Fréttablaðið - 01.11.2002, Síða 6
6 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
STÓRBRUNINN Húsið númer 38 við
Laugaveg var í hættu í stórbrun-
anum sem varð 19. október. Þar er
skóverslunin Ecco og eigandi
hennar er Svavar Júlíusson. Svav-
ar segist hafa horft á brunann og
á eyðilegginguna gerast. Hann
segist hafa verið þess fullviss að
ekki tækist að bjarga húsinu.
Þakkar hann fyrst og fremst elju
slökkviliðsmanna og baráttu þeir-
ra við eldinn að hús númer 38 hafi
ekki líka orðið eldinum að bráð.
„Eldur hefur miklu meiri áhrif
á fólk en menn gera sér grein fyr-
ir því eyðileggingamátturinn er
svo mikill. Aðalatriðið í þessu öllu
saman var að enginn slasaðist.
Ekki síst var ég hræddur um
slökkviliðsmennina. Ég horfði á
þá berjast við eldinn og sá hvern-
ig reykkafararnir komu örmagna
út eftir að hafa gengið úr skugga
um að enginn væri í húsunum.“
Svavar segist sammála skoðun
margra að mikil eldgildra sé að
bakhúsunum við Laugaveg. Það
hafi komið berlega í ljós í stór-
brunanum. Hann segist fagna
ákvörðun forvarnardeildar
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
að taka út þessi hús til að reyna að
koma í veg fyrir annað eins stór-
slys. „Ég vona að Laugavegurinn
verið betri á eftir. Gatan má ekki
við því að fá á sig fleiri áföll.“
Svavar Júlíusson í versluninni Ecco:
Bakhúsin eru
eldgildrur
UNNIÐ AÐ LAGFÆRINGUM
Svavar segir að skipta hafi þurft um
einangrun í lofti verslunarinnar vegna
vatntjóns.
Framsóknarmenn
ákveða sig:
Stilla upp
í Reykjavík
STJÓRNMÁL Framsóknarmenn stilla
upp á framboðslista í báðum
Reykjavíkurkjördæmunum fyrir
næstu þingkosningar.
Stuðningur við uppstillingu var
þó misjafnlega mikill í kjördæm-
unum tveimur. Hún var samþykkt
með 80% atkvæða í norðurkjör-
dæmi en aðeins 60% í suðurkjör-
dæminu þar sem deilur höfðu
staðið milli forystumanna. Upp-
stillingarnefndir starfa í hvoru
kjördæmi um sig og eiga að legg-
ja lista fyrir kjördæmisþing ekki
síðar en í janúar.
SJÁVARÚTVEGUR Stærri breytingar á
eignarhaldi sjávarútvegsfyrir-
tækja halda áfram. Afl - fjárfest-
ingarfélag sem er í ráðandi eigu
Þorsteins Vilhelmssonar og
Landsbankans seldi öll hlutabréf
sín í Þormóði ramma og Þorbirni
fiskanesi. Kaupandi er Ráeyri. Í
stjórn Ráeyrar situr Ólafur H.
Marteinsson framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma.
Afl hefur frá því í sumar verið
að kaupa bréf í Þormóði ramma,
síðast í gærmorgun. Afl seldi svo
skömmu síðar alla eign sína í Þor-
móði ramma, 45,8% á 3,2 millj-
arða. Afl hefur því losað um 3,8
milljarða í viðskiptum með þessi
tvö félög.
Annar forsvarsmaður Ráeyrar
er Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson. Hann er stjórnarfor-
maður Íshúsfélags Vestmanna-
eyja. Þykir það benda til sam-
runa Þormóðs ramma og Íshúsfé-
lagsins.
Afl hefur ekki gefið neitt út
um áform sín í framhaldinu. Þor-
steinn Vilhelmsson hefur lýst því
yfir að helsta áhersla hans séu
fjárfestingar í sjávarútvegi. Sér-
fræðingar gera ráð fyrir að það
sameiningarferli sem hafið er í
greininni haldi áfram.
Hræringar í sjávarútvegi:
Afl selur fyrir
þrjá milljarða
Vinstri grænir í
suðvesturkjördæmi:
Vilja Árna
Steinar
STJÓRNMÁL Félagar úr Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði í
suðvesturkjördæmi hafa rætt
við Árna Steinar Jóhannsson,
þingmann flokksins af Norður-
landi eystra, um að hann flytji
sig suður og fari í framboð í
kraganum.
Hópur innan VG vill að Árni
Steinar leiði lista flokksins í suð-
vesturkjördæmi fyrir næstu
kosningar. Þeir hafa mælt fyrir
því í uppstillingarnefnd flokksins
og rætt við Árna Steinar. Hann
hefur ekki gefið nein svör um
hvort hann sé tilleiðanlegur. Upp-
stillingarnefnd skoðar jafnframt
fleiri möguleika í stöðunni.
Árni Steinar skipaði annað
sæti á lista Vinstri-grænna á
Norðurlandi eystra.
VIÐSKIPTI Breska stórblaðið The
Guardian birtir í gærmorgun
fyrstu grein sína af nokkrum um
Decode og viðskipti með hlutabréf
í fyrirtækinu sem vakið hafa at-
hygli út fyrir land-
steinana. James
Meek, blaðamaður
The Guardian, kom
hingað til lands í
fyrra mánuði og
ræddi þá bæði við
Kára Stefánsson og
einstaklinga sem
veðjuðu aleigunni á
fyrirtækið þegar
gengi hlutabréf-
anna í Decode var
sem hæst. Einn
þeirra er Hinrik
Jónsson sem keypti
hlutabréf í Decode
fyrir fimm milljón-
ir króna sem hann
tók af bótafé sem hann hafði feng-
ið eftir reiðhjólaslys sem gerði
hann öryrkja. Friðrik keypti á
genginu 56 af Landsbankanum:
„Ég hafði aldrei keypt verðbréf
áður,“ segir Friðrik í The Guardi-
an. „Ég fylgdist með sjónvarps-
fréttum og sá hlutabréfin í Decode
hækka stöðugt. Nú er ég miður
mín,“ segir hann enda verðmæti
hlutabréfa hans nú aðeins brot af
því sem hann greiddi fyrir þau.
Sömu sögu segja aðrir sem James
Meek ræddi við hér á landi en þeir
koma ekki fram undir nafni. Segj-
ast skammast sín fyrir að hafa lát-
ið teyma sig á asnaeyrunum af
spákaupmönnum, bankastofnun-
um og jafnvel stjórnmálamönnum.
James Meek hitti Kára Stefáns-
son nokkrum sinnum á meðan á
dvöl hans hér á landi stóð. Dregur
blaðamaðurinn upp heldur dökka
mynd af forstjóra Decode enda
munu fundir þeirra hafa verið
stormasamir:
„Kári Stefánsson er óvenjuleg-
ur maður. Ímynd hans er sveipuð
gáfnaljóma en hann á það til að
stökkva upp á nef sér í tíma og
ótíma,“ segir í The Guardian og
blaðamaður blaðsins furðar sig á
því að Kára sé oft líkt við víking:
„Ef víkingur er íhugull, gráhærður
tæplega tveggja metra maður með
skapgerðarbresti og klæðist
þröngum bol sem hylur vöðva-
stæltan efri hluta líkamans þá er
Kári Stefánsson víkingur,“ segir
James Meek í The Guardian. Og
þessa gusu fékk hann yfir sig frá
Kára á einum þeirra funda sem
þeir áttu saman: „Ég skil ekki
hvers vegna ég er að eyða tíma
mínum í þig sem hefur ekki einu
sinni unnið heimavinnuna þína.“
Í greininni um Decode í The
Guardian er einnig rætt við Egil
Helgason sjónvarpsmann og Hró-
bjart Jónatansson lögfræðing. Eft-
ir Agli Helgasyni er þetta haft:
„Mér varð ekki um sel þegar
móðir mín minntist á að hún hygð-
ist kaupa bréf í Decode. Þegar op-
inber starfsmaður eins og hún vill
fara að kaupa hlutabréf í Decode
er nokkuð víst að einver tapar pen-
ingum einhvers staðar.“
James Meek lýkur grein sinni í
The Guardian í gærmorgun með
því að vitna til orða eins af fórnar-
lömbum hlutabréfaæðisins í
Decode: „Ég áfellist ekki Decode
vegna þess að ég botna ekkert í
hvað þetta fyrirtæki er að gera.“
Von er á fleiri greinum um
Decode í The Guardian á næstunni
en James Meek ræddi einnig við
Davíð Oddsson og fleiri ráðamenn
um fyrirtækið, tilurð þess og þær
framtíðarvonir sem við það eru
bundnar.
eir@frettabladid.is
Átti að bjarga mannslíf-
um...en leggur þau í rúst
Breska stórblaðið The Guardian fjallar ítarlega um Decode. Dregur upp dökka mynd af Kára
Stefánssyni. Fórnarlömb fallandi gengis hlutabréfanna á barmi örvæntingar á síðum blaðsins.
HINRIK JÓNSSON
Notaði slysabætur til að fjárfesta í Decode.
Kvartar nú sáran á síðum breska stórblaðs-
ins The Guardian.
„Ef víkingur er
íhugull, grá-
hærður tæp-
lega tveggja
metra maður
með skap-
gerðarbresti
og klæðist
þröngum bol
sem hylur
vöðvastæltan
efri hluta lík-
amans þá er
Kári Stefáns-
son víkingur.“
Orkuveita Reykjavíkur:
Tekur 3,5
milljarða lán
FJÁRMÁL Orkuveita Reykjavíkur
hyggst taka rúmlega 3,5 milljarða
króna hjá Bayerische Landes-
bank. Lánið er tekið til að fjár-
magna framkvæmdir á þessu ári
og því næsta, sem og til að greiða
upp óhagstæð erlend lán.
Lántakan er í samræmi við
fjárhagsáætlun Orkuveitunnar
fyrir árið 2002. Nokkuð langan
tíma hefur tekið að ganga frá lán-
inu, þar sem Orkuveitan er nýr
aðili á erlendum lánamarkaði.
Reykjavíkurborg, sem á 92,22% í
Orkuveitunni hefur samþykkt
lántökuna fyrir sitt leiti. Lánið er
til 5 ára og greiðist í einu lagi í lok
lánstímans.
VEISTU SVARIÐ?
Arnaldur Indriðason hefur
sent frá sér nýja bók. Hvað
heitir hún?
Borgaryfirvöld hafa áhyggjur
af ábyrgð vegna Landsvirkj-
unar. Hvað er ábyrgðin há?
Ársfundur Alþýðusambands
Íslands stendur yfir. Hver er
framkvæmdastjóri þess?
Svörin eru á bls. 22.
1.
2.
3.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.47 -0.44%
Sterlingspund 136.47 -0.21%
Dönsk króna 11.62 -0.08%
Evra 86.32 -0.08%
Gengisvístala krónu 129,67 -0,47%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 316
Velta 3.765 milljónir
ICEX-15 1.292 -0,13%
Mestu viðskipti
Baugur Group hf. 223.787.645
Bakkavör Group hf. 105.431.624
Pharmaco hf. 104.249.542
Mesta hækkun
Frumherji hf. 8,33%
Síldarvinnslan hf. 6,86%
Íslenskir aðalverktakar hf. 5,17%
Mesta lækkun
Marel hf. -2,33%
SÍF hf. -2,17%
Þróunarfélag Íslands hf. -1,88%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8423,7 0,00%
Nsdaq*: 1330,5 0,30%
FTSE: 4004,7 0,10%
DAX: 3155 1,30%
Nikkei: 8640,5 -1,30%
S&P*: 888,6 -0,20%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T