Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.03.2003, Blaðsíða 10
10 27. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR ■ Asía ■ Afríka Svona erum við VELFERÐARKERFIÐ „Lægstu mánað- arlaun fyrir fulla vinnu eru 93 þúsund. Ég tel það ekki ganga upp að menn ræði um atvinnuleysis- bætur sem séu hærri en eitthvert hlutfall af þeirri tölu,“ segir Ari Edwald, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnu- lífsins, aðspurður um álit sitt á umræðu, sem meðal ann- ars hefur farið fram að frum- kvæði Alþýðusambands Íslands, þess efnis að atvinnuleysisbætur séu orðnar of lágar miðað við launaþróun í landinu. ASÍ hefur lýst áhyggjum sínum af því und- anfarið að atvinnulausir leiti í meiri mæli en áður til hjálparsam- taka vegna fátæktar. Sambandið gerir tillögu um að bæturnar verði nú þegar hækkaðar í 93 þúsund krónur á mánuði svo þau verði til jafns við lægstu laun. Atvinnuleysis- bætur eru nú 77 þús- und krónur á mánuði. „Ég held að það sé alveg ljóst að það gengur ekki að atvinnuleys- isbætur séu jafn háar launum,“ segir Ari. „Þá væru þær í raun hærri, því það gera sér allir grein fyrir því að það fylgir því ýmis kostnaður að stunda atvinnu.“ Ari fagnar þó tillögugerð ASÍ um alhliða úrbætur í velferðar- kerfinu. „Ég held að það sé mjög margt athyglisvert í þessum um- ræðum hjá ASÍ,“ segir Ari. „Það er alveg ljóst að allt þetta svið er gríðarlega aðkallandi til yfirferð- ar. Ég held að það sé vel til fundið hjá þeim að velta þessum stein- um.“ ■ Morðingi: Myrti föður sinn og nunnu BANDARÍKIN, AP Lögreglumenn í Virginíufylki í Bandaríkjunum hafa handtekið mann sem er grun- aður um að hafa myrt föður sinn og nunnu sem hann tók í gíslingu. Maðurinn er sagður hafa myrt föður sinn á sameiginlegu heimili þeirra á sunnudag. Hann mun hafa sakað föður sinn um að beita sig kynferðislegu ofbeldi. Maður- inn flýði af vettvangi, rændi bíl tveggja nunna í nágrenninu og hafi þær með sér. Önnur nunnan losnaði úr haldi mannsins. Lík hinnar fannst illa leikið. ■ SPRENGT Í MYANMAR Einn lést og þrír særðust þegar sprengja sprakk við fjarskiptamiðstöð í Yangon, höfuðborg Myanmar. Önnur sprengja fannst ósprungin skammt frá. Þetta gerðist daginn sem 58 ára afmæli hersins var fagnað. MANNSKÆÐ FLÓÐ Mikil rigning og flóð hafa kostað ellefu manns hið minnsta lífið í Afganistan. Hundruð heimila hafa skemmst, stór hluti þeirra eyðilagst. SKÆRULIÐAR DREPA SKÓLABÖRN Tvö börn og einn kennari létust í árás Hutu-skæruliða á eftirlits- stöð búrúndíska hersins skammt frá grunnskóla í austurhluta landsins. Að sögn talsmanns upp- reisnarmannanna var um mistök að ræða. Nokkrir hermenn létust einnig í átökum við skæruliðana en fjöldi þeirra er á reiki. VELFERÐARMÁL „Almannatrygg- ingakerfið átti að tryggja öryggi okkar frá vöggu til grafar. Það gerir það alls ekki. Fólk býr við óviðunandi húsnæðis- aðstöðu og fram- færslueyri. Stór hluti af lágtekjufólki þarf að láta æ meira af tekjum sínum í húsaleigu og á ekki til hnífs né skeiðar frá degi til dags,“ segir Jóhanna Sig- u r ð a r d ó t t i r , þingmaður og fyrrverandi fé- l a g s m á l a r á ð - herra. Hún segir hrikalega stöðu komna upp og kerfið hafi verið látið drabbast niður undanfar- in átta til tíu ár: Það sé hriplekt og fólk lendi í fá- tæktargildrum í kerfi sem er vinnuletjandi sökum mikillar tekjutengingar í bótakerfinu. „Öryggiskerfið byrjar raun- verulega að bresta þegar skorið- var á tengsl lífeyris og launa bæði í skattakerfinu og bótakerfinu árið 1996. Þá voru fluttir milljarð- ar frá lágtekjufólki til hinna betur settu. Þetta er velferðarkerfi fyr- irtækja og hátekjufólks.“ Að sögn Jóhönnu er velferðar- kerfið brostið og ofan á kemur að matvælaverð er hér með því hæsta sem þekkist. „Og ég þori að fullyrða að húsnæðiskostnaður láglaunafólks er hvergi hærri en hér plús að kostnaðar- þátttaka í heilbrigðis- kerfinu hefur vaxið gífurlega. Fólk getur ekki leyst út lyfin sín og öryrkjar þurfa oft að eyða sem samsvarar mánaðar- lífeyri bara í lyf. Fátækt og mis- skipting vaxa. Og nýtt í umræð- unni: Lágtekjufólk, sem þarf að lifa af hungurlús við fátæktar- mörk, greiðir sem samsvarar mánaðartekjum í skatta.“ Ein sorglegasta afleiðingin af öllu þessu er mismunum milli barna, sem mörg hver geta ekki tekið þátt í tómstundastarfi á veg- um skólakerfisins. „Rannsóknir sýna að andlegt og líkamlegt heilsufar barna fátækra er miklu verra en þeirra sem búa við betri tekjur – þau finna illyrmislega fyrir misskiptingu og óréttlæti í þjóðfélaginu.“ Íslenska velferðarkerfið fær- ist stöðugt í átt til þess sem þekk- ist í Bandaríkjunum, að mati Jó- hönnu. „Hlutfallslega er miklu minna varið til velferðarmála hér en í öðrum Norðurlöndum. Barna- bótakerfið er láglaunabætur. Ís- land er eitt þriggja landa innan OECD sem tekjutengir barnabæt- ur. Bæturnar byrja að skerðast við 58 þúsund hjá einstæðu for- eldri og 116 þúsund hjá hjónum. 11% af einstæðum foreldrum fá óskertar barnabætur og 3 prósent hjóna. Og hinar snautlegu at- vinnuleysisbætur undir fátæktar- mörkum eru svartur blettur á þjóðfélaginu. Þetta er nú velferð- arríkið Ísland sem við erum að spjalla um. Við verðum að fá fram þjóðarsátt um endurreisn velferð- arkerfisins.“ jakob@frettabladid.is BAGDAD, AP Á sama tíma og sand- stormur stöðvaði framsókn bandarískra hersveita sem sóttu að Bagdad voru varnir borgarinn- ar styrktar, meðal annars með því að grafa skurði í kringum hana. Lögreglumenn voru víða á ferli og sá orðrómur gekk meðal íbúa borgarinnar að leyniþjónusta Saddams Husseins, sem lengi hef- ur valdið ótta landsmanna, héldi uppi njósnum á strætum borgar- innar til að berja niður allt andóf. Þrátt fyrir að bandarískar her- sveitir væru að sögn aðeins 80 kílómetra frá borginni var um- ferð meiri en undanfarna daga. Þá voru fleiri búðir opnar en nokkru sinni frá því árásir á Írak hófust í síðustu viku. Rusl safnaðist þó fyrir en almenningssamgöngur gengu með eðlilegum hætti. Sandstormur breytti ásýnd borgarinnar. Myrkur lagðist yfir borgina, að hluta vegna stormsins sem byrgði mönnum sýn, að hluta vegna reyks frá olíueldunum sem kveiktir hafa verið umhverfis borgina. ■ Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. „Hvað þýðir hugsanleg ESB aðild fyrir einstakar atvinnugreinar í landinu“ Pallborðsumræður með þátttöku hagsmunaaðila Eftirtaldir tala: Bændasamtökin: Erna Bjarnadóttir hagfræðingur LÍÚ: Sveinn Hjörtur Hjartarson hagfræðingur Samtök iðnaðarins: Sveinn Hannesson framkv.stjóri Samtök verslunar og þjónustu: Sigurður Jónsson framkv.stjóri Pallborðsumræðum stýrir G. Pétur Matthíasson fréttamaður Fundarstjóri: Margrét S. Björnsdóttir Á fundinum verður opnuð ný vefsíða Evrópusamtakanna http://www.evropa.is Nánari upplýsingar evropa@evropa.is laugardaginn 29. mars 2003 í Kornhlöðunni, (Lækjarbrekku) kl. 1100 - 1300 Aðalfundur Evrópusamtakanna Evrópusamtökin boða til aðalfundar Evrópusamtökin EINMANA LEIÐTOGI Í SANDSTORMI Skyggni í Bagdad var mun minna en venjulega vegna sandstorms og reyks frá olíueldum. Sandstormur og reykur byrgja sýn: Varnir styrktar fyrir árásina JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Ein sorglegasta afleiðing bágborins ástands velferðarkerfisins er sú að fjöl- mörg börn eru farin að finna verulega fyrir fátækt foreldra sinna. Stór hópur á ekki til hnífs og skeiðar Velferðarkerfið er hriplekt og elur á misrétti. Fólk hefur ekki jafnan aðgang að heilbrigðiskerfinu og stór hópur barna er farinn að líða verulega fyrir fátækt foreldra sinna. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrum félagsmálaráðherra. „Hinar snautlegu at- vinnuleysis- bætur undir fátæktar- mörkum eru svartur blettur á þjóðfélag- inu. ARI EDWALD Telur ekki rétt að hækka atvinnu- leysisbætur upp í lægstu laun. Fagnar þó tillögugerð ASÍ um al- hliða úrbætur í velferðarkerfinu. Ari Edwald er efins um tillögur ASÍ um hærri atvinnuleysisbætur: Bætur eiga að vera lægri en laun ■ Afríka SAMNINGAMAÐUR MYRTUR Samningamaður stjórnvalda í Úg- anda var myrtur af uppreisnar- mönnum í norðurhluta landsins. Maðurinn var sendur til upp- reisnarmannanna til þess að hefja við þá friðarviðræður. TÓBAKSKAUP ÍSLENDINGA Milljónir króna 1997 4.592 1998 4.496 1999 4.659 2000 4.569 2001 4.367 2002 4.196 Heimild: Hagstofa Íslands Verðlag 1990. 2001: Bráðabirgðatölur 2002: Áætlun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.