Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 8
8 6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
EKIÐ Á HROSS Ekið var á hross á
Hrunamannavegi ofan við Stóru-
Laxá á laugardagskvöld. Engin
meiðsl urðu á fólki. Tvö hross
höfðu sloppið úr girðingu og var
ekið á annað þeirra. Bíllinn er illa
farinn eftir ákeyrsluna.
HANDTEKIN VEGNA FÍKNIEFNA-
MÁLS Fjögur ungmenni voru hand-
tekin á laugardag á Húsavík vegna
fíkniefnamáls. Lögreglan stöðvaði
bíl ungmennanna við hefðbundið
umferðareftirlit og við leit fannst
lítilræði af amfetamíni. Þá fannst
amfetamín við húsleit sem gerð
var í kjölfarið. Ungmennin eru öll
undir tvítugu. Var þeim sleppt að
loknum yfirheyrslum.
HARÐUR ÁREKSTUR Á AKUREYRI
Harður árekstur varð á mótum
Hlíðarbrautar og Austursíðu á Ak-
ureyri á laugardag. Ökumenn voru
einir í bílum sínum og ætlaði annar
þeirra að leita sér sjálfur aðstoðar
vegna eymsla í baki. Annar bíllinn
er talinn ónýtur eftir áreksturinn
en um var að ræða jeppa og fólks-
bíl.
Rússar:
Ætla að telja
N-Kóreu
hughvarf
MOSVKA, AP Rússar ætla að reyna
að fá Norður-Kóreumenn til að
hætta við kjarnorkuvopnaáætlun
sína. Að sögn
A l e x a n d e r
Losyukov, að-
stoðarutanrík-
i s r á ð h e r r a
Rússlands, eru
Rússar og Kín-
verjar líkleg-
astir til að hafa
áhrif á Norður-
Kóreu í mál-
inu. Hann taldi
þó nauðsyn-
legt að Banda-
r í k j a m e n n
ættu einnig
viðræður við
leiðtoga þjóðarinnar.
Þetta sagði Losyukov skömmu
fyrir fund sinn með Kim Han-
Kyung, aðstoðarutanríkisráð-
herra Suður-Kóreu, í gær. ■
Afleiðingar kókaínneyslu:
Efnið vinnur
gegn sjálfu sér
RANNSÓKNIR Ný rannsókn sem
gerð var í Michigan-háskóla í
Bandaríkjunum varpar nýju ljósi
á áhrif kókaíns á heilastarfsemi
neytenda. Nið-
urstöður rann-
s ó k n a r i n n a r
gefa til kynna
að efnið skaði
eða jafnvel
drepi frumur í
þeim hluta
heilans sem
f r a m l e i ð i r
dópamín, eitt
af náttúrulegum „sæluefnum“
mannslíkamans. Það má því segja
að efnið brjóti smám saman niður
þær heilastöðvar sem því er ætlað
að örva. Þetta gæti skýrt að miklu
leyti hvers vegna þunglyndi er
svo algengt sem raun ber vitni
meðal kókaínneytenda.
Vísindamenn telja að þessi
uppgötvun geti reynst mikilvæg í
baráttunni við kókaínfíkn og jafn-
vel verði hægt að þróa lyf gegn
henni. Enn fremur binda menn
vonir við að öðlast í kjölfarið
meiri skilning á öðrum sjúkdóm-
um tengdum þessu heilasvæði,
þar á meðal þunglyndi. Mörgum
spurningum er þó enn ósvarað og
ljóst að fleiri rannsóknir þarf til
áður en hægt verður að grípa til
beinna aðgerða. ■
Árvökul áhöfn:
Stöðvaði
drukkna
flugmenn
HELSINKI Finnsk yfirvöld upplýstu
fyrir helgi að tveir þýskir flug-
menn hjá flugfélaginu Lufthansa
hefðu verið stöðvaðir af áhöfn
flugvélarinnar rétt fyrir flugtak
vegna gruns um ölvun. Blóðpruf-
ur leiddu síðar í ljós að áfengi var
í blóði þeirra beggja en ekki hefur
verið upplýst í hversu miklu
magni það mældist.
Flugmennirnir hættu störfum
hjá félaginu þegar niðurstöðurnar
lágu fyrir en rannsókn málsins
stendur enn yfir. Þeir gætu átt
yfir höfði sér málsókn í Finnlandi
en samkvæmt þarlendum lögum
er refsing við broti af þessu tagi
há fjársekt eða allt að tveggja ára
fangelsi. ■
Vaxtabreytingar hjá
Íbúðalánasjóði:
Vaxtahækkun
vegna almennra
leiguíbúða 18%
VEXTIR Vextir lána sem Íbúðalána-
sjóður veitir vegna almennra
leiguíbúða hækkuðu um tæpan
fimmtung um áramótin, úr 4,9% í
5,8%. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur
í samræmi við lög ákvarðað vexti
af lánum sjóðsins fyrir nýbyrjað
ár og verða óverulegar breytingar
á vöxtum annarra lána. Vextir
fasteignaveðbréfa eru óbreyttir,
5,1%, en vextir viðbótarlána
lækka úr 5,7% í 5,6%.
Vextir af lánum leiguíbúða sem
háðar eru tekju- og eignamörkum
verða óbreyttir, 3,5%. Hins vegar
hækka vextir af viðgerðalánum
vegna félagslegra íbúða lítillega,
úr 5,7% í 5,8%. Sama á við um lán
til tækninýjunga, þau bera nú
5,8% vexti. ■
FÁTÆKT „Mér fannst ákaflega dap-
urlegt að horfa upp á þetta. Við-
brögð félagsmálaráðherra báru
með sér að hann og aðrir sem tala
eins, vilji alls ekki horfast í augu
við vandann. Fátæktin er þjóðar-
böl, hvað sem ráðamenn segja,“
sagði Sigrún Ármanns Reynis-
dóttir, formaður Samtaka gegn fá-
tækt, um nýársávarp forseta Ís-
lands og viðbrögð manna við því.
Sigrún segir að stjórnvöld
gætu fyrir löngu hafa brugðist við
vandanum en viljann skorti
greinilega.
„það þarf að hækka lægstu
launin, bætur og lífeyri. Enn
fremur þarf að hækka skattleysis-
mörkin því þær snautlegu hækk-
anir sem þeir verst settu fá eru
étnar upp af skattinum,“ sagði
Sigrún Ármanns og bætti við að
verkalýðshreyfingin hefði staðið
sig vel en alltaf mætti betur gera.
„Þeir hefðu átt að láta mikið
meira í sér heyra. Nýlegt dæmi er
hækkun húsaleigu hjá Félagsbú-
stöðum sem kynnt var í sumar. Ég
hafði samband við forystumenn
verkalýðshreyfingar en þeir
gerðu ekki neitt, sumir virtst ekki
einu sinni hafa hugmynd um að til
stæði að hækka leiguna,“ sagði
Sigrún Ármanns Reynisdóttir. ■
Viðbrögð við fátæktarumræðu forsetans snautleg:
Fátækt er þjóðarböl
FJÁRMÁL Flest bendir til þess að
bæjarfulltrúar Vestmannaeyja-
listans muni kæra meinta fjár-
málaóreiðu Þróunarfélags Vest-
mannaeyja til efnahagsbrota-
deildar Ríkislögreglustjóra.
Lúðvík Bergvinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar og oddviti
listans, segir að á fundi um fjár-
mál félagsins fyrir skömmu hafi
komið í ljós að það skuldi nú um
70 milljónir króna. Það sé gríðar-
leg aukning frá því um áramótin
2002, en þá hafi félagið skuldað
um 32 til 34 milljónir. Bæjarsjóð-
ur er í ábyrgð fyrir 60% af skuld-
unum, Hitaveita Suðurnesja 20%
og Rannsóknarsetur Háskóla Ís-
lands í Vestmannaeyjum 20%.
Aðspurður segir Lúðvík að það
liggi ekki fyrir í hvað peningarnir
hafi nákvæmlega farið. Þó sé vit-
að að félagið hafi keypt fiskrétta-
verksmiðju sem ekki hafi komist
á laggirnar og þá hafi það einnig
keypt hlutabréf fyrir 6 milljónir
króna án þess að
stjórnarsamþykkt
lægi fyrir.
Lúðvík segir að
þrátt fyrir fjölda
fyrirspurna á bæj-
arstjórnarfundum
hafi því verið
haldið leyndu í
átta mánuði að
bókhaldið væri
týnt. Hann segir
að ef ekki fáist skýringar á því í
hvað peningarnir hafi farið á
næstu vikum muni V-listinn að öll-
um líkindum taka ákvörðun um að
kæra málið til Ríkislögreglustjóra
á almennum félagsfundi 27. janú-
ar.
„Við höfum ekki fengið þær
upplýsingar sem við höfum vilj-
að,“ segir Lúðvík. „Við höfum
þurft að þola það að menn hafi
farið með ósannindi í átta mánuði
um tilvist bókhaldsins. Það er svo
margt í þessu sem bendir til þess
að hlutirnir séu ekki í lagi og á fé-
lagsfundinum munum við því taka
ákvörðun um það hvort málið
verði kært.“
Í október síðastliðnum upplýsti
stjórn Þróunarfélagsins að bók-
haldið hefði týnst. Lúðvík segir að
það sé auðvitað hneyksli og þá
ekki síst að það skyldi hafa týnst í
tvennu lagi. Stjórnin hafi týnt ein-
um hluta þess, en endurskoðunar-
fyrirtækið Deloitte og Touche
öðrum hluta. Þróunarfélagið
starfar enn í dag og hefur tvo
starfsmenn. Þorsteinn Sverrisson
hefur látið af störfum sem fram-
kvæmdastjóri og gegnir Ingi Sig-
urðsson bæjarstjóri því starfi.
trausti@frettabladid.is
Meint fjármálaóreiða
kærð til lögreglu
Þróunarfélag Vestmannaeyja skuldar um 70 milljónir króna. Bókhaldið
er týnt. Oddviti Vestmannaeyjalistans segir margt benda til þess að hlut-
irnir séu ekki í lagi. Málið verði líklega kært til efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins.
FJÁRMÁL Ásakanir minnihluta Vest-
mannaeyjalistans um meinta fjár-
málaóreiðu Þróunarfélags Vest-
mannaeyja tengist þingframboði
Guðjóns Hjörleifssonar, fyrrver-
andi bæjarstjóra Vestmannaeyja,
að sögn Helga Bragasonar, stjórn-
armanns í Þróunarfélaginu og
varabæjarfulltrúa sjálfstæðis-
manna.
„Um leið og Guðjón ákvað að
fara í framboð var reynt að gera
hans fortíð tortryggilega og það
er grunnurinn að þessari umræðu
minnihlutans um málið,“ segir
Helgi.
„Bókhaldið týndist annars veg-
ar hjá framkvæmdastjóra og hins
vegar hjá okkar endurskoðunar-
skrifstofu. Þetta eru bara mann-
leg mistök en það eru allar færsl-
ur rekjanlegar og ekkert sem gef-
ur tilefni til þess að ætla að menn
hafi verið að draga að sér fé. Ég
held að það sé ekki rétt að þessu
hafi verið haldið leyndu fyrir
minnihlutanum.“
Helgi segir að umræðan und-
anfarna mánuði hafi skaðað starf
Þróunarfélagsins og því sé alls
óvíst hvort það muni halda starf-
semi sinni áfram. Hann segir að
félagið eigi eignir upp í megnið af
skuldunum. Fiskréttaverksmiðja,
sem félagið hafi keypt eftir Ísfé-
lagsbrunann, sé metin á um 30
milljónir, þá hafi borhola verið
seld á 12 milljónir króna.
„Það er hugsanlega eitthvað
gat upp á 10 milljónir,“ segir
Helgi
Hann segir að í endurskoðun-
arskýrslu Deloitte & Touche, lög-
gilts endurskoðanda, komi fram
að ársreikningur félagsins gefi
glögga mynd af afkomu þess á ár-
inu 2001. Það sé því álit þeirra að
samþykkja beri ársreikninginn á
aðalfundi félagsins. ■
Umræða um meinta fjármálaóreiðu tengist
þingframboði fyrrverandi bæjarstjóra:
Reynt að gera fortíð
Guðjóns tortryggilega
LÖGREGLUFRÉTTIR
INNLENT
LÖGREGLUMÁL
SIGRÚN ÁRMANNS REYNISDÓTTIR
Segir viðbrögð félagsmálaráðherra og fleiri
ráðamanna við fátæktarumræðu dapurleg.
Vandamálið hverfi ekki þótt einstaka ráða-
menn neiti að viðurkenna vandann.
EINN MEÐ FIMM RÉTTA Einn
hreppti lottóvinninginn sem dreg-
inn var út á laugardag. Var hinn
heppni með allar tölur réttar og
fékk í sinn hlut rúmar 3,2 millj-
ónir króna. Enginn var með fjór-
ar réttar auk bónustölu. Lottótöl-
urnar sem komu upp voru 4, 5, 6,
16 og 38. Bónustalan var 13.
FUNDUR
Kim Hang-Kyung, að-
stoðarutanríkisráð-
herra S-Kóreu, og kol-
legi hans frá Rúss-
landi, Alexander
Losyukov, á fundi sem
þeir áttu í gær.
KÓKAÍN
Niðurstöður nýrrar
rannsóknar vekja von-
ir um árangur í barátt-
unni við afleiðingar
kókaínneyslu.
AP/M
YN
D
DEILAN UM ÞRÓUNARFÉLAG
VESTMANNAEYJA
„Um leið og Guðjón ákvað að fara í fram-
boð var reynt að gera hans fortíð tortryggi-
lega og það er grunnurinn að þessari um-
ræðu minnihlutans um málið,“ segir Helgi
Bragason, stjórnarmaður í Þróunarfélagi
Vestmannaeyja og varabæjarfulltrúi sjálf-
stæðismanna.
„Við höfum
þurft að þola
það að menn
hafi farið með
ósannindi í
átta mánuði
um tilvist bók-
haldsins.“
BÆJARSJÓÐUR Í ÁBYRGÐ FYRIR 60% AF SKULDUNUM
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og oddviti Vestmannaeyjalistans, segir að
á fundi um fjármál Þróunarfélagsins fyrir skömmu hafi komið í ljós að það skuldi nú um 70
milljónir króna. Það sé gríðarleg aukning frá því um áramótin 2001-2002, en þá hafi félagið
skuldað um 32 til 34 milljónir. Bæjarsjóður er í ábyrgð fyrir 60% af skuldunum.
ORÐRÉTT
AKUREYRINGAR Í LOSTI
En þarna voru öll sund lokuð og
vægast sagt þjarmað alveg of-
boðslega að mér.
Hannes Sigurðsson, forstöðumaður
Listasafns Akureyrar, um viðbrögð bæjar-
búa við Lostasýningunni í safninu. Morg-
unblaðið, 5. janúar 2003.
TÍMINN ER KOMINN
Hún vill augljóslega og ætlar að
láta reyna á styrk sinn sem full-
gildur og fullmótaður stjórnmála-
maður, án tillits til kynferðis.
Guðrún Guðlaugsdóttir um Ingibjörgu
Sólrúnu. Morgunblaðið, 5. janúar 2003.
KONUNGLEGUR SÁTTATÓNN
Mér finnst indverska prinsessan
alveg frábær og vil ekki reita
hana til reiði.
Óskar Jónasson, höfundur Ára-
mótaskaupsins, vill ekki deila við Leoncie.
DV, 4. janúar 2003.