Fréttablaðið - 31.03.2003, Page 17

Fréttablaðið - 31.03.2003, Page 17
MÁNUDAGUR 31. mars 2003 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S S PV 2 05 26 03 /2 00 3 hjá okkur. Þú ert Sérhver viðskiptavinur og allt, sem tengist fjármálum hans, hefur meira vægi hjá SPV en hjá stórum fjármálastofnunum. Þjónusta SPV er alhliða og fagleg og byggir á persónulegri þekkingu á óskum og þörfum hvers viðskiptavinar. Við stöndum þétt við bakið á viðskipta- vinum okkar því velgengni þeirra skiptir okkur öllu máli. Styrkur okkar er traust og örugg fjármálaþjónusta sem þú getur nýtt þér til vaxtar. Verið velkomin í afgreiðslustaði okkar í Borgartúni 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1, eða fáið upplýsingar í síma 5754100 og á heimasíðu okkar, sem er www.spv.is Bush fyrir Bandaríkjaþingi, fljót- lega í kjölfar hryðjuverka- árásanna á New York. Ljóst er að þessi þrjú ríki voru þegar orðin að slíkum öxulveldum í hugum áhrifamikilla repúblikana löngu áður en sú árás var gerð. Í skýrslu Wolfowitz er beinlínis kvartað yfir því að „hernaðaráætlanir hingað til hafi gefið allt of lítinn gaum að því hversu mikinn hern- aðarmátt þarf til þess að geta ekki einungis varist árásum þessara ríkja, heldur einnig hversu mikið þarf til þess að fjarlægja ríkis- stjórnir þessara landa endanlega frá völdum.“ Bandaríkin verði eina heimsveldið Í skýrslunni frá því 2000, sem finna má á heimasíðunni www.newamericancentury.org ásamt fjölbreyttri flóru af öðrum áhugaverðum gögnum, er talað um nauðsyn þess að bæla niður alla viðleitni annarra þjóða til að öðlast svipuð áhrif á heimsvísu og Bandaríkin. Rakin er nauðsyn þess að Bandaríkin komi upp her- stöðvum í Mið-Austurlöndum, Suðaustur-Evrópu, Suður-Amer- íku og í Suðaustur-Asíu, á stöðum þar sem engar slíkar herstöðvar eru fyrir. Skýrsla Wolfowitz fyrir verk- efnið um nýja ameríska öld, end- urómar margt það sem þegar var komið fram í skýrslu Dick Cheney, þáverandi varnarmála- ráðherra í ríkisstjórn George Bush eldri, frá því árið 1992. Í fyrstu málsgrein þeirrar skýrslu segir að grunnmarkmiðið í varn- arstefnu Bandaríkjanna eigi að vera það að „koma í veg fyrir að upp rísi eitthvað afl á heimsvísu sem getur keppt við Bandaríkin í styrk.“ Þar segir að Bandaríkin verði að viðhalda þeim aflsmun- um sem nauðsynlegir eru til þess að hindra að nokkru ríki „jafnvel detti það í hug að auka áhrif sín á einhverju svæði heimsins eða leika stærra hlutverk í alþjóða- samfélaginu.“ Varðandi Miðausturlönd segir í skýrslu Cheney að markmið Bandaríkjanna eigi að vera það að viðhalda stöðu Bandaríkjanna sem áhrifamesta utanaðkomandi aflsins á svæðinu og að „viðhalda greiðu aðgengi Bandaríkjanna og Vesturlanda að olíulindum svæð- isins“. Í þessu skyni verði það einnig grundvallaratriði að koma í veg fyrir að öflug ríkjabandalög í Arabalöndum nái yfirhöndinni í þessum heimshluta. Eldri hugmyndir um innrás í Írak Vert er að geta í þessu sam- hengi þriðja skjalsins, sem sýnir að hugmyndir núverandi áhrifa- manna í ríkisstjórn Bandaríkj- anna um nauðsyn þess að ráðast með hervaldi á Írak voru kviknað- ar nokkru áður en 11. september 2001 rann upp. Hér er um að ræða bréf, dagsett 26. janúar 1998, til Bill Clinton, þáverandi Banda- ríkjaforseta. Það er undirritað af m.a. Dick Cheney, Paul Wolfowitz, Donald Rumsfeld og Jeb Bush. Í því er Bill Clinton hvattur til þess að íhuga alvarlega að beita her- valdi til þess að fjarlægja Saddam Hussein frá völdum. Bréfið má lesa á www.newamericancent- ury.org. Í sjálfu sér þarf fátt af því sem hér kemur fram að koma á óvart, enda hafa þeir sem undir þessar skýrslur skrifa margoft verið nefndir „haukarnir“ í bandarískri utanríkispólitík, til aðgreiningar frá „dúfum“ eins og Colin Powell utanríkisráðherra. En ljóst er að samhengið í utanríkis- og varnar- málastefnu núverandi ráðamanna í Bandaríkjunum nær töluvert langt aftur og innrásin í Írak er ekki úr lausu lofti gripin heldur á hún sér forsendur í dýpri hug- myndafræði, sem liggur fyrir skjalfest, um Bandaríkin sem eina volduga heimsveldið á komandi öld, án nokkurrar samkeppni. gs@frettabladid.is DICK CHENEY Varaforseti Bandaríkjanna stóð að gerð leyniskýrslu árið 1992, þegar hann var varnar- málaráðherra, þar sem tíundaðar eru leiðir til þess að tryggja áhrif Bandaríkjanna á öllum svæðum heimsins. Hér tekur hann við minnismiða úr hendi aðstoðarmanna á leið sinni á fund í Hvíta húsinu í vikunni. ÚTBREIÐSLA BANDARÍSKA HERSINS Áætlanir gera ráð fyrir að bandarískum herstöðvum verði komið fyrir víðar um heiminn á komandi árum. Hér eru bandarískir hermenn í hertrukk í norðurhluta íraks. M YN D /A P/ IA N J O N ES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.