Fréttablaðið - 08.11.2002, Blaðsíða 24
24 8. nóvember 2002 FÖSTUDAGURHVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Ég mæli með heimildamyndinni Í skóm
drekans. Þetta er stórmerkileg mynd. Hrönn
og Árna Sveinsbörnum hefur tekist að búa
til mynd sem vekur ekki bara upp spurn-
ingar um fegurðarsamkeppni heldur einnig
spurningar um mannlegt eðli.
Páll Óskar Hjálmtýsson. Tónlistarmaður.
Gulur, rauður, grænn og blár -
ferðahandbók barnanna, eftir
Björn Hróarsson jarðfræðing er
komin í verslanir. Bókin sýnir ís-
lenska náttúru í nýju ljósi, fjöl-
breytileika þess sem fyrir augu
ber á ferðalögum og er ætlað að
auka áhuga á landinu. Bókin er
fyrir börn á öllum aldri en í
henni eru 126 ljósmyndir frá Ís-
landi ásamt mynda- og skýringar-
textum. Í bókinni er náttúrunni
gefin sérstakur gaumur með til-
liti til litasamsetningar og litirnir
fjórir, sem bókin sækir nafn sitt
til, koma mikið við sögu.
TÓNLIST Kontrabassaleikarinn
Tómas R. Einarsson telur að við-
skiptabannið á Kúbu hafi haft lít-
il áhrif á tónlistarlíf landsins.
„Það hefur gengið á ýmsu á Kúbu
á 20. öldinni. Ég held samt að póli-
tíkin hafi skipt tónlistarlífið litlu
máli,“ segir Tómas sem nýverið
gaf út geisladiskinn „Kúbanska“
sem inniheldur seiðandi djass
með keim frá Kúbu. „Margt af
því fínasta sem er til í dag af
kúbanskri tónlist er frá 1950 til
1960. Þannig að það er voðalega
erfitt að halda því fram að ein-
ræði hafi í för með sér vonda tón-
list. Það er eiginlega þvert á móti.
Tónlistin lifir sínu eigin lífi.“
Tómas ferðaðist til Kúbu fyrir
tveimur árum og segist vel geta
hugsað sér að fara aftur og stop-
pa þá lengur. Hann segist hafa
undirbúið sig vel fyrir ferðina og
því náð að upplifa flest það sem
hann vildi í stuttri heimsókn
sinni. Heimsóknin hafði nokkur
áhrif á Tómas sem tónlistarmann
þó að hann hafi ekki tekið með sér
bassann sinn í það skiptið. Hann
segist þó hafa „tekið í“ með hljóð-
færaleikurum við nokkur tæki-
færi.
Hljómsveit Tómasar R. leikur
næst á glæpasögukvöldi á Grand
Rokk á fimmtudaginn í næstu
viku.
LEIKHÚS Hjónin Atli Rafn Sigurðar-
son og Brynhildur Guðjónsdóttir
leika saman í verkinu Halti Billi
sem Þjóðleikhúsið frumsýnir í
kvöld. Þau leika systkin og eru sam-
skipti þeirra svo hressileg að Bryn-
hildur brýtur ein sjö egg á höfði eig-
inmannsins meðan á sýningunni
stendur.
Brynhildur segist enga sérstaka
ánægju hafa af því að kasta eggjum
í eiginmann sinn. „Ég reyni að
hugsa ekki um það að þetta sé mað-
urinn minn. Ef ég gerði það myndi
ég detta úr karakter, faðma hann og
biðja fyrirgefningar. Þetta gæti ver-
ið hver sem er.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þau hjónin mætast á sviðinu. „Við
kynntumst í leikhúsinu þegar við
lékum saman í Rent. Þá lékum við
vinkonur. Síðan lékum við
kærustupar í Draumi á Jónsmessu-
nótt og nú erum við systkin. Við
verðum svo bæði í jólastykkinu
Með fullri reisn.“
Brynhildur segir þessa nánu
samvinnu ekki koma niður á hjóna-
lífinu. „Þetta er mjög skemmtilegt.
Við byrjuðum að vinna saman áður
en við urðum par, þannig að við
erum vön því að vinna saman.
Þetta er bara betra svona. Leikur-
um finnst gaman að tala um vinn-
una, þannig að við deilum áhugan-
um á starfinu, getum hjálpað hvort
öðru og verið saman öllum stund-
um.“
ATLI RAFN SIGURÐARSON OG BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR
„Ég reyni að hugsa ekki um að þetta sé maðurinn minn. Ef ég gerði það myndi ég
detta úr karakter, faðma hann og biðja fyrirgefningar. Þetta gæti verið hver sem er.“
Halti Billi:
Hjónaslagur
á fjölunum
TÓMAS R. EINARSSON
„Ég er ekkert viss um ástandið hefði verið
skárra ef ekki hefði verið viðskiptarbann.
Kastró hefði þá alla vega ekki getað notað
það sem afsökun fyrir því hvernig ástandið
er núna .“
Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari:
Pólitíkin snertir
tónlistarlíf Kúbu lítið
NÝJAR BÆKUR
Röddin -
ARNALDUR INDRIÐASON
1
Bridget Jones: Á barmi taugaáfalls
HELEN FIELDING
2
Napóleonsskjölin
ARNALDUR INDRIÐASON
3
Samúel
MIKAEL TORFASON
4
Dauðarósir -
ARNALDUR INDRIÐASON
5
Hjarta, tungl og bláir fuglar -
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR
6
Hellaþjóðin -
JEAN M. AUEL
7
Grafarþögn -
ARNALDUR INDRIÐASON
8
Mýrin
ARNALDUR INDRIÐASON
9
Elsku Poona
KARIN FOSSUM
10
METSÖLUBÆKURNAR
METSÖLULISTI PENNANS
EYMUNDSSONAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T