Fréttablaðið - 21.03.2003, Page 12

Fréttablaðið - 21.03.2003, Page 12
JAFNRÉTTISMÁL Jafnréttisstofa á nú í viðræðum við forsvarsmenn Flug- leiða um að félagið hætti að aug- lýsa með tvíræðum hætti erlendis. Valgerður Bjarnadóttir, forstöðu- maður Jafnréttisstofu, staðfesti við Fréttablaðið að kvörtunum hefði rignt inn til Jafnréttisstofu frá konum sem eru reiðar vegna auglýsingastefnu Icelandair í út- löndum. „Dirty Weekend“, „One Night Stand“ og fleiri auglýsingar hafa vakið reiði íslenskra kvenna heima og í út- löndum. Upphaf þeirr- ar vakningar sem orðið hefur má rekja til þess að í sjónvarps- þáttunum um S o p r a n o - f j ö l - skylduna komu fyrir íslenskar flugfreyjur sem voru til þess ætlaðar að létta mafíósunum líf og lund með hold- legu samræði. Flugleiðamenn hafa brugðist illa við þessu þótt flug- freyjurnar hafi reyndar verið kenndar við ímyndað flugfélag. Í kjölfarið á Sopranos-þættinum gaus upp mikil umræða á vefslóð- inni feministinn.is þar sem hund- ruð kvenna hafa tjáð sig um aug- lýsingastefnu Flugleiða. Margar kvennanna eru á þeirri skoðun að auglýsingastefna Flugleiða sé ástæðan fyrir því að íslenskar kon- ur hafa fengið þá ímynd sem fram kom í Sopranos. í kjölfar þeirrar umræðu hefur kvörtunum vegna Flugleiða rignt yfir Jafnréttisstofu. Sumar þeirra kvenna sem höfðu samband vilja kæra Flugleiðir fyrir brot á jafn- réttislögum en Valgerður segir best að leysa þetta mál í góðu í stað þess að það fari á kærustig. Í því skyni hefur verið fundað með Guð- jóni Arngrímssyni, upplýsingafull- trúa Flugleiða, og fleirum. „Ég hef átt fundi með forsvars- mönnum Flugleiða vegna auglýs- ingastefnu þeirra. Mestu máli skiptir að fá þá til að breyta hegð- un sinni,“ segir Valgerður, sem tel- ur að auglýsingastefna þar sem gert er út á íslenskar konur með tvíræðum hætti skaði fyrirtækið fremur en að auka viðskiptin. „Þetta er að vísu aðeins lítill hluti af auglýsingum þeirra en ég verð þess vör að þetta skapar mikla óvild í garð félagsins. Slíkt er reyndar erfitt að mæla en ég heyri á mörgum að þeir vilja beina viðskiptum sínum annað en til Flugleiða,“ segir Valgerður. rt@frettabladid.is 12 21. mars 2003 FÖSTUDAGUR „Mestu máli skiptir að fá þá til að breyta hegðun sinni. HAIDER OG HARÐSTJÓRINN Jörg Haider, einn helsti leiðtogi Frelsis- flokksins austurríska, sést hér lesa upp úr bók sinni um samskipti sín við Saddam Hussein. Bókin heitir Gestur Saddams: Í hinu „illa keisaraveldi“. SKIPULAG Hætt er við að reisa opið bílgeymsluhús fyrir 49 bíla við vesturenda Hótel Esju. Bílahúsið átti að vera hluti stækkunar hót- elsins. Byggingarfulltrúinn í Reykja- vík frestaði á síðasta fundi sínum afgreiðslu umsóknar Þyrpingar hf. um að fá að breyta hótelbygg- ingunni og lóðinni vegna þessa. Nágrannar Hótels Esju í Lág- múla 5 segja ráðgerða fyrirkomu- lagið, með einstefnuakstri frá hót- elinu að Lágmúla 5, hindra eðli- legt flæði milli bílastæðanna við húsin. Hefð um samnýtingu stæð- anna sem skapast hafi á 40 árum væri þar með rofin. „Tvístefna mun auka samnýt- ingu báðum til góða, sem æskilegt væri að tryggja þar til borgaryfir- völd leysa til lengra tíma núver- andi ófremdarástand í bílastæða- málum,“ segir húsfélagið í bréfi til byggingarfulltrúans í Reykja- vík. Einn eigandi Lágmúla 5, Jó- hann H. Níelsson, varar við öng- þveiti og hættuástandi sem skap- ast muni verði breytingin við Hót- el Esju að veruleika: „Að mínu áliti þarf verðlaunahafa í öku- leikni til þess að nýta þau bíla- stæði sem lagt er til að komið verði fyrir.“ ■ Norsk dvalarheimili: Bjór í boði löggunnar NOREGUR, AP Vistmenn á fimm dval- arheimilum aldraðra í Noregi höfðu ástæðu til að fagna þegar lögreglan í Vaagsøy gerði 2.000 dósir af þýsk- um bjór upptækar. Lögreglumenn voru ekki örugg- ir um hvað þeir ættu að gera við bjórinn. Þeir vildu ekki hella hon- um niður en gátu heldur ekki drukkið hann sjálfir. Þeir ákváðu þess vegna að gefa bjórinn til dval- arheimila. Þar var bjórnum vel tek- ið og hann veittur með mat. Þó var misjafnt hversu mikill áhuginn var. Á einu heimilinu höfðu aðeins þrjár dósir verið tæmdar nokkrum dögum síðar. ■ JAFNRÉTTISMÁL Hundruð kvenna hafa tekið þátt í umræðum á fem- inistinn.is í kjölfar þess að ís- lenskar flugfreyjur komu við sögu í sjónvarpsþáttaröðinni um mafíósann Tony Soprano. Reiði kvennanna beinist að forráða- mönnum Icelandair, sem sagðir eru eiga sök á því orðspori sem nú fer af íslenskum konum um heimsbyggðina. Hér má finna nokkur sýnishorn: „...þá vil ég benda á að ennþá hanga uppi auglýsingar í neðan- jarðarlestastöðvum hér í Bret- landi með fyrirsögninni „Dirty weekend in Iceland“. Auglýsingin er myndskreytt með ungum stúlk- um og einum ungum manni með leðju framan í sér í Bláa lóninu. Dirty weekend, eins og flestir sjálfsagt vita, hefur tvíræða merkingu í enskri tungu og vísar til helgar þegar notið er mikils kynlífs. Önnur auglýsing sem var hluti af þessari herferð og ég hef ekki séð eftir áramót lék sér einnig með álíka tvíræðni (man ekki nákvæmlega hvernig hún var, nema hvað fókusinn var á ljóshærða stúlku með húfu sem á stóð „love me“ - eða eitthvað í þeim dúr). Ég bar það undir nokkra Breta hvernig bæri að túlka þessar auglýsingar og einn svaraði umhugsunarlaust fyrir allan hópinn: „Cheap tarts in Iceland“. Hverjir borga fyrir þessi ósmekklegheit?...“ Og hér er kafli úr öðru bréfi: „Eða þessi gegndarlausa markaðssetning á Íslandi sem kvennabúri norðursins. Skælbros- andi kvenkyns ljóskur með rjúk- andi hveri í baksýn. Á dögunum birtist grein í Berlingske Tidende um Reykjavík sem heitan pott næturlífsins. Þar er haft eftir bar- þjóni: „Ef maður sefur hjá stelpu getur maður verið viss um að vin- ur manns hefur sofið hjá henni líka.“ Það þarf tvo til að dansa tangó og því má ætla að farandbikarar ástarlífsins séu af báðum kynjum. Ef hugmyndasmiðum ferða- mennskunnar dettur ekkert betra í hug en kynlíf mætti benda þeim á alla þá óbeisluðu orku sem leyn- ist í íslenskum körlum. Erlendar konur eru gefnar fyrir ferðalög. Íslenskir rútubílstjórar og leið- sögumenn gætu verið fyrirtaks efniviður í dagdrauma þeirra. Og þriðja bréfið er frá ís- lenskri konu í Bretlandi. „Ég er búsett hér í London og hef fylgst vel með þessum „Dirty Weekend“ auglýsingum sem Flug- leiðir hefur birt víða í lestastöðum og annarsstaðar í borginni yfir nokkra ára skeið. Botninum var náð, fannst bæði mér og mínum enska maka, þegar ferðamönnum var, í einni auglýsingu, boðið upp á þá skemmtun að beita íslenskum konum kynferðislega áreitni, þ.e. „Pester a Beauty Queen.“ Svo mörg eru þau orð. ■ Eigendur Lágmúla 5 ósáttir við að hætt sé bílageymslu: Vilja ekki einstefnu bíla frá Hótel Esju HÓTEL ESJA Þyrping hf. hefur stækkað Hótel Esju um helming. Félagið hugðist reisa bílageymslu við vesturenda hótelbyggingarinnar en hef- ur hætt við það. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Jafnréttisstofa ræðir tvíræðar auglýsingar Auglýsingar Icelandair í útlöndum vekja reiði hundraða kvenna í kjöl- far Sopranos-þáttar. Valgerður Bjarnadóttir, forstöðumaður Jafnréttis- stofu, á í viðræðum við Flugleiðamenn um breytta stefnu. ICELANDAIR Forráðamenn félagsins eru í kröppum dansi vegna tvíræðra auglýsinga. GUÐJÓN ARNGRÍMSSON Forstöðumaður Jafnréttisstofu reynir að fá Flugleiðamenn til að breyta auglýsinga- stefnu. TONY SOPRANO Þátturinn um lauslátu íslensku flugfreyj- urnar vakti upp reiði hjá hundruðum kvenna sem kenna Flugleiðum um hvernig ímynd íslenskra kvenna er. Konur fara hamförum á feministinn.is: „Ódýrar gálur fást á Íslandi“ BLÁA LÓNIÐ Er notað í auglýsingar sem þykja vera tvíræðar og hafa valdið ólgu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.