Fréttablaðið - 26.03.2003, Side 4
4 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
■ Lögreglufréttir
SKOÐANAKÖNNUN Um 83%
landsmanna telja að skylda
eigi stjórnmálaflokka til að
opna bókhald sitt, sam-
kvæmt niðurstöðu skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins á
laugardaginn. Um 17% eru and-
víg því.
Þegar afstaða stuðningsmanna
flokkanna er skoðuð kemur í ljós
að stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins njóta nokkurrar sér-
stöðu. Hlutfallslega langflestir
þeirra, eða um 32%, eru andvígir
því að stjórnmálaflokkum
verði gert skylt að upplýsa
hvaða einstaklingar og
fyrirtæki gefi fé til flokks-
starfsins. Næstmesta and-
staðan er á meðal stuðningsmanna
Framsóknarflokksins, hins ríkis-
stjórnarflokksins, en um 15%
þeirra eru andvíg.
Fylgjendur stjórnarandstöðu-
flokkanna eru áberandi fylgjandi
því að bókhaldið verði opnað.
Skera stuðningsmenn Frjálslynda
flokksins sig þar nokkuð úr en um
97% þeirra eru fylgjandi því að
flokkunum verði gert skylt að
upplýsa hvaða einstaklingar og
fyrirtæki gefa fé til flokks-
starfsins.
Lítill munur er á afstöðu fólks
eftir búsetu og kyni. Karlar eru þó
aðeins hlynntari því að flokkarnir
opni bókhald sitt en konur og fólk
í þéttbýli sömuleiðis.
Í könnuninni var hringt í 600
manns á landinu öllu og tóku um
89% þeirra afstöðu. Spurt var:
Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því
að stjórnmálaflokkum verði gert
skylt að upplýsa hvaða einstak-
lingar og fyrirtæki gefi fé til
flokksstarfsins? ■
Könnun um bókhald stjórnmálaflokkanna:
Meirihluti vill
opið bókhald
AFSTAÐA STUÐNINGSMANNA
FLOKKANNA
Fylgjandi Andvíg
B 83% 17%
D 62% 38%
F 97% 3%
S 92% 8%
U 94% 6%
Óákveðnir* 87% 13%
Svara ekki* 71% 29%
*hvaða flokk þeir kjósa
NIÐURSTAÐA ÞEIRRA SEM TÓKU
AFSTÖÐU
ERTU FYLGJANDI EÐA ANDVÍG(UR) ÞVÍ AÐ STJÓRNMÁLAFLOKK-
UM VERÐI GERT SKYLT AÐ UPPLÝSA HVAÐA EINSTAKLINGAR OG
FYRIRTÆKI GEFI FÉ TIL FLOKKSSTARFSINS?
KRISTJÁN PÁLSSON
Velur bónda í Laugarvatnshreppi í annað
sætið.
Framboð Kristjáns
Pálssonar:
Snæbjörn í
Efstadal í
öðru sæti
STJÓRNMÁL Kristján Pálsson al-
þingismaður hyggst kynna fram-
boðslista sinn í Suðurkjördæmi
um næstu helgi. Þar verða nöfn 20
frambjóðenda og verða þeir flest-
ir af Suðurnesjum. Þó ekki allir:
„Snæbjörn Sigurðsson, bóndi í
Efstadal í Laugarvatnshreppi og
varaoddviti í Bláskógabyggð,
verður í öðru sætinu á eftir mér,“
segir Kristján Pálsson, sem býður
fram undir listabókstafnum T:
„Það merkir trú og traust,“ segir
hann.
Samhliða kynningu á framboðs-
lista Kristjáns verður kynnt nýtt
merki Framboðs óháðra í Suður-
kjördæmi eins og það heitir. Fram-
boðið þarf 2.000 atkvæði í kjör-
dæminu til að fá mann kjörinn. ■
Suðurnes:
Fréttablaðið
á leiðinni
ÚTGÁFA Fréttablaðið verður frá og
með morgundeginum borið inn á
hvert heimili á þéttbýlisstöðum á
Suðurnesjum. Alls verður borið út
á 5.410 heimili.
Auglýst var eftir blaðberum í
þrjátíu og sex hverfi víðs vegar
um Suðurnesin. Mikil ásókn var
eftir því að bera Fréttablaðið út
en þegar hefur verið ráðið í þrjá-
tíu og tvö hverfi. Tvö hverfi eru
laus í Keflavík, eitt í Grindavík og
eitt í Sandgerði.
Fréttablaðinu hefur hingað til
verið dreift í ýmsar verslanir á
Suðurnesjum og hefur áhuginn á
blaðinu verið mjög mikill. ■
SPRON Pétur Blöndal alþingismað-
ur hefur boðið sig fram í stjórn
SPRON, en árið 1995 taldi hann
að þingmennska og seta í banka-
ráði Íslandsbanka samrýmdust
ekki.
„Ég tel það ekki samrýmast
grundvallarreglum mínum að
sitja bæði í bankaráði og á þingi,“
sagði Pétur í samtali við Morgun-
blaðið þann 17. mars 1995, en þá
hafnaði hann áttunda sætinu á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins þar sem hann átti sæti í
bankaráði Íslandsbanka.
Pétur skipar nú efsta sæti á
lista nýstofnaðra Samtaka stofn-
fjáreigenda í Sparisjóði Reykja-
víkur, sem hann telur að eigi yfir-
gnæfandi líkur á því að eignast
fulltrúa í stjórninni. Í samtali við
Fréttablaðið segir hann að ekki
sé hægt að líkja stöðunni núna
saman við stöðuna árið 1995,
nema að því leyti að hann sé nú
sem þá fulltrúi smárra fjárfesta.
„Þegar ég var í bankaráði Ís-
landsbanka stóðu fyrir dyrum
miklar breytingar á fjármála-
markaði,“ segir Pétur. „Alþingi
átti eftir að afgreiða fjöldann all-
an af lögum um fjármálastarf-
semina. Íslandsbanki var auk
þess mjög afgerandi stór á með-
an SPRON er miklu, miklu minni,
þannig að ég sé ekki sömu vand-
kvæði núna þegar búið er að af-
greiða umgjörð fyrir fjármála-
markaðinn.“
Pétur segir að grundvallar-
reglur sínar hafi ekki breyst.
„Það sem hefur breyst er það
að stofnfjáreigendur hafa haft
samband við mig og vilja að ég
gæti hagsmuna þeirra í stjórn
SPRON. Þeim finnst mörgum
hverjum að núverandi stjórn hafi
ekki gætt hagsmuna þeirra til
fyllstu. Ég vona verkefnið það
sem ég ætla mér í stjórn SPRON
vari mjög stutt.“ ■
PÉTUR BLÖNDAL ALÞINGISMAÐUR
Pétur segir að ekki sé hægt að líkja stöð-
unni núna saman við stöðuna árið 1995.
Pétur Blöndal taldi árið 1995 að þingseta og seta í bankaráði samrýmdust ekki:
Pétur skiptir um skoðun
STJÓRNMÁL „Framsóknarmenn eru
eins og allir Íslendingar andvígir
stríði og manndrápum. Ég styð
þetta stríð á hendur Saddam
Hussein en ber harm í brjósti þeg-
ar til slíkrar orrustu er lagt,“ seg-
ir Guðni Ágústsson, landbúnaðar-
ráðherra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, um stríðsrekstur
bandamanna í Írak og þær skiptu
skoðanir sem uppi eru innan
Framsóknarflokksins um stuðn-
ing íslensku ríkisstjórnarinnar
við innrás bandamanna.
Guðni segist styðja Halldór Ás-
grímsson, formann sinn, í þessu
máli og telur að rétt hafi verið af
Íslendingum að skipa sér á bekk
með þeim þjóðum sem standa með
bandamönnum í stað þess að leita
samkomulags innan Sameinuðu
þjóðanna um aðgerðir gegn Írak.
„Mér var tjáð að fullreynt væri
með þetta mál innan Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna,“ segir
Guðni.
Kristinn H. Gunnarsson,
flokksbróðir Guðna og formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
er á allt öðru máli. Hann segist
vera algjörlega andvígur stríðs-
rekstrinum í Írak og stuðningi
ríkisstjórnar Íslands við innrásar-
þjóðirnar.
„Ég tel að það hefði átt að
leggja áherslu á nýja ályktun
Öryggisráðsins. Þar deili ég skoð-
un minni með ágætum mönnum á
borð við Robin Cook, Göran Pers-
son, Nelson Mandela og Jóhannes
Pál páfa,“ segir Kristinn.
Hann vildi ekki leggja á það
mat hvernig það kom til að ríkis-
stjórnin féllst á að Ísland yrði að-
ili að stríðinu.
„Ég get aðeins sagt það að ut-
anríkisráðherra talaði á sínum
tíma fyrir nýrri ályktun og það
virtist koma honum á óvart að við
værum inni á lista með þeim
þjóðum sem studdu innrás
Bandaríkjamanna og Breta,“ seg-
ir Kristinn.
Dagný Jónsdóttir, frambjóð-
andi flokksins í Norðausturkjör-
dæmi og formaður Sambands
ungra framsóknarmanna, er líka
á móti stríðsrekstri í Írak, þó svo
að hún telji mikilvægt að al-
þjóðasamfélagið taki á ógnar-
stjórn Saddams Husseins með
einhverjum hætti. „Það er mín
skoðun að vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna hefðu átt
að fá meiri tíma,“ segir hún. „Ef
það er yfirlýst stefna ríkis-
stjórnarinnar að vera á lista
stuðningsþjóða innrásar, þá er
ég á móti því.“ ■
KRISTINN H. GUNNARSSON
Á móti stríðsrekstri Bandaríkjamanna.
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Styður Bandaríkjamenn í stríði.
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR
Á móti stuðningi ríkisstjórnarinnar við
stríð.
Ráðherra styður stríð
með harm í brjósti
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra er fylgjandi stríði í Írak. Skoðanir innan Framsóknar-
flokksins eru mjög skiptar. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins,
er á móti, sem og Dagný Jónsdóttir, frambjóðandi í Norðausturkjördæmi og formaður SUF.
BRAUT RÚÐU Í REIÐIKASTI Lög-
reglan í Reykjavík greip stúlku
eftir að hún hafði brotið rúðu í
verslun í miðborginni um helg-
ina. Viðurkenndi stúlkan verkn-
aðinn. Hafði henni sinnast við
ónefndan aðila og í framhaldinu
skeytt skapi sínu á rúðunni með
fyrrgreindum afleiðingum. Ekki
náðist í forsvarsmenn verslunar-
innar og var smiður fenginn á
staðinn til að byrgja fyrir.
Ætlar þú að fara í ferðalag um
páskana?
Spurning dagsins í dag:
Bíður þú spennt(ur) eftir landsleik Ís-
lendinga og Skota á laugardaginn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
63%
13%
24%
Nei
Já, til útlanda
Já, innanlands
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is