Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 18
FUNDUR
8.15 Gísli Hrafn Gíslason, mannfræði-
nemi við Kaupmannahafnarhá-
skóla, flytur erindi sem hann
nefnir Keypt kynlíf: Úr rannsókn
á dönskum vændiskúnnum. Er-
indið er byggt á niðurstöðum
vettvangsrannsóknar og er fyrsta
erindið í röð morgunfunda, sem
Stéttarfélag íslenskra félagsráð-
gjafa heldur undir yfirskriftinni
Bakhlið borgarinnar.
MESSA
Söfnuður Rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar á Íslandi efnir til jólaguðsþjón-
ustu í Friðrikskapellu við Valsheimilið.
Guðsþjónustan hefst laust fyrir miðnætti
og stendur til kl. 2.30. Rússneskur prest-
ur, faðir Vladimir Aleksandrov, sem
staddur er hér á landi í boði safnaðar-
ins, þjónar fyrir altari.
UPPÁKOMA
19.30 Þrettándagleðin í Grafarvogi
hefst með blysför frá vélamiðstöð
Reykjavíkurborgar við Gylfaflöt.
Kveikt verður í þrettándabrenn-
unni á Gufunessvæðinu kl. 20.
Skátarnir stjórna fjöldasöng, þar
sem álfadrottning og álfakóngur
koma fram ásamt barna- og ung-
lingakór Grafarvogskirkju. Dag-
skránni lýkur með flugeldasýn-
ingu.
SÝNINGAR
Birgir Rafn Friðriksson heldur sýning-
una Án samhengis - allt að klámi í
Café Presto, Hlíðasmára 15, Kópavogi.
Birgir sýnir 34 þurrpastelmyndir unnar á
árinu 2000. Sýningin stendur út janúar
2003 og er opin á opnunartíma Café
Presto, 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýning Kristjáns Jónssonar myndlistar-
manns stendur yfir í galleríi Sal á Hverf-
isgötu 39. Þar sýnir Kristján, sem nam
grafík og málaralist í Barcelona, um tutt-
ugu málverk sem ýmist eru unnin með
blandaðri tækni eða olíulitum. Sýningin
er opin daglega frá kl. 17 til 19.
Ingólfur Júlíusson ljósmyndari stendur
fyrir sýningunni Grænland - fjarri, svo
nærri í Reykjavíkurakademíunni, 4.
hæð, Sýningin er opin virka daga frá 9-
17 og stendur til 31. janúar.
Sýning á útsaumuðum frummyndum
Elsu E. Guðjónsson úr bók hennar
Jólasveinarnir 13 stendur yfir í Bóka-
safni Kópavogs. Sýningin er opin á opn-
unartíma safnsins. Henni lýkur í dag.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgrímskirkju
í Reykjavík. Á sýningunni eru málverk
unnin á þessu ári sérstaklega fyrir sýn-
inguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er Lífið,
tíminn og eilífðin. Sýningin í Hallgríms-
kirkju er haldin í boði Listvinafélags Hall-
grímskirkju og stendur til loka febrúar-
mánaðar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
í dag.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Sýning á nokkrum verkum Guðmundar
Hannessonar ljósmyndara stendur yfir
í Gallerí Fold. Sýningin nefnist Reykja-
víkurminningar en myndirnar tók Guð-
mundur um miðja síðustu öld í Reykja-
vík.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
Stærsta sýning á íslenskri samtímalist
stendur yfir í Listasafni Íslands. Sýnd
eru verk eftir um 50 listamenn sem
fæddir eru eftir 1950 og spannar sýning-
in árin 1980-2000.
Veiðimenn í útnorðri er yfirskrift á sýn-
ingu sem Edward Fuglö heldur í Nor-
ræna húsinu.
Flökt - Ambulatory - Wandelgang er
samsýning Magnúsar Pálssonar, Erics
Andersens og Wolfgangs Müllers í Ný-
listasafninu.
18 6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
ÞRETTÁNDINN Árleg þrettándagleði
í Grafarvogi fer fram í kvöld, en
það eru stofnanir og félagasamtök
í hverfinu sem standa að gleðinni,
sem hefst með blysför frá Véla-
miðstöð Reykjavíkurborgarar við
Gylfaflöt klukkan 19.30. Þaðan
verður gengið að brennusvæðinu
ofan við Gufunesbæinn. Kveikt
verður í þrettándabrennunni á
Gufunessvæðinu klukkan 20 þar
sem skátar stjórna fjöldasöng og
álfadrottning og álfakóngur koma
fram ásamt barna- og unglingakór
Grafarvogskirkju. Dagskránni
lýkur með veglegri flugeldasýn-
ingu í boði Egilshallarinnar klukk-
an 20.45. Fólk er hvatt til að mæta
með grímu, jólasveinahúfu eða í
öðrum skemmtilegum búningum
og blys verða til sölu við upphaf
blysfarar og á Gufunessvæðinu. ■
Þrettándagleði í Grafarvogi:
Blysför, álfar
og brenna
JÓLIN KVÖDD
Grafarvogsbúar efna til þrettándagleði í
kvöld þar sem margt verður til skemmt-
unar og að endingu verða jólin kvödd
með flugeldasýningu.
MÁNUDAGUR
6. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
Söfnuður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi:
Jólaguðsþjónusta haldin í kvöld
JÓLAHALD Tímatal rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar er þrettán
dögum á eftir okkar tímatali. Þess
vegna halda Rússar jóladag hátíð-
legan á morgun, 7. janúar.
Af því tilefni efnir söfnuður
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunar
á Íslandi til jólaguðsþjónustu sem
hefst laust fyrir miðnætti í kvöld.
Rússneskur prestur, faðir Vla-
dimir Aleksandrov, þjónar fyrir
altari. Guðsþjónustan stendur til
klukkan hálfþrjú í nótt og fer hún
fram í Friðrikskapellu, sem er
rétt hjá Valsheimilinu í Reykja-
vík.
„Rússneski söfnuðurinn hér á
landi var stofnaður fyrir tæpu
ári,“ segir Jón Ólafsson heim-
spekingur, sem hefur fylgst
grannt með uppbyggingarstarf-
inu. Eiginkona hans, Ksenia
Ólafsson, er forstöðumaður safn-
aðarins á Íslandi.
Jón segir að veruleg gróska sé
í safnaðarstarfinu. Guðsþjónust-
ur hafa verið haldnar nokkrum
sinnum, en þetta er fyrsta jóla-
messan. Stefnt er að því að fá til
landsins prest, sem verði búsett-
ur hér og þjóni söfnuðinum. Af
því gæti orðið áður en langt líður.
„Safnaðarmeðlimirnir eru nú
þegar á annað hundru og þeim fer
fjölgandi jafnt og þétt,“ segir Jón.
„Meðal þeirra Rússa, sem hér eru
búsettir, er greinilega mikil þörf
fyrir trúarlíf og fyrir þetta trúfé-
lag.“ ■
VLADIMIR ALEKSANDROV
Hann þjónar fyrir altari í jólaguðsþjónustu rússneska rétttrúnaðarsafnaðarins hér á
landi í kvöld.
Jóhanna Guðrún ég sjálf
10
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
Hringbraut 121, JL-húsið. Sími: 552-3870. Fax: 562-3820.
Innritun 2. - 10. janúar
• Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
• Taltímar, einkatímar.
• Námskeið fyrir börn.
Námskeiðin hefjast 13. janúar.
Upplýsingar í símum
552-3870 og 562-3820
Netfang:af@ismennt.is.
Veffang:http://af.ismennt.is.
Opið 13:30 - 18:15