Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 10
10 6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR Aldrei fyrr hafa skip
Haraldar Böðvarssonar aflað jafn
mikið og í fyrra. Heildarafli skip-
anna var 166.540 tonn. Þar vegur
loðnan þyngst, um 102 þúsund
tonn. Af kolmunna veiddu skip
HB rúmlega 27 þúsund tonn.
Heildarafli í uppsjávarfiski var
um 144 þúsund tonn en botnfisk-
afli skipanna var rúmlega 22 þús-
und tonn. Heildaraflaverðmætið
er rúmlega 3,6 milljarðar króna,
sem er um 850 milljóna króna
aukning frá árinu á undan, en þá
voru sjómenn í verkfalli í um það
bil sex vikur. Frystitogarar HB
skiluðu helmingi heildaraflaverð-
mætisins. Aflaverðmæti frysti-
togaranna eru gefin upp sem FOB
eða skilaverð. Ef reikna ætti út
CIF-verðmæti aflans, eða útflutn-
ingsverðmæti, lætur nærri að
aflaverðmæti Höfrungs III í fyrra
sé tæplega 1.050 milljónir króna
og aflaverðmæti Helgu Maríu um
900 milljónir. ■
AFLI OG AFLAVERÐMÆTI HB-SKIPA ÁRIÐ 2002
Bolfisktogarar Afli (tonn) Aflaverðmæti (þús. kr.)
Höfrungur III 7.403 933.000
Helga María 5.974 801.000
Haraldur Böðvarsson 4.103 321.229
Sturlaugur H. Böðvarsson 4.801 378.063
Nótaskip Afli (tonn) Aflaverðmæti (þús. kr.)
Ingunn 78.403 672.643
Víkingur 46.210 381.016
Elliði 19.646 149.386
Samtals bolfisktogarar 22.281 2.433.292
Samtals nótaskip 144.259 1.203.045
Samtals HB-skip 166.540 3.636.337
Floti Haraldar Böðvarssonar hf.:
Metafli og verðmæti í fyrra
SVONA ERUM VIÐ
VELTA MEÐ HLUTABRÉF
Í KAUPHÖLL ÍSLANDS 1999- 2003
Í MILLJÓNUM KRÓNA:
1999: 119.873
2000: 199.026
2001: 138.322
2002: 321.338
Heimild: Kauphöll Íslands
Úthlutun byggðakvóta:
Bolvíkingar
ósáttir
BYGGÐAKVÓTI Bæjaráð Bolungarvík-
ur lýsir yfir vonbrigðum með út-
hlutun byggðakvóta til Bolungar-
víkur sem sjávarútvegsráðherra
kynnti fyrir jól. 16 útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtæki í Bolungar-
vík fengu úthlutað 25 tonnum af
þeim 305 tonnum sem úthlutað
var til nyrðri hluta Vestfjarða,
það er Ísafjarðarbæjar, Bolungar-
víkur og Súðavíkur. Bæjarráð
Bolungarvíkur óskar skýringa og
rökstuðnings fyrir úthlutuninni
með tilliti til áður kynntrar
punktagjafar sem fram kemur í
fréttatilkynningu sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Sveitarstjórinn á
Raufarhöfn gagnrýndi nýlega út-
hlutun Byggðakvótans en Raufar-
höfn fékk ekki byggðakvóta. ■
Vélstjórar skora á stjórnvöld:
Dragi ekki
úr kröfum
RÉTTINDI Aðalfundur Vélstjóra-
félags Íslands skorar á stjórnvöld
að draga ekki úr réttindakröfum
um menntun og hæfni til vél-
stjórnar skipa með aðalvél undir
750 kW til samræmis við það sem
kveðið er á um í alþjóðasamþykkt
þar um.
Helgi Laxdal segir að þar sem
Íslendingar geri meiri kröfur sé
mikilvægt að ekki verði dregið úr
þeim til samræmis við þær lág-
markskröfur sem alþjóðasam-
þykktin geri ráð fyrir. Um sé að
ræða málamiðlun margra ólíkra
ríkja, þeirra á meðal ríkja sem
séu mun skemmra á veg komin en
Íslendingar við að tryggja vinnu-
umhverfi og öryggismál. ■
LEITAR TIL ALÞJÓÐASTOFNANA
Mwai Kibaki, nýkjörinn forseti
Kenýa, hefur valið ráðherra í rík-
isstjórn sína. Hann segist þegar
hafa leitað til Heimsbankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
stuðning við endurbætur í Aust-
ur-Afríkuríkinu, en báðar stofn-
anir höfðu hætt stuðningi við
Kenýa vegna spillingar.
FRAKKI Á FÍLABEINSSTRÖNDINNI
Frakkar munu gera það sem í
þeirra valdi stendur til að binda
endi á borgarastríðið á Fílabeins-
ströndinni segir Dominique de
Villepin, utanríkisráðherra
Frakklands. Hann hélt í gær í
tveggja daga heimsókn til Fíla-
beinsstrandarinnar.
AFRÍKA
TROYAN, BÚLGARÍA, AP Á sama tíma og
hin pólitíska Evrópa dregst saman
og myndar eina heild hefur andúð
kaþólsku kirkjunnar og austur-
evrópskra rétttrúnaðarkirkja á
hvorri annarri staðist tímans tönn
þrátt fyrir tilraunir ýmissa aðila
til að koma á sáttum milli kirkju-
deildanna, sem hafa verið klofnar
um margra alda skeið.
Það fór að bera á deilum milli
kristinna manna í austanverðri
Evrópu og vestanverðri þegar á
fimmtu öld. Fyrst var deilt um
áhrif páfadóms og síðar um
hvernig orða skyldi trúarjátningu
og aðra þætti trúarbragðanna.
Full skil urðu á milli kristinna
manna í álfunni árið 1054 þegar
páfinn í Róm og patríarkinn í Kon-
stantínópel skiptust á bannfær-
ingum.
Síðan þá hefur verið djúpstæð-
ur ágreiningur milli kaþólsku
kirkjunnar og hreintrúarkirkj-
anna í Austur-Evrópu, sem telja
200 milljónir kristinna innan
sinna raða. Í seinni tíð hefur þó
verið unnið að því að bæta sam-
skipti kirkjudeildanna í austri og
vestri. Andlegur leiðtogi
réttrúnaðarmanna, Barthólómeus
I patríarki, hefur reynt að ná sátt-
um við kaþólikka, reyndar í and-
stöðu við harðlínumenn meðal
réttrúnaðarmanna, og Jóhannes
Páll páfi II hefur heimsótt rétt-
trúnaðarþjóðir, svo sem Búlgara,
Rúmena og Grikki.
Viðræður kaþólskra ráða-
manna og forystumanna rétt-
trúnaðarmanna hafa oftast endað
í deilum um ýmis atriði, sum guð-
fræðileg, önnur söguleg. Helsta
hindrunin fyrir sættum hefur þó
reynst sú sama og þegar leiðir
kirkjudeildanna skildu fyrir nær
þúsund árum, stjórnmál og völd.
Sérstaklega hafa réttrúnaðar-
menn kvartað undan austrænu
kirkjudeildunum sem deila ýms-
um kennisetningum og siðum
rétttrúnaðarmanna en lúta yfir-
stjórn Vatíkansins.
Einna harðastir í andstöðu
sinni við kaþólikka eru forystu-
menn rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar, sem hefur áhrifavald
víðast hvar í Austur-Evrópu.
Alexei II patríarki hefur sakað
Vatíkanið um að vilja auka áhrif
sín á kostnað rétttrúnaðarkirkj-
unnar og neitað að taka á móti Jó-
hannesi Páli páfa II. Búlgarski
guðfræðingurinn Toni Radkov
segir litlar líkur á sættum meðan
Alexei II heldur sínum sjónarmið-
um fram. „Viðhorf hans móta
stóran hluta rétttrúnaðarheims-
ins.“
Stjórnmálamenn hafa einnig
komið við sögu í deilunum.
Búlgarska þingið samþykkti und-
ir lok síðasta árs að hreintrúar-
kirkjan skyldi skilgreind sem hin
hefðbundna trú búlgörsku þjóðar-
innar. Önnur trúfélög, þar á meðal
kristinna manna, kunnu þeim litl-
ar þakkir og töldu grafið undan
grundvelli sínum.
„Evrópa er að sameinast með
Atlantshafsbandalaginu og Evr-
ópusambandinu, á því er enginn
vafi,“ segir Christos Proykov,
biskup og leiðtogi austrænu
kirkjudeildanna í Búlgaríu, sem
óttast bakslag á grundvelli þjóð-
ernisstefnu og trúarlegrar skipt-
ingar. Hann rifjar upp að hann
hafi ekki haft trú á því sem ungur
maður að andstæðingar kalda
stríðsins tækju einhvern tíma
höndum saman. Það gæti þó verið
kaþólikkum og rétttrúnaðarmönn-
um fyrirmynd um að bæta sam-
skipti sín. ■
TOLLALÖG Heildarendurskoðun tolla-
laga fer fram um þessar mundir en
núgildandi tollalög eru frá 1987.
Við endurskoðun laganna er gengið
út frá að rafræn tollafgreiðsla
verði meginregla og ákvæðum lag-
anna breytt með hliðsjón af því,
eftir því sem segir í vefriti Fjár-
málaráðuneytisins. Markmiðið
með endurskoðun tollalaga er að
tryggja að vöruviðskipti milli Ís-
lands og annarra landa gangi greið-
lega fyrir sig. Ábyrgð innflytjenda
og þeirra sem flytja og geyma
ótollafgeiddar vörur er gerð skýr-
ari. Þá er fækkun tollumdæma til
skoðunar með það að markmiði að
auka sérhæfingu hjá tollyfirvöld-
um á landsbyggðinni og gera flutn-
ing á ótollafgreiddum vörum inn-
anlands greiðari. Tollumdæmi hér
á landi eru nú 26 en á hinum nor-
rænu löndunum hefur þeim fækk-
að verulega. Í Finnlandi eru toll-
umdæmin 5 og í Noregi fækkaði
umdæmum nýlega úr 10 í 6. ■
Vöruskipti við útlönd:
Hagstæð
um 14
milljarða
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR Ríflega fjórtán
milljarða afgangur var af vöru-
skiptum við útlönd fyrstu ellefu
mánuði ársins. Vöruskiptin í nóv-
ember voru hagstæð um 2,3 millj-
arða. Útflutningur jókst um 9%,
en innflutningur dróst saman um
5%. Útflutningur sjávarafurða
hefur aukist um 9% og nemur
63% af vöruútflutningi. Útflutn-
ingur iðnaðarvara hefur einnig
aukist, einkum á lyfjavörum og
lækningatækjum. Samdrátt í inn-
flutningi má rekja til minni inn-
flutnings á fjárfestingarvörum og
flutningatækjum. ■
TOLLAFGREIÐSLA
Til skoðunar er að fækka tollumdæmum en þau eru nú 26. Í Noregi eru umdæmin 6 og
5 í Finnlandi.
MESSA HJÁ HREINTRÚARMÖNNUM
Í NIKÓSÍU
Gríska réttrúnaðarkirkjan er ein þeirra
kirkjudeilda sem hafa hafnað leiðsögn
páfadóms um tíu alda skeið.
Tvö andlit Evrópu
Skipting Evrópu í austur og vestur heyrir að mestu sögunni til, kalda
stríðinu er lokið og Berlínarmúrinn fallinn. Fyrrum kommúnistaríki
eru orðin aðilar að Atlantshafsbandalaginu og flykkjast í Evrópusam-
bandið. Tveimur kirkjudeildum er þó enn í nöp hvorri við aðra.
MUNKUR SELUR KERTI
Gríski munkurinn Neofteus hefur verið
myndaður mörg undanfarin ár þar sem
hann selur erlendum pílagrímum kerti í
fæðingarkirkjunni um jólin.
Rannsókn:
Fimmtungur
með tann-
áverka
TANNHEILSA Tannáverkar eru nokk-
uð algengir meðal tólf og fimmt-
án ára barna á Íslandi. Færri
reyndust með slíka áverka í þess-
um aldurshópum árið 1996 en tíu
árum fyrr. Þetta kemur fram í
rannsókn Sigfúsar Þórs Elíasson-
ar sem kynnt var á ráðstefnu
lyfja-, lækna- og tannlæknadeild-
ar HÍ. Árið 1986 greindust áverk-
ar á tönnum 20,4% tólf ára barna
og 23,1% fimmtán ára. Tíu árum
síðar er talan 15,6% hjá fyrri hóp-
num og 18,3% í þeim seinni. Al-
gengast er að framtennur í efri
góm skaðist. ■
Heildarendurskoðun tollalaga:
Rafræn tollafgreiðsla verði meginregla