Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 12
STRÍÐSÁTÖK Á nýliðnu ári áttu sér
stað vopnuð átök í 53 löndum hér
á jörðu. Slíkum átökum hefur
fækkað nokkuð á síðustu árum,
því árið 2001 voru þau 59 talsins,
en 68 árið 2000.
Þessar tölur eru fengnar frá
bandarískum samtökum,
‘National Defence Council
Foundation’, sem árlega leggja
mat á fjölda stríðsátaka í heimin-
um. Þessi samtök eru óháð stjórn-
völdum, en þykja heldur
hægrisinnuð.
Líkt og undanfarin ár er mest
um vopnuð átök í Mið-Austurlönd-
um og Afríkuríkjum sunnan Sa-
hara. Meira en helmingur allra
slíkra átaka á nýliðnu ári voru í
þessum tveimur heimshlutum.
Tíu ríki bættust á listann þetta
árið, þar á meðal Jórdanía,
Kúvæt, Norður-Kórea og Venesú-
ela. Sextán ríki voru á hinn bóginn
fjarlægð af honum, þar á meðal
Bandaríkin, Júgóslavía, Malasía,
Makedónía og Sierra Leone.
Bandaríkin voru á listanum
árið 2001 vegna árásanna á New
York og Washington í september
það ár.
Í tölum samtakanna eru reynd-
ar innifalin tímabundin átök, til
dæmis í kringum kosningar, ef
þau valda „verulegu róti“ sam-
kvæmt mælikvörðum samtak-
anna, sem þau viðurkenna fúslega
að séu ekki yfir allan vafa hafnir.
Mælikvarðarnir eru nánar tiltekið
fjórir: stjórnmálalegur, félagsleg-
ur, efnahagslegur og hernaðarleg-
ur.
Í skýrslu samtakanna er þeirri
venju haldið að tilnefna jafnan
„heimskulegustu átök ársins“.
Þetta árið nýtur Nígería þess
heiðurs að hafa verið vettvangur
heimskulegustu átakanna. Þau
brutust út eftir að blaðamaður fór
niðrandi orðum um Múhameð spá-
mann í tengslum við umfjöllun
um fegurðarsamkeppnina Ungfrú
heim, sem halda átti í landinu.
Blaðagreinin hrinti af stað átök-
um sem kostuðu meira en 200
manns lífið og flytja þurfti keppn-
ina til Bretlands.
„Hægt hefði verið að hunsa
þessi ummæli sem óviðurkvæmi-
leg og þar með væri málinu lok-
ið,“ sagði Andy Messing, höfund-
ur skýrslunnar. „Allir tóku um-
mælin alvarlega og létu eins og
þetta væri heimsendir.“
Fleiri samtök hafa tekið saman
lista yfir styrjaldir ár hvert, en
þau miða venjulega við að til þess
að komast á slíkan lista þurfi
vopnuð átök að hafa kostað að
minnsta kosti þúsund manns lífið.
Ef þeim mælikvarða er beitt geisa
nú um það bil þrjátíu stríð í heim-
inum.
gudsteinn@frettabladid.is
6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Niðurstöður skoðanakönnunarFréttablaðsins um fylgi stjórn-
málaflokkanna eru athyglisverðar.
Ekki aðeins sökum
þess að niðurstaðan
sjálf er söguleg;
Sjálfstæðisflokkur-
inn er ekki lengur
sá flokkur sem nýt-
ur mests fylgis –
heldur er könnunin
gerð í kjölfar einn-
ar þéttustu póli-
tísku umræðu sem
dunið hefur á þjóð-
inni lengi. Frá því að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir tilkynnti um þing-
framboð sitt skömmu fyrir jól hef-
ur sú yfirlýsing og afleiðingar
hennar lagt undir sig ómælt pláss í
dagblöðunum, fyllt flesta frétta-
tíma sjónvarps- og útvarpsstöðva
og nær alla kjaftaþætti þeirra.
Aldrei hefur þjóðin heyrt jafn
marga tjá sig um einstakt mál.
Þessi holskeifla reið yfir á tíma
fjölskylduboða og samkvæmislífs
jóla og áramóta svo allir gátu tekið
þátt í umræðunni. Skoðanakönnun
sem gerð er í kjölfar þessa ætti því
að draga fram afstöðu þjóðarinnar
til umræðunnar; vera nokkurs kon-
ar fyrsta vísbending um áhrif
hennar á stjórnmálin.
Og niðurstaðan er afgerandi.
Samfylkingin er í mikilli sókn og
sækir fyrst og fremst á stjórnar-
flokkana tvo; mælist nú með meira
fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn.
Framsókn tapar meiru en sjálf-
stæðismenn og mátti við minna. Ef
ekki væri fyrir Frjálslynda flokk-
inn væri Framsókn minnst allra
flokka með 10 prósenta fylgi sem
gæfi þeim 6 þingmenn; helmingi
færri en þeir hafa í dag. Miðað við
fylgið í könnunum misstu sjálf-
stæðismenn tvo þingmenn; fengju
24. Samfylkingin yrði stærsti þing-
flokkurinn með 25 þingmenn; átta
fleiri en í dag. Vinstri grænir bæta
við sig fylgi og einum manni.
Frjálslyndir missa fylgi og annan
þingmanninn.
Sambærilega fylgisbreytingu
má merkja á stuðningi við ríkis-
stjórnina. Stuðningsmenn og and-
stæðingar eru nánast jafn stór hóp-
ur; stuðningsmenn sjónarmun
fleiri. Í síðasta þjóðarpúls Gallup
fékk ríkisstjórnin 57 prósent stuðn-
ing en tæp 51 prósent nú. Það er ná-
lægt því sama niðursveifla og fylgi
stjórnarflokkanna frá könnun
Gallup að könnun Fréttablaðsins.
Auðvitað segir þessi könnun
Fréttablaðsins ekki hvernig kosn-
ingarnar eftir fjóra mánuði fara.
En þær benda til að kosningabar-
áttan hafi byrjað með mikilli fylg-
issveiflu eftir að Ingibjörg Sólrún
tilkynnti framboð sitt og að í upp-
hafi baráttunnar sé Samfylkingin í
góðri sóknarstöðu en stjórnar-
flokkarnir tveir í vörn. ■
skrifar um niðurstöður skoðana-
könnunar Fréttablaðsins.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Niðurstaða holskeflu stjórnmálaumræðu
Þakkir
fyrir aðstoð
Svava Kristinsdóttir skrifar:
Svava heiti ég og vil þakkakærlega fyrir mig og mína.
En þannig er mál með vexti að
ég kom í útvarpsþáttinn hjá Arn-
þrúði Karlsdóttir í Útvarpi Sögu
fyrir jólin ásamt Ásgerði hjá
Mæðrastyrksnefnd. Þar var
stuttlega rakin saga mín og gerð
skil ástandi of margra í þjóðfé-
laginu í dag.
Mig langar til að þakka þeim
sem styrktu mig með og eftir
þennan þátt. Sýndi það mér að
það er ekki öllum sama um ná-
ungann. Mig langar að byrja á
því að þakka Arnþrúði Karls-
dóttur fyrir þáttinn, vegna þess
að án hans hefði ekki orðið af
þessum styrkjum. Mig langar að
þakka Ásgerði fyrir að gefa mér
þetta tækifæri.
Svo langar mig til að þakka
þeim þremur einstaklingum sem
veittu mér peningagjafir fyrir
jólin, en það bjargaði alveg jól-
unum hjá okkur. Þar sem þau
sem gáfu mér af sínu vildu ekki
láta nafn sitt uppi þá virði ég það
og segja bara að um einn mann
var að ræða og tvær konur og
þau hjálpuðu okkur virkilega.
Takk kærlega. Í raun og sann-
leika á ég ekki til réttu orðin til
að lýsa þakklæti mínu. Ég var og
er mjög hrærð og var gráti næst
að svo gott fólk skuli vera til!
Takk innilega!
Svo að síðustu vil ég þakka
Jóhannesi í Bónus fyrir gjafa-
miðana hans sem hann gaf
Mæðrastyrksnefnd svo að við
hin illa stöddu í þjóðfélaginu
skulum hafa tök á að versla fyr-
ir jólin.
Takk gott fólk og megi drott-
inn blessa ykkur! ■
Fimmtíu stríð á
síðasta ári
Vopnuðum átökum hefur heldur fækkað síð-
ustu árin. Samt var barist á 53 stöðum á ný-
liðnu ári. „Heimskulegustu átök“ síðasta árs
brutust út í Nígeríu.
Það er sígilt umræðuefni hér íbæ sem annarsstaðar hvað
þurfi til svo bæjarfélagið okkar
megi vaxa og dafna. Ég hef þá
skoðun og deili henni örugglega
með miklum meirihluta Akureyr-
inga að kostir þess að búa hér í
bæ séu umtalsvert meiri en gall-
arnir. Ég hef hvatt fólk til þess að
gera samanburð á búsetukostum
Akureyrar við sérhvert samfélag
í veröldinni fullviss um það að
bærinn okkar komi ákaflega vel
út úr þeim samanburði.
Vissulega eru alltaf einhver
atriði sem betur mega fara í bæj-
arfélaginu – enda skoðanir og
væntingar einstaklinga misjafn-
ar. Það er hins vegar álit mitt að
það sem oftast ber hæst í um-
ræðu sem „vandamál Akureyrar“
sé heimatilbúinn „vandi“ hug-
lægs eðlis. Það á rætur að rekja
til þeirrar allt of algengu afstöðu
að virðing og sjálfsmynd bæjar-
félagins okkar sé undir einhverj-
um öðrum komin en okkur sjálf-
um. Það sé ekki fyrst og fremst
verkefni mitt og þitt að styrkja
sjálfsmynd bæjarfélagins heldur
ráði aðrir þar um. Ég tel ekki
málum þannig komið, heldur
muni gróskan í bænum og sú
virðing sem Akureyri mun njóta
einfaldlega ráðast af því að hve
miklu leyti og á hvern hátt bæj-
arbúar sjálfir taka þátt í að móta
þá mynd sem Akureyri skipar í
hugum fólks. Styrk sjálfsmynd
er og verður alltaf helsta vopn
okkar í frekari uppbyggingu og
vexti Akureyrar.
Þegar ég lít til baka yfir árið
2002 er það mat mitt að við Akur-
eyringar getum verið nokkuð
sáttir við afraksturinn. Við höf-
um komið mörgum góðum mál-
um í höfn á árinu en jafnframt
sýnt kjark til að taka erfiðar og á
stundum óvinsælar ákvarðanir.
Mér er ofarlega í huga ný
byggðaáætlun þar sem Alþingi
Íslendinga undirstrikaði forystu-
hlutverk okkar á landsbyggðinni
og ennfremur það hversu vel Ak-
ureyri hefur styrkt stöðu sína á
sviði verslunar, þjónustu og sjáv-
arútvegs. Staðfesting þessa kom
berlega í ljós á síðustu vikum
ársins þegar fólk víðsvegar af
Norður- og Austurlandi sótti
hingað verslun og þjónustu.
Einnig hefur Háskólinn á Ak-
ureyri haldið áfram að vaxa og
dafna og ljóst er að hann mun
halda áfram á þeirri braut. Loks
vil ég lýsa ánægju minni með
góðan árangur íþróttafólks á ný-
liðnu ári. 239 Íslandsmeistaratitl-
ar í fjölmörgum greinum íþrótta
bera hróður Akureyrar víða og er
þessi árangur glæsilegur vitnis-
burður um gríðarlega gott starf
félagasamtaka hér í bæ.
Sá tími er liðinn að fólk flytji
unnvörpum nauðugt burt úr bæn-
um til að leita tækifæra annars
staðar. Nýbirtar tölur um íbúa-
fjölda í einstökum landshlutum
staðfesta þetta. Akureyringum
fjölgaði á nýliðnu ári um 1,31%,
þriðja árið í röð langt umfram hið
margfræga landsmeðaltal. Íbúar
Akureyrar voru 15.840 þann 1.
desember sl. og fjölgaði milli ára
um 208.
Stundum tala menn sem svo að
hlutirnir gerist af sjálfu sér, hér
sé fólki búið það umhverfi frá
náttúrunnar hendi að öðruvísi
geti þetta ekki þróast. Verkefnið
sé ekki annað en að bíða þess að
mál gangi nánast sjálfkrafa okk-
ur í hag.
Hvorki hér né annarsstaðar í
víðri veröld gerast hlutirnir með
þvílíkum hætti. Það þurfa að
vera fyrir hendi þau skilyrði í
bæjarfélaginu að sá kraftur og
sköpunarmáttur sem alla jafna
býr í hverjum einstaklingi fái
notið sín, honum sjálfum og öðr-
um Akureyringum til góðs.
Grundvallaratriði er þó það að al-
mennt efnahagsástand í landinu
sé gott og atvinnulíf og fyrirtæki
gangi með þeim hætti að sérhver
fái notið afraksturs erfiðis síns.
Uppsveiflan hefur verið mikil
undanfarin ár og eðlilegt er að
við horfum bjartsýn fram á veg-
inn. Að sjálfsögðu ber okkur um
leið að sýna fulla aðgát og taka al-
varlega ábendingar um þá veik-
leika sem kunna að leynast. En
höfum það hugfast að úrtöluradd-
ir og svartsýnistal er ekki besti
áttavitinn, hvorki við siglingu í
lélegu skyggni né heiðríkju.
Bæjarstjórn Akureyrar mun á
komandi árum vinna markvisst
að því að styrkja sjálfsmynd bæj-
arfélagsins og auka tiltrú fólks
og fyrirtækja á gæði búsetuskil-
yrða hér. Það er í mínum huga
ljóst að Akureyri hefur alla burði
til þess að vera sterkur þjónustu-
kjarni vegna stærðar sinnar og
miðstöðvarhlutverks á sviði
mennta-, menningar-, íþrótta- og
heilbrigðismála. Hér er einnig að
finna fjölbreytt úrval verslana og
þjónustu auk öflugs menningar-
starfs með tengsl við sögu og um-
hverfi bæjarins. Smátt og smátt
munu fyrirtæki þróa framleiðslu
sína og þjónustu á þann veg að
krafan um sérhæft vinnuafl mun
ráða mestu um staðarval þeirra.
Þetta starfsfólk á vinnumarkaði
framtíðarinnar mun í auknum
mæli leita eftir búsetu á stöðum
sem bjóða því bestu möguleika á
að fullnægja kröfum þess til lífs-
ins gæða.
Höfuðborg hins bjarta norð-
urs býður fólki þau búsetuskil-
yrði sem eru talin með þeim
bestu í landinu. Þar liggur okkar
styrkur. ■
Á GERVILIMASTÖÐ RAUÐA KROSSINS Í KABÚL
Stríðsátök draga jafnan dilk á eftir sér. Þessi maður var að prófa nýja gervifótinn sinn í
Kabúl í Afganistan í síðustu viku. Þriggja ára dóttir hans fylgist með.
AP
/
M
AN
IS
H
S
W
AR
U
P
skrifar um
Akureyri.
KRISTJÁN
JÚLÍUSSON
BÆJARSTJÓRI
Um daginn
og veginn
12
Þessi hol-
skeifla reið yfir
á tíma fjöl-
skylduboða og
samkvæmislífs
jóla og ára-
móta svo allir
gátu tekið þátt
í umræðunni.
Styrkur
Akureyrar