Fréttablaðið - 02.05.2003, Blaðsíða 34
2. maí 2003 FÖSTUDAGUR36
CONFESSIONS. bi 14 kl. 8 og 10.30
JUST MARRIED kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
ABRAFAX m/ísl.tali kl. 4 og 6 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
THE HUNTED b.i. 16 kl. 8
JOHNNY ENGLISH kl. 4, 6, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20
kl. 6 og 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.50 og 8
THUNDERPANTS kl. 4
DREAMCATCHER kl. 6 og 10.10
kl. 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTT...NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 og 6
RECRUIT bi 16 kl. 8 og 10.30
kl. 10THE PIANIST
kl. 4, 6 og 8JOHNNY ENGLISH
Forsýning kl. 10.10
Leikstjórinn Danny Boyle hóf feril
sinn í kvikmyndum með miklum
krafti með myndunum Shallow Gra-
ve og Trainspotting en tókst ekki að
fylgja þeim eftir sem skyldi með A
Life Less Ordinary og hinni mis-
heppnuðu The Beach. Hann virðist
þó vera kominn í gamla formið aft-
ur og 28 Days Later er einn sá allra
besti hryllingur sem sést hefur í bíó
síðustu misserin. Hún er hreint út
sagt sælgæti fyrir þá sem kunna að
meta mátulega subbulegan hroll
enda vísar hún markvisst í klassísk-
ar dómsdagsmyndir á borð við The
Night of the Living Dead, Mad Max
og The Omega Man.
Banvænn og bráðsmitandi vírus
sleppur út í Bretlandi en hann hefur
þau hvimleiðu áhrif á fólk að það
umbreytist á nokkrum sekúndum í
morðóðar og heiladauðar skepnur
sem eru skemmtilega náskyldar
gömlu uppvakningunum hans
George A. Romero. Þeir örfáu sem
sleppa við sýkingu berjast vonlítilli
baráttu fyrir lífi sínu. Þrátt fyrir
áhersluna á blóðsúthellingar og lík-
amlegan viðbjóð finnur Boyle, rétt
eins og Romero í uppvakninga-
myndunum, samt pláss fyrir tilfinn-
ingar persónanna og vangaveltur
um eðli mannsins sem þarf auðvit-
að, frekar en fyrri daginn, ekkert
endilega á veirusýkingu að halda til
þess að breytast í skepnur og brytja
náungann í spað.
Þórarinn Þórarinsson
28 DAYS LATER
Leikstjóri: Danny Boyle
Aðalhlutverk: Cillian Murphy, Naomie
Harris, Megan Burns, Christopher
Eccleston
Umfjöllunkvikmyndir
Eðalhrollur
TÓNLIST Íslensku hljómsveitirnar
Sigur Rós og Ske verða á meðal
þeirra sem koma fram á Hróars-
kelduhátíðinni í ár. Björk Guð-
mundsdóttir hefur einnig staðfest
framkomu sína og sömuleiðis
plötusnúðahópur frá Gusgus.
Í fyrradag bættist einnig hópur
af erlendum stórsveitum við. Þar
ber hæst Zwan, með Billy Corgan í
fararbroddi, Massive Attack,
Doves og Asian Dub Foundation.
Íslenskir tónlistarmenn hafa
átt auðveldara með að koma sér
inn á Hróarskelduhátíðina síðast-
liðin ár. Nær undantekningarlaust
hafa einhverjir héðan komið fram
á hátíðinni frá 1997. Þar má til
dæmis nefna Unun, Gusgus,
Möggu Stínu, Sigur Rós, Mínus,
Apparat Organ Quartet, múm og
auðvitað Björk.
Rólyndismenn geta svo hrósað
happi yfir því að Bonnie Prince
Billy verður með í ár. Aðrar er-
lendar sveitir sem bæst hafa á
listann síðustu daga eru Yo La
Tengo, Doves og Murder Dolls.
Svo virðist sem umsjónarmenn
tónleikahátíðarinnar ætli að
leggja sérstaka áherslu á hiphop
því Nas, Gang Starr og The
Streets hafa þegar boðað komu
sína. Það hefur verið óskrifuð
hefð fyrir því á Hróarskeldu að
rapparar skrópi á síðustu stundu.
Það var t.d. tilfellið með Wu-Tang
Clan sem átti að koma fram á há-
tíðinni árið 1997.
Hátíðin verður með glæsilegra
móti í ár því áður höfðu Metallica,
Iron Maiden, Beth Gibbons, Blur,
The Cardigans, Chicks on Speed,
Coldplay, The Datsuns, Interpol,
The Kills, The Polyphonic Spree,
Queens of the Stone Age, The
Raveonettes, Soundtrack of Our
Lives og Squarepusher. Dagskrá-
in er þó með engu móti fullskipuð
og vel gæti hugsast að fleiri ís-
lenskar sveitir bætist við áður en
blásið verður til hátíðarhalda.
Hátíðin er árlega sú stærsta
sem haldin er á meginlandi Evr-
ópu og fer hún fram helgina 26. -
29. júní. Þeir miðar sem Ferða-
skrifstofa Stúdenta var með í sölu
eru allir seldir.
biggi@frettabladid.is
Sigur Rós og Ske
á Hróarskeldu
Fjögur íslensk atriði hafa þegar verið tilkynnt á dagskrá Hróarskeldu-
hátíðarinnar í ár. Stórir erlendir listamenn bætast einnig við í hrönnum.
SKE
Hljómsveitin sem áður hét Skárren ekkert gaf út sína fyrstu plötu undir nafninu Ske í
fyrra. Komst inn á dagskrá Hróarskeldu í ár.
Fréttiraf fólki
BURTUR HUGUR - FÆREYJAR KL. 4
BURTUR HUGUR - KÚBA KL. 4
FYRSTA FERÐIN KL. 6
VIÐ BYGGJUM/RUTHIE&CONNIE KL. 8
FAMILY KL. 8
STAR KISS KL. 10
MISSING ALLEN KL. 10
HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍÐ
Söngkonan Anastacia hefurákveðið að leggja sitt fram í
baráttunni gegn brjóstakrabba-
meini. Hún ætlar
að eyða stórum
hluta af sínum
tíma í að hvet-
ja ungar
stúlkur til að
fylgjast vel
með og
fara reglu-
lega í
skoðun.
Eins og
margir
vita skall
hurð
nærri hæl-
um hjá
Anastaciu þeg-
ar hún greind-
ist með brjóstakrabbamein á háu
stigi fyrir nokkrum mánuðum síð-
an. Hún þurfti að gangast undir
sjö klukkustunda skurðaðgerð til
þess að fjarlægja æxli úr brjósti
hennar.
Nýtt lag George Harrisonverður gefið út á smáskífu
þann 12. maí. Lagið heitir „Any
Road“ og verður að finna á
breiðskífunni „Brainwashed“
sem Harrison var að vinna að
þegar hann lést eftir langa bar-
áttu við krabbamein. Félagar
hans og fjölskylda lögðu loka-
hönd á verkið. Þetta verður
fyrsta smáskífa Harrison í 14
ár.
Nýlegar myndir sem teknarvoru við tökur framhalds-
myndar Spider-
Man sýna
leikkonuna
Kirsten Dunst
í brúðarkjól.
Uppi eru því
vangaveltur
um hvort
persóna
hennar
Mary
Jane
Watson
og Peter
Parker
gangi í
það
heilaga
í mynd-
inni.
Þetta ætti ekki að koma aðdáend-
um myndasögublaðanna á óvart
þar sem þau hafa verið gift þar í
um 15 ár. Það er Pulitzer-verð-
launahafinn Michael Chabon sem
skrifar handritið að „The
Amazing Spider-Man“, eins og
framhaldsmyndin kemur til með
að heita. Hún verður frumsýnd á
næsta ári.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
VORSALA
Í DUKA 2-4 MAÍ.
20-40%
AFSLÁTTUR AF
VÖLDUM VÖRUM
MÖRG GÓÐ TILBOÐ
Sérverslun með vandaðar
heimilis- & gjafavörur
Kringlunni
Kringlan 4-12 S: 5331322