hafi kvartað til dómsmálaráðuneytis- ins. Eigandi fasteignasölunnar hafi verið boðaður í yfirheyrslu í síðustu viku, en hann hafi ekki sinnt því boði. Málið er nú í höndum efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra. trausti@frettabladid.is KÆRÐI FYRIR 9 MÁNUÐUM Þröstur Valdimarsson byggingaverktaki segir með ólíkindum að eigandi Fasteignasölunnar Holts hafi fengið að starfa óhindrað allt þetta ár og féflett menn. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT FRÉTTAB LAÐ IÐ /B ILLI AP/ALEXEI SA ZO N O V

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.