Fréttablaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 19
19LAUGARDAGUR 15. februar 2003
menn myndu þá aldrei skjóta á
Íraka, því þeir myndu aldrei
drepa eigin hermenn. Sigur Íraka
yrði þar með auðveldur. Forsetinn
var sigri hrósandi þegar hann
lagði fram þessa tillögu. Enginn
þorði hins vegar að spyrja ein-
ræðisherrann hvernig hann ætl-
aði að taka til fanga nokkur þús-
und bandaríska hermenn. Og þar
við sat.
Stafar ógn af Saddam?
Íröskum almenningi hefur
vissulega stafað ógn af Saddam
Hussein. Talið er að um þrjár
milljónir manna hafi flúið land í
stjórnartíð hans. Stríðsrekstur
hans hefur kostað þegnana líf og
limi, þúsundir andófsmanna hafa
verið teknir af lífi í hálfopinber-
um aftökum og stundum fjöl-
skyldur þeirra líka. Hann hefur
drýgt fjöldamorð innan sinna eig-
in landamæra, eins og dæmið af
efnavopnaárásinni á Kúrda í
Norður-Írak árið 1988 er dæmi
um. Þar biðu 5 þúsund manns
bana.
Saddam Hussein skipar sér því
óhikað á bekk með brjáluðustu
einræðisherrum sögunnar. Sjálf-
sagt verða söfn í Bagdad í fram-
tíðinni tileinkuð honum og voða-
verkum hans. Þar með fær hann
vafalítið annan sess í sögunni
heldur en hann ætlar sér, sem ill-
menni frekar en mikilmenni. En
hitt er aftur annað mál að fyrir
löngu eru komnar fram vísbend-
ingar um það að hans nánustu
samstarfsmenn séu hættir að taka
hann alvarlega, þó þeir óttist
hann, og Mikli frændinn sé kom-
inn svo úr tengslum við veruleik-
ann að hann muni jafnvel ekki
taka eftir því þegar honum verður
steypt af stóli.
gs@frettabladid.is
HEIMILDIR: THE GUARDIAN, NEW YORK TIMES, BBC, CNN,
WASHINGTON POST OG MARK BOWDEN: „TALES OF THE
TYRANT“ Í THE ATLANTIC MONTHLY, MAÍ 2002.
Þeir allra verstu:
- Adolf Hitler (Þýskalandi 1931-45). Ber höf-
uð og herðar yfir aðra brjálæðinga í nútíma
stjórnmálasögu. Mislukkaður listmálari frá
Austurríki. Myrti skipulega 6 milljónir Gyð-
inga í sérstökum útrýmingarbúðum. Steypti
þjóð sinni og heiminum öllum í mannskæð-
ustu styrjöld veraldarsögunnar. Tapaði fyrir
herjum bandamanna og drap sig með blá-
sýrutöflu.
- Idi Amin (Úganda 1971-79). Boxari og hers-
höfðingi. Hrifsaði til sín völdin í Úganda árið
1971. Hóf ógnarstjórn. Rak asískan minni-
hluta úr landi og keyrði efnahagslífið í kaf.
Setti tilkynningar í útvarp með nöfnum þeir-
ra sem hann hugðist drepa. Sagður hafa étið
fólk. Kunni ekki að lesa. Hrakinn frá völdum
1979 af nágrannaríkinu Tanzsaníu. Býr í
Mekka. Talinn hafa myrt um 300 þúsund
manns í stjórnartíð sinni.
- Pol Pot (Kambódíu 1975-1979). Lærði tré-
smíði en hafði meiri áhuga á kommúnisma.
Gerðist leiðtogi Rauðu kmeranna, flokks
kommúnista í Kambódíu. Náði völdum
1975. Sá fyrir sér útópískt bændasamfélag
með samyrkjubúum. Rak þegna sína úr
borgunum og út í sveit og drap í leiðinni um
2 milljónir manna, einkum menntafólk. Lýsti
yfir að árið væri 0 og lagði jafnframt niður
helstu stofnanir samfélagsins. Breytti grunn-
skóla í höfuðstöðvar leyniþjónustunnar og
pyntaði og drap þegna sína í fyrrum kennslu-
stofum. Hrakinn frá völdum af Víetnömum
árið 1979. Dó í svefni í leynibúðum sínum
árið 1998.
- Jósef Stalín (Sovétríkjunum 1925-53).
Stalín var hugmyndin um Stóra bróður holdi
klædd. Var og er fyrirmynd annarra einræð-
isherra, eins og Ceaucescu, Pol Pot og
Saddam Hussein, í úthugsaðri og kaldrifjaðri
meðferð sinni á allsherjarvaldi. Um tíu millj-
ón manns dóu í tilhæfulausum hung-
ursneyðum í stjórnartíð hans. Lét lífláta
minnst eina milljón manna af pólitískum
ástæðum og sendi ríflega níu milljónir þegna
sinna í fangelsi eða þrælkunarbúðir í Síberíu
og annars staðar.
Aðrir vafasamir:
- Maó Tsetung (Kína 1949-76) Menningar-
byltingin snérist ekki um myndlist eða bygg-
ingu tónlistarhúss. Menntamenn voru settir í
þrælkunarbúðir og nemendur drápu kenn-
ara sína að fyrirmælum foringjans um bylt-
ingu hugarfarsins. Hugmyndir hans um efna-
hagsumbætur kostuðu milljónir lífið í hung-
ursneyð.
- Fidel Castro (Kúbu 1959- ). Kommúnískur
byltingarleiðtogi. Ítrekað ávítaður af Mann-
réttindanefnd SÞ fyrir brot á mannréttindum,
einkum tjáningarfrelsi, sem er lítið sem ekk-
ert á Kúbu. Þyrnir í augum Bandaríkja-
manna. Talið að CIA hafi gert um 600 til-
raunir til að ráða hann af dögum.
- Muammar Gaddafi (Líbíu 1969- ). Herskár
furðufugl og einræðisherra. Stóð fyrir hryðju-
verkaárásum í Evrópu um miðjan níunda
áratuginn sem enduðu með loftárás Banda-
ríkjamanna á Tripoli 1986. Telur sig leiðtoga
Araba í baráttunni við Vesturlönd. Keppir um
þann titil við Saddam Hussein. Sprenging í
flugvél Pan Am yfir Lockerbie árið 1989 var
rakin til Gaddafis. 270 manns létust.
- Ferdinand Marcos (Filippseyjum 1965-86)
Kjörinn forseti 1965 og endurkjörinn fjórum
árum síðar. Gerðist þaulsetinn í embætti og
barði niður alla mótspyrnu gegn sér, enda
kominn upp á lag með það sem hann varð
frægastur fyrir: botnlausa græðgi. Hrakinn frá
völdum í fjöldamótmælum. Mesti þjófur ver-
aldarsögunnar. Talinn hafa stolið um tvö
þúsund milljörðum króna frá þjóð sinni.
- Francisco Franco (Spáni 1939-75) Sigurveg-
ari borgarastríðsins á Spáni í hatrammri
viðureign við lýðræðisöfl. Kom á herforingja-
stjórn með tilheyrandi kúgun og mannrétt-
indabrotum. Talið er að hann hafi tekið af lífi
um 35 þúsund pólitíska andstæðinga í
stjórnartíð sinni. Auk þess bar hann ábyrgð á
dauða hundruða þúsunda Spánverja um og
eftir borgarastyrjöldina.
- Benito Mussolini (Ítalíu 1922-45). Faðir fas-
ismans og bandamaður Hitlers, ekki síst í út-
rýmingu Gyðinga, sem hann sendi markvisst
til Þýskalands í útrýmingarbúðir. Sem betur
fer var hann afleitur bandamaður Þjóðverja í
hernaðarlegu tilliti og tapaði klaufalega
hverri orustunni á fætur annarri í síðari heim-
styrjöldinni. Var tekinn af lífi ásamt hjákonu
sinni 1945. Lík einræðisherrans var hengt
upp til sýnis í Mílanó.
- Joseph Mobutu (Zaire 1965-97) Stjórnaði
landi sínu með járnhendi, með hatt úr hlé-
barðaskinni á höfðinu. Stakk útflutningstekj-
unum í eigin vasa, lifði í vellystingum og
drap þá sem hreyfðu mótmælum. Dó sjálfur
úr krabbameini.
- Ante Pavelic (Króatíu 1941-45). Fasisti.
Notaði tækifærið í glundroða síðari heim-
styrjaldarinnar og stofnaði sjálfstætt ríki
Króatíu eftir áralangan skæruhernað gegn
sitjandi kóngi. Hófst strax handa við að út-
rýma Serbum, gyðingum og sígaunum í
einum grimmilegustu þjóðarmorðum sög-
unnar. Um 600 þúsund Serbar létu lífið.
Flúði land eftir lok styrjaldar og dulbjóst
sem prestur. Dó undir verndarvæng Francos
1959.
- Ayatollah Khomeini (Íran 1979- 89). Öfga-
fullur æðsti klerkur með meiru. Hélt 52
Bandaríkjamönnum sem gíslum í 444 daga
árin 1979-81. Mælti svo fyrir að bresk-ind-
verski rithöfundinum Salman Rushdie væri
réttdræpur fyrir guðlast. Rushdie fór huldu
höfði um talsvert skeið og hefur ekki náðst.
Hann lifir en Khomeini er allur.
- Kim Il-Sung (Norður-Kóreu 1945- 94).
Einangrunarstefna hans hefur leitt til dauða
um tveggja milljóna manna á síðustu tíu
árum vegna skorts á matvælum. Sonur
hans, Kim Jong-Il, tók við völdum við fráfall
föður síns, heldur uppteknum hætti, og
vekur æ meiri eftirtekt heimsbyggðarinnar
um þessar mundir og þá ekki fyrir óperurn-
ar sex sem hann hefur skrifað á undanförn-
um árum heldur stríðstilburði.
- Augusto Pinochet (Chile 1973-90). Náði
völdum í blóðugu valdaráni með stuðningi
CIA. Leiddur fyrir dómstóla árið 2001 fyrir
stórfelld brot á mannréttindum í stjórnartíð
sinni, þar á meðal mannrán, pyntingar og
dráp á andstæðingum. Úrskurðaður of veik-
ur á geði til að þola réttarhöld. Góður vinur
Margrétar Thatcher til langs tíma.
- Slobodan Milosevic (Júgóslavíu 1987-
2000). „Slátrarinn frá Balkanskaga“ skilur
eftir sig blóði drifna slóð. Tók við sem
kommúnistaleiðtogi af Tito í landi sem var
að rifna í sundur af spenningi ólíkra þjóðar-
brota, sem smám saman urðu að stríðs-
átökum. Tapaði í forsetakosningum árið
2000 en neitaði að viðurkenna það. Var
framseldur til stríðsglæpadómstólsins í
Haag og svarar þar ásökunum um stór-
brotna stríðsglæpi í Króatíu og Kosovo og
um skipulagt þjóðarmorðs á múslimum og
Króötum í Bosníu.
- Robert Mugabe (Simbabve 1980-). Barð-
ist gegn yfirráðum hvíta minnihlutans í
landinu og aflaði Simbabve sjálfstæðis árið
1980. Var hins vegar betri sem sjálfstæðis-
hetja en þjóðarleiðtogi. Ofsækir hvíta menn
og aðra andstæðinga sína og dáir stjórnar-
hætti Maós. Desmond Tutu erkibiskup hef-
ur nýverið kallað hann „teiknimyndaútgáfu
af dæmigerðum afrískum einræðisherra.“
- Nicolae Ceaucescu (Rúmeníu 1967-89).
Dáði Stalín og trúði á eigin mikilfengleika.
Lagði þjóðarauðinn inn á svissneskan
bankareikning fyrir sig og konu sína. Hroða-
legasti vitnisburðurinn um ógnarstjórn hans
voru þúsundir vanræktra og útskúfaðra
barna sem fundust á leynilegum munaðar-
leysingjahælum eftir að honum var steypt
af stóli.
Brjálaðir leiðtogar
Er Saddam betri eða verri en hinir?
Mobutu Idi Amin Marcos Ceaucescu Franco
Gaddafi Adolf Hitler Fidel Castro Khomeini Maó
Milosevic Mugabe Mussolini Stalín Pinochet
Íslensku leiklistarverðlaunin veitt í fyrsta sinn:
Leikarar vilja
sína Eddu
Íslensku leiklistarverðlauninverða veitt í fyrsta sinn við há-
tíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu
16. júní næstkomandi. Með verð-
laununum vill Leiklistarsam-
bandið leitast
við að finna
mótvægi við
E d d u - v e r ð -
laun kvik-
myndagerð-
armanna og
heiðra þá sem
best þykja
hafa staðið
sig á undan-
gengnu leik-
ári. Ekki hef-
ur verið
ákveðið hvað
verðlaunastyttan á að heita en
athöfnin verður að líkindum í
anda bandarísku Óskarsverð-
launanna:
„Yfir þessu verður að vera
viss hátíðleiki en þetta verður
líka að vera skemmtilegt,“ segir
Stefán Baldursson sem á sæti í
undirbúningsnefnd Leiklistar-
verðlaunanna ásamt þeim Eddu
Þórarinsdóttur leikkonu og Sig-
urði Kaiser ljósahönnuði. Leik-
listarsambandið hefur nú sam-
þykkt tillögur nefndarinnar um
að sett verði á laggirnar 26
manna dómnefnd sem velur það
besta sem leikhúsgestum var
boðið upp á það árið. Veitt verða
verðlaun í 12 flokkum leiksviðs-
lista en fimm tilnefningar verða
í hverjum flokki:
„Við höfum úr miklu meira að
spila en Eddu-verðlaunin því hér
eru 60-70 leiksýningar árlega
þar sem mög hundruð leikarar
koma við sögu. Þarna verður það
fagfólkið sjálft sem velur það
besta,“ segir Stefán Baldursson.
Leitað hefur verið til Ríkis-
sjónvarpsins um beina útsend-
ingu frá athöfninni en svar ekki
enn borist. ■
STEFÁN
BALDURSSON
Viss hátíðleiki en líka
skemmtilegt.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Leikritin Með fullri reisn, Allir
á svið og Rakstur er meðal
leikrita sem hafa verið frum-
sýnd þar í vetur.
Leikhús