Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 30
Hrósið 30 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR HÓTELSTJÓRI „Það er ótrúlega gam- an að koma heim. Hér eru tengsl- in á milli fólks svo miklu meiri og betri en í Bandaríkjunum,“ segir Sigrún Hjartardóttir, nýráðin hót- elstjóri hjá Fosshótelunum, sem um þessar mundir eru að leggja undir sig þrjú ný hótel og eru því orðin fjórtán alls. Sigrún stýrir Fosshótelinu Lind við Rauðarár- stíg. Hún flutti aftur heim til Ís- lands fyrir rúmu ári eftir 16 ára dvöl í Flórída þar sem hún starf- aði meðal annars sem hótelstjóri á tveimur hótelum í Orlando: „Ég fór upphaflega til Orlando til starfa fyrir Flugleiðir á meðan félagið var með skrifstofu þar. Þegar því lauk var mér boðið hót- elstjórastarf við Parc Corniche Resort-hótelið en það er íbúða- hótel og vinsælt meðal Íslendinga. Síðar varð ég hótelstjóri á Win- gate Inn, líka í Orlando,“ segir Sigrún, sem víða hefur farið á þeim 44 árum sem liðin eru frá fæðingu hennar. Hún er ættuð af Snæfellsnesinu en alin upp í Bú- staðahverfinu í Reykjavík: „Þegar maður ferðast mikið, tíu mánuði á ári eins og einu sinni var, er gott að vera var um sig. Þess vegna lærði ég sjálfsvarnar- listina Aikido í Bandaríkjunum og kom hingað heim með slíkan flokk þegar Íslendingar voru að kynn- ast íþróttinni. Hópinn lét ég líka ferðast um landið. Það er gaman að stunda líkamsrækt án þess að þurfa að hlusta á diskótónlist,“ segir Sigrún, sem er einhleyp og barnlaus „...og kann því bara ágætlega enda þekki ég ekkert annað,“ eins og hún orðar það. ■ HÓTELSTJÓRINN Sigrún Hjartardóttir kann því vel að vera komin heim – tengslin við fólk betri hér en í Bandaríkjunum. Persónan ■ Steinunn Hjartardóttir hefur ný- verið tekið við hótelstjórn á Foss- hóteli Lind við Rauðarárstíg eftir að hafa stýrt hótelum í Orlando á Flórída um árabil. MANNLÍF Á sunnudagskvöldið var sýnd í ríkissjónvarpinu heimildar- mynd um tvö pör búsett norður í landi. Það væri svo sem ekki í frá- sögur færandi nema fyrir það að konurnar eru báðar tælenskar. Saga þeirra var sögð og þeim fylgt eftir í nýju landi í rúm tvö ár. Myndin endaði árið 2001 og var þá önnur þeirra, Noi, nýlega gift. „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur síðan myndin endaði. Allt er við það sama fyrir utan það að Noi talar nú mun meira í mál- inu,“ segir Ævar Ísak Sigurgeirs- son, eiginmaður Noi. Hann segir að frá því myndin var fyrst sýnd hafi viðbrögðin ver- ið ótrúlega góð. „Við sátum og héld- um utan um hvort annað og vorum hálffeiminn á meðan við horfðum á hana tvö ein á sunnudagskvöld,“ segir Ísak og Noi tekur undir það og bætir við að feimnin sé söm við sig hjá henni. Hún segist alltaf kunna jafn vel við sig á landinu og ís- lenskukunnáttan hafi mikið komið til vegna vinnunnar. „Það koma svo margir í búðina heima í Ásbyrgi og fólk talar við mig íslensku. Ef ég veit ekki hvernig á að segja eitt- hvað spyr ég og fólk er mjög viljugt að bæta við orðaforðann,“ segir Noi. Ísak segist vera mjög ánægður með myndina og telur hana sýna það sem henni var ætlað. „Ég hefði aldrei tekið þátt í þessu nema fyrir þá von mína að hún myndi slá á þá fordóma sem hér ríkja. Ég tel að Ásthildi Kjartansdóttur hafi tekist að laða fram raunsanna mynd af konum af öðrum kynþætti sem hér búa. Einkum og sér í lagi hefur ríkt þekkingarleysi og ákveðnir for- dómar um líf tælenskra kvenna og þær eru allar settar undir sama hatt.“ Ísak telur sig hafa verið afskap- lega heppinn þegar hann kynntist konu sinni. „Við erum mjög ánægð með hvort annað og eins og kom fram í myndinni dreymir okkur um að eignast barn. Sá draumur hefur ekki ræst en hver veit hvað fram- tíðin ber í skauti sér,“ segir Ísak. Þau hafa verið í vinfengi við hitt parið í myndinni, þau Pam og Sveinbjörn. Noi segir allt við það sama hjá þeim. „Hún vinnur enn á Kópaskeri og er þar alla vikuna. Um helgar fer hún heim og dvelur hjá þeim Sveinbirni og móður hans. Þeim kemur einkar vel saman, móður Sveinbjörns og Pam, og þær eru góðar vinkonur. Fyrir nokkru kom frænka Pam frá Taílandi og hefur hún unnið í rækju á Dalvík,“ segir Noi, sem er alsæl með lífið og nýja tilveru á Íslandi. bergljot@frettabladid.is Imbakassinn Ég skal segja þér það að ég á áritanir frá ÖLLUM leikmönnum Manchester United! Fær Nói Albínói fyrir að hafasigrað heiminn þó aðeins fimm þúsund manns hafi séð myndina hér á landi. Fréttiraf fólki ÍSAK OG NOI Þau eru stödd í Reykja- vík um þessar mundir og horfðu tvö ein á myndina. Þau eru af- skaplega ánægð hvort með annað og það vantar ekkert inn í líf þeirra nema lítið barn. Vantar bara barn Noi og Ísak, annað parið sem fram kom í myndinni um Pam og Noi, eru alsæl með lífið. Ekkert skortir hjá þeim nema barn en þau eru vongóð um að breyting geti orðið þar á. Allt við það sama hjá hinu parinu. Heim eftir 16 ár í Flórída VON UM BETRA LÍF Þessi börn hafa dvalið lengi í flóttamannabúðum í Serbíu. Nú eiga þau vonandi í vændum betra líf á Akureyri, þar sem ný heimili bíða þeirra og foreldra þeirra. Þeim og fjölskyldum þeirra var haldið móttökuhóf á vegum Rauða krossins í gær áður en þau halda norður. Þar eru bæjarbúar tilbúnir að aðstoða fólkið á alla lund og íbúðir fullbúnar húsgögnum eru tilbúnar. FRÉTTAB LAÐ IÐ /TH O R STEN FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Já, en þú ert nú líka framkvæmdastjór- inn, Alex minn! ■ Ég tel að Ást- hildi hafi tekist að laða fram raunsanna mynd af konum af öðrum kyn- þætti sem hér búa. Ný fjölmiðlakönnun Gallupleiðir ýmislegt forvitnilegt í ljós og þannig hefur það vakið at- hygli manna að hinn nafntogaði stjórnmálaspjallþáttur Egils Helgasonar, sem kenndur er við silfur hans, er ekki á meðal tíu vinsælustu þátt- anna á dagskrá SkjásEins. Sam- kvæmt könnun- inni nær hann vart 15% áhorfi þar sem Law & Order er neðstur á listanum með 15,3% uppsafnað áhorf á þeim tíma sem könnunin tók til. Það er hin glaðlega Valgerð- ur Matthíasdóttir og félagar hennar í Innlit/útlit sem eru í fylkingar- brjósti vinsælustu þáttanna á SkjáEinum með 28% áhorf. The Bachelor kemur í kjölfarið með 27,4% áhorf og stefnumótaþáttur- inn Djúpa laugin er í þriðja sæt- inu með 24,9%. Sigríður Arnar- dóttir vermir svo fimmta sætið með Fólki. Íslenskir friðarsinnar hafa ekkifarið í grafgötur með andúð sína á störfum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Halldórs Ás- grímssonar utanríkisráðherra síðustu daga. Þrátt fyrir þessa almennu stemn- ingu þegir einn nafntogaðasti bar- áttumaður lands- ins fyrir friði, Ástþór Magnús- son, þunnu hljóði en hann hefur hingað til ekki vandað þeim Davíð og Halldóri kveðjurnar. Þeir sem þekkja til Ástþórs eiga bágt með að trúa Það hefur sjálfsagt ekki fariðfram hjá neinum að kjánaprik- in í Jackass eru á leiðinni til landsins. Þeir voru í Dublin á dög- unum og gerðu þá allt vitlaust. Lögreglan hér á Íslandi virðist ekki ætla að láta þá sögu endur- taka sig hér og hefur boðað Ísleif Þórhallsson, sem stendur fyrir komu Jackass hingað, til viðtals í dag. Það fylgir ekki sögunni hvort Ísleifur verði beðinn um að sýna fram á að Jackass-menn séu fyndnir en það virðist hafa mynd- ast nokkur stemning fyrir því að bera vafasamt glens undir emb- ætti Ríkislögreglustjórans eftir að Ómar R. Valdimarsson, ritstjóri Pólitík.is, leitaði álits embættisins á því hvort Jón Gnarr sé fyndinn. Í Hveragerði ólgar nú óánægjameðal íbúa vegna uppsagnar og ráðningar á lækni við Heilsu- gæslustöðina. Árni Jónsson, læknir þar til skamms tíma, hef- ur ekki verið í vinnu frá því í janúar en þá var hann sendur heim og sagt að fara í fríi. Hon- um barst síðan uppsagnarbréf fyrir skömmu, undirritað af framkvæmdastjóra Heilsu- gæslustöðvarinnar, Herdísi Þórðardóttur. Nú berast þær fregnir að ráðinn hafi verið nýr læknir, Sigurður Baldursson, og kemur hann frá Keflavík. því að allur vindur hafi farið úr honum í hamaganginum í kring- um tölvupóstsendingar hans í fyrra og dettur helst í hug að yf- irvöldum hafi tekist að kippa undan honum fótunum með því að leggja hald á allar tölvur Frið- ar 2000. ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að himininn er blár vegna þess að blái hluti sólarljóssins dreifist meira en annað ljós frá sameindum lofthjúpsins. Það skýrir hins vegar ekki hvers vegna tunglið er gult.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.