Fréttablaðið - 09.05.2003, Side 4
4 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Ætlar þú á kosningavöku einhvers
flokks á kosninganótt?
Spurning dagsins í dag:
Hvenær mótmæltir þú
einhverju síðast?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
56,2%
21,4%
Nei
22,4%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
- 2 5 Á R A O G T R AU S T S I N S V E R Ð
Stangarhyl 3 · 110 Reykjavík · S: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri sími: 466 1600
SUÐVESTURKJÖRDÆMI
Könnun Kosningar
B 14,2% 16,0%
D 39,2% 44,7%
F 7,7% 4,6%
N 0,7% -
S 31,5% 28,1%
U 6,4% 5,9%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Árni M. Mathiesen D
2. Guðmundur Árni Stefánsson S
3. Gunnar I. Birgisson D
4. Rannveig Guðmundsdóttir S
5. Siv Friðleifsdóttir B
6. Sigríður Anna Þórðardóttir D
7. Þórunn Sveinbjarnardóttir S
8. Þorgerður K. Gunnarsdóttir D
9. Katrín Júlíusdóttir S
Næstir inn
Bjarni Benediktsson D
Páll Magnússon B
Uppbótarsæti
Bjarni Benediktsson D
Jóhanna B. Magnúsdóttir U
REYKJAVÍK NORÐUR
Könnun Kosningar
B 9,7% 10,4%
D 36,6% 45,7%
F 6,9% 4,2%
N 0,6% -
S 40,1% 29,0%
U 6,0% 9,4%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Össur Skarphéðinsson S
2. Davíð Oddsson D
3. Bryndís Hlöðversdóttir S
4. Björn Bjarnason D
5. Guðrún Ögmundsdóttir S
6. Guðlaugur Þór Þórðarson D
7. Helgi Hjörvar S
8. Halldór Ásgrímsson B
9. Sigurður Kári Kristjánsson D
Næstir inn
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir S
Ásta Möller D
Uppbótarsæti
Ásta Möller D
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir S
REYKJAVÍK SUÐUR
Könnun Kosningar
B 11,7% 10,4%
D 35,0% 45,7%
F 6,8% 4,2%
N 1,2% -
S 36,9% 29,0%
U 8,5% 9,4%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Jóhanna Sigurðardóttir S
2. Geir H. Haarde D
3. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir S
4. Pétur H. Blöndal D
5. Mörður Árnason S
6. Jónína Bjartmarz B
7. Sólveig Pétursdóttir D
8. Ágúst Ólafur Ágústsson S
9. Guðmundur Hallvarðsson D
Næstir inn
Einar Karl Haraldsson S
Ögmundur Jónasson U
Uppbótarsæti
Ögmundur Jónasson U
Margrét K. Sverrisdóttir F
KÖNNUN Mikil spenna ríkir um
hvaða flokkur verði stærstur í
mörgum kjördæmum. Í Norðvest-
urkjördæmi, þar sem baráttan er
tvísýnust, munar ekki nema pró-
sentustigi á þremur stærstu flokk-
unum.
Vinstri-grænir hafa sérstöðu
meðal flokkanna að því leyti að
fjórir af fimm þingmönnum flokks-
ins eftir kosningar verða uppbótar-
menn gangi könnun blaðsins eftir.
Aðeins formaður flokksins verður
kjördæmakjörinn þingmaður.
Framsóknarflokkurinn er á hinum
endanum, allir ellefu þingmenn
flokksins verða kjördæmakjörnir.
Það munar ekki miklu á fylgi
Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokks í Reykjavík suður. Sjálf-
stæðisflokkur tapar tæpum ellefu
prósentustigum frá síðustu kosn-
ingum sem færast að mestu yfir á
Samfylkinguna. Framsóknar-
flokkur styrkir stöðu sína frá síð-
ustu kosningum þó viðbótin sé
innan skekkjumarka.
Síðasta uppbótarsætið sem
verður úthlutað á landinu öllu fell-
ur í skaut Samfylkingar í Reykja-
vík norður. Samkvæmt því næði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir inn á
þing sem 11. þingmaður kjör-
dæmisins. Fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins félli Samfylkingu
einnig í vil, Össur Skarphéðinsson
slægi Davíð Oddssyni við.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
yfirburði í kraganum þrátt fyrir
að tapa nokkru fylgi milli kosn-
inga. Framsóknarflokkur tapar
einnig nokkru fylgi. Frálslyndi
flokkurinn nær ekki inn þing-
manni þrátt fyrir að vera nokkuð
stærri en Vinstri-grænir sem fá
seinni uppbótarþingmanninn í
kjördæminu.
Það gæti vart munað minna á
þremur stærstu flokkunum í Norð-
vesturkjördæmi. Ekki munar nema
rétt rúmlega prósenti á Framsókn,
Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu.
Það er því útlit fyrir spennandi
kosninganótt áður en í ljós kemur
hvaða flokkur verður stærstur í
kjördæminu. Þetta er sterkasta vígi
Frjálslynda flokksins.
Framsóknarflokkurinn er
sem fyrr stærsti flokkurinn á
svæðinu sem myndar Norðaust-
urkjördæmi. Frjálslyndi flokk-
urinn er hástökkvarinn í kjör-
dæminu. Flokkurinn fimmfaldar
fylgi sitt í kjördæminu miðað
við síðustu kosningar og nær inn
kjördæmakjörnum þingmanni í
fyrsta skipti.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar
um það bil fjórða hverju atkvæði
sínu ef miðað er við síðustu kosn-
ingar. Það þýðir að Samfylkingin
verður stærsti flokkur kjördæm-
isins. Munurinn er þó engan veg-
inn óyfirstíganlegur. Vinstri-
grænir ná inn manni en T-listi
ekki. Framsókn tapar einum þing-
manni af þremur.
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi:
Vildu láta breyta frétt
KOSNINGAR „Sjálfstæðismenn
hringdu og voru ósáttir við frétt-
ina sem birtist í blaðinu og er inni
á vefnum okkar,“ segir Páll Ket-
ilsson, ritstjóri Víkurfrétta. Páll
segist hafa tekið fréttina út af
vefnum í smá tíma á miðvikudag,
þegar kvartað var sem hæst.
Kristján Pálsson, á T-lista, hef-
ur sakað Sjálfstæðismenn um að
leggja stein í götu sína og jafnvel
að hafa njósnað um heimili sitt.
Þessu hafna Sjálfstæðismenn al-
farið.
„Ég vildi vera viss um að ég
væri ekki að gera einhverja vit-
leysu. Það er svo mikið fjör á
þessum lokadögum í pólitík-
inni.“
Páll segir að þeir hefðu beðið
alla leiðtogana hér í kjördæm-
inu að skrifa dagbók, sem þeir
allir gerðu. „Við tókum ummæli
frá Kristjáni, þar sem hann
ásakar Sjálfstæðismenn um
njósnir og við settum það í
frétt. Ég get ekki neitað því að
þeir ræddu það hvort hægt væri
að taka þetta úr blaðinu. Það
kom ekki til greina og þar fyrir
utan var blaðið komið í prentun.
Kristján skrifaði þetta og hann
verður að standa við það,“ segir
Páll Ketilsson. ■
Forstjóri ÚA:
Ekki lögbrot
SJÁVARÚTVEGUR „Ég átti aldrei von á
því að ég væri að brjóta lög. En ég
fagna áliti Sigurðar Líndal sem
staðfestir að svo hafi ekki verið,“
segir Guðbrandur Sigurðsson, for-
stjóri Brims. Miðstjórn ASÍ mót-
mælti bréfi sem Guðbrandur
skrifaði til starfsmanna sinna og
taldi hann reyna að hafa áhrif á
stjórnmálaskoðanir starfsmanna
sinna.
Guðbrandur segir að hann hafi
ekki talað fyrir neinum stjórn-
málaflokki heldur um það hvaða
áhrif fyrningarleiðin myndi hafa á
fyrirtækið. „Það sem ég var að
segi í bréfinu finnst mér liggja
ljóst fyrir hjá öllum þeim sem
starfa innan sjávarútvegsins,“
segir Guðbrandur. ■
KRISTJÁN PÁLSSON
Sjálfstæðismenn vildu að Víkurfréttir tækju
ummæli hans úr frétt í blaðinu.
Yfirlögfræðingur SA:
Furðuleg
afstaða
hjá ASÍ
YFIRLÝSINGAR Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir, yfirlögfræðingur
Samtaka atvinnulífsins, lýsir
furðu sinni á hörðum viðbrögð-
um Alþýðusambands Íslands við
ummælum Guðbrands Sigurðs-
sonar, forstjóra Brims, um að
breytingar á fiskveiðistjórnun
geti stefnt afkomu fyrirtækisins
í hættu.
Í leiðara í fréttabréfi Sam-
taka atvinnulífsins segir Hrafn-
hildur afstöðu ASÍ ganga þvert
á baráttu launþegasamtaka um
að starfsmenn fái auknar upp-
lýsingar um afkomu fyrirtækja.
Að auki verji stjórnarskráin rétt
forsvarsmanna fyrirtækja, eins
og annarra, til að tjá skoðanir
sínar. ■
EKKI OPIÐ TIL MORGUNS
Borgarráð hefur hafnað beiðni
veitingastaðarins Bóhem á
Grensásvegi um að fá að veita
áfengi til klukkan hálfsex á
morgnana. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks sátu hjá og sögðust telja
rétt að reglur um veitingatíma og
staðsetningu næturklúbba verði
endurskoðaðar.
■ Reykjavík
Um könnunina
3.000 einstaklingar voru spurðir: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til
þingkosninga nú? Þeir sem ekki svöruðu
voru spurðir: Hvaða lista er líklegast að
þú myndir kjósa ef gengið yrði til þing-
kosninga nú? Svarhlutfall var 75,1%.
Fylgisskipting í síðustu kosningum eru
reiknuð yfir á ný kjördæmi með því að
deila henni eftir íbúaskiptingu.
Stjórnin heldur eins
manns meirihluta
Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkurinn í fjórum kjördæmum samkvæmt könnun
Fréttablaðsins. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru stærstir í einu kjördæmi hvor.
Í sumum kjördæmum má vart á milli sjá hvaða flokkur er stærstur.
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
Könnun Kosningar
B 25,4% 27,7%
D 24,6% 32,0%
F 15,7% 6,3%
N 0,7% -
S 25,7% 25,1%
U 7,5% 8,6%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Jóhann Ársælsson S
2. Magnús Stefánsson B
3. Sturla Böðvarsson D
4. Guðjón A. Kristjánsson F
5. Anna Kristín Gunnarsdóttir S
6. Kristinn H. Gunnarsson B
7. Einar K. Guðfinnsson D
8. Gísli S. Einarsson S
9. Herdís Á. Sæmundardóttir B
Næstir inn
Einar Oddur Kristjánsson D
Sigurjón Þórðarson F
Uppbótarsæti
Sigurjón Þórðarson F
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
Könnun Kosningar
B 29,0% 32,1%
D 22,4% 28,8%
F 10,3% 2,2%
N 0,4% -
S 23,2% 18,2%
U 14,7% 18,6%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Valgerður Sverrisdóttir B
2. Kristján L. Möller S
3. Halldór Blöndal D
4. Steingrímur J. Sigfússon U
5. Jón Kristjánsson B
6. Einar Már Sigurðarson S
7. Tómas Ingi Olrich D
8. Brynjar Sindri Sigurðsson F
9. Dagný Jónsdóttir B
Næstir inn
Lára Stefánsdóttir S
Arnbjörg Sveinsdóttir D
Uppbótarsæti
Þuríður Backman U
SUÐURKJÖRDÆMI
Könnun Kosningar
B 20,6% 23,6%
D 28,5% 39,7%
F 10,7% 3,6%
N 0,0% -
S 31,3% 28,5%
T 2,4% -
U 6,5% 4,1%
Kjördæmiskjörnir þingmenn
1. Margrét Frímannsdóttir S
2. Árni Ragnar Árnason D
3. Guðni Ágústsson B
4. Lúðvík Bergvinsson S
5. Drífa Hjartardóttir D
6. Magnús Þór Hafsteinsson F
7. Björgvin G. Sigurðsson S
8. Hjálmar Árnason B
9. Guðjón Hjörleifsson D
Næstir inn
Jón Gunnarsson S
Kjartan Ólafsson D
Uppbótarsæti
Kolbeinn Óttarsson Proppé U