Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 10
10 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR FJÖLDI GJALÞROTA FYRIR- TÆKJA Á ÍSLANDI Gjaldþrot 1996 292 1997 241 1998 233 1999 245 2000 296 Heimild: Hagstofa Íslands ATVINNUMÁL Það hefur vakið at- hygli að framtíð Varnarliðsins hefur verið í lausu lofti í heilt ár, eða síðan bókun um útfærslu á frekari veru hermanna hér á landi rann út, og enn þann dag í dag eru allar viðræður um málið „óform- legar.“ „Menn hafa verið að draga það að ganga frá þessu, á báða vegu,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. „Íslendingar hafa viljað vera öruggir um að við næð- um fram ákveðnum þáttum í samningnum og öðruvísi ekki vilj- að ganga að borðinu. Hins vegar hafa Bandaríkjamenn verið upp- teknir af öðru.“ Árni bætti við að á meðan ekki sé gerð ný bókun gildi sú bókun sem fyrir er. Meðal þeirra atriða sem málið strandar á er sá vilji Íslendinga að hér verði áfram loftvarnir í sama formi og verið hefur. Bandaríkjamenn vilja meina að engin þörf sé lengur fyrir loftvarnir af þeim toga. Þar er ekki eingöngu um að ræða eftirlit með lofthelgi landsins, heldur einnig umsjón með flugbrautum á Keflavíkurflugvelli, sem og smærri en mikilvæg atriði eins og björgunarsveit hersins, sem gegnum tíðina hefur komið mörgum Íslendingnum til hjálpar. Suðurnesjamenn standa nú frammi fyrir þeirri staðreynd að ný ríkisstjórn [Samfylkingar] kann að grípa til þeirra aðgerða að Varnarliðið taki saman og hverfi úr landi,“ sagði Hjálmar Árnason, alþingismaður og frambjóðandi fyrir Framsóknarflokkinn í Suður- kjördæmi og vísaði í orð Ingibjarg- ar Sólrúnar, Þórunnar Sveinsdótt- ur og Marðar Árnasonar frá Sam- fylkingunni um að eitt af fyrstu verkum Samfylkingarinnar, yrði að strika sig út af lista yfir þá sem lýsa stuðningi við stríðið í Írak. „Þetta er algjör misskilningur hjá Hjálmari,“ sagði Mörður Árnason, frambjóðandi Samfylk- ingar. „Við tökum á þessu eins og hverju öðru verkefni, án kreddu. Við þurfum að skoða þessi mál með hagsmuni beggja í huga, varnar- og öryggishagsmuni Ís- lands annars vegar og hins vegar ætlaðar þarfir bandamanna okkar, og ná niðurstöðu á þeim grunni.“ Heyrst hefur að Davíð Oddson forsætisráðherra hafi átt fund ný- lega með bandaríska sendiherran- um um þessi mál en talsmaður forsætisráðherra harðneitar því. Ljóst má vera að þetta er mikið hagsmunamál fyrir stóran hóp Ís- lendinga og því áríðandi fyrir ráðamenn næstu ríkisstjórnar, hverjir sem þeir verða, að koma þessu mikilvæga máli í höfn sem allra fyrst. albert@frettabladid.is LEIFSSTÖÐ Íbúar í Reykjanesbæ eru orðnir uggandi um framhaldið. 1.700 störf í uppnámi Framtíð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli er mikið hitamál fyrir Suður- nesjabúa sem og landsmenn alla. Vera hersins hér á landi skapar miklar tekjur fyrir ríkissjóð og veitir, beint eða óbeint, 1.700 manns vinnu. FATLAÐIR Arnþór Helgason, fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, segir að um það bil 500 séu á biðlista eftir húsnæði hjá Hússjóði Öryrkjabandalagsins en í blaðinu í gær var sagt frá 160 þroskahömluðum á biðlista eftir búsetu. Við lestur fréttarinnar mátti skilja svo að um væri að ræða fatlaða í heild. „Langflestir þeirra sem bíða og eru í hvað mestri neyð eiga við geðrænar raskanir að stríða. Æ fleiri öryrkjar leita til hússjóðs- ins enda vísa sveitarfélögin fötl- uðum íbúum sínum unnvörpum þangað,“ segir Arnþór. Að mati Arnþórs má rekja rót vandans til þess að ríki og sveit- arfélög hafa ekki sinnt þessum hópi sem skyldi. Hann segir að mestum hluta tekna Öryrkja- bandalagsins af Lottó hafi verið varið til bygginga eða kaupa á húsnæði fyrir fatlaða víðs vegar um landið. Sum sveitarfélög hafi jafnvel ekki uppi nein áform um að fjárfesta í leiguhúsnæði fyrir þennan hóp en reiði sig á fyrir- greiðslu hússjóðsins. ■ ÖRYRKJABANDALAGIÐ Ríki og sveitarfélög standa sig ekki í stykkinu og vísa fötluðum íbúum á Öryrkjabandalagið, að sögn Arnþórs Helgasonar. Arnþór Helgason hjá Öryrkjabandalaginu: Fimm hundruð öryrkjar bíða Svona erum við

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.