Fréttablaðið - 05.05.2003, Page 1

Fréttablaðið - 05.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 21 Leikhús 21 Myndlist 21 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD SJÁVARÚTVEGUR Norðmenn fyrir alþjóða- dómstóla FÓTBOLTI Er að reyna að hætta MÁNUDAGUR 5. maí 2003 – 101. tölublað – 3. árgangur bls. 18 bls. 8 STJÓRNMÁL Opinn stjórnmálafundur á vegum starfsmannafélags Land- helgisgæslunnar verður haldinn í dag. Stjórnmálamenn úr öllum flokkum munu sitja fyrir svörum. Fundurinn, sem hefst klukkan 12.30, verður eingöngu um málefni Gæslunnar og er haldinn í Flug- skýli Landhelgisgæslunnar í Naut- hólsvík. Málefni Land- helgisgæslunnar MENNTAMÁL Foreldraverðlaun Heim- ilis og skóla, landssamtaka for- eldra, verða afhent í áttunda sinn í Hringborðssal Þjóðmenningar- hússins, í dag. Formaður samtak- anna, Jónína Bjartmarz, mun af- henda verðlaunin. Við athöfnina mun Guðni Olgeirsson, deildar- stjóri Grunn- og leikskóladeildar Menntamálaráðuneytis, einnig flytja stutt ávarp. Athöfnin hefst klukkan 16:00. Foreldraverðlaun Heimilis og skóla FYRIRLESTUR Chandra Easton ástr- alskur sjáandi, stjörnuspekingur og fyrirlesari verður með fyrirlest- ur um áhrif sólmyrkvans, sem mun sjást á Íslandi 31. maí næstkom- andi. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði Guðspekisamtakanna að Hverfisgötu 105, 2. hæð og hefst klukkan 20.00. Ástralskur sjáandi REYKJAVÍK Hæg norðaustlæg eða breytileg átt, suðaustan 5-10. Hiti 3 til 7 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-8 Bjartviðri 5 Akureyri 5-8 Léttskýjað 4 Egilsstaðir 5-10 Bjartviðri 3 Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 5 ➜ ➜ ➜ ➜ Guðni Ágústsson skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi Kjósum flokk sem framkvæmir STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V KÖNNUN Tæp 35% kjósenda hafa ekki enn tekið endanlega ákvörðun um hvaða flokk þeir munu kjósa næsta laugardag samkvæmt skoð- anakönnun sem Fréttablaðið gerði á laugardag. Stór hluti þeirra bein- ir augum sínum þó frekar að ein- um flokki en öðrum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir þessar töl- ur nokkuð í samræmi við það sem búast mátti við. „Ég hef í nokkuð mörg ár spurt eftir kosningar hvenær fólk hafi ákveðið sig. Í síðustu tvö skipti hafði yfir helmingur kjósenda hugleitt fyrir kosningar að kjósa annan flokk en það gerði svo á kjörstað.“ Mjög mismunandi er eftir kjör- dæmum hvort fólk hefur tekið endanlega ákvörðun um hvaða flokk það kýs að því er fram kem- ur í könnuninni. Óvissan virðist vera meiri meðal kjósenda á höf- uðborgarsvæðinu en á lands- byggðinni. 31% kjósenda á lands- byggðinni segjast eiga eftir að taka endanlega ákvörðun. 37% kjósenda á höfuðborgarsvæðinu eiga eftir að taka endanlega ákvörðun samkvæmt könnuninni. Ólafur segir að kannanir sínar hafi sýnt að nokkuð stór hópur ákveði sig jafnan í síðustu vikunni fyrir kosningar, og nokkuð stór hópur ákveði sig ekki fyrr en á kjördag. Hann segir líka að á síðustu ára- tugum hafi æ færri kjósendur litið á sig sem dygga stuðningsmenn ákveðins flokks. „Árið 1980 voru það tæp fimm- tíu prósent, en árið 1999 var þessi hópur kominn niður í tæp þrjátíu prósent. Svo hef ég líka spurt í framhaldi af þessu hvort menn telji sig standa nær einhverjum einum flokki en öðrum. Þeir sem svöruðu báðum þessum spurning- um neitandi, fólk sem ég kalla flokksleysingja, voru innan við 20 prósent árið 1983 en tæp 30 pró- sent árið 1999.“ Ólafur segir þessa þróun óneit- anlega bjóða upp á meiri hreyfan- leika og sveigjanleika. „En jafn- framt gerir þetta áhættu flokk- anna meiri.“ Samkvæmt þessu er því enn til mikils að vinna fyrir flokkana í kosningabaráttunni síðustu dag- ana fyrir kosningar. Viku fyrir kosningar hefur einn af hverjum þremur kjósendum ekki enn tekið endanlega ákvörðun um hvaða flokk hann kýs. Stór hluti þeirra hefur þó grófa hugmynd um það. gudsteinn@frettabladid.is brynjolfur@frettabladid.is sjá bls. 2 Þriðjungur á eftir að ákveða sig STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna, seg- ir að með því að „stjórnvöld taki ákvörðun ofan frá“ um að byggja álver skerði þau svigrúm atvinnu- lífsins. „Slíkar ákvarðanir binda vinnu- afl og svigrúm í atvinnulífinu. Það eru ekki frumkvöðlar úti í atvinnu- lífinu sem líta eftir tækifærum á sínum eigin forsendum,“ sagði Steingrímur á vinnustaðafundi sem Vinstri grænir héldu á föstu- dag með starfsmönnum skipa- smíðastöðvarinnar Óseyjar í Hafn- arfirði. „Er það ekki þannig að það er hlutverk stjórnvalda að skapa skil- yrði og undirstöður en ekki ákveða miðstýrt nákvæmlega hvers konar atvinnulíf byggist á þeim grunni? Það var það sem Stalín var að gera. Hann sagði við menn í einu byggð- arlagi: Þið skuluð framleiða drátt- arvélar og þið framleiðið sokka. Hvernig endaði það? Svoleiðis hugsun ofan frá endar með ósköp- um. Þessi þungaiðnaðarárátta hér er alveg eins. Það er verið að taka miðstýrðar ákvarðanir um að þvin- ga atvinnulífið í einn tiltekinn far- veg,“ sagði Steingrímur. Sjá einnig bls. 16 - 17 Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna á framboðsfundi: Varar við stalínisma AFLINN SKOLAÐUR VIÐ RÁÐHÚSIÐ Þessir krakkar héldu niður á höfn í Reykjavík í gær og veiddu þar nokkra fiska. Á heimleiðinni var komið við hjá Ráðhúsinu til þess að skola aflann. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SUMAR OG SÓL Veðrið hefur leikið við landsmenn á suð- vesturhorninu. Veðurstofan gerir ráð fyrir hlýnandi veðri í vikunni. Veðurspá vikunnar: Hlýnandi veður VEÐUR „Það er útlit fyrir hlýnandi veður á mánudag sem byrjar á vestanverðu landinu. Seinnipart þriðjudags má búast við að hiti verði kominn um allt land, frá þremur og upp í tíu gráður,“ seg- ir Helga Ívarsdóttir, veðurfræð- ingur á Veðurstofu Íslands. Á þriðjudag er gert ráð fyrir suð-austan átt 8-15 m/s og rign- ingu. Á miðvikudag verður suð- austlæg átt með skúrum sunnan til en úrkomulítið fyrir norðan. Á fimmtudag snýr hann í norðaust- ur með rigningu, einkum á Aust- urlandi. Norðlæg átt verður á föstudag og laugardag með rign- ingu en gæti farið yfir í slyddu Norðanlands. Því má búast við því að Norðlendingar þurfi á hlífðarfatnaði að halda þegar gengið verður til kosninga. „Það lítur ágætlega út hérna sunnanlands á kjördag, með hægum vindi og úrkomulítið en væta verður fyrir norðan,“ segir Helga Ívarsdóttir, veður- fræðingur. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T + +

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.