Fréttablaðið - 06.01.2003, Side 15
15MÁNUDAGUR 6. janúar 2003
NBA-deildin:
Jordan með 41 stig
KÖRFUBOLTI Michael Jordan skor-
aði 41 stig og tók tólf fráköst þeg-
ar lið hans, Washington Wizards,
lagði Indiana Pacers með 107
stigum gegn 104 í tvíframlengd-
um leik í NBA-deildinni í körfu-
bolta í fyrrakvöld.
Þetta er hæsta stigaskor Jord-
an á leiktíðinni auk þess sem
hann hefur aldrei leikið fleiri
mínútur í einum leik, eða 53.
Kappinn skoraði meðal annars 20
stig í fjórða leikhluta og í fram-
lengingunum tveimur. Jordan
skoraði síðast yfir 40 stig í deild-
inni í leik Wizards og Phoenix
Suns fyrir rúmu ári síðan. Þar
skoraði hann 41 stig.
„Michael er hættur að koma
mér á óvart,“ sagði Doug Collins,
þjálfari Wizards, eftir leikinn.
„Hann spilaði í 53 mínútur og það
veldur mér áhyggjum en hefði ég
tekið hann út af hefði ég örugg-
lega verið rekinn.“
Los Angeles Lakers tapaði fyr-
ir Phoenix Suns með 107 stigum
gegn 93. Kobe Bryant skoraði 37
stig fyrir Lakers, tók sjö fráköst
og átti sjö stoðsendingar.
Shaquille O´Neal, samherji
Bryant, skoraði 25 stig og tók níu
fráköst. Það dugði hins vegar
ekki til fyrir meistarana. Þetta
var áttundi sigurleikur Suns í röð
á heimavelli. ■
FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, segir að lið
sitt gæti sagt skilið við ensku úr-
valsdeildina og tekið þess í stað
þátt í stofnun nýrrar evrópskrar
ofurdeildar.
Hann segist vera orðinn
þreyttur á deilum félaga við
þjóðir sem vilja fá leikmenn sína
í landsleiki. Auk þess vill hann að
leikmenn sínir spili færri leiki.
Wenger reiddist mjög þegar
Alþjóðaknattspyrnusambandið,
FIFA, veitti leyfi fyrir því að
haldin verði Sambandsbikar-
keppni FIFA í sjötta sinn í Frakk-
landi í sumar. Þar taka þátt lands-
lið frá þeim sex samböndum sem
eru aðilar að FIFA auk heims-
meistara Brasilíu og einnar ann-
arrar þjóðar sem boðið verður til
leiks. Fyrir vikið fá margir leik-
manna Wenger hjá Arsenal enga
hvíld áður en næsta leiktíð hefst
á Englandi.
„Það á eftir að eiga sér stað
breyting í fótboltanum. Félög
enda með því að neita að sleppa
leikmönnum sínum. Átján með-
limir eru nú skráðir í G-14, sem
eru samtök stærstu félaga Evr-
ópu, og með átján liðum gætum
við stofnað nýja deild.“
JORDAN
Al Harrington, leikmaður Pacers, reynir að
ná boltanum af Michael Jordan í fjórða
leikhluta. Jordan skoraði 41 stig í leiknum.
AP
/M
YN
D
WENGER
Arsene Wenger
vill að öllum
„óþarfa“ mótum
á vegum FIFA
verði hætt.
Arsene Wenger ósáttur:
Hættir Arsenal í úrvalsdeild?
Enski bikarinn:
Stoke
komst í 4.
umferð
FÓTBOLTI Íslendingaliðið Stoke
vann efsta lið 2. deildar, Wigan,
3:0 í þriðju umferð ensku bikar-
keppninnar á laugardag. Chris
Greenacre skoraði tvö af mörkum
Stoke og Chris Iwelumo setti eitt.
Óvænt úrslit urðu þegar Ev-
erton tapaði fyrir 3. deildarliði
Shrewsbury, með tveimur mörk-
um gegn einu.
Dennis Bergkamp skoraði 100.
mark sitt fyrir bikarmeistara
Arsenal sem sigruðu Oxford, 2:0,
á Highbury. Þá vann Manchester
United efsta lið 1. deildar,
Portsmouth, auðveldlega 4:1. Í
gær vann Liverpool síðan 1:0
útisigur á Manchester City.■
Opið frá 10 - 20
RISAÚTSALA
ÞRETTÁNDAFLUGELDAR
Flugeldasalan
hjá Húsasmiðjunni Skútuvogi og Sólningu Smiðjuvegi
30 - 70% afsl.
Gerðu flugeldakaup ársins!
Roy Keane:
Meiddist
aftur
FÓTBOLTI Roy Keane, fyrirliða
Manchester United, var skipt út
af í hálfleik gegn Portsmouth í
ensku bikarkeppninni á laugar-
dag vegna meiðsla á læri. Þetta
eru slæmar fregnir fyrir Sir
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóra United.
Talið er ólíklegt að Keane
leiki með United í undanúrslita-
leik gegn Blackburn í Worth-
ington-deildarbikarnum á morg-
un.
Keane er nýkominn aftur inn
í liðið eftir að hafa verið frá í
fjóra mánuði vegna meiðsla á
mjöðm. ■
Lee Bowyer eftirsóttur:
West Ham
hefur áhuga
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildarliðið
West Ham hefur áhuga á að
kaupa Lee Bowyer, leikmann
Leeds. Engar viðræður þess efn-
is hafa þó verið haldnar á milli
félaganna.
Birmingham hefur einnig
mikinn áhuga á að fá Bowyer í
sínar raðir. Í síðustu viku hafn-
aði kappinn því að ganga til liðs
við félagið sem lánsmaður.
Einnig er vitað af áhuga Totten-
ham á leikmanninum og svo gæti
farið að hann fari þangað í sum-
ar þegar samningur hans við
Leeds rennur út. ■