Fréttablaðið - 01.11.2002, Qupperneq 14
14 1. nóvember 2002 FÖSTUDAGUR
KVIKMYNDIR Leikkonan Reese
Witherspoon er á góðri leið með
að verða óskadóttir Bandaríkj-
anna. Hún er fædd og uppalin í
Nashville Tennessee, hjarta
sveitatónlistarinnar, og er afkom-
andi John Witherspoon sem var
einn þeirra 56 manna er undirrit-
aði sjálfstæðisyfirlýsingu Banda-
ríkjamanna árið 1776. Hún út-
skrifaðist úr Stanford háskóla
árið 1998, er grænmetisæta, ljós-
hærð, hástéttarstúlka, gift kona
með eitt barn aðeins 26 ára göm-
ul. Hún er einnig á leiðinni að
verða ein stærsta kvikmynda-
stjarna Bandaríkjanna og komst
nýlega í 15 milljón dollara launa-
flokkinn þegar hún samþykkti að
leika í framhaldsmynd „Legally
Blonde“ sem sló eftirminnilega í
gegn í fyrra.
Hún sló fyrst í gegn í mynd-
unum „Pleasantville“ (1998) og
„Election“ (1999). Hún gull-
tryggði stöðu sína sem kvik-
myndastjarna þegar hún lék
fluggáfuðu og litríku ljóskuna í
„Legally Blonde“. Það hefur svo
ekki skemmt fyrir stúlkunni að
hún þykir afbragðsleikkona.
Í nýjustu mynd sinni leikur
Reese stúlku sem er líklega nær
hennar eigin persónu en hún hef-
ur gert áður. Helsti munurinn er
að persóna hennar, Melanie
Carmichal, er í annari starfsgrein.
Hún er ungur fatahönnuður sem
er við það að verða sá efnilegasti í
New York. Allt virðist vera að
ganga upp og hamingjan nær há-
tindi þegar sonur borgarstjórans
og eftirsóttasti piparsveinn borg-
arinnar, Andrew (Patrick Demps-
ey), biður hana að giftast sér. Allt
þetta væri náttúrulega yfirþyrm-
andi yndislegt ef hún ætti ekki
eiginmann (Josh Lucas), sem eng-
inn veit af, í Alabama sem neitar
að veita henni skilnað.
Melanie yfirgefur því drauma-
heiminn í borginni stóru til þess
að klára mál sín í Alabama. Þegar
þangað er komið rekst hún á
stúlkuna sem hún var áður en
glaumur, gleði og björt ljós stór-
borgarinnar blinduðu hana.
Leikstjóri myndarinnar er
Andy Tennant sem gerði síðast
myndina „Anna and the King“
með Jodie Foster og Yun-Fat
Chow í aðalhlutverkum.
biggi@frettabladid.is
Í kvöld frumsýna Sambíóin Reykjavík, Keflavík og Akureyri gaman-
myndina „Sweet Home Alabama“. Myndin skaust beint í efsta sæti
bandaríska bíóaðsóknarlistans eftir fyrstu sýningarviku.
SWEET HOME ALABAMA
Myndin er létt rómantísk gamanmynd sem virðist ganga ágætlega ofan í Kanann.
Frægðarsól
Reese hækkar
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4
MR. DEEDS kl. 3.50 og 6
ROAD TO PERD... 5.30, 8, 9, 10.30, 11.30
ROAD TO PERD... 5.30, 8, 9, 10.30, 11.30
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12 Powersýning
kl. 6FÁLKAR
MAÐUR EINS OG ÉG kl. 6
THE BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.20
PORNSTAR-RON JEREMY kl. 10.15
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429
YA YA SISTERHOOD 5.50, 8 og 10.15 VIT455 HAFIÐ kl. 4 og 6
VIT
433
SIGNS kl. 8 VIT427
MAX KLEEBLE´S.. kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 10.15 VIT427
INSOMNIA kl. 8 og 10.15 VIT444
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 VIT 448
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 461
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 VIT 462
kl. 5.45, 8 og 10.15HAFIÐ
kl. 8YA YA SISTERHOOD
DÓMAR Í
ERLENDUM MIÐLUM:
Internet Movie Database - 6.5 af 10
Rotten Tomatoes.com - 39% = Rotten
Ebert & Roeper - Tveir þumlar upp
FUNDIR
09.00 Ráðstefna faghóps leikskóla-
kennarar sem ber yfirskriftina
Lifðu í lukku en ekki í krukku
verður á Hótel Sögu.
12.30 Haustráðstefna FENÚR, Hvað
kostar ruslið? verður í Sesselju-
húsi, Sólheimum í Grímsnesi.
15.00 Árni Ólafsson arkitekt fjallar um
byggingarlist og bæjarskipulag í.
r í Ketilhúsinu á Akureyri. Að-
gangur ókeypis og allir velkomn-
ir.
17.30 Málfundur um Kúbudeiluna frá
sjónarhóli Kúbu í Pahtfinder-
bóksölunni, Skólavörðustíg 6b
UPPÁKOMUR
Tannlækna- og lyfjafræðideildir Há-
skóla Íslands eru með opið hús í
Læknagarði við Vatnsmýrarveg.
21.00 Herra Suðurnes verður valinn í
Stapanum.
LEIKHÚS
20.00 Leikfélag Mosfellssveitar frum-
sýnir Beðið eftir Go.com air,
eftir Ármann Guðmundsson í
leikstjórn höfundar.
20.00 Einþáttungarnir Herpingur eftir
Auði Haralds og Hinn fullkomni
maður eftir Mikael Torfason eru
frumsýndir á Þriðju hæðinni í
Borgarleikhúsinu. Uppselt.
20.00 Lífið þrisvar sinnum er sýnt á
Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins. Uppselt.
FÖSTUDAGURINN
1. NÓVEMBER
15% afsláttur
af öllum vörum
föstudag og laugardag
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Mokkajakkar og kápur,
ullarkápur stuttar og síðar.
Fallegar úlpur, hattar og húfur.
Kanínuskinn kr. 2.900
Nýjar vörur
Opið 9-18
virka daga
og 10-15
laugardaga.