Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 10
26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtækj- anna jókst um tíu milljarða milli áranna 2001 og 2002. Fjár- magnsliðir skiluðu félögunum rúmum þrettán milljörðum meira en árið áður. Afkoman fyrir af- skriftir, skatta og fjármagnsliði versnaði um rúma tvo milljarða milli áranna 2001 og 2002. Þessi fyrirtæki ráða yfir um helmingi aflaheimilda við Ísland. Styrking krónunnar hefur mikil áhrif á uppgjör fyrirtækj- anna. Mikill gengishagnaður skil- ar sér í kjölfar styrkingu krón- unnar á síðasta ári. Styrkingin þýðir hins vegar að lægra verð fæst í krónum fyrir afurðirnar. Stefán Broddi Guðjónsson, sér- fræðingur hjá Greiningardeild Íslandsbanka, segir að áfram muni gæta gengishagnaðar í upp- gjörum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. „Árið 2001 var sérlega gott ár hjá sjávarútveginum og 2002 verður að teljast afar gott einnig.“ Hann gerir ráð fyrir því að framlegð fyrirtækjanna fari minnkandi á árinu. „Við sjáum að framlegð fyrirtækjanna er að dragast saman á síðasta ársfjórð- ungi síðasta árs.“ Stefán Broddi segir að mikil þróun hafi orðið í rekstri sjávar- útvegsfyrirtækja og þau nýti fjármuni sína betur nú og séu betur rekin en fyrir nokkrum árum. „Afkoman versnar í kjöl- far styrkingar krónunnar. Fyrir- tækin sem skráð eru í Kauphöll- inni eru betur fjármögnuð og eru mun sterkari en vænta má af greininni í heild. Það eru engin ný sannindi að sjávarútvegurinn, eins og aðrar útflutningsgreinar, líður fyrir sterka krónu.“ Hann segir einnig blikur á lofti varð- andi verð á mörkuðum. Stærstu sjávarútvegsfyrirtækin séu hins vegar í góðum rekstri og hafi verið að búa sig undir erfiðari tíma. „Ég held að fyrirtækin hafi unnið þannig að þau hafi ekki gert ráð fyrir að rekstrarum- hverfi þeirra yrði til allrar fram- tíðar eins gott og það var síðustu tvö ár.“ Stefán Broddi segir fyrir- tækin hafa verið að styrkja eigin- fjárstöðu sína, borga skuldir og hafi því góðar forsendur til þess að takast á við lakara rekstrar- umhverfi meðan á innstreymi er- lends fjármagns vegna stóriðju- framkvæmda stendur. haflidi@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Jakob Falur Garðars- son, aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra, segir ráðuneytið ekki geta að svo stöddu tjáð sig efnis- lega um bréf Flugskólans Flug- sýnar um meint lögbrot Flugskóla Íslands. Á bréfið sé litið sem stjórnsýslukæru og það fái með- ferð sem slíkt. Eigandi Flugsýnar, Sigurður Hjaltested, telur Flugskóla Ís- lands brjóta lög með því að sinna einkaflugmannskennslu. Lög- bundið viðfangsefni skólans sé menntun atvinnuflugmanna. Þá segir Sigurður lög brotin með því að viðskiptum sem Flug- skóli Íslands gæti beint til ann- arra flugskóla sé í staðinn beint til félaga sem að hluta séu í eigu meðeigenda ríkisins í Flugskóla Íslands. Ríkið er stærsti hluthafinn í Flugskóla Íslands með yfir 40% eignarhluta. Það dró fulltrúa sinn úr stjórn skólans fyrir um tveim- ur árum. „Það var eingöngu vegna þess að flugrekendurnir og flug- félögin sjá alfarið um þessi mál,“ segir Jakob Falur. Sigurður vill að Ríkisendur- skoðun kanni rekstur Flugskóla Íslands. Það mun Ríkisendurskoð- un reyndar þegar hafa gert sem hluta af allsherjar úttekt á Flug- málastjórn. Niðurstöðurnar eru nú til umsagnar hjá þeim aðilum sem úttektin snertir. ■ FLUGSKÓLI ÍSLANDS Jakob Falur Garðarsson, aðstoðarmaður sam- gönguráðherra, segir umkvörtun eiganda Flugskólans Flugsýnar vegna reksturs Flug- skóla Íslands í raun vera stjórnsýslukæru. Samgönguráðuneytið tjáir sig ekki um flugskóladeilu: Bréf Flugsýnar er stjórnsýslukæra GÓÐ ÁR Sjávarútvegsfyrirtæki í Kauphöllinni hafa verið að skila methagnaði. Mikill gengishagnaður var á síðasta ári. Nú má hins vegar búast við lakari afkomu vegna sterkari krónu. AFKOMA STÆRSTU SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKJANNA 2001-2002 Í MILLJÓNUM KRÓNA Grandi Vinnslu- Þormóður Þorbjörn Brimir Eskja Síldar- SR mjöl Samherji Tangi Samtals stöðin rammi Fiskanes vinnslan Hagnaður 2002 1.814 1.069 1.067 1.003 2.373 1.010 1191 443 1.879 208 12.057 Hagnaður 2001 410 35 -33 412 -384 156 -67 31 1108 -99 1.569 Breyting 1.404 1.034 1.100 591 2.757 854 1.258 412 771 307 10.488 Hagnaður fyrir afskriftir 2002 1.609 1.243 1.318 1.193 2.883 1.254 1.093 927 2.998 -42 14.476 Hagnaður fyrir afskriftir 2001 1.431 1.181 1.416 1.430 3.242 1.280 1.585 1.140 3.612 280 16.597 Breyting 178 62 -98 -237 -359 -26 -492 -213 -614 -322 -2.121 Fjármagnsliðir 2002 1.241 491 603 -620 1.746 589 1.004 396 410 296 6.156 Fjármagnsliðir 2001 -250 -683 -858 750 -2.058 -750 -1.074 -594 -1.238 -375 -7.130 Breyting 1.491 1.174 1.461 -1.370 3.804 1.339 2.078 990 1.648 671 13.286 Hagnaðurinn jókst um tíu milljarða Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja í Kauphöll Íslands jókst um rúma tíu milljarða. Aukningin skýrist að mestu af styrkingu krónunnar. Fjár- magnsliðir voru þrettán milljörðum betri 2002 en 2001. Styrking krón- unnar skilar lakari afkomu til lengri tíma. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H LE M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.