Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 7
76. janúar 2003 MÁNUDAGUR
Al
ica
nte
Ver›lækkun!
Sumarhúsaeigendur á Spáni!
Beint leiguflug til Alicante
-takmarka› sætaframbo›.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Sala er hafin á ód‡ru
sumarfargjöldunum til Alicante.
Flugdagar eru 11. og 24. apríl, 21. maí og alla miðvikudaga í sumar.
Flogið er í beinu leiguflugi með Flugleiðum í morgunflugi.
*Verðdæmi: M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. 36.630 kr. á mann
ef 2 ferðast saman . Innifalið er flug og flugvallaskattar.
Munið, að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum 5.000 kr.
og VR ávísunum að eigin vild og lækka ferðakostnaðinn.
Félagsmenn í Félagi Sumarhúsaeigenda á Spáni fá 2.000 kr. afslátt á mann,
ef 20 sæti eða fleiri eru bókuð saman.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa. Fyrstir bóka fyrstir fá.
Ver› frá
32.245 kr./mann
*
Konu enn saknað:
Víðtæk leit
gerð um
helgina
LEIT Konan sem lögreglan í
Reykjavík lýsti eftir milli jóla og
nýárs hefur enn ekki komið í leit-
irnar. Að sögn lögreglu var gerð
víðtæk leit um helgina. Bæði voru
fjörur gengnar með aðstoð spor-
hunda og eins voru kafarar að
störfum við Reykjavíkurhöfn.
Konan heitir Guðrún Björg
Svanbjörnsdóttir, 31 árs gömul.
Síðast er vitað um ferðir hennar
29. desember sl. Þá var hún klædd
bláum goretexjakka, bláum galla-
buxum og vínrauðum uppháum
skóm. Einnig var hún með bláan
bakpoka. Guðrún er 172 sm á hæð
með stutt dökkbrúnt há, mjög
grönn. ■
Fundu 90 kannabisplöntur:
Karlmaður
handtekinn
FÍKNIEFNI Lögreglan á Selfossi
lagði hald á 90 kannabisplöntur og
búnað til ræktunar í iðnaðarhúsi í
Hveragerði síðdegis á föstudag.
Um er að ræða mesta magn af
fíkniefnum sem Selfosslögreglan
hefur lagt hald á og er fundurinn
afrakstur rannsóknarvinnu lög-
reglumanna um nokkurt skeið.
Karlmaður á þrítugasaldri hefur
verið handtekinn vegna málsins.
Við húsleit heima hjá honum fund-
ust fíkniefni, hass, e-töflur, mari-
júana og sveppir.
Iðnaðarhúsnæðið sem kanna-
bisplönturnar fundust í hafði ver-
ið sérútbúið fyrir ræktun hass-
plantnanna og framleiðslu úr
þeim. Lögreglan lagði hald á átta
gróðurhúsalampa en þess má geta
að í kringum 140 og 150 lampar
hafa verið teknir ófrjálsri hendi
úr gróðurhúsum í umdæminu.
Iðnaðarhúsnæðið sem um ræðir
var skráð á fyrirtæki en að sögn
lögreglu koma forráðamenn þess
ekki að málinu. ■
ÞRÍR BÍLAR SKEMMDIR Eigna-
spjöll voru unnin á þremur bílum
í Vestmannaeyjum í síðustu viku.
Sparkað var í tvo bíla. Annar
þeirra stóð við Strembugötu og
hinn við gatnamót Skólavegar og
Vestmannabrautar. Þá barst lög-
reglu tilkynning um að hliðar-
spegill hafi verið brotinn af bíl
sem stóð við Höfðaveg.
Ölvunarakstur í Reykjavík:
Færri keyra undir áhrifum áfengis
GUÐRÚN BJÖRG SVANBJÖRNSDÓTTIR
Hefur verið leitað síðan 29. desember.
INNLENT
LÖGREGLUFRÉTTIR Alls voru 852
ökumenn grunaður um ölvun við
akstur í Reykjavík á árinu 2002.
Brotum hefur fækkað töluvert
og eru þau um 23% færri miðað
við meðaltal síðustu fimm ára,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu. Hlutfallslega er mest
fækkun í desember, eða um 58%,
sem bendir til að átak lögreglu
gegn ölvunarakstri hafi skilað
sér í færri brotum. Lögreglan
segir þessar tölur athyglisverð-
ar í ljósi þess að margir öku-
menn hafi verið stöðvaðir í þess-
um mánuði. Greinilegt sé að
ökumenn hafi tekið ábendingum
og átaki lögreglunnar alvarlega.
Þegar desembermánuður er
skoðaður kemur í ljós að brotum
hefur fækkað síðastliðin fimm
ár. Í desember 1998 voru 117
manns teknir ölvaðir undir stýri,
126 árið 1999 en í ár voru brotin
fjörutíu talsins. ■
LÖGREGLAN Í REYKJAVÍK
Fram á aðfangadag voru brot vegna ölvun-
araksturs 26 talsins árið 2002 eða um fjórð-
ungur af því sem þau voru árið 1998.
ÖLVUNARAKSTUR Í REYKJAVÍK:
Ár Fjöldi í Fjöldi 1.-10. Fjöldi 1.-23. Teknir á dag
desember desember desember að meðaltali
1998 117 49 103 3,8
1999 126 34 89 4,0
2000 106 42 81 3,4
2001 92 22 64 2,9
2002 40 11 26 ,3
*Heimild: Dagbók lögreglunnar.
Hlutir færðir til:
Haukþing
kaupir af ÚA
VIÐSKIPTI Haukþing, nýstofnað
eignarhaldsfélag í eigu Eimskipa-
félagsins, Skeljungs og Sjóvár –
Almennra, hefur keypt öll hluta-
bréf Útgerðarfélags Akureyringa
í SR-mjöli. Þetta er 9,71% af heild-
arhlutafé SR-mjöls. ÚA er í eigu
Eimskipafélagsins. Þessi fyrir-
tækjahópur hafði undirtökin í SR-
mjöli allt þar til Samherji náði
meirihluta í gegnum eigin eignar-
hlut og eignarhluti Síldarvinnsl-
unnar á Neskaupstað í SR-mjöli.
Samherji á ráðandi hlut í Síldar-
vinnslunni. Haukþing á fyrir eign-
arhluti í Skeljungi og Sjóvá – Al-
mennum. ■