Fréttablaðið - 06.01.2003, Síða 14
14 6. janúar 2003 MÁNUDAGURSKÍÐASTÖKK
EINS OG FUGLINN FLJÚGANDI
Austurríski skíðastökkskappinn Andreas
Goldberger sveif í loftinu eins og fuglinn
fljúgandi í keppni sem haldin var í bænum
Innsbruck í Austurríki sl. föstudag. Í bak-
grunni má sjá Wilten-kirkjuna.
AP/M
YN
D
Knattspyrnumaður Afríku 2002:
Diop, Diouf og „Mido“ tilnefndir
FÓTBOLTI Senegalarnir Papa
Bouba Diop og El-Hadji Diouf
auk Ahmed Hossam „Mido“ frá
Egyptalandi hafa verið tilnefnd-
ir sem knatttpyrnumenn Afríku
árið 2002.
Diop, sem leikur með franska
liðinu Lens, sló í gegn þegar
hann skoraði hið fræga sigur-
mark Senegala gegn Frökkum á
opnunarleik HM í sumar. Hann
hefur þegar verið valinn knatt-
spyrnumaður ársins í Senegal.
Diouf, leikmaður Liverpool,
stóð sig einnig vel á HM í sumar
með Senegal. Hann varð árið
2001 fyrsti leikmaður landsins
til að verða valinn besti knatt-
spyrnumaður Afríku. Diouf er
fyrrverandi samherji Diop hjá
Lens.
Undrabarnið „Mido“ er 19
ára gamall framherji sem leikur
með Ajax í Hollandi. Hann átti
stóran þátt í Hollandsmeist-
aratitli félagsins á síðustu leik-
tíð. Aðeins einn leikmaður frá
Egyptalandi hefur verið valinn
knattspyrnumaður Afríku. Þann
heiður hlaut Mahmoud Al
Khatib árið 1983.
Valið á leikmanni ársins fer
fram í Suður-Afríku þann 31.
mars. ■
Í fótspor föðurins
Logi Geirsson, tvítugur handboltamaður hjá FH, hefur verið valinn í íslenska landsliðið
í fyrsta sinn. Hann er sonur hins landsþekkta handboltakappa Geirs Hallsteinssonar sem gerði
garðinn frægan hér á árum áður.
HANDBOLTI „Ég byrjaði að æfa sex
ára gamall með 7. flokki FH. Ég
fór að fylgja pabba þegar hann
var að þjálfa marga flokka fé-
lagsins,“ segir Logi Geirsson.
Hann vill þó ekki viðurkenna að
hafa erft handboltagáfuna frá
föður sínum. „Sumir segja að
genin spili inn í. Mitt álit er hins
vegar að æfingin skapi meistar-
ann og maður þurfi að leggja
hart að sér til þess að ná ár-
angri.“
Logi segist æfa tvisvar á dag
í það minnsta og ef hann er ekki
á æfingu hjá FH æfir hann sig
sjálfur tvisvar sinnum. Til þess
að eiga auðveldara með það hef-
ur hann brugðið á nokkuð
óvenjulegt ráð. „Ég er búinn að
koma mér upp lítilli lyftingaað-
stöðu í bílskúrnum heima hjá
mér. Þar er maður að lyfta og
styrkja sig. Maður leggur allan
sinn metnað í þetta og setur
handboltann í fyrsta sætið.“
Logi var nýverið valinn í 26
manna landsliðshóp Íslands í
handbolta en æfingar fyrir HM í
Portúgal í næsta mánuði eru ný-
hafnar. „Það er mjög mikill heið-
ur að komast þangað og alveg
frábært. Ég ætla að leggja allan
minn metnað í að reyna að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn,“
segir Logi. Aðspurður segist
hann hafa stefnt að því að kom-
ast í landsliðið síðan snemma í
haust. „Ef maður stefnir ekki
hátt þá kemst maður ekki hátt.
Maður verður að hafa trú á
þessu sjálfur því ef maður gerir
það ekki hefur það enginn fyrir
mann.“
Að sögn Loga hefur pabbi
hans fylgst náið með honum í
gegnum tíðina. „Það er fínt að
hafa hann til að leiðbeina sér og
aðstoða við skotæfingar. Hann
kennir manni hin ýmsu afbrigði
frá því í gamla daga og styður
mann reglulega. Það eru margir
tilbúnir að hjálpa manni og það
hjálpar manni mikið áfram.“
Logi segist eiga sér tvo uppá-
haldshandboltamenn. „Ólafur
Stefánsson er rosalega öflugur
og svo er einn örvhentur sem
heitir Lasarev og er í makedóns-
ka landsliðinu,“ segir Logi, sem
sjálfur er rétthentur og spilar í
stöðu vinstri skyttu. Í yngri
flokkunum lék hann þó oftast
nær í stöðu hornamanns.
Loga hefur gengið vel það
sem af er tímabils með FH og
skoraði m.a. 14 mörk í sigurleik
gegn Þór á dögunum. „Mér tókst
að puttabrotna í öðrum leik, sem
varð til þess að ég missti af ein-
hverjum fimm leikjum, en eftir
það hefur leiðin legið upp á við.“
Hann segist stefna ótrauður
að því að spila sem atvinnumað-
ur í framtíðinni. „Stefnan er sett
út og uppáhaldsliðið er Lemgo í
Þýskalandi. Það var fyrsta liðið
sem maður byrjaði að fylgjast
eitthvað með eftir að breið-
bandið byrjaði að sýna leiki frá
Þýskalandi. Daniel Stephan var
minn uppáhaldsmaður þar á sín-
um tíma. Þeir eru að vinna deild-
ina núna og það er uppgangur
hjá þeim,“ segir handboltamað-
urinn efnilegi að lokum.
freyr@frettabladid.is
Geir Hallsteinsson um son sinn:
Ofboðslega metnaðargjarn
Ég er búinn að sjá það alveg fráþví að hann var gutti að hann
myndi verða topphandboltamað-
ur. Hann hafði þetta í sér alveg
frá upphafi,“ segir Geir Hall-
steinsson, faðir Loga, sem jafn-
framt er talinn einn besti hand-
boltamaður Íslands fyrr og síðar.
Geir hefur meðal annars þjálfað
son sinn upp alla yngri flokka FH
og þekkir því vel til kosta hans og
galla sem leikmanns.
„Kosturinn við Loga er að hann
er alveg ofboðslega metnaðar-
gjarn og hann er að uppskera eins
og hann sáir. Hann æfir helmingi
meira en aðrir og er algjörlega
reglusamur á tóbak og vín. Frá 18
ára aldri setti hann sér það tak-
mark að hann ætlaði sér að spila
með Lemgo í þýsku Bundeslig-
unni. Þá hef ég sagt honum hvað
hann þyrfti að gera til þess að
uppskera slíkt. Ef hann heldur
svona áfram og er jarðbundinn
eins og hann er þá nær hann því
marki.“
Geir segist virða Guðmund
Guðmundsson landsliðsþjálfara
fyrir að gefa ungum mönnum eins
og Loga tækifæri til að koma á
æfingar og kynnast mönnum eins
og Ólafi Stefánssyni, Degi Sig-
urðssyni og Patreki Jóhannessyni,
sem hafa verið í mestu uppáhaldi
hjá sér í gegnum tíðina. „Ég held
að það sé tímaspursmál hvenær
þessir ungu strákar fá að fara inn
og það kæmi mér ekkert á óvart
ef einhver af þeim færi inn núna.“
Að sögn Geirs þarf sonurinn
helst að bæta líkamsstyrk sinn.
„Hann er að lyfta á hverjum degi
og um leið og hann fær virkilegan
líkamsstyrk þá verður hann illa
stöðvandi. Ég er alveg sannfærð-
ur um það.“
Geir segir að mikil velgengni í
íþróttum geti verið vandmeðfar-
in. „Menn þurfa að geta með-
höndlað svona frægð. Ég hef lent
í þessu í gegnum tíðina. Það er
truflun alls staðar frá fjölmiðl-
um, fólkinu og félögunum og þá
verða menn að reyna að halda
höfði. Ég er fyrst og fremst að
reyna að koma honum í skilning
um að helmingurinn af þessu er
sálfræðin.“ ■
MING
Yao Ming hefur skorað 13,2 stig að
meðaltali í NBA-deildinni í vetur.
Stjörnuleikurinn í NBA:
Ming með
fleiri atkvæði
en Shaq
KÖRFUBOLTI Kínverjinn Yao Ming,
miðherjinn í liði Houston Rockets í
NBA-deildinni í körfubolta, hefur
hlotið fleiri atkvæði en Shaquille
O’Neal, miðherji L.A. Lakers, í kjöri
um það hverjir verða í byrjunarlið-
unum í stjörnuleik deildarinnar í
næsta mánuði.
Ming, sem er nýliði í NBA, er
fjórði atkvæðahæsti leikmaðurinn í
kjörinu og er jafnframt hæstur í
kjöri á miðherjum deildarinnar með
rúm 800 þúsund atkvæði. Aðeins
fjórir miðherjar sem jafnframt eru
nýliðar í NBA-deildinni hafa fengið
að byrja inn á í stjörnuleiknum til
þessa; þeir Ray Felix, Wilt Cham-
berlain, Walt Bellamy og O’Neal.
Kobe Bryant, samherji O’Neal
hjá Lakers, hefur fengið flest at-
kvæði í kjörinu og Vince Carter,
leikmaður Toronto Raptors, kemur
næstur á eftir honum.
Kosningunni lýkur 12. janúar en
stjörnuleikurinn verður háður í Atl-
anta 9. febrúar. ■
AP/M
YN
D
DIOUF
El Hadji Diouf í leik með Liverpool gegn Arsenal. Hann var valinn knattspyrnumaður
Afríku árið 2001.
AP
/M
YN
D
HANDBOLTAFEÐGAR
Logi Geirsson og faðir hans Geir Hallsteinsson. Geir segir að Logi sé afar metnaðarfullur og hafi alla burði til að
ná langt í handboltanum.
GEIR
Geir Hallsteinsson er einn besti handbolta-
maður sem Ísland hefur átt. Hann var kjör-
inn íþróttamaður ársins árið 1968 og sýndi
oft á tíðum glæsileg tilþrif á handboltavell-
inum. Hér sést hann í þann mund að
skora mark í leik gegn Fram.
Landsleikur á laugardag:
Öruggur sig-
ur Íslands
HANDBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í handbolta vann
öruggan sigur á
Slóvenum með 37
mörkum gegn 29 í
Kaplakrika á
laugardaginn.
Það var frá-
bær seinni hálf-
leikur Íslands
sem lagði grunn-
inn að sigrinum
og áttu Slóvenar
ekkert svar við
góðum sóknarleik
okkar manna.
Guðjón Valur Sigurðsson var
markahæstur í íslenska liðinu
með 11 mörk. Róbert Sighvatsson
skoraði 7 og Ólafur Stefánsson,
nýkrýndur íþróttamaður ársins,
skoraði 6 mörk. ■
GUÐJÓN VALUR
Guðjón Valur
Sigurðsson var
markahæstur í ís-
lenska liðinu með
11 mörk.