Fréttablaðið - 06.01.2003, Side 16
16 6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
Nýr gælunafnasiður hefurkomist á í kaupstöðum á síð-
ustu tímum, sérstaklega telpu-
nafna. Fögrum íslenskum kven-
heitum, sem veita þeirri konu tign
og virðuleik, sem ber þau, einsog
dýrir skartgripir fornir (nöfn ein-
sog t.d. Ragnheiður, Ásthildur eða
Guðrún), er snúið í hin herfileg-
ustu orðskrípi, líkt og fyrirmynd-
ir væru sóttar í dreggjar útlendsk
stórborgamáls eða til villiþjóða:
Dídí, Sísí, Físí, Gígí, Dúdí, Gógó,
Dódó. Afkáraleg orðskrípi af
þessu tægi fara senn í bág við ís-
lenskt málfar og menntaðan
smekk.“
Svo skrifar Halldór Laxness
harðorður árið 1962 í Vettvángi
dagsins. Ein af mörgum tilraun-
um hans til að betra þjóð sína.
Ekki hafði hann erindi sem erfiði
því Sísí fríkar enn út og Dódó
starfaði við gott orðspor hjá Norð-
urljósum síðast þegar
fréttist.
Gælunöfn stund-
um
óþægileg
Gælunöfn eða
stuttnefni lifa góðu
lífi á Íslandi. Oft er
það í blóra við vilja
þeirra sem þau bera
og menn leggja ýmis-
legt á sig til að losna
við gælunöfn sem
festust á þá sem börn.
Gælunöfnin Lilli og
Lilla eru dæmi um
nöfn sem festast við
fólk án þess að eiginnöfnin séu
notuð til viðmiðunar. Og ætla
verður að, segjum bankastjóri,
sem kallaður er Lilli af vinum sín-
um, telji ekki vænlegt að ganga
undir slíku nafni í bankanum vilji
hann gæta virðingar
sinnar. Oft eldast
gælunöfn af mönnum
meðan þau fylgja öðr-
um alla æfi. Og sami
einstaklingurinn getur
gengið undir nokkrum
gælunöfnum: Þannig
getur Eyjólfur verið
kallaður Eyjó af fjöl-
skyldu sinni, Jólfurinn
af vinnufélögum og
Dúlli af eiginkonunni!
Prófessor Guðrún
Kvaran, forstöðumað-
ur Orðabókar Háskól-
ans, er einn helsti sér-
fræðingur þjóðarinn-
ar á þessu sviði en hún
sendi frá sér bókina
Nöfn Íslendinga árið
1991 ásamt Sigurði
Jónssyni frá Arnar-
vatni. Hún segir erfitt
að henda reiður á því
hvenær þessi siður
hefst en hann er mjög
gamall.
„Sumir telja að
tvínefni í Íslendinga-
sögum hafi hugsan-
lega ekki verið viður-
nefni heldur gælu-
nöfn einsog til dæmis
Ubbi (Úlfur) eða Ulli
(Erlendur). Þetta er
hugmynd Finns Jóns-
sonar prófessors en
hefur lítið verið rann-
sakað.“
Í Ólafs sögu Tryggvasonar í
Heimskringlu notar Ólafur kon-
ungur nafnið Óli þegar hann vill
leyna því hver hann er og í 15. ald-
ar handriti Njálu hefur skrifari
ritað á spássíu: „Illa gerir þú við
mig Dóri, þú gefur
mér aldrei fiskinn
nógan, frændi minn.“
Þarna hefur skrifar-
inn verið svangur og
ergilegur en hann er
líklega að vinna fyrir
einhvern Halldór. Í
íslenskum fornbréf-
um bregður fyrir
gælunöfnum. Sigfús
verður oft Fúsi og
vinnufólk, einkum
vinnukonur, eru oft
nefndar Gunna eða
eitthvað svoleiðis.
Gælunöfn ganga í
fjölskyldum
Að sögn Guðrúnar
ganga gælunöfn oft í fjölskyldum
og eiga það til að breytast í eig-
innöfn. „Fólk á kannski ömmur og
mömmur sem það vill gjarnan
skíra í höfuðið á, til dæmis Guð-
ríður, en finnst nafnið kerlingar-
legt. Þessi sama Guðríður var
hugsanlega kölluð Guja en ein-
hvern tíma kom fram sú beiðni til
Mannanafnanefndar að fá að
skíra stúlkubarn Guja. Ef ég man
rétt var sú umleitan ekki sam-
þykkt á sínum tíma en reglurnar
hafa verið rýmdar talsvert frá
þeim tíma.“
Oftast miðast gælunöfnin við
skírnarnöfnin, segir Guðrún:
„Stundum er það byrjun nafnsins,
stundum bara fyrsti stafur, fyrsta
atkvæði og svo endingin. A og I
eru langalgengustu endingarnar.
Seinna komu stafirnir ý og ó til
Um Dídí, Físí, Ulla, Kitta og önnur gælunöfn:
Lilli bankastjóri
HALLDÓR LAXNESS
Var ekki par hrifinn þegar
gælunöfn á borð við Dódó,
Dúdí og Físí skutu upp kollin-
um og taldi það brjóta í bága
við menntaðan smekk.
BJÖRN BJARNASON
Er í sumum kreðsum kallaður
Bíbí. Hvernig má það vera?
Gladiator 2:
Maximus
rís upp frá
dauðum
KVIKMYNDIR Þótt flestir menn séu
dauðlegir á það ekki við um alla,
að minnsta kosti ekki Maximus,
sem Russell Crowe túlkaði í
myndinni „Gladiator.“ Framleið-
endur myndarinnar íhuga nú að
gera framhaldsmynd og spá
mikið í hvernig Maximus geti
snúið aftur í seinni myndinni þó
hann hafi látið lífið í þeirri fyrri.
Walter Parkes, framleiðandi
myndarinnar, segir að Rómverjar
hafi haft ofurtrú á lífi eftir dauð-
ann. Á þeirri trú ætli þeir að
byggja fari svo að Maximus snúi
aftur í Gladiator 2. ■
SKYLMINGAÞRÆLLINN
Maximus dó í fyrri myndinni en svo gæti
farið að hann snúi aftur í þeirri seinni.
PRÓFESSOR GUÐRÚN KVARAN
Skólasystir hennar, Guðrún, gat sem
barn ekki sagt nafn sitt heldur sagði
Gúlú. Í framhaldinu festist gælunafnið
Úlú við hana.
JAPANSKUR FÓTBOLTI
Japanir eiga sína eigin tegund af fótbolta
þar sem leikið er í hefðbundnum japönsk-
um búningum. Bolta úr dádýraskinni er
sparkað á milli þátttakenda sem sameinast
um að koma í veg fyrir að hann lendi á
jörðinni. Leikurinn er upprunninn í Kína og
var lengi vinsæll meðal japanska aðalsins.
Coldplay:
Styrkja góð-
gerðarmál
FÓLK Fregnir herma að meðlimir
hljómsveitarinnar Coldplay ætli að
láta einn tíunda af tekjum sínum
renna til góðgerðamála. Hugmynd-
in er að 10% af ágóðanum af plötu-
sölu, tónleikahaldi og sölu á ýmsum
varningi verði framvegis lögð inn á
reikning sem sveitin hefur látið
stofna í sínu nafni. Féð mun síðan
verða notað til þess að styrkja ýmis
málefni sem vekja áhuga meðlima
hljómsveitarinnar.
Áætlað er að tekjur Coldplay
hafi á síðasta ári numið um það bil 5
milljónum sterlingspunda, sem þýð-
ir að 500.000 pund hefðu runnið til
góðgerðamála. ■