Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 24
24 6. janúar 2003 MÁNUDAGUR
KVIKMYNDIR Um áramótin tóku
gildi ný kvikmyndalög sem fela í
sér umtalsverðar breytingar á
áður gildandi lögum. Þar er kveð-
ið á um að Kvikmyndasjóður skuli
lagður niður í núverandi mynd og
í hans stað komi tvær nýjar ríkis-
stofnanir, Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands og Kvikmyndasafn Íslands.
Safnið mun enn fremur heyra
undir safnalög en reglugerð þar
sem fjallað verður nánar um hlut-
verk þess og Kvikmyndamið-
stöðvarinnar hefur enn ekki verið
gefin út.
Í janúar skipar menntamála-
ráðherra sjö manna kvikmynda-
ráð til þriggja ára en í því eiga
fagfélög fimm fulltrúa. Nær öll-
um starfsmönnum Kvikmynda-
sjóðs hefur verið sagt upp og starf
forstöðumanns Kvikmyndamið-
stöðvarinnar hefur nú þegar verið
auglýst. Umsóknarfrestur rann út
3. janúar og mun kvikmyndaráð
fljótlega fara yfir umsækjendur.
Endanleg ráðning er í höndum
menntamálaráðherra en stefnt er
að því að nýr forstöðumaður taki
til starfa eigi síðar en 1. mars.
Fram að því mun Þorfinnur
Ómarsson, framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs, gegna starfinu.
Það kemur síðan í hlut nýs for-
stöðumanns að ráða annað fólk til
starfa hjá Kvikmyndamiðstöð-
inni.
Forstöðumaðurinn mun bera
ábyrgð á úthlutun styrkja til kvik-
myndagerðar og tekur við því
hlutverki sem stjórn Kvikmynda-
sjóðs hafði áður. Styrkveitingar
munu byggja á úrskurði ráðgjafa
sem kemur í stað þriggja manna
úthlutunarnefndar. Um nánari út-
færslur á framkvæmd úthlutun-
arinnar og starfsemi stofnunar-
innar í heild er enn margt á huldu
enda er reglugerð þar að lútandi
sem fyrr segir enn í vinnslu. Fag-
fólk í kvikmyndagerð hefur skilað
inn álitsgerðum um innihald
reglugerðarinnar en óljóst er að
hversu miklu leyti verður tekið
tillit til þeirra athugasemda.
Björn Brynjúlfur Björnsson, for-
maður Félags kvikmyndagerðar-
manna, segir að erfitt sé að átta
sig á stöðunni fyrr en endanleg
reglugerð liggur fyrir. „Mönnum
líst ekkert illa á lögin í meginat-
riðum. En það eru ákveðin atriði
sem menn eru hræddir við og ým-
islegt varðandi framkvæmd lag-
anna sem ekki kemst á hreint fyrr
enn reglugerðin verður gefin út.“
Björn Brynjúlfur tekur þó fram
að lagabreytingin hafi verið gerð
að frumkvæði menntamálaráðu-
neytisins enda hafi ekki verið
nein sérstök óánægja með störf
Kvikmyndasjóðs meðal kvik-
myndagerðamanna. „Mér líst
reyndar vel á að kvikmyndasafnið
skuli ekki lengur vera hluti af
kvikmyndastofnuninni. Það er að
mínu mati mjög æskilegt og gott
fyrir safnið.“
Það er því ljóst að margir end-
ar eru ófrágengnir og eitt af því
sem veldur fagfólki í kvikmynda-
gerð hvað mestu hugarangri er
óvissan sem ríkir varðandi næstu
styrkveitingar. Venjan var að út-
hluta styrkjum úr Kvikmynda-
sjóði í byrjun árs en því hefur nú
verið frestað um óákveðinn tíma.
„Þær umsóknir sem sjóðnum bár-
ust í haust liggja enn í skúffu og
við vitum ekki hvort eða hvenær
þær verða teknar fyrir. Í kjölfar
samráðsfundar á vegum stjórnar
Kvikmyndasjóðs var óskað eftir
því að farið yrði yfir þær og ein-
hverju fjármagni úthlutað nú um
áramótin en það var ekki gert.“
Að sögn Björns Brynjúlfs getur
það dregist langt fram á árið að
gengið verði frá styrkveitingum.
Mun það án efa hafa einhver áhrif
á kvikmyndagerð á Íslandi á
næsta ári og valda töfum í fram-
leiðsluferlinu. „Það mun auðvitað
myndast eitthvert gap þar sem
þeir framleiðendur sem fá úthlut-
un næst þurfa að minnsta kosti
eitt ár til þess að klára að fjár-
magna myndina,“ segir Björn
Brynjúlfur. ■
Margt á huldu um útfærslu
nýrra kvikmyndalaga
Mikil uppstokkun fer nú fram á starfsemi Kvikmyndasjóðs Íslands í kjölfar lagabreytinga sem
gengu í gildi 1. janúar. Fjölmörgum spurningum er enn ósvarað um framkvæmd laganna en
ljóst er að margir eiga þar hagsmuna að gæta.
BJÖRN BRYNJÚLFUR BJÖRNSSON,
FORMAÐUR FÉLAGS KVIKMYNDA-
GERÐARMANNA
„Það er enn margt óljóst varðandi breyt-
ingarnar og erfitt fyrir okkur sem stöndum
fyrir utan að átta okkur á stöðunni.“
HVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri.
„Ég er að lesa Eins og vax, nýju bókina
hans Þórarins Eldjárn. Hún er skemmtileg
eins og allt sem frá honum kemur.“
KVIKMYNDIR Bandarískir bíógest-
ir kunna best að meta leikara
sem eru á miðjum aldri eða eldri
samkvæmt árlegri skoðanakönn-
un þar í landi. Þá virðist það ekk-
ert endilega spilla fyrir mönnum
að vera komnir yfir móðuna
miklu en gamla kempan John
Wayne, sem hefði orðið 95 ára í
ár, er í sjötta sætinu. Eftirlæti
óskarsverðlaunaakademíunnar,
Tom Hanks, er einnig hátt skrif-
aður hjá almenningi og er
traustur í fyrsta sætinu. Hanks
er 46 ára eins og Mel Gibson sem
kemur fast á hæla hans í öðru
sætinu.
Julia Roberts fylgir þeim svo
eftir í því þriðja. Hún er 35 ára
og komst fyrst kvenna inn á list-
ann fyrir þremur árum. Tveir
gamlir jaxlar koma á eftir Ro-
berts, hinn sextugi Harrison
Ford í fjórða sæti og kyntröllið
Sean Connery, sem er 12 árum
eldri en Ford, í því fimmta. Stall-
systir Juliu, Sandra Bullock, er
næsta konan sem sleppur inn og
tyllir sér í tíunda sætið. ■
Fræga fólkið:
Aldurinn eykur
vinsældirnar
UPPSTOKKUN HJÁ KVIKMYNDASJÓÐI
Starfsmönnum Kvikmyndasjóðs hefur þegar verið sagt upp en gert er ráð fyrir því að þeir vinni út febrúar til þess að breytingarnar geti
náð fram að ganga með sem auðveldustum hætti.
TOM HANKS
Sýnir það og sannar að fjöldanum líkar
best við geðþekka menn á miðjum aldri.
DÁÐUSTU KVIKMYNDA-
LEIKARARNIR Í BANDA-
RÍKJUNUM ÁRIÐ 2002
1. Tom Hanks
2. Mel Gibson
3. Julia Roberts
4. Harrison Ford
5. Sean Connery
6. John Wayne
7. Denzel Washington
8. Clint Eastwood
9. Tom Cruise
10. Sandra Bullock
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
GEITUNGURINN 1
Árni Árnas., Halldór Baldurss.
HARRY POTTER OG LEYNIKL.
J.K. Rowling
ÍSLENSKU DÝRIN
Halldór Pétursson
ARTEMIS FOWL SAMSÆRIÐ
Eoin Colfer
HARRY POTTER OG FANGINN
J.K. Rowling
GÚMMÍ-TARSAN
Ole Lund Kirkegaard
LÍLÓ OG STITCH VERÐA VINIR
Disney
SNÚÐUR OG SNÆLDA 1
Setberg
STUBBABRAUÐTURNINN
Teletubbies
GEITUNGURINN 3
Árni Árnas., Halldór Baldursson
MEST SELDU BARNABÆKURNAR Í
VERSLUNUM PENNANS/EYMUNDS-
SONAR ÁRIÐ 2002
Sprengitilboð
Hver var að
tala um að
fiskur væri dýr?
Þú kaupir
1 kíló af
ýsuflökum og
færð annað frítt
Fiskbúðin okkar
Smiðjuvegi, Álfheimum
og Lækjargötu Hafnarfirði