Fréttablaðið - 31.03.2003, Qupperneq 21
FUNDIR
12.00 Dr. Christopher K. Anderson,
lektor í Kanada, flytur fyrirlestur í
húsi Endurmenntunar í boði
MBA-námsins í Háskóla Íslands.
Hann ræðir um raunverulega
kostir í kvikri verðlagningu og stýr-
ingu tekna.
12.00 Dominic
J. Pulera flyt-
ur fyrirlestur
um sambúð
kynþátta og
fólks af ólíku
þjóðerni í
Bandaríkjum
21. aldar.
Fyrirlesturinn er á vegum Stofnun-
ar stjórnsýslufræða og stjórnmála
og verður fluttur í stofu 101 í Lög-
bergi, Háskóla Íslands. Fundar-
stjóri verður Jóhann M. Hauks-
son stjórnmálafræðingur.
20.00 Siglingastofnun Íslands efnir
til fundar um öryggismál sjófar-
enda á Suðurnesjum. Fundurinn
verður haldinn í húsnæði björg-
unarsveitarinnar Þorbjarnar í
Grindavík. Ráðgert er að halda
sams konar fundi víðar um land á
næstu vikum og mánuðum.
20.30 Árni Einarsson, forstöðumað-
ur Náttúrurannsóknastöðvarinnar
við Mývatn, fræðir áheyrendur um
hinn furðulega kúluskít, hnöttótta
grænþörunginn sem vex í Mý-
vatni. Erindi Árna er þriðja
fræðsluerindi Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags í ár. Það verður
flutt í stofu 101 í Lögbergi, Há-
skóla Íslands.
OPNUN
Þorbjörg Þórðardóttir veflistakona
opnar innsetningu í glugga
Meistara Jakobs gallerís, Skóla-
vörðustíg 5. Þar sýnir Þorbjörg
hvernig hún notar hrosshár á
margbreytilegan og spennandi
hátt í verk sín. Innsetningin er í
beinum tengslum við einkasýn-
ingu hennar í Hallgrímskirkju þar
sem hún sýnir stór ofin verk um
þessar mundir.
TÓNLIST
12.30 Sænska tríóið Mucus gerir til-
raunir með tónlist og sambandið
milli spuna í tónlist og myndlist í
Listaháskóla Íslands í Laugar-
nesi, stofu 024.
21.00 Sænsku bræðurnir Hakan og
Jan Rying leika og syngja sænsk
vísnalög og þjóðlög í Súfistanum
í Hafnarfirði.
21.00 Tilraunaeldhúsið kynnir
Sæluhúsið í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg. Sphinx, Auxpan, Kona
og MC Selló flytja raftónlist og lík-
lega verða pönnukökur á boðstól-
um.
SÝNINGAR
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum.
Hann sýnir þar eingöngu ný mál-
verk.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovésk-
um veggspjöldum úr eigu safns-
ins, sem hafa ekki komið áður fyr-
ir almenningssjónir. Heilbrigði,
hamingja og friður er yfirskrift
sýningarinnar.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir einka-
sýning Patrick Huse sem nefnist
Penetration. Sýningin er síðasti
hluti trílógíu sýninga listamanns-
ins, sem fjalla um samband
manns og náttúru á norðurslóð-
um.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir
sýning á áður ósýndum verkum
listakonunnar Louisu Matthías-
dóttur.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir
sýning á verkum Hlífar Ásgríms-
dóttur og Ólafar Oddgeirsdóttur.
Á sýningunni, sem þær nefna
Með lífsmarki, eru að hluta til
verk sem listakonurnar hafa unn-
ið í sameiningu.
21MÁNUDAGUR 31. mars 2003
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 31 1 2 3
MARS
Mánudagur
Hakan og Jan Rying nefnastsænskir bræður sem komnir
eru hingað til lands í þeim til-
gangi að leika og syngja sænsk
vísnalög og þjóðlög í Súfistanum í
Hafnarfirði. Þeir eru ættaðir úr
Dölunum í Svíþjóð og eru miklir
áhugamenn um Ísland.
„Þetta er eins konar pílagríms-
ferð hjá þeim. Þeir hafa svo mik-
inn áhuga á Íslandi og íslenskri
tónlist,“ segir séra Þórhallur
Heimisson, sem hefur greitt götu
þeirra hér á landi.
„Þetta eru kunningjar mínir
frá Svíþjóð. Þeir eru að koma
hingað í þriðja sinn, held ég. Ég
kynntist þeim þegar ég bjó í Upp-
sölum, þeir eiga heima þar rétt
hjá. Við hittumst fyrst á einhverj-
um norrænum dögum, þeir voru
að spila og ég var að tala um Óðin
og Þór.“
Þeir stoppa stutt hér á landi að
þessu sinni, komu á föstudaginn
og fara á morgun. Þeir hafa starf-
að lengi með þjóðlagahópi í Sví-
þjóð, en eru bara tveir á ferð hér.
„Þeir hafa sérhæft sig sérstak-
lega í tónlist frá upphafi 20. aldar
úr Dölunum. Mörg af þessum lög-
um sem voru vinsæl hér um
miðja öldina eru komin frá Sví-
þjóð.“ ■
Tilraunaeldhúsið gefur fólki kostá að eiga notalegt mánudags-
kvöld með raftónlist og pönnukök-
um í Nýlistasafninu í kvöld.
„Þetta er þriðja kvöldið í nýrri
röð uppákoma sem við köllum
Sæluhús. Þetta verður einu sinni í
mánuði allt árið í Nýló,“ segir Jó-
hann Jóhannsson, sem er þriðj-
ungur Tilraunaeldhússins. Hinir
þriðjungarnir eru Hilmar Jensson
og Kristín Björk.
„Við erum bara nefndin. Við
sjáum um að skipuleggja þessi
kvöld. Reyndar komum við fyrst
saman sem hljómsveit á fyrsta
Sæluhúskvöldinu. En það verður
alltaf eitthvað nýtt á hverju
kvöldi. Mest er þetta tónlist, en
oft þó eitthvað á mörkum tónlistar
og myndlistar.“
Hljómsveitin Sphinx verður í
aðalhlutverkinu í kvöld, ásamt
pönnukökunum. Hana skipa þau
Óli Björn, Áki Ásgeirsson og Hild-
ur Guðnadóttir. „Þau eru að vinna
bæði með lifandi hljóðfæri og raf-
hljóðfæri og leika sér að því að
meðhöndla hljóðfærin í tölvum á
rauntíma. Til dæmis spilar Áki á
trompet og um leið er hann að
vinna með hljóðin úr trompetin-
um í tölvunni. En þetta er ekki
spunatónlist, þetta er allt samið
fyrir fram.“
Einnig kemur fram í kvöld
Elvar Már Kjartansson, betur
þekktur sem Auxpan. Hann verð-
ur með gesti með sér og ætlar að
leika kántrítónlist.
„Hann er nú þekktur fyrir allt
annað en sveitatónlist. Hingað til
hefur hann spilað svokallaða há-
vaðatónlist. En nú sýnir hann á
sér nýja hlið. Hann er mikill
kántríaðdáandi og hefur alltaf
sótt sér innblástur í það.“
Hljómsveitin Kona ætlar svo
að framleiða fimm mínútur af
pönkhávaða og svo lætur MC
Selló líka í sér heyra.
gudsteinn@frettabladid.is
HLJÓMSVEITIN SPHINX
Kemur fram á Sæluhúsi í Nýlistasafninu í kvöld ásamt Auxpan, Konu og MC Selló.
■ TÓNLIST
Raftónlist með
pönnukökum
AUXPAN
Tekur með sér gesti og leikur kántrítónlist í
Nýlistasafninu í kvöld.
SÚFISTINN
Sænsku bræðurnir Jan og Hakan Rying flytja sænska vísnatónlist í Súfistanum í Hafnarfirði
í kvöld. Þeir byrja að spila um níuleytið.
Sænskir vísnabræður
■ TÓNLIST
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU BÆKURNAR Í BÓKAVERSLUN-
UM PENNANS-EYMUNDSSONAR
Thomas W. Phelan
TÖFRAR 1-2-3
Zaihong Shen
FENG SHUI
Dalai Lama
LEIÐIN TIL LÍFSHAMINGJU
Roger Protz
BÓKIN UM BJÓRINN
Ásm. Stefáns. og Guðm. Björnss.
ÞÚ GETUR GRENNST OG...
David J. Pelzer
UMKOMULAUSI DRENGURINN
Arnaldur Indriðason
MÝRIN
ENSK-ÍSLENSK/ÍSLENSK-
ENSK ORÐABÓK
Arnaldur Indriðason
DAUÐARÓSIR
Svavar Sigmundsson
ÍSLENSK SAMHEITAORÐABÓK
Mest seldubækurnar
Töfrar
vinsælastir
BÆKUR Bókin Töfrar eftir Thomas
W. Phelan er vinsælasta bókin í
bókaverslunum Pennans-Eym-
undssonar þessa vikuna. Sem fyrr
eru bækur Arnaldar Indriðasonar
á metsölulista, tvær í þetta skiptið.
Ýmiss konar handbækur eru
fyrirferðarmiklar á listanum eins
og undanfarnar vikur og stöðug
seta bókar Ásmundar Stefáns-
sonar og Guðmundar Björnssonar
um listina að grennast gefur vís-
bendingar um þankagang þjóðar á
tímum ofgnóttar matar.